Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 17
. MORGUNBLADID FÖS;rUljA,GVK ?9, JANÚAR 4993 íiál Blóðskilunardeild Landspítalans eftir Þorgerði Ragnarsdóttur Eitt sinn þfegar Pétur mætti í gervinýrað hafði hann meðferðis stóra köku sem hann deildi með starfsfólki og samsjúklingum. Það er ekki venja að fólk bjóði köku að tilefnislausu svo hann var spurður hvort hann ætti afmæli. Nei, Pétur átti ekki afmæli. Hann var bara að mæta í gervinýrað í þrjúhundruð- asta skiptið. Starfsfólk og samsjúkl- ingar sem sátu og gæddu sér á kökunni urðu hissa. Varla var ástæða til að halda upp á það að hafa þijúhundruð sinnum þurft að fara í gervinýrað. „Jú,“ sagði Pét- ur, „Því ef gervinýrans nyti ekki við væri ég löngu dauður." Hið svonefnda gervinýra, sem er í rauninni vél, stundum kölluð nýrnavél, er til húsa á blóðskilunar- deild Landspítalans. Sú deild verður 25 ára í haust og er hin eina sinn- ar tegundar á íslandi. Reyndar er ekki bara ein nýrnavél á deildinni heldur margar sömu gerðar. Með einni vél væri nefnilega ekki hægt að sinna meðferð 17 sjúklinga þrisv- ar sinnum í viku. Gervinýra sinnir starfi bilaðra nýrna. Það sem gerist í því er kall- að blóðskilun og af því dregur deild- in nafn sitt. Úrgangsefnum og vatni sem heilbrigð nýru sjá um að losa líkamann við er hjá nýranbiluðum skilað út um hálfgegndræpa himnu í gervinýranu. Blóð er dregið út úr líkamanum, því er dælt í gégnum svonefnda skilu með hálf- gegndræpri himnu og síðan rennt inn í líkamann aftur. Pétur hafði því nokkuð til síns máls. Fyrir tíma gervinýrans dó nýrnabilað fólk vegna þess að úrgangsefni og vatn söfnuðust fyrir í líkamanum. Til er að fólk geti haft nýrnavél heima hjá sér með góðri aðstoð vanda- manna. Bæði sjúklingar og að- standendur þeirra þurfa mikla þjálf- un og stuðning til að geta séð um skilun á þennan hátt. I tveimur til- fellum hefur það verið mögulegt á íslandi. Þannig er ein nýrnavél í heimahúsi á Akureyri og önnur í Vestmannaeyjum. Það er til önnur aðferð til að skila úrgangsefnum út þegar nýrn- anna nýtur ekki við. Sú aðferð kall- ast kviðskilun. Þó til séu kviðskilun- arvélar er ekki nauðsynlegt að nota vélar við þessa skilunaraðferð. Kviðskilun byggist á því að sérstök- um vökva er rennt inn í kviðarholið um granna slöngu. Inni í kviðnum virkar lífhimnan eins og skilan í nýrnavélinni. Úrgangsefnum úr blóðinu er skilað um lífhimnuna út í kviðskilunarvökvann. Eftir nokkra stund er vökvanum hleypt út úr kviðarholinu aftur. Kviðskilun er ýmist hægt að framkvæma fjórum sinnum á dag eða með aðstoð vélar að nóttu til meðan fólk sefur. Kviðskilunarsjúklingar á íslandi eru sex um þessar mundir. Slíka meðferð annast fólk sjálft heima hjá sér eftir að hafa gengist undir sérstaka þjálfun til þess arna. Þessi aðferð getur til dæmis hentað þeim sem búa úti á landi betur en blóð- skilun. Sjúklingar í kviðskilun þurfa, ef vel gengur, aðeins að koma í eftirlit til Reykjavíkur á fjög- urra til sex vikna fresti. Þjálfun fyrir heimaskilun, hvort sem um er að ræða blóð- eða kvið- skilun, krefst mikils af starfsfólki deildarinnar. Sjúklingar og að- standendur þurfa að vera vel að sér um sjúkdóminn, meðferðina