Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÖAGUR 3. MARZ 1993
Mjólk lækkar
um 2 krónur
SMÁSÖLUVERÐ á mjólk í eins
lítra fernum lækkaði á mánudag
úr 69 kr. lítrinn í 67 kr., vegna
lækkunar á verðmiðlunargjaldi
sem ákveðin var um síðustu
helgi. Verð á mjólk í tveggja
lítra fernum lækkaði úr 135 kr.
í 132 kr.
Verð á ijóma lækkaði úr 591 kr.
lítrinn í 583 kr., og kostar 1/4 lítri
nú 148 kr. í stað 150 kr. áður. Lítr-
inn af undanrennu lækkaði úr 46
kr. í 45, og kílóið af skyri lækkaði
úr 134 kr. í 131 kr. Verð á 45% osti
í heilum stykkjum kostar nú 699
kr. í stað 711 kr. áður, og kílóið
af 30% osti 583 kr. í stað 593 kr.
áður.
-----♦ ♦ ♦----
Fundur um
skatt á bækur
EIGA bækur að vera undan-
þegnar virðisaukaskatti? er yf-
irskrift opins fundar, sem
Heimdallur, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, efnir
til í kvöld kl. 22 á Hressó í
Austurstræti.
Framsögumenn verða Steingrímur
Ari Arason, aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra, og Þráinn Bertels-
son, formaður Rithöfundasambands
íslands.
Hjúkrunarheimilið Eir í Grafarvogi hefur tekið til starfa
Fyrstu heimilis-
menn fluttir inn
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Eir í Grafarvogi tók á móti fyrstu
heimilismönnum sínum í gær. Þá var opnuð fyrsta hjúkrunar-
deildin með rými fyrir 25 sjúklinga, en fyrirhugað er að opna
aðra deild í haust. Þriðji og fjórði áfangi verða teknir í notkun
að ári, en stefnt er að því að heimilið verði að fullu komið í
notkun í janúar 1995.
Hjúkrunarheimilið var formlega
opnað og starfsemi þess kynnt fyr-
ir blaðamönnum í gær. Fullbúið á
heimilið að hýsa 120 sjúklinga á 5
hjúkrunardeildum, þar af eru 25
rými fyrir blinda, 19 fyrir alzheim-
er sjúklinga, 50 fyrir sjúklinga á
almennum deildum og 26 á mót-
töku- og orlofsdeild.
Heimili fyrir sjúka og
ellimóða
„Eitt af markmiðum okkar er
að viðhalda og endurheimta sjálfs-
björg einstaklingsins, þannig að
hann geti lifað ánægjulegu lífi í
heimilislegu umhverfí,“ sagði Birna
Svavarsdóttir hjúkrunarforstjóri.
„Veitt verður alhliða hjúkrun,
lækning, sjúkra- og iðjuþjálfun eins
og best hæfir hveijum og einurn."
Hjúkrunarheimilið er ætlað fyrir
alla sjúka og ellimóða, þá sem beij-
ast við alzheimer-sjúkdóminn og
fyrir blinda og sjónskerta. Þá er
gert ráð fyrir þjónustu við aldraða
krabbameins- og lungnasjúklinga.
í desember 1987 tók Hjúkrunar-
heimilið Skjól til starfa og þar
dvelja nú rúmlega hundrað ein-
staklingar. Síðasta haust voru 430
manns á biðlista, þar af um 200 í
brýnni þörf fyrir hjúkrun.
Byggingin mikið átak
Nokkur félög og félagasamtök,
ásamt tveimur sveitarfélögum,
hafa bundist samtökum um rekstur
og byggingu Eirar. Þau eru: Félag
aðstandenda Alzheimersjúklinga,
Reykjavíkurborg, Samtök blindra
og blindravina, Sjálfseignarstofn-
unin Skjól, Seltjarnameskaupstað-
ur, Sjómannadagurinn í Reykjavík
og Hafnarfirði og Verslunarfélag
Reykjavíkur.
Heildarkostnaður Hjúkrunar-
heimilisins var í fyrra áætlaður
833,9 milljónir króna eða
6.950.000 á hvern einstakling. Nú
stefnir í að hann verði eitthvað
lægri vegna hagstæðra tilboða í
ýmsa verkþætti.
