Morgunblaðið - 03.03.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993
7
■KBIáÐSISS
iwEISTSMWA
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Eyjamenn fá
Moggann sinn
VARÐSKIPIÐ Óðinn fór
sl. sunnudag frá Þorláks-
höfn til Vestmannaeyja til
að sækja þangað hóp söng-
fólks, þar sem ekki var
flugveður og yfirmenn á
Heijólfi í verkfalli. Ferðin
var auðvitað notuð til að
flytja sunnudagsblað
Morgunblaðsins út í Eyjar
og hér sést Sigurgeir Jón-
asson, ljósmyndari og um-
boðsmaður Morgunblaðs-
ins í Eyjum, fara með blöð-
in frá borði.
Skemmdarverk unnin á Hvolsvelli
Áætlað að tjónið geti
numið einni milljón
Neyðar-
sendingar
frá læstu
flugskýli
LANDHELGISGÆSLAN fékk í
gærmorgun skeyti um að gervi-
hnattakerfí næmi sendingar
neyðarsendis. Flugvél Gæslunn-
ar flaug yfir Rangárvelli þaðan
sem boðin komu og reyndist
neyðarsendirinn vera í flugvél
í læstu flugskýli á flugvellinum
við Hellu.
Fyrsta skeytið sem Landhelgis-
gæslan fékk um neyðarboðin benti
til að neyðarsendirinn væri á
svæðinu frá Hellu og niður á
Rangársand. Engra flugvéla var
saknacl á þeim tíma. Gæsluvélin
TF-SÝN var send á svæðið og
tókst. henni að staðsetja sendinn í
flugskýli við flugvöllinn á Hellu.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu
fór á staðinn. Flugskýlið var læst
og í því voru fímm flugvélar sem
allar komu til greina. Björgunar-
sveitarmennirnir gátu fundið út
frá hvaða vél boðin komu og slökkt
á neyðarsendinum. Samkvæmt
upplýsingum Landhelgisgæslunn-
ar er talið að sendirinn hafi farið
í gang við samslátt vegna tæring-
ar.
----» » ♦
Mikill rottugang-
ur við Eskifjörð
Eitrað á
haugunum
MIKILL rottugangur hefur ver-
ið á sorphaugum Eskfirðinga
sem eru handan fjarðar skammt
frá bænum. Á haugana fer mik-
ið af fiskúrgangi en bæjar-
sljórnin hefur nú tekið þessi
mál til athugnar og hefur verið
eitrað á haugunum.
Vel hefur gengið að eyða rott-
unum að sögn Rúnars Hákonars-
sonar meindýraeyðis á Eskifírði.
Hann sagði þó að vandamálið yrði
ekki með öllu úr sögunni fyrr en
hætt yrði að flytja sorp á haugana
en bæjarsjórnin hefur nú til athug-
unar að urða sopið annars staðar.
Rúnar sagði að rottur væru í hol-
ræsakerfí Eskifjarðarbæjar en yrði
sjaldan vart í bænum.
MIKIL skemmdarverk voru unnin á nokkrum bílum og skurðgröfu
á Hvolsvelli aðfaranótt sunnudagsins. Var ráðist á tvo bíla í eigu
verktakafyrirtækisins Suðurverks og allt brotið sem brotið varð í
öðrum þeirra samkvæmt upplýsingum lögreglu og ljósum stolið.
Einnig voru rúður brotnar í lítilli rútu og VHF-talstöð stolið. Þá var
brotin rúða á nýrri skurðgröfu, ljóskastarar skrúfaðir af og aðalljós-
um stolið.
Að sögn lögreglu var einnig brot-
ist inn í tvo númerslausa bíla sem
stóð við fyrirtæki í bænum og rúð-
ur í þeim brotnar og allar rúður
voru brotnar í tveimur bílum sem
stóðu fyrir utan bílaverkstæði
Kaupfélags Rangæinga. Þá var far-
ið inn í mannlaust fjölbýlishús sem
er í byggingu og stolið þaðan tals-
verðu magni af rafmagns- og hand-
verkfærum. Auk þessa hafði verið
brotist inn í vinnuskúr.'
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu hefur þarna verið unnið mjög
mikið tjón sem áætlað er að geti
numið allt að einni milljón króna.
Lögreglunni hefur ekki tekist að
upplýsa hver eða hveijir voru að
verki en biður alla sem geta veitt
einhveijar upplýsinar sem leitt
gætu á sporið að hafa samband við
lögreglu.
Fylgstu meb á mibvikudöguin!
Myndasögur Moggans koma út á miðvikudögum.
Myndasögurnar gleðja yngri kynslóðina sem fær blað fullt af skemmtilegu efni sem þeir
fullorðnu hafa einnig gaman af.
Einnig er að finna í blaðinu gátur, þrautir og aðra dægradvöl auk fallegra mynda sem
börnin hafa sjálf teiknað og sent Morgunblaðinu.
- kjarni málsins! &
m
Hót1] I