og tæknina sem henni fylgir. Á deild- inni kennir starfsfólkið sjúklingnum aðferðir og handtök en heima þarf að tryggja að aðstæður séu viðun- andi og að sjúklingurinn sé öruggur með að athafna sig þar upp á eigin spýtur. Auk blóðskilunar og kviðskilunar eru framkvæmd blóðvökvaskipti (plasmapheresis) á blóðskilunar- deiid Landspítalans. í vissum sjúk- dómum hlaðast upp óeðlileg prótein í blóðvökva. Þá getur þurft að skipta um blóðvökva. Blóðskilunar- deild Landspítalans er einnig eini staðurinn á landinu þar sem blóð- vökvaskipti eru gerð. Flestir nýrnasjúklingar lifa í von um að fá ígrætt nýra. Nýrna- ígræðsla er besta meðferð sem nýrnasjúklingum býðst. Sumir eru svo heppnir að fá ígrætt nýra áður en þeir þurfa að hefja skilunarmeð- ferð. Aðrir þurfa að bíða lengi, jafn- vel í mörg ár. Skilunarmeðferðin brúar fyrir þá biðtímann. Þótt nýrun séu ónýt gerir skilunarmeðferð þeim kleift að lifa þar til nothæft nýra býðst. Á blóðskilunardeild Landspítal- ans hangir mynd eftir listamann sem eitt sinn var í blóðskilun en fékk síðar ígrætt nýra. Myndin sýn- ir sólarupprás. Þannig reyndi lista- maðurinn að tjá tilfinningarnar sem fylgdu því að fá ígrætt nýra eftir að hafa verið háður nýrnavélum. Honum fannst hann eygja sólarupp- rás eftir dimma nótt. Blóðskilunardeild hefur lengst af búið við þröngan húsakost. Nú standa yfir töluverðar breytingar á húsnæðinu, sem eru til mikilla bóta. Þó er húsrými enn ekki nóg, t.d. vantar geymslur og brýn þörf er á að endurnýja vélakostinn. í Félagi nýrnasjúkra ' sem var stofnað árið 1986 starfa nýrna- sjúklingar og áhugafólk um málefni þeirra. Félagið hefur til dæmis gef- ið vélahluta, rafknúna stóla og önn- ur tæki á blóðskilunardeild. Auk þess hefur það styrkt starfsfólk deildarinnar til námsferða og að- standendur nýrnaþega í ígræðslu- ferðir til útlanda. Starfsfólk blóðskilunardeildar Landspítalans sér um meðferð blóð- og kviðskilunarsjúklinga og undir- búning fyrir nýrnaígræðslur. í starfinu felst meðal annars almenn umönnun, eftirlit, fræðsla um sjúk- dóma og meðferð, stuðningur við og þjálfun sjúklinga og aðstandenda þeirra fýrir meðferð í heimahúsum. Töluverð áhætta fylgir starfinu. Bæði hefur hver meðferð vissa hættu í för með sér fyrir sjúklinga, t.d. er algengt að blóðþrýstingur falli og leið fyrir sýkingar er opin meðan á meðferð stendur. Þar sem unnið er með opnar blóðleiðir og kviðarholsvökva er starfsfólk í stöð- ugri smithættu. Má þar nefna lifrar- bólgu, eyðni og „cytomegalovirus", sem getur valdið fóstursköðum ef barnshafandi konur smitast af hon- um. Þar sem sjúklingar koma reglu- lega á deildina mánuðum og árum saman kynnist starfsfólk og sjúk- lingar nánar en á flestum öðrum deildum heilbrigðisstofnana. Þar með verða samskiptin persónulegri. Það gefur starfinu gildi að fylgja sjúklingum í gleði og sorg. Mest ánægja felst í því að sjá árangur. Það er gott að sjá fólki líða betur í dag en í gær eða heyra að þjálfun til heimaskilunar hefur reynst vel. Ánægjulegast af öllu er að taka þátt í að byggja brú til betra lífs þegar nýrnasjúklingur fær ígrætt nýra og sér aftur sólina rísa eins og umræddur listamaður. Starfsemi sú sem fer fram á blóð- skilunardeild Landspítalans er mjög sérhæfð. Aðeins fátt fólk í landinu hefur þjálfun til að starfa þar. Sex Þorgerður Ragnarsdóttir „Ánægjulegast af öllu er að taka þátt í að byggja brú til betra lífs þegar nýrnasjúklingur fær ígrætt nýra og sér aftur sólina rísa eins og umræddur listamaður.