Morgunblaðið - 03.03.1993, Side 26
Vínartónleikar Kammerhljómsveitar Akureyrar í Iþróttaskemmunni á sunnudag
100 manna kór
með hljómsveit
VÍNARTÓNLEIKAR Kammerhljómsveitar Akureyrar verða haldnir
í íþróttaskemmunni á Akureyri næstkomandi sunnudag, 7. mars kl.
17. Einsöngvarar verða þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Jón Þor-
steinsson og þá hefur hljómsveitin fengið til liðs við sig Kór Dalvíkur-
kirkju.
Vínartónleikar Kammerhljóm-
sveitar Akureyrar hafa á undan-
fömum árum átt miklum vinsæld-
um að fagna, en slíkir tónleikar
hafa verið haldnir fjórum sinnum
áður og gestir hafa verið 6-700
talsins á hveijum tónleikum. Stjóm
hljómsveitarinnar lítur svo á að vin-
sældir Vínartónleikanna endur-
spegli áhuga Norðlendinga fyrir
slíkum tónleikúm sem árvissum
þætti skemmtanalífsins.
Færa út kvíarnar
Jón Hlöðver Áskelsson fram-
kvæmdastjóri Kammerhljómsveitar
Akureyrar sagði er tónleikamir
vora kynntir að hljómsveitin væri
smám saman að færa út kvíamar
varðandi Vínartónleikana og væri
mikið í þá lagt nú.
Á fyrri hluta tónleikanna verða
flutt vinsæl óperaatriði eftir Ross-
ini, Verdi, Mascagni og Gounod, en
í síðari hlutanum verður farið til
Vínar og flutt atriði úr Sígaunabar-
óninum eftir Johann Strauss yngri
ásamt fleiri lögum eftir sama höf-
und auk verka eftir Lanner kennara
-i hans.
Hljómsveitin verður skipuð 50
hljóðfæraleikuram, en auk hennar
syngur 50 manna kór, Kór Dalvík-
urkirkju með á tónleikunum. Jón
Hlöðver sagði það sérstakt fagnað-
arefni að fá kórinn til liðs við hljóm-
sveitina og Hollendingurinn Gerrit
Schull, stjómandi tónleikanna, lauk
miklu lofsorði á frammistöðu kórs-
ins. Þetta er í fyrsta skipti sem
Guðsþjónusta
Föstuguðsþjónusta verður í Ak-
ureyrarkirkju í kvöld, miðvikudags-
kvöld, og hefst hún kl. 20.30. Sung-
. ið verður úr Passíusálmunum. Fólk
er hvatt til að sækja sér uppbygg-
ingu og styrk í lestur og hugleið-
ingu píslarsögunnar.
hann stjórnar hljómsveit hér á landi,
en hann hefur stjómað hljómsveit-
um í fjölmörgum löndum.
Einsöngvararnir
Einsöngvarar á tónleikunum
verða þau Ólöf Kolbrún Harðardótt-
ir, sópran, og Jón Þorsteinsson, ten-
ór. Ólöf Kolbrún er óperastjóri Is-
lensku óperannar og hefur hún ver-
ið í aðalhlutverki í fjölmörgum upp-
færslum þar um árabil. Jón hefur
starfað sem óperasöngvari í Hol-
landi um margra ára skeið og sung-
ið flölda stórra hlutverk þar, en
hann tekur þátt í uppfærslu Leikfé-
lags Akureyrar á Leðurblökunni
sem framsýnd verður síðar í þessum
mánuði.
Staðið
MIKIÐ er lagt í árlega Vínartónleika Karamer-
hljómsveitar Akureyrar sem haldnir verða um
helgina, en þau Jón Hlöðver Áskelsson, Gerrit
Morgunblaðið/Rúnar Þór
í strönffu
Schull, Hlm Torfadóttir, Guðmundur Óli Gunnars-
son og Elísabet Eyjólfsdóttir hafa staðið í ströngu
við undirbúning tónleikanna.
516 voru á atvinnuleysisskrá á Akureyri um mánaðamótin
Atvinnuátak er hafið
en 70 störf eru í boði
UM SÍÐUSTU mánaðamót voru 516 á atvinnuleysisskrá á
Akureyri, en það er örlítil fækkun á milli mánaðamóta, í
lok janúar voru 523 á atvinnuleysisskrá. Karlar á atvinnu-
leysisskrá eru 294 og konurnar 222.
Fyrstu starfsmennimir sem fá
vinnu í átaki í atvinnumálum hófu
störf í gær, en alls hafa verið sköp-
uð störf fyrir 70 manns á atvinnu-
leysisskrá við ýmis störf. Þeir sem
byijuðu að vinna í gær fengu störf
við uppbyggingu Listasafns Akur-
eyrar í Grófargili, en einnig verður
boðið upp á störf í skólum, íþrótta-
mannvirkjum, við umhverfísmál og
ýmislegt fleira.
Á fundi bæjarstjómar Akureyrar
í gær var gagnrýnt hvemig staðið
hefði verið að þessum málum eink-
um af hálfu heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra. Formaður bæjarráðs,
Sigurður J. Sigurðsson, sagði málið
hafa tekið undarlega stefnu og vís-
aði hann alfarið á bug ásökunum
sem fram hefðu komið um að sveit-
arfélög væru að misnota Atvinnu-
leysistryggingasjóð.