Vistherbergi eru 75 og sjúkling-
ar vistast í eins, tveggja og þriggja
■manna rýmum. Einnig er fyrirhug-
að að byggja hjúkrunaríbúðir í
tengslum við Eir, sem er nýjung
hér á landi. Innangengt verður á
milli íbúðanna og aðalhússins.
Áætlað er að á heimilinu verði um
130 stöðugildi.
Nýtt heimili
FYRSTI vistmaðurinn á Eir, Guðlaug Pálsdóttir, ásamt Magn-
úsi L. Sveinssyni, formanni Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur, Markúsi Erni Antonssyni, borgarstjóra og Páli Gíslasyni
borgarfulltrúa.
VIÐ hönnun Hjúkrunarheimilisins Eirar var reynt að fella það sem best inn í íbúðabyggðina. Húsið er 3 og 4 hæðir og deilt í litlar
húseiningar.
Brjálsemi
Myndin heitir á ensku Reclaiming
Paradise, eða Paradísarheimt. I
myndinni lýsa talsmenn umhverfis-
samtaka því yfir, að beijast verði
gegn græðgi sjómanna um allan
heim og birt eru áróðursbréf þar sem
því er haldið fram, að fiskveiðar séu
ómannúðlegar og kvalafullar fyrir
fiskinn, þar á meðal rækjur. Einnig
að maðurinn hafí enga þörf fyrir að
neyta fiskjar. Fjallað er um afleiðing-
ar þess að netaveiðar hafa verið
bannaðar við vesturströnd Banda-
ríkjanna á samfélag sjómanna. Þá
kemur fram að bann við selveiðum
þar hafí valdið því að selir og sæljón
hafa lagt undir sig svæði sem þau
hafa aldrei verið á áður.
„Ég tel að þessi mynd muni opna
augu fólks þegar það sér hvað þessi
bijálsemi er að ná langt,“ sagði
Magnús Guðmundsson.
Hann sagði að áhugi væri þjá
þeim erlendu sjónvarpsstöðvum að
sýna þessa mynd, sem sýnt hefðu
myndina Lífsþjörg í norðurhöfum.
Þá hefðu íslensku sjónvarpsstöðvarn-
ar myndina til skoðunar.
í NÝRRI heimildarmynd Magnúsar Guðmundssonar kvikmynda-
gerðarmanns er því haldið fram, að umhverfisverndarsamtök
séu að hefja víðtæka baráttu gegn fiskveiðum. Myndin er mjög
gagnrýnin á umhverfisverndarsamtök og aðferðir þeirra í her-
ferðum gegn selveiðum og hvalveiðum.
„Ég tel að innan skamms þurfi yfir á fískveiðar og hinn almenni sjó-
menn að huga verulega að hagsmun- maður að verða skotspónn þeirra,“
um sínum á íslandi. Áhersla um- sagði Magnús Guðmundsson eftir að
hverfisverndarsamtaka er að færast hafa sýnt fréttamönnum myndina.
Þeir gagnrýna umhverfisverndarsamtök
AÐSTANDENDUR myndarinnar Reclaiming Paradise, sem er mjög
gagnrýnin á umhverfisverndarsamtök. Frá vinstri eru Martin Regal
sem er sögumaður, Guðmundur Á. Arinbjarnarson tæknistjóri og
Magnús Guðmundsson framleiðandi.
Ný heimildarmynd gagnrýnir umhverfisverndarsamtök
Barátta þegar haf-
in gegn fiskveiðum
Litlu risarnir frá Miele
★ ★ Iðnaðar- og fjölbýlishúsavélar ★ ★
Tilboðsverð:
Kr. 112.567Kr. 168.156
Verðlistaverð:
Kr. 135.081,- Kr. 201.787,-
Húsfélög og aðrir stórnotendur!
Grípið gæsina meðan hún gefst!
W W Jóhann Ólafsson & Co
• sl M)AH()R(I l.l • 104 RKYKJAVlK • SlMihRN.AHR
Opnunartími mánudaga til fóstudaga kl. 9-12
og 13-18. Lokað á laugardögum.