Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 18
- MQRCiUNBLÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÁNUAR 1993 IATA hefur fellt niður allar hömlur veg'na sölulauna SAMKVÆMT samþykkt alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA, frá árinu 1990 falla einhliða niður allar hömlur flugfélaga á ráðstöfun ferðaskrifstofa á söluþóknun þeirra frá flugfé- lögunum. Forstjóri Samvinnuferða Landsýnar hefur sakað ferðaskrifstofur um að hafa veitt afslátt af söluþóknun sinni til að komast í úrtak fjármálaráðuneytis vegna far- seðlasölu til ríkisstarfsmanna á árinu. Alls er um hátt á fjórða þúsund sæti að ræða að andvirði 330 milljónir kr. fyrir 14 ráðuneyti og stofnanir sem undir þau falla, og æðstu stjórn ríkisins. Samkvæmt upplýsingum úr fjár- málaráðuneytinu áttu ráðuneytin að hafa gengið frá því sl. mánudag við hvaða ferðaskrifstofu þau hygð- ust skipta. Skarphéðinn Steinarsson viðskiptafræðingur í fjármálaráðu- neytinu sagði að langflest þeirra hefðu gert það en þó ekki öll. Amar Þórisson, framkvæmda- stjóri Ferðaskrifstofu stúdenta, sagði að sér sýndist að engum við- skiptum yrði beint að Ferðaskrif- stofu stúdenta. Hann sagði að ferðaskrifstofan hefði engan afslátt veitt, en boðið upp á margvíslega þjónustu. Sömu sögu hafði Sigurður Skagfjörð hjá söludeild Flugleiða að segja. Ekkert ráðuneytanna hafði haft samband við söludeildina vegna samninga um farseðlakaup. I samþykkt alþjóðasamtaka flug- félaga, IATA, og alþjóðasamtaka ferðaskrifstofa segir að ekki megi nota söluþóknun í viðskiptum sem afslátt. Einar Sigurðsson blaðafull- trúi Flugleiða sagði að samkvæmt nýjustu upplýsingum frá IATA hefðu flugfélög sem aðild eiga að IATA komið sér saman um aðra túlkun árið 1990 sem ekki væri búið að fella inn í samning en sem unnið væri eftir. Þar væm engar hömlur lagðar á ráðstöfun ferða- skrifstofanna á söluþóknun þeirra. „Við höfum ekki fengið neinar staðfestar ábendingar um að ferða- skrifstofurnar hafi veitt afslátt af söluþóknun sinni. Það er engin deila um það að veittur hafi verið afslátt- ur, en hvort þeir nota söluþóknun- ina til þess vitum við ekki,“ sagði Einar. Hann sagði að þær gætu veitt afslátt af ýmsu öðm sem skil- að hefur hagnaði í rekstri þeirra. Kjartan Lámsson framkvæmda- stjóri Ferðaskrifstofu íslands sagði að engin afsláttur hefði verið veitt- ur af söluþóknun. Hann sagði að samningur ferðaskrifstofunnar og Flugleiða væri trúnaðarmál. Oddi kynnir nýja tækni PRENTSMIÐJAN Oddi er um þessar mundir með kynningu á nýrri tækni, sem fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum uppá. Um er að ræða tölvukerfi frá Scitex, sem gefur nýja möguleika á sviði myndvinnslu og umbrots. Hægt er að fá fullkomna og nákvæma vinnslu á prentgripum þótt gögnin komi í ólíku formi. Kynningin er í Höfða, Hótel Loftleiða og er opin í dag, föstudag, kl. 13-20 og á morgun, laugardag, kl. 11-18. Kynningunni lýkur þann dag. Morgunblaðið/Sigurgeir Um