“ hjúkrunarfræðingar, sem telja helming starfsfólks deildarinnar, hafa sagt upp störfum vegna kjara- deilu við Ríkisspítala. Framtíð deild- arinnar veltur á því að samningar takist í þeirri deilu. Höfundur er hjúkrurmrfræðingur á blóðskilunardeild Landspítalans. 29. 01. 1993 Nr. VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4507 4300 0004 4817 4507 3900 0003 5316 4507 4300 0014 8568 4543 3700 0007 3075 4548 9000 0042 4962 kort úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir aö klófesta kort og visa á vágest. \mzmVISA ÍSLAND Höfðabakka 9 • 112 Reykjavlk Slmi 91-671700 Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut^ Kopavogi, sími 671800 Opið sunnudag ki. 14 - 18. Toyota Hilux Ex Cap EFi '91, blásans, 5 g., ek. 26 þ., veltigrind o.fl. V. 1480 þús., sk. á ód. MMC Lancer GLXi 4x4 Hlaðbakur ’91, vínrauður, 5 g., ek. 18 þ., rafm. í öllu, þjófav.kerfi, fjarst.laesingaro.fi. Bein sala 8 ~ —á MMC Galant hlaðbakur GLSi 4x4 '91, hvítur, 5 g., ek. 23 þ., rafm. i öllu o.fl. V. 1380 þús. stgr. Ford Bronco 8 cyl. (302) '74, sjálfsk., mikið endurnýjaður. Gott ástand. V. 480 þús. Citroen BX 16 TRZ '91, 5 g., ek. 25 þ. Úrvalsbíll. V. 950 þús. Daihatsu Charade GTi turbo '88, 5 g., ek. 73 þ. V. 580 þús. Nissan Patrol diesel langur '91, 5 g., ek. 33 þ. V. 2.550 þús. Renault 21 Nevada GTX 4x4 '92, ek. 10 þ. Sem nýr. V. 1490 þús., sk. á diesel jeppa. Toyota Hilux Douple Cap diesel '90, 5 g., ek. 43 þ. V. 1450 þús. stgr. Mazda 323 1.3 LX '89, hvitur, 5 g., ek. 53 þ. Fallegur bíll. V. 490 þús. stgr. Peugout 309 GL Profile '91,5 dyra, rauð- ur, 5 g. Gott ástand. V. 640 þús. stgr. Chevrolet Blazer Thao '87, sjálfsk., ek. 93 þ., fallegur jeppi. V. 1270 þús., sk. á ód. Fiat Tipo DGT 1600 '89, rauöur, 5 g., ek. 33 þ. Toppeintak. V. 590 þús. Fiat X1/9 Bertone Spider '80, 5 g., ek. 55 þ. Óvenju got eintak. V. 430 þús., sk. á ód. Ford Bronco XLT '88, 5 g., ek. 95 þ. V. 1450 þús., sk. á ód. Ford Econoline 350 4x4 6.9 diesel '87, upphækk., talsverð breyttur. Úrvals ferða- bíll. V. 2.1 millj., sk. á ód. Honda Accord 2200 EXi '90, sjálfsk. ek.43 þ. Einn m/öllu. V. 1850 þús., sk. á ód. Isuzu Crew Cap 4x4 m/húsi '91, 5 g., ek. 41 þ. Upphækkaður o.fl. V. 1570 þús. MMC Colt GL '91, 5 g., ek. 37 þ. V. 750 þús. VANTAR GÓÐA BÍLAÁSTAÐINN Vilt þú lækka bifreiðatrygginga- iðgjöldin þín? Varkáru ökumennirnir fá aö njóta sín tijá okkur því þeir ganga að hagstæðari kjörum vísum. Réttlátt ekki satt? Og þeir sem eru félagar í FÍB fá 10% afsiátt á iðgjaldið! Við hvetjum þig til að gera verðsamanburð á bifreiðaiðgjöldum tryggingafélaganna. Munurinn kemur þér örugglega á óvart! Við minnum á að þú verður að segja upp tryggingunni þinni mánuði fyrir endurnýjunardag. Skandia Lifandi samkeppni - lægri iðgjöld! VÁTRYGGINGARFÉLAGiÐ SKANDIA HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.