Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUPAGUR 29. JANÚAR 1993
----------------------------?-----------——----
KNATTSPYRNA
Einar Páll tilbúinn
aðfaratil Degerfors
vera með frá byijun. „Liðið byijar
að spila æfmgaleiki um aðra helgi
og ég miða allt við að vera þá kom-
inn á staðinn enda er nauðsynlegt
að vera með frá byijun.“
Einar Páll, sem verður 25 ára á
árinu, lék fyrst í 1. deild með Val
1988. Hann á fimm a-landsleiki að
baki, sjö með U-21 liðinu, sex með
U-18 og lék 10 leiki með U-16 ára
liðinu.
TENNIS/OPNA ASTRALSKA MOTIÐ
Reuter
Steffi Qraf tii vinstri og Monica Seles í undanúrslitunum í gær. Þær sigruðu örugglega og leika til úrslita.
Monica Seles og Steffi
Graf leika til úrslita
Einar Páll Tómasson
EINAR Páll Tómasson, mið-
vörður bikarmeistara Vals, hef-
ur fyrir sitt leyti tekið tilboði
sænska úrvalsdeildarliðsins
Degerfors og vonast til að geta
farið til Svíþjóðar í næstu
viku.
Einar Páll sagði við Morgunblað-
ið í gærkvöldi að um væri að
ræða leigusamning til árs, en félög-
ÚRSLIT
Tennis
Opna ástralska meistaramótið
Einliðaleikur kvenna, undanúrslit:
Monica Seles - Gabriela Sabatini..6-1, 6-2
Steffi Graf - Arantxa Sanchez....7-5, 6-4.
Einliðaieikur karla, 8-manna úrslit:
3-Pete Sampras (Bandar.) vann Brett Steven
(N-Sjálandi) 6-3 6-2 6-3.
14-Michael Stich (Þýskalandi) vann 11-Guy
Forget (Frakkl.) 6-4 6-4 6-4.
2-Stefan Edberg (Svíþjðð) vann Christian
Bergstrom (Svíþjóð) 6-4 6-4 6-1.
1-Jim Courier (Bandar.) vann 7-Petr Korda
(Tékkneska lýðv.) 6-1 6-0 6-4.
Tvíliðaleikur karla, undanúrslit:
Danie Visser (S-Afriku)/Laurie Warder (Ástr-
alíu) unnu John-Laffnie De Jager (S-Afr-
iku)/Marcos Ondruska (S-Afriku) 6-3 3-6 6-3
6-4
John Fitzgerald (Ástralíu)/Anders Jarryd (Sví-
þjóð) unnu Mark Kratzmann (Ástraiíu)/Wally
Masur (Ástralíu) 7-6 (7-4) 6-4 6-1
Körfuknattleikur
NBA-úrslit:
Þriðjudagur:
New Jersey — L.A. Lakers......106: 91
New York — Philadelphia........98: 90
Orlando — Atlanta.............120:106
Washington — Miami Heat.......106:102
Dalias — Chicago...............88:123
Milwaukee — Houston...........100: 86
Utah Jazz — Cieveland.........113: 96
'2»Portland — Golden State........143:133
Miðvikudagur:
Minnesota - Phoenix............116:117
■Eftir framlengingu.
Charlotte - Sacramento.........117:107
Detroit - Boston..............103: 94
Philadelphia - Indiana.........125:127
■Eftir framlengingu.
LA Clippers - Utah.............107: 97
Seattle - San Antonio.......... 99:119
Golden State - Denver..........123: 95
Íshokkí
Buffalo - Washington...............4:3
Hartford - Montreal................6:5
NY Rangers - Winnipeg..............5:2
í kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
Digranes: UBK-UMFN........kl. 20
1. deild karla:
Akureyri: Þór-ÍA........kl. 20.30
Hagaskóli: ÍS-Höttur......kl. 20
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Strandgata: Haukar-Fram..kl. 18.30
2. deild karla:
Höllin: KR-ÍH.................kl.18
Blak
1. deild karla:
KA-hús: KA-ÍS.................kl. 20
in ættu eftir að ganga frá samn-
ingnum sín á milli. „Liðin eru að
ræða saman, en Valsmenn vilja
skiljanlega ekki skrifa undir neitt
fyrr en allt er á hreinu,“ sagði mið-
vörðurinn og bætti við að hann yrði
laus allra mála hjá Degerfors eftir
ár og þá aftur Valsmaður.
