Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1993 45 Sveinn Andri og S VR ... og við hin Frá Óla Tynes: SVEINN Andri Sveinsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarformaður Strætisvagna Reykjavíkur, stærir sig óskaplega af því í Morgunblaðinu 21. janúar síðastliðinn að kostnaður Reykjavík- urborgar af SVR hafi lækkað um 100 milljónir króna. Hann tínir til býsnin öll af tölum og prósentum og raunvirðum og raunframlögum og uppgjörum og afkomum. Eftir alla þessa upptalningu kem- ur svo skýring á því hvernig SVR náði í þessar hundrað milljónir: Þjón- ustan var verulega skert og fargjöld stórlega hækkuð fýrir mikinn hluta farþega. Eg er seinþreyttur til vandræða og hef á undanfömum árum tekið versnandi þjónustu og hækkunum hjá SVR eins og hveiju öðru hunds- biti. En þegar drengstertur þessi geys- ist fram á ritvöllinn og básúnar það sem eitthvað rekstrarfræðilegt kraftaverk að það sé hægt að græða á því að veita lélegri þjónustu og hækka verðið, get ég ekki orða bund- ist. Sveinn Andri vitnar í nokkur ummæli borgarstjómarminnihlutans um SVR og segir svo með miklum hroka: „Það er gæfa Strætisvagna Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar að þurfa ekki að reiða sig á spá- dómsgáfu borgarfulltrúa minnihlut- ans.“ Það vill svo til að skoðanir mínar og skoðanir minnihlutans í borgar- stjóm fara ekki alltaf saman. En mikið skelfíng yrði ég feginn að sjá, til dæmis, Siguijón Pétursson sem stjórnarformann Strætisvagna Reykjavíkur. ÓLI TYNES, Hamrahlíð 23, Reykjavfk. Er þingræði alltaf lýðræði? Frá Gunnari Bjamasyni: Vegna orðaskipta í enska blaðinu Independent vegna ummæla Clint- VELVAKANDI RANGFÆRSLURI VELVAKANDA- KLAUSU Hermann Jónsson úrsmiður vildi koma eftirfarandi á fram- færi vegna Velvakandaklausu frá „mjög óánægðum viðskipta- vini“, sem birtist í blaðinu á miðvikudag. Hermann segir að konan, sem sendi inn fyrrgreinda klausu hafi komið í verzlun sína ásamt annarri konu og viljað skipta hálsmeni, sem henni hafi verið gefið. Þær hafi skoð- að vömmar í búðinni en ekki litizt á neitt. Hafi afgreiðslu- maður þá bent þeim á að hægt væri að fá innleggsnótu. Konan hafí farið fram á endurgreiðslu, en henni hafi verið tjáð að slíkt væri ekki hægt, enda ekki al- mennir viðskiptahættir að end- urgreiða vöru. Ekki sé skila- frestur á skartgripum. Hermann segir að konumar hafi sjálfar sýnt af sér ókurt- eisi. Það sé ranghermt hjá kon- unni þegar hún segi að hann hafi sagt að „hún gæti átt sig“ og „hent“ hálsmeninu í sig. „Eg sagði henni að hún gæti fengið innleggsnótu eða fengið men- inu skipt, lagði það svo á af- greiðsluborðið og sagðist ekki geta gert meira fýrir hana,“ sagði Hermann. HÁVAÐI við HÖFNINA Ég vil gera fyrirspum til þeirra aðila sem standa að fram- kvæmdum við Reykjavíkurhöfn um hve lengi íbúar borgarinnar megi vænta að þessi stöðugu og reglubundnu dynkir munu halda áfram? Hávaðinn af þessu er slíkur að berst um stóran hluta ekki vegna vankunnáttu í elda- mennsku hjá mér því ég hef mjög oft eldað brodd og finnst hann afskaplega góður. Ég var því að velta því fyrir mér hvort það gæti verið að bændur sem selja broddinn þynni hann svo mikið með venjulegri mjólk að hann hlaupi ekki. ÞÝÐINGU ÁBÓTAVANT Guðmundur Kristjánsson: Ég tók eftir því sl. laugar- dagskvöld þegar ég var að horfa á þáttaröðina Æskuár Indiana Jones í sjónvarpinu að þýðandinn hefur annaðhvort misskilið enska textann eða sögukunnáttu hans hefur verið ábótavant Nokkrum sinnum var nafn franska hershöfðingjans Pétain útfært á íslensku Betann. Ég vildi koma þessu á framfæri því að svona misskilningur getur oft gefið ranga mynd af sögunni. TAPAÐ/FUNDIÐ Lyklar fundust Lyklar á kippu fundust við Aðalland í Fossvogi fyrir u.