borð í Gígju Háskólamenn fóru m.a. um borð í Gígjuna í Eyjum þar sem verið var að landa síld. Frá vinstri: Sigurður Einarsson, Guðjón Hjörleifs- son, Kristján Egilsson, Örn Jónsson, Logi Jóns- son, Árni Johnsen, Sveinbjörn Bjömsson, Þor- steinn Pálsson og Sveinn Magnússon. Háskóli Islands fær að- stöðu í Vestmannæyjum MEÐ TILKOMU stöðu prófessors í fiskifræði við Há- skóla íslands sem heimiluð var á fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir að auk þess að starfa við líffræðiskor Háskólans og með aðstöðu á vettvangi Hafrannsókna- stofnunar verði einnig aðstaða fyrir prófessorinn og Háskólann í Vestmannaeyjum til rannsókna og fræðslu, væntanlega í tengslum við Náttúrugripasafn Vestmanna- eyja. Eyjamenn hafa upp á aðstöðu að bjóða og sjávarút- vegsráðherra hefur veitt styrk til þess að skapa aðstöðu fyrir Háskólann. í Eyjum eru einnig útibú Hafrannsókna- stofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Sveinbjörn Björnsson háskóla- rektor og fleiri háskólamenn, Örn D. Jónsson hjá Sjávarút- vegsstofnun HI og Logi Jónsson líffræðingur, heimsóttu Vest- mannaeyjar sl. miðvikudag ásamt Þorsteini Pálssyni sjávar- útvegsráðherra og Árna Johnsen alþingismanni til þess að ræða við heimamenn um fyrirkomulag og möguleika samstarfs og tengsla Háskóla íslands og Vest- mannaeyja, en Árni hefur haft frumkvæði að málinu. Voru mál- in rædd við bæjarstjórnarmenn og forustumenn skóla, stofnana og fyrirtækja, en fram kom í máli Háskólarektors að með að- stöðu í Vestmannaeyjum skapist margþættir möguleikar á sviði veiða, vinnslu, rannsókna og fræðslu, en með heimsókninni nú voru háskólamenn fyrst og fremst að reifa hugmyndir og möguleika með tilliti til aukinna tengsla Háskóla íslands við at- vinnulífið í landinu. Tengsl við skóla Gestirnir heimsóttu Náttúru- gripasafn Vestmannaeyja, eina safn lifandi fiska á íslandi, en þar eru miklir möguleikar til rannsókna. Einnig var útibú Hafrannsóknastofnunar heim- sótt og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins en í þessum stofn- unum er öll aðstaða til grunn- rannsókna. Þá var fjallað um möguleg tengsl á þessum vett- vangi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og Stýri- mannaskólann þar. Nýir möguleikar Þegar Háskóli íslands óskaði heimildar fjárlaganefndar fyrir embætti prófessors í fiskifræði lagði Háskólinn áherslu á kennsl- una við líffræðiskor, aðstöðu tii sjós og lands í tengslum við Hafrannsóknastofnun, aðstöðu og tengsl í Vestmannaeyjum. Þá var lögð áhersla á að með stöðu prófessors opnuðust ýmsir möguleikar í Evrópu á styrkjum til rannsókna. Short nægir hálfur vinningur _________Skák___________ Margeir Pétursson EN GLENDIN GURINN Nigel Short vann í gær tólftu skákina í einvíginu við Jan Timman. Staðan er því 7-5 Short í vil og þarf hann einungis hálfan vinning í viðbót til að sigra í einvíginu. Eftir er að tefla tvær skákir, en standi kepp- endur þá jafnir að vígi verður framlengt. Sigur