Morgunblaðið - 03.03.1993, Síða 21
J
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993
21
Þyrluslys á
Grænlandi
ÞRÍR fullorðnir og mánaðar-
gamalt barn létust þegar þyrla
af gerðinni Bell 212 hrapaði til
jarðar á Norðvestur-Grænlandi
í fyrrakvöld. Var um að ræða
tvo Svía, flugmanninn og flug-
vélstjóra, grænlenskan starfs-
mann flugfélagsins og litla
stúlku, sem var farþegi ásamt
móður sinni og tveimur systkin-
um. Þau þijú komust hins veg-
ar lífs af og voru flutt til byggða
á hundasleðum. Var veður mjög
slæmt þegar þyrlan hrapaði en
hún lenti á hafísnum milli bæj-
anna Upernavik og Tasiusaq.
Ekkert er enn vitað um ástæðu
slyssins en dönsk rannsóknar-
nefnd kom í gær til Grænlands.
Genscher vin-
sælastur
HANS-Diet-
rich Genscher,
fyrrverandi
utanríkisráð-
herra Þýska-
lands, nýtur
mests fylgis
sem næsti for-
seti landsins
ef marka má skoðanakönnun,
sem tímaritið Stern birti í gær.
Leitað var álits rúmlega þúsund
manna og nefndu 48% þeirra
Genscher. Helmut Kohl kansl-
ara, sem ætlar ekki að sækjast
eftir forsetaembættinu, nefndu
6% og sami fjöldi Ignatz Bubis,
leiðtoga þýskra gyðinga. Næst-
ir Genscher voru hins vegar
tveir jafnaðarmenn, stjórn-
málamennirnir Johannes Rau
og Hans-Jochen Vogel, en
fengu þó aðeins stuðning 12%
hvor.
Stórslys í
Zaire
AÐ minnsta kosti 146 manns,
Zairebúar, sem reknir höfðu
verið frá nágrannaríkinu
Kongó, drukknuðu eða krömd-
ust til bana í gær. Varð atburð-
urinn með þeim hætti, að fólkið
var að reyna að komast um
borð í feiju en þegar hún lagði
skyndilega frá hafnarbakkan-
um hrökkluðust þeir, er fremst-
ir stóðu, ofan í Kongó-fljótið.
Þá lagðist feijan aftur upp að
og kraindi marga til dauðs.
Viðamikil
rannsókn
RANNSÓKN á sprengingunni
í World Trade Centre í New
York beinist nú aðallega að
myndbandstökum, bílastæða-
kvittunum og frásögnum vitna
af því, sem fyrir augu bar. Til
eru kvittanir með númerum,
að hluta að minnsta kosti, allra
bíla, sem komu á bíiastæðin
þennan dag en sérstaka at-
hygli vekur frásögn margra af
flutningabifreið, sem ók hratt
út úr byggingunni rétt áður en
sprengingin varð og augljós-
lega með engan farm.
Eindaginn er
í árslok
KOMAST verður að samkomu-
lagi um nýjan GATT-sáttmála
fyrir árslok, að öðrum kosti eru
Urúgvæ-viðræðurnar endan-
lega farnar út um þúfur. Art-
hur Dunkel, framkvæmdastjóri
GATT, lýsti þessu yfir á ráð-
stefnu, sem haldin var í Björg-
vin á vegum norska hagfræði-
og viðskiptafræðiháskólans.
Kvaðst hann þó vera bjartsýnn
því það væri meiri ábyrgðar-
hlutur en svo, að nokkur ein
ríkisstjórn fengi undir því risið
að koma í veg fyrir GATT-
samning.
- mæting 5x í viku í leikfimi
- fitumælingar og vigtun
- fræðslufundur
þátttakendur skila matardagbók og fá
- matardagbók umsögn og ráðgjöf um breytt mataræði
- Ijúffengar mataruppskriftir m. léttu fæði
- aðhald og hvatning
Skemmtilegir tímar í góöum félagsskap og þú losnar við óvelkomna fitu
og lærir að tileinka þér nýjan lífsstíl svo að aukakílóin verði ekki framar
vandamál. Þú færð allar upplýsingar í síma 68 98 68.
Verð
kr. 9.900,-
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 68 98 68
★ Morgunhópur
★ Daghópur
★ Kvöldhópur
★ Vaktavinnufólk velkomið
★ Barnagæsla
í Kaupmannahöfit
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Andrej Kozyrev sem staddur var
í Kaupmannahöfn í síðustu viku
svaraði fyrirspurn Morgunblaðsins
á blaðamannafundi um álit hans á
stefnu EB í alþjóðaviðskiptum á
þá leið að hann væri mjög óánægð-
ur með nýjar hömlur á innflutningi
á fiski og áli. Besta aðstoð Evrópu-
ríkja fælist í að opna markaði sína
í stað skammvinnrar hjálpar og
gjafa. Aðeins uppbyggjandi lang-
tímaaðstoð gæti stutt við umbótat-
ilraunir Borís Jeltsíns forseta og
komið í veg fyrir upplausn og ólgu.