þ.b. viku. Þetta em þrír Assa-lyklar og á kippunni, sem er með eins- konar hitamæli, standa orðin Frilufts Magasinet. Upplýsingar í síma 686949. Gullúr fannst Gullúr fannst á Þorláksmessu við Grýtubakka í Breiðholti. Upplýsingar gefur Herdís í síma 72939. Silfurskeið fannst Útflúruð og merkt silfurskeið fannst fyrir jólin á Túngötu í Reykjavík. Skeiðin var brotin í plastpoka þegar hún fannst. Upplýsingar gefur Guðrún Jóna ons og Helga Ágústssonar sendi- herra þætti mér gott að fá um- mæli einhverra okkar stjómmála- vísindamanna í Morgunblaðið um skilgreiningu þessara orða, þing- ræði og lýðræði. Ég tel ekki að ís- lenska alþingið sem var stofnað 930 hafí verið lýðræðisstofnun heldur framhald af héraðaþingræði í Nor- egi og á Bretlandseyjum á þessum tímum en menn kusu aldrei fulltrúa til alþingis heldur gekk goðorðs- valdið í arf eða kaupum og sölu og fyrst og fremst var alþingi hæsti- réttur (fimmtardómur). Ég get ekki séð að nokkurn tíma hafi verið kos- ið til alþingis því að 1263 fáum við norsk lög og ég tel að ekki hafi verið kosið lýðræðislega til æðsta valds á íslandi fyrr en á 19. öld. Vegna þess að við stöndum oft frammi fyrir útlendingum og gort- um af því að eiga elsta lýðræðisþing heimsins þá væri betra fýrir okkur fýrir samviskuna að fá þetta fræði- lega skilgreint í eitt skipti fyrir öll svo að við vitum hver hefur rétt fyrir sér í heimspressunni, Clinton eða Helgi Ágústsson sendiherra. Gunnar Bjamason, Dalbraut 27. Reykjavík. Pennavinir Frá Sviss skrifar karlmaður sem getur ekki um aldur né áhugamál. Biður um bréf á þýsku: Peter Klossner, Harderstrasse 22, 3800 Interlaken, Switzerland. LEIÐRETTING Rangt starfsheiti í minningargrein Baldurs Jónssonar og Gunnars Steindórssonar um Geir S. Björnsson var tilgreint rangt starfsheiti eins af hálfsystkinum Geirs, Ingibjargar hóteistýru, sem búsett er í Luxemburg. Eru hlutað- eigendur innilega beðnir afsökunar á þessum mistökum. ríUDDSKÓLI RAFnS QEIRDALS NUDDNAM Kvöld- og helgarskóli hefst I. febrúar. Upplýsingar og skróning í símum 67661 2/68661 2 Viðtalstími borgarfulltrúa Siálfstæðisflokksins í Reykiavík Laugarneshverfi og Langholtshverfi Laugardaginn 30. janúar 1993 kl. 10-12 verða til viðtals á Hrafnistu, DAS, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,formaður skipulags- nefndar, í borgarráði, hafnarstjórn, í stjórrn sjúkrastofnana, stjórn Sorpeyðingar höfuðborg- arsvæðisins, byggingarnefd aldraðra og Hulda Valtýsdóttir, formaður menningarmálanefndar. Tekið er á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum. Öllum borgarbúum er boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa. Tölvuvetrarskólinn Tölvunámskeið fyrir hressa krakka og unglinga! Tölvuvetrarskólinn er einstakt tækifæri fyrir böm og unglinga að fá þjálfun í öllum grannatriðum tölvunotkunar sem nýtist þeim í námi og Starfi og gefur þeim góðan grunn sem þau geta síðar byggt á. Námsgreinar: Ritvinnsla, vélritun, tölvuteiknun, myndgerð, tölvufræði, gagnagrunns-, töflureiknisnotkun, tölvugeisladiskar og leikir. Byrjenda- og framhaldsnámskeið á laugardögum - hagstætt verðJJqÞ Tölvu Tölvuskóti Grensásvegí 16 • stomaour 1. mars 1986 ^ hk-93012 é> Grifcteikumar hjá larBnum: Mest seldu steikur á íslandi NAUTAGRILLSTEIK, SIRLOIN, m. bak. kart., kryddsmjöri og hrásalatl. Safarík og bragbmikll steik úr völdu ungnautakjöti...kr. 690 LAMBAGRILLSTEIK, FILLET, m. bak. kart., kryddsmjöri og hrásalati. Erum þrælmontin af lambasteikinni okkar. Brábnar nánast í munni manns... kr. 750 SVINAGRILLSTEIK, HNAKKI, m. bak. kart., kryddsmjöri og hrásalati. Bragögóö og mjúk undir tönn. Góö steik. kr.690 w m__ai___ Mutmm 'VEITINGASTOFA • Sprengisandi — Kringlunni Faber-Castell borgarinnar. Þessi taktfasti dyn- ur minnir helst á pyntingarað- ferðir í fangabúðum enda heldur enginn einbeitingu á meðan á þessu stendur. Sjálfur hef ég misst ómældar vinnustundir vegna þessa og svo er áreiðan- lega um fleiri. Þessu verður að linna. Ibúi í miðbænum. LÉLEGUR BRODDUR Hugljúf Jónsdóttir: Ég hef nokkrum sinnum keypt brodd í Kolaportinu og alltaf orðið fyrir vonbrigðum með hann því hann hleypur ekki. Það er Bækur týndust Bækur í plastpoka týndust í miðbænum um miðjan janúar. Meðal annars var í pokanum bók um Nýja testamentið og ein bók á ensku. Finnandi vinsamlega hafi samband í síma 27177 (Svala) á skrifstofutíma eða 27619 á kvöldin. GÆLUDÝR Golden Retriever-hvolpur Þú sem vildir fá Golden Retriever-hvolp hjá Helgu á Barðaströnd vinsamlega hafðu samband við hana í síma 97-2025. Myndlistarvörukynning á Faber Castell vörum í Máli og menningu, SíÖumúla, í dag, fostudaginn 29. janúar, kl. 13.00-17.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.