Morgunblaðið - 13.01.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Helgi Björg-
vinsson í Fram
HANDKNATTLEIKUR
íslenskt kvöld
hjáEssen
^FUSEM Essen leikur síðari
■ leikinn í Evrópukeppninni
gegn Val á laugardaginn. Þýska
liðið kemur til landsins á fostu-
daginn, leikur á laugardaginn og
um kvöldið halda þeir mikla veislu
fyrir leikmenn sína og stuðnings-
menn, en hingað kemur 130
manna hópur stuðningsmanna.
„Þeir hjá Essen höfðu samband
og báðu mig um að útvega ís-
lenskan mat fyrir 150 manns og
sal þar sem fólkið gæti komið
saman í, hljómsveit sem leikur
þjóðlög og einhveija sem gætu
sýnt þjóðdansa. Þeir ætla að hafa
íslenskt kvöld,“ sagði Alfreð
Gíslason við Morgunblaðið í gær.
Alfreð lék um árabil með Essen
og brást skjótt við.
„Ég snéri mér auðvitað til
KR-ingsins Jóhannesar Stefáns-
sonar og hann ætiar að sjá um
matinn og salinn. Það er verið að
vinna f því að fá þjóðdansahljóm-
sveit og dansara. Þó svo þetta
verði íslenskt kvöld þá ætlum við
ekki að vera með þorramat," sagði
Alfreð.
SKIÐI
Marc Girardelli
vann 40. sigur
sinn í heims-
bikarkeppninni
ÚRSLIT
Skíði
Toyota-mót SR
Karlar 50 ára og eldri: mín.
Matthías Sveinsson, SR............11.52
Sveinn Kristinsson, SR............14.07
Karlar 35 - 49 ára:
ValurValsson, Hrönn................9.38
Trausti Sveinbjömsson, Hrönn......12.03
Karlar 20 - 34 ára:
Heimir Hansson, ísafirði...........9,27
Óskar Jakobsson, SR...............10,20
19 ára og yngri:
ÓlafurTraustason, Hrönn...........13,02
Konur 40 ára og eldri (1 km):
Jóhanna Sveinsdóttir...............9,35
Konur 20 ára og yngri:
Guðný Hansen, Ármanni..............7,28
Heimsbikarinn
St. Anton, Austurríki:
■ Risasvig karla:
Marc Girardelli (Lúxemborg).....1:28.53
Jan EinarThorsen (Noregi)......1:28.82
Guenther Mader (Austurríki)....1:29.07
Atle Skaardal (Noregi)..........1:29.36 •
Marco Hangl (Sviss)............1:29.52
Luigi Colturi (Italíu).........1:29.65
Adrien Duvillard (Frakkl.).....1:29.76
Luc Alphand (Frakkl.)..........1:29.79
Rainer Salzgeber (Austurríki)..1:29.82
Stefan Eberharter (Austurriki).1:29.95
Staðan stig
1. Girardelli....................713
2. Alberto Tomba (Italíu)........472
3. Aamodt (Noregi)................449
4. Heinzer.......................336
5. Jan Einar Thorsen (Noregi)....329
Körfuknattleikur
1. deild karla:
Reynir - Þór.....................100:97
• BLeikurinn fór fram í Njarðvík á sunnu-
dagskvöld vegna þess að rafmagnslaust var
í Sandgerði. Mo Toomer var stigahæstur
Reynismanna með 51 stig, en Bjöm Sveins-
son var stigahæstur Þórsara með 31 stig.
NBA-deildin
Leikir á mánudag:
Detroit - San Antonio.... 91:109
Dallas - Charlotte.......113:132
Handknattleikur
2. deild karla:
Ármann - HKN...............18:23
Ikvöld
> Handknattleikur
1. deild karla:
Vestm.: ÍBV - Selfoss........kl. 20
Valsheimili: Valur-HK........kl. 20
Strandgata: Haukar-Þór.......kl. 20
Garðabær: Stjaman-FH.........kl. 20
Víkin: Víkingur-Fram.........kl. 20
KA-húsið: KA-ÍR............kl. 20.30
1. deiid kvenna:
Víkin: Víkingur-Valur........kl. 18
2. deild karla:
Digranes: UBK-Ögri...........kl. 20
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild
Keflavik: ÍBK - Tindastóll...kl. 20
iLeikurinn átti að vera annað kvöld
skv. mótaskrá, en Sauðkrækingar fengu
honum flýtt um einn dag. Þeir léku í
Njarðvík í fyrrakvöld og hættu við að
aka norður í gær vegna veðurs.
Helgi Björgvinsson, vamarmað-
ur í Víkingi, skrifaði í gær-
kvöldi undir félagaskipti yfír í
Fram.