Ekki þróunarland
Kozyrev sagði að hvernig sem
á það væri litið væri Rússland
ekki þróunarland heldur stórveldi.
Rússar réðu yfir hráefni og tækni-
þekkingu, sem þeir vildu geta nýtt
á opnum markaði í Evrópu í 'eðli-
legri samkeppni við evrópska aðila.
Slík samskipti yrðu aðalefni sam-
starfssamnings við EB, sem væri
verið að vinna að og sem vonandi
yrði lokið við á næstu mánuðum,
meðan Danir fara með formennsk-
una í EB.
Karlaveldið í Sviss
Verður umdeild
kona ráðherra?
North vill
hommabann í
Washington. The Daily Telegraph.
OLIVER North ofursti, sem
dæmdur var fyrir aðild að íran-
kontramálinu þegar hann var
starfsmaður þjóðaröryggisráðs
Bandarílganna, hefur hafið
trúarlega herferð gegii þeim
áformum Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta að afnema bann við
herþjónustu samkynhneigðra.
North og fleiri hægrimenn telja
að áform forsetans bijóti í bága við
ritninguna. Hefur hann skrifað bréf
til trúarhópa í Bandaríkjunum í því
skyni að fá þá til að styðja herferð-
ina með fjárframlögum. „Opin sár
eru ekki óalgeng. Þegar fólk er að
deyja á vígvellinum af völdum sára
sem það fær í bardaga megum við
ekki auka hættuna á alnæmi, lifrar-
bólgu og öðrum sjúkdómum sem
eru tíðir á meðal samkynhneigðra,“
segir meðal annars í bréfinu.
Málsvarar homma og lesbía hafa
brugðist ókvæða við þessum um-
mælum. David Smith, talsmaður
Herferðar fyrir herþjónustu, bar-
áttusamtaka homma og ýmissa
fijálslyndra hreyfínga, hefur sakað
North um að „ala á móðursýkisleg-
um ótta við samkynhneigða og
færa sér hann í nyt til að afla pen-
inga“.
og pú ncerö únœgjulegum úrcmgri
Hefst 6. mars
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMEINAÐ þing svissnesku þjóðarinnar kýs ráðherra í stað
Rene Felbers, utanríkisráðherra, í dag. Felber sagði af sér vegna
veikinda og Jafnaðarmannaflokkurinn, SPS, hefur tilnefnt
Christiane Brunner, þingmann og verkalýðsleiðtoga frá kantón-
unni Genf, í hans stað. Hún er umdeild og með öllu óvíst hvort
meirihluti þingheims greiðir henni atkvæði. Ef hún nær ekki
kjöri þá verður það í annað sinn sem þingmenn styðja ekki
kvenframbjóðenda SPS í ríkisstjórn.
Þingmenn borgarlegu flokkanna
eru fyrst og fremst á móti Brunn-
er vegna skoðana hennar en einka-
málin bæta ekki úr skák. Hún
Kozyrev á fundi
EB er að
reisa við
múrana
studdi til dæmis tillögu um að
leggja niður svissneska herinn fyr-
ir nokkrum árum. Þriðjungur þjóð-
arinnar studdi tillöguna um að
leggja niður herinn í þjóðarat-
kvæðagreiðslu en hann er heilög
kýr í augum margra og þeim fínnst
andstæðingur hersins ekki eiga
erindi í ríkisstjórn. Ákvarðanir
stjórnarinnar mótast af málamiðl-
unum og andstæðingar Brunners
telja róttækar skoðanir hennar
ekki eiga heima í ríkisstjórninni.
Brunner er lítil og ljóshærð, 46
ára, hefur fijálslega framkomu og
hefur verið þingmaður á annað ár.
Hún var kjörin formaður eins mik-
Odtlny Ólafsdóttir,
Eddct Sigurbergsdóttir og
Ingibjörg Siguröardóttir
tnisstu samtals
34 kg offitu.
Líkamsrækt er nií
peirra lifsstíU.
Christiane Brunner
ilvægasta verkalýðsfélags Sviss,
málm- og úraverkalýðsfélagsins, í
fyrra. Hún býr með eiginmanni
sínum og tveimur sonum hans frá
fyrra hjónabandi, eigin syni úr
fyrra hjónabandi, syni fyrri sam-
býlismanns síns og fóstursyni frá
Tælandi. Hún er hlynnt fijáls-
lyndri fóstureyðingarlöggjöf og
talið er víst að hún hafi sjálf látið
eyða fóstri ólöglega. Hún hefur
hvorki viljað neita því né staðfesta
og segir það ekki koma hæfni sinni
sem stjórnmálamanni við. Nokkrir
þingmenn Kristilega þjóðarflokks-
ins (CVP) munu ekki kjósa hana
þess vegna.
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
STJÓRNVÖLD í Rússlandi
telja að verndartollar Evrópu-
bandalagsins (EB) séu í mót-
sögn við alla viðleitni við að
styðja uppbyggingu og efna-
hagsframfarir í Rússlandi.
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, hefur látið
þau orð falla að síst af öllu sé
ástæða til að reisa nýja múra
þegar þeir gömlu séu fallnir.