Timmans í elleftu skákinni var aftur á móti ákaflega sannfærandi. Short tók á sig óvirka varnar- stöðu, en í staðinn fyrir að Timman þyrfti að brjótast í gegn fór Englendingurinn á taugum, tók sjálfur af skarið og fórnaði peði til að létta á stöðunni. Timman komst þá út í endatafl, peði yfir, hélt vel á spöðunum og vann örugglega. Vörðust háðsglósum heimsmeistarans Taflmennskan í Escorial hefur ekki þótt í sérlega háum gæða- flokki, en í síðustu tveimur skákum hafa unnist mjög sannfærandi sigrar með hvítu mönnunum. Það er eins og hvorugur keppandinn hafl lag á að tefla upp á jafntefli með svörtu. Beittustu háðsglósumar í garð þeirra Timmans og Shorts hafa borist frá sjáifum heimsmeistaranum Gary Kasparov, sem segir taflmennskuna hlægilega og hann gæti unnið þá í fjöltefli. Kasparov mun þó eiga erfítt með að gagnrýna taflmennsku þeirra í elleftu skákinni, því þeir hermdu lengi vel eftir skák hans sjálfs gegn Svíanum Ulf Andersson á heimsbik- armótinu í Reykjavík 1988. Hvítt: Jan Timman Svart: Nigel Short Drottningarbragð I. d4 - (15 2. c4 - e6 3. Rc3 - Rf6 4. cxd5 — exd5 5. Bg5 — c6 6. Dc2 - Be7 7. e3 - Rbd7 8. Bd3 - Rh5 Uppáhaldsleikur Svíans Ulfs And- ersson. Það vekur þó mikla furðu að sókndjarfur skákmaður eins og Short skuli ganga í smiðju til Svíans sem hefur gjörólíkan skákstíl og vanur að taka á sig þröngar vamarstöður sem krefjast mikillar þolinmæði. Þetta afbrigði er líka svo vandteflt að Andersson hefur mátt þola áföll með því, t.d. gegn Salov á milli- svæðamótinu í Szirak 1987 og Kasparov í Reykjavík 1988. Það kemur líka á daginn að Short brestur þolinmæðin. 9. Bxe7 - Dxe7 10. Rge2 - Rb6 II. 0-0-0 - g6 12. Kbl - Rg7 13. Rg3 - Bd7 14. Hcl 0-0-0 15. Ra4 - Rxa4 16. Dxa4 - Kb8 17. Hc3 - b6 18. Ha3 Breytir loksins út af skákinni Kasparov-Andersson, heimsbikar- mótinu í Reykjavík 1988, sem tefld- ist þannig: 18. Ba6 — Re6 19. Hhcl - Hhe8 20. Db3 - Dd6 21. Rfl - Ka8 22. Rd2 - Rc7 23. Bfl - Re6 24. g3 - Hc8 25. Bg2 - Hc7 26. h4 og hvítur stendur ívið betur. Heimsmeistarinn vann skákina í 44 leikjum. 18. - Be8 19. Dc2 - Hc8 20. Hcl - Bd7 21. Dd2 - h5 22. Hb3 - Re6 23. Hbc3 - h4 24. Re2 - Dd6 25. h3 - Hh<18 26. Rgl! Upphafið á langri riddaratilfærslu yflr á drottningarvænginn. Svartur á engin gagnfæri svo Timman getur gefið sér góðan tíma til að koma ridd- aranum á besta stað. 26. - g5 27. Rf3 - f6 28. H3c2 - Rg7 29. Kal - Bf5 30. Rel - Kb7 31. Hc3 - Bxd3 32. Rxd3 - Rf5 33. Dc2 - Re7 34. Da4 - Ka8 35. a3 - Dd7 36. Rb4 - Kb7 37. Hb3 Hvítur hefur stillt upp sinni óska- stöðu, en það er þó ekki þar með sagt að björninn sé unninn. Timman þarf þó ekki að sýna fram á glufu í vamarmúr svarts, því Short missir nú trúna á að vörnin haldi og fórnar peði til að létta á stöðunni: 37. - c5? 38. Dxd7+ - Hxd7 39. dxc5 — d4 40. exd4 — Hxd4 41. Rd3 - Rd5 42. Kbl - He8 43. cxb6 — axb6 44. a4! — Ka7 45. a5 - bxa5 46. Hc5 - Rb4 47. Hxa5+

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.