Óréttmætt
Sigríður Stefánsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, sagði það hafa verið
mikla lífsreynslu að taka þátt í sam-
starfi fulltrúa sveitarfélaga og heil-
brigðisráðherra vegna þessa máls.
Hún sagði ásakanir ráðherrans eins
óréttmætar og mest mætti vera,
m.a. um að sveitarfélögin væru að
misnota sjóðinn með þvi að hafa á
atvinnuleysisskrá fólk sem ætti að
vera á framfæri sveitarfélaganna.
Vísaði Sigríður til laga um atvinnu-
leysistryggingasjóð þar sem fram
kæmi að bótaréttur félli ekki niður
þótt fólk neiti starfi sem það ekki
geti stundað.
Sigríður sagði að í skýrslu sem
gerð hefði verið eftir atvinnuátakið
sem stóð síðasta haust hefði verið
tekið fram að á atvinnuleysisskrá
væri fólk sem illa gæti sinnt sumum
störfum.
Akureyri fær
Nonna-styttu
MENNTAMÁLARÁÐ hefur ákveðið að gefa Akureyrarbæ styttu
Nínu Sæmundsson af rithöfundinum Nonna. Listakonunni var falið
að gera styttuna að tillögu menntamálaráðherra árið 1958 og var
frá upphafi gert ráð fyrir að hún yrði á Akureyri. Svo fór þó ekki
og stóð styttan um árabil á lessal Borgarbókasafns íslands. Þaðan
var hún flutt fyrir um það bil 10 árum og virtist engin vita hvað
orðið hefði af henni þegar Anna S. Snorradóttir fann þana á hlöðu-
lofti Korpúlfsstaða 9. nóvember í vetur.
Aldarafmæli Nonna 1957
Samkvæmt fundargerðabók
menntamálaráðs má rekja aðdrag-
andann að gerð styttunnar allt til
ársins 1957 þegar ákveðið var að
gangast fyrir minningarsýningu í
tilefni af aldarafmæli skáldsins.
Ári síðar var tekið fyrir á fundi
« ráðsins bréf menntamálaráðherra
þess efnis að Nínu Sæmundsson
yrði falið að gera mynd af Jóni
Sveinssyni og samþykktu fundar-
menn að skrifa bæjaryfirvöldum á
Akureyri um málið og heyra álit
þeirra á þessari hugmynd.
Sumarið 1958 voru hafnar við-
ræður við Nínu og henni greiddar
30.000 kr. í verklaun á árinu.
Haustið eftir sést hins vegar gjörla
í fundargerðinni að ekki ríkti ein-
hugur um gerðina í ráðinu. Þannig
óskar Magnús Kjartansson sér-
staklega eftir því að bókað sé á
fundi ráðsins 14. október 1959 að
honum þyki miður að kaup á jafn
dýru verki hafi verið ákveðin á
ófullskipuðum fundi. „Ég er and-
vígur því, að fé Menningarsjóðs sé
varið til kaupa á þessu verki," seg-
ir í niðurlagi bókunarinnar.
Vangreitt kaupverð
Árið 1960 er málið aftur tekið
fyrir og kemur þá í Ijós að Nínu
Nonni fer norður
ANNA S. Snorradóttir hafði uppi á styttunni af Jóni Sveinssyni,
Nonna, á hlöðulofti Korpúlfsstaða í vetur.
höfðu aðeins verið greiddar 50.000
kr. af þeim 160-170.000 sem hún
hafði farið fram á. Haft er eftir
framkvæmdastjóra ráðsins í þessu
sambandi að henn teldi að Nína
væri fáanleg til að lækka verðið
nokkuð en engin tala er nefnd í
því sambandi.
Næst er minnst á styttuna í
fundargerð frá árinu 1964. Er þar
samþykkt að fela framkvæmda-
stjóra að ganga endanlega frá
samningum við listakonuna um
greiðslu fyrir verkið, svo og að
skrifa Akureyrarbæ og bjóða hon-
um myndina að gjöf. Sama hug-
mynd kemur upp á fundi mennta-
málaráðs árið 1972 en þá er einnig
ákveðið að athuga hvort Akur-
eyrarbær væri fáanlegur til þess
að taka þátt í að steypa styttuna
í eir.
Árið 1975 er svo eftirfarandi í
fundargerð: „Styttan af sr. Jóni
Sveinssyni (Nonna). Fram-
kvæmdastjóra falið að komast að
uppruna styttunnar og hvernig hún
komst I eigu menntamálaráðs.“
Miðstöð fólks í
atvinnuleit
Kostnaður
við læknis-
þjónustu
MIÐSTÖÐ fyrir fólk í atvinnu-
leit verður með fjölbreytta dag-
skrá í „opnu húsi“ í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkj u í dag,
miðvikudaginn 3. mars, á milli
kl. 15 og 18.
Ólafur H. Oddsson héraðslæknir
ræðir um kostnað við læknishjálp
og aðra heilbrigðisþjónustu og
svarar fyrirspurnum. Þá verða
gefnar upplýsingar og fyrirspurn-
um svarað um átak í atvinnumál-
um sem Akureyrarbær hefur beitt
sér fyrir í samvinnu við Atvinnu-
leysistryggingasjóð og er að hefj-
ast.
Jón Viðar Guðlaugsson lyfja-
tæknir kemur í heimsókn og slær
á létta strengi og Friðrik Vagn
Guðjónsson heilsugæslulæknir liðk-
ar liðamótin og fær hjartað til að
slá hraðar. Veitingar verða á boð-
stólum öllum að kostnaðarlausu.