Undirbúningur Degerfors fyrir
næsta tímabil hefst eftir helgi og
sagði Einar Páll nauðsynlegt að
MONICA Seles átti ekki f
nokkrum vandræðum þegar
hún mætti Gabrielu Sabatini í
undanúrslitum í einliðaleik
kvenna á Opna ástralska
meistaramótinu. Hún vann í
tveimur hrinum og tók leikur-
inn aðeins 53 mínútur. Seles
mætir Steffi Graf í úrslitum, en
hún sigraði Arantaxu Sanchez
Vicario í gær.
Seles var í miklum ham og átti
Sabatini aldrei möguleika. Se-
les sigraði 6-1 og 6-2. Þar með var
Seles enn komin í úrslit í þessu móti
en hún hefur ekki tapað leik þau
þijú ár sem hún hefur tekið þátt.
__ Sabatini var ekki hress eftir tapið.
„Ég held ég sé eitthvað veik, ég er
svo slöpp," sagði hún og bætti við
að það þýddi ekkert annað en að ná
sínum besta leik gegn Seles, annars
ætti hún ekki möguleika gegn henni.
Seles er vön að vera mjög hörð
við sjáifa sig og á því varð engin
breyting þrátt fyrir góðan sigur.
„Uppgjafirnar voru ekki nógu góð-
ar,“ sagði hún en 80% af uppgjöfum
hennar_ heppnuðust og þykir það
gott. „Ég lék hins vegar vei og var
óvenju áköf í sókninni,“ sagði hún.
Steffi Graf, sem er eist þeirra sem
komust í undanúrslit, aðeins 23 ára
gömul, sigraði Arantxa Sanchez 7-5
og 6-4 í hörkuleik. Graf á nú mögu-
leika á að komast í efsta sæti heims-
listans. Til þess þarf hún að sigra
Seles og vinna síðan á móti í Tókýó
í næstu viku.
Þrátt fyrir að tapa fyrir Graf get-
ur Sanchez verið þokkalega áanægð
því hún skaust upp í þriðja sætið á
heimslistanum, upp fyrir Sabatini.
Þess má geta að Graf og Sanchez
hafa leikið 20 leiki og hefur Graf
sigrað í 17 þeirra.
„Það verður frábært að fá tæki-
færi til að leika við þá bestu í heimi,“
sagði Graf um úrslitaleikinn við Se-
les, en sú síðarnefnda tók við topp-
sætinu af Graf í mars árið 1991.
Síðast mættust þær í úrslitum á
Wimbledon og þá sigraði Seles en
staðan úr þeim níu leikjum sem þær
hafa leikið er 6-3 fyrir Graf.
ISI / IÞROTTIR I NYRRI EVROPU
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
William Engseth, forseti íþróttasambands Noregs, til hægri hlustar á Sig-
urð Magnússon, framkvæmdastjóra ÍSÍ.
Varia vegið að
sjálfstæði íþrótta
Iþróttasamband íslands efndi til
sérstaks fundar í vikunni, þar
sem umræðuefnið var „íþróttir í
nýrri Evrópu". Að loknu ávarpi Ell-
erts B. Schram, forseta ÍSÍ, fluttu
William Engseth, forseti Iþrótta-
sambands Noregs, og Reynir Karls-
son, íþróttafulltrúi ríkisins, fram-
söguræður, en síðan tóku við fyrir-
spurnir og umræður.
í máli framsögumanna kom fram
að þó íþróttastarfsemi innan landa
Evrópska efnahagssvæðisins ætti
sennilega eftir að taka miklum
breytingum væri ekki ástæða til að
ætla að vegið yrði að sjálfstæði
íþrótta. Hins vegar yrði íþrótta-
hreyfingin að vera á varðbergi og
gæta réttar sfns.
Aðild að Evrópska Efnahags-
svæðinu hefur vakið upp margar
spurningar varðandi stöðu íþrótta
með tilliti til frjáls flæðis vinnuafls
á milli hlutaðeigandi landa, en regl-
ur innan íþróttahreyfingarinnar
gera ráð fyrir takmörkunum á
þessu sviði. Fram kom að reglur
íþróttahreyfingarinnar réðu, en
sennilega þyrfti að semja um þessa
hluti eins og aðra og samræma þá.
Á fundinum kom ennfremur fram
að íþróttir og EES er flókinn mála-
flokkur og því gagnlegt og tíma-
bært að taka efnið fyrir, en jafn-
framt æskilegt að halda áfram á
sömu braut.
tfÍKR
FOLX
■ JAPANSKA knattspyrnufélagið
JR East Furukawa vonast eftir að
v-þýski knattspyrnumaðurinn Pi-
erre Littbarski gangi til liðs við
félagið, en hann er leikmaður með
Köln. Littbarski er 32 ára og varð
heimsmeistari með V-Þýskalandi
1990.