Helgi hefur verið í herbúðum
Víkings þijú síðustu keppnistímabil
og varð meðal annars íslandsmeist-
ari með félaginu í hitteðfyrra, en
áður var hann hjá Fram. Þó félag-
skiptin hafí enn ekki verið undirrit-
uð af Víkingi, var í gærkvöldi ekki
talið annað að það yrði gert orða-
laust, þar sem helgi er ekki samn-
ingsbundinn félaginu.
Marc Girardelli, Austurríkis-
maðurinn sem keppir fyrir
Lúxemborg, jók enn forskot sitt í
heimsbikarnum er hann sigraði í
risasvigi i St. Anton í Austurríki í
gær. Þetta var fjórði heimsbikarsig-
ur hans á tímabilinu og 40. frá
upphafí. Hann er nú búinn að jafna
Pirmin Zrbriggen, sem sigraði á
40 heimsbikarmótum síðasta ára-
tug. Girardelli á hins vegar langan
veg í að slá met Ingemars Sten-
marks, sem sigraði alls á 86 heims-
bikarmótum á ferlinum og það met
á sjálfsagt eftir að standa um ókom-
in ár.
Girardelli fagnar sigrum sínum
alltaf eins og það sé hans fyrsti.
„Auðvitað eru það alltaf ákveðin
tímamót að sigra og því ber að
fagna, en ég vona að þetta hafí
ekki verið í síðasta skipti sem ég
sigra. Það er frábært að vera kom-
inn í svona góða æfíngu strax í
janúar," sagði Girardelli.
Norðamaðurinn Jan Einar Thors-
en varð annar í gær, 0,29 sek. á
eftir Girardelli. Giinther Mader, sem
varð þriðji í bruninu í Garmisch á
sunnudag, varð aftur þriðji í gær.
Girardelli hefur nú 241 stigs for-
skot á ítalann Alberto Tomba í
heildarstigakeppninni.
I HvöM kl. 20.001 Asgarði
GarOabæ
SJOVAarTALMENNAR
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS GARÐABÆ
GOLF
Úlfar og Karen best
Morgunblaðið/Óskar Sæmundsson
Bestu kylflngarnir. Úlfar Jónsson og Karen Sævarsdóttir eru bestu kylfing-
ar landsins. A milli þeirra er Birgir Leifur Hafsteinsson sá efnilegasti.
KYLFINGAR í Félagi meistara-
flokkskylfinga á íslandi (FMÍ)
héldu lokahóf sitt um helgina
og þar kusu kylfingar bestu
kylfinga ársins og þann efnileg-
asta.
ÆT
Ufar Jónsson úr Keili var kjörinn
besti kylfíngurinn í karlaflokki
og Karen Sævarsdóttir úr GS í
kvennaflokki. Þau tvö voru einnig
stigahæstu einstaklingarnir eftir
sumarið. Efnilegasti kylfíngur ársins
var kjörinn Birgir Leifur Hafsteins-
son frá Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi, hlaut 97% atkvæða.
Júlíusarbikarinn, sem er veittur í
minningu Júlíusar Júlíusarsonar úr
Keili, fékk Guðmundur Sveinbjöms-
son úr Keili fyrir lægsta meðalskor
úr mótum sumarsins. Hann lék á
75,88 höggum að meðaltali en Sig-
urður Hafsteinsson úr GR varð annar
með 76,57 högg. Þeir tveir skám sig
nokkuð úr. Stjóm FMÍ verðlaunuðu
„björtustu framtíðina" og er það Þor-
kell Snorri Sigurðsson úr GR en hann
lék á 76,16 höggum að meðaltali í
* sumar.
Sigurður Hafsteinsson í GR er
„beinasti kylfingur" landsins því hann
sigraði í keppninni um að hafa bolt-
ann á braut eftir upphafshögg. Bolti
Sigurðar var á braut í 74,1% tilfella
og er þetta fjórða árið sem Sigurður
er með beinustu höggin. Stelpumar
em hins vegar beinni, „enda slá þær
ekki eins langt“, eins og Ragnar
Ólafsson formaður FMÍ orðaði það.
Þórdís Geirsdóttir úr Keili hitti braut-
ina í 75,6% tilfella og sigraði.
Úlfar Jónsson var oftast á „regul-
ation“ eða í 61,3% tilvika og hann
fékk einnig flesta fugla í sumar, 2,66
að meðaltali á hring. Sveinn Sigur-
bergsson úr Keili skaust hins vegar
upp fyrir Úlfar f púttunum, notaði
29,4 pútt að meðaltali á hring en
Úlfar 29,5._
Ragnar Ólafsson var kjörinn besti
félaginn úr hópi karlanna en Rang-
hildur Sigurðardóttir úr hópi kvenna.
Þau em bæði í GR. Kylfingar veittu
einnig verðlaun fyrir ýmislegt annað
en „góðan“ árangur og var Anna
Jódís Sigurbergsdóttir úr Keili til
dæmis útnefnd „Hriðjuverkameist-
ari“ en hún fékk 11 sprengjur á tíu
hringjum í sumar.