■ JAPANIR eru nú að taka upp
nýja tíu liða úrvalsdeild. JR East
Furukawa er eitt liðanna í deildinni
og með því leika tveir Tékkar, einn
Brasilíumaður og einn S-Kóreu-
maður.
■ MARGIR kunnir knattspyrnu-
menn koma til með að verða í sviðs-
ljósinu í nýju deildinni í Japan, eins
og Englendingurinn Gary Lineker
og Brasilíumaðurinn Zico.
■ HEINZ Hermann, miðvallarspil-
ari hjá Grasshopper í Sviss, hefur
fengið grænt ljós á að fara frá félag-
inu. Hermann, sem hefur leikið 117
landsleiki fyrir Sviss, sagði að vanda-
mál innan félagsins lægju að baki
ákvörðun sinni.
■ MARIO Lemieux, helsta stjarna
Pittsburgh Penguins í NHL-deild-
inni. í íshokkí, hefur ekki leikið að
undanförnu. Hann greindist með
eitlakrabbamein og vegna læknis-
meðferðar verður hann frá keppni
næstu vikurnar. Læknir liðsins sagði
að Lemieux ætti að ná sér og engin
hætta væri á ferðum.
■ LEMIEUX, sem gjaman hefur
verið nefndur sem arftaki Waynes
Gretzkys, er stigahæstur í deildinni
með 104 stig (39 mörk og 65 stoð-
sendingar í 40 leikjum) og var talið
að hann ætti mikla möguleika á að
slá stigamet Gretzkys, sem er 215
stig á einu tímabili.
■ LEMIEUX, sem talinn er besti
leikmaður deildarinnar, tryggði
Pittsburgh öðrum fremur meistara-
titilinn undanfarin tvö ár, þó hann
hafi misst mikið úr vegna bak-
meiðsla. Hann hefur þrisvar verið
markahæstur á síðustu fimm árum
og var nýlega valinn í stjörnulið
NHL, en það er í sjöunda sinn, sem
honum hlotnast sá heiður.
■ PAVEL Bure hjá Vancouver
Canuck hefur gert 41 mark á tíma-
bilinu og er næst markahæstur.
Rússinn Alexander Mogilny hjá
Buffalo Sabres er kominn með 43
mörk.
■ STEVE Larmer innsiglaði 5:3
sigur Chicago gegn Toronto á dög-
unum með 400. deildarmarki sínu.
ÚRSLIT
Mullersmótið
Miillersmótið í skíðagöngu fór fram á veg-
um Skíðafélags Reykjavíkur á Miklatúni sl.
laugardag við góðar aðstæður. Helstu úr-
slit voru sem hér segir:
Karlar 60 ára og eldri (2 km):
Bent Jörgensen, SR . 21.39
Karlar 50-59 ára (4 km)
Matthías Sveinsson, SR 22.36
Sveinn Kristinsson, SR 27.34
Karlar 35-49 ára (4 km)
Sigurjón Marinósson, SR 21.37
Trausti Sveinbjörnsson, Hrönn 23.48
Karlar 20-34 ára (4 km)
Heimir Hansson, ÍS 19.00
Remi Spilliaert, SR 19.01
Björn Traustason, Hrönn 20.14
Karlar 17-19 ára (4 km)
Bjami Þór Traustason, Hrönn 21.08
Unglingaflokkur 7-14 ára (1 km)
Þórarinn Bj. Magnússon, SR (11 ára) 8.34
Þórður Bergsson, SR (10 ára) 8.52
Hallbjörn Magnússon, SR (9 ára) 11.09
Barnaflokkur 4ra ára (1 km)
Kristinn Magnússon, SR (4 ára) 16.46
Stúlknaflokkur 13 ára (1 km)
Laila Sif Cohagen, SR(13ára) 7.55
Konur (2 km)
Rakel Gylfadóttir, SR 15.01
Helena Oladóttir, Hrönn 16.10
Margrét Þórarinsdóttir, SR 22.01
LEIÐRETTING
Davíð en
ekki Ævar
Nafn eins piltsins sem rætt var
við á undlingasíðunni í gær misrit-
aðist. Pilturinn, sem æfir karate, var
sagður heita Ævar Sigþórsson en
hann heitir Davíð Sigþórsson. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.