Morgunblaðið - 03.03.1993, Síða 31

Morgunblaðið - 03.03.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993 31 Sigrún Jónsdótt- ir - Minning Fædd 5. apríl 1908 Dáin 22. febrúar 1993 í dag kveðjum við Sigrúnu Jóns- dóttur föðursystur okkar, sem lést á Borgarspítalanum 22. febrúar eftir erfið veikindi síðastliðið ár. Sigrún var lítil og kvik í hreyfing- um, hafði létta lund og smitandi hlátur. Þrátt fyrir öll árin var hún enn ung í anda og fylgdist með öllu fram undir það síðasta. Hún var spurul og hafði áhuga á sam- ferðafólki sínu. Við munum minnast hennar með hlýhug og þakklæti fyrir allar skemmtilegu samveru- stundimar. Sigrún og Gústi maður hennar tóku okkur undir sinn vemdarvæng nokkra vetur á fyrstu skólaámm okkar í Reykjavík. Á heimili þeirra í Njörvasundi var gott að vera og vom þau hjónin samhent og mikilir félagar. Viðmót þeirra í okkar garð einkenndist af umhyggju og nota- legheitum alla tíð. Sigrún missti mikið við fráfall Gústa, en hélt áfram sínu góða skapi og tók öllu mótlæti af styrk og æðruleysi. Minningin um góða konu mun lifa í hugum okkar allra. Svo er því farið: Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnamir honum yfir. (Hannes Pétursson) Liya og Guðrún. Ástkær amma okkar, Sigrún Jónsdóttir, andaðist mánudaginn 22. febrúar sl. eftir erfitt veikinda- ár. Við fráfall hennar skapaðist tómarúm, sem enginn getur fyllt. Margar eru minningamar, sem við eigum í hjörtum okkar. Hún bar umhyggju fyrir okkur og hugsaði vel um okkur, vildi passa okkur í lengri eða skemmri tíma, hvenær sem var. Þá skellti hún upp pönnu- kökum eða klöttum með rúsínum, sem var alltaf vel þegið. Við systkinin rifumst um að fá að sofa hjá ömmu og afa í Njörvó. Lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá ömmu, hún þurfti að beijast við mikil og langvinn veikindi með afa okkar, sem var besti afi í heimi. Blessuð sé minning þeirra. Mín för er kyrrlát og fáa varðar. Sem dropi af vatni ég dett til jarðar. Og ég hef starf minni jarðvist í að sinna um blóm og svala því. En næsti bústaður bíður mín. Ég svif til himins er sólin skín. Tár af blómi er burtu strokið. Þessari jarðvist er þar með lokið. (R.I.A.) Sigrún Ágústa Gunnarsdóttir, Þorsteinn B. Gunnarsson, Gunnar Ingi Gunnarsson. Að leiðarlokum langar okkur tengdadætur Sigrúnar að minnast hennar með nokkrum orðum, en hún lést í Borgarspítalanum aðfara- nótt mánudagsins 22. febrúar, eftir langa baráttu við illvígan sjúkdóm og verður jarðsungin í dag frá Foss- vogskirkju. Sigrún var fædd á Eyrarbakka 5. apríl 1908, dóttir hjónanna Guð- rúnar Guðmundsdóttur og Jóns Guðbrandssonar skósmiðs. Olst hún upp í foreldrahúsum ásamt sex systkinum. Elst var Guðmunda gift Sveinbirni Einarssyni, bæði löngu látin, þau áttu tvo syni og bjuggu í Reykjavík. Svo Ingimar og Sig- hvatur sem báðir drukknuðu ungir menn, Sighvatur átti eina dóttur, sem nú er látin. í miðið var Sigrún sem hér er minnst, síðan Ólöf gift Torfa Nikulássyni, eru þau búsett á Eyrarbakka, þá Guðrún, gift Ólafi Gíslasyni, og á hún eina dóttur, þau búa einnig á Eyrarbakka, en yngst- ur er Jónatan kvæntur Sigrúnu Ingjaldsdóttur, þau eiga sex börn, bjuggu lengi á Eyrarbakka, en búa nú í Reykjavík. Eflaust hefur oft verið glatt á hjalla hjá þessum stóra systkinahópi, en sjálf hafði Sigrún létta lund, var glaðvær og naut sín vel í góðra vina hópi. Á þessum árum þurfti fólk snemma að fara að vinna fyrir sér og tók þá alla vinnu sem bauðst. Gerðist Sigrún matráðskona fyrir sjómenn sem reru frá Sandgerði og var það í fimm vertíðir ásamt Ólöfu systur sinni. Síðan var hún um tíma í vist í Kothúsum í Garði, hjá ágæt- isfólki, og einnig hjá hjónunum Margréti og Haraldi Blöndal ljós- myndara í Reykjavík. Þar passaði hún meðal annars tvíburadrengi sem þau hjón áttu. Milli þessara fjölskyldna og Sigrúnar hélst vin- átta síðan alla tíð. Árið 1930 fór Sigrún ásamt fleira fólki á alþingishátíðina sem haldin var á Þingvöllum. Þá hitti hún ung- an mann sem vann þar við lög- gæslu. Ekki urðu þeirra kynni mik- il þá, en seinna voru J)au endumýj- uð. Þessi maður hét Ágúst Ingvars- son, fæddur í Reykjavík 1. ágúst 1904, og ólst hann þar upp hjá for- eldrum sínum. Móðir hans hét Sól- veig og var ættuð ofan úr Borgar- firði, en faðir hans var Ingvar Guð- mundsson smiður frá Sólheimum í Mýrdal, afkomandi séra Högna Sig- urðssonar sem kallaður var presta- faðir. Sigrún og Ágúst giftu sig hinn 23. janúar 1937. Ágúst var lærður vélstjóri og var yfirvélstjóri á togurum og fleiri skipum. Tæpu ári eftir giftingu þeirra var Ágúst yfirvélstjori á BV Hilmi og var tog- arinn á leið til Englands hinn 24. október fullhlaðinn fiski er hann fékk á sig mikinn brotsjó sem braut mestalla yfirbygginguna ofan af skipinu og lagði það á hliðina, en fyrir fádæma dugnað hjá Ágústi og hans mönnum, sem í kolsvarta myrkri, vaðandi í sjónum upp í mitti, tókst að ná aftur upp eimi og keyra skipið upp þegar það var að stökkva. Frá þessu segir í Morg- unblaðinu 29. október 1937. Þenn- an atburð mundu þau hjónin alla tíð, þó ekki væri mikið um það rætt. Sem betur fer urðu slík stór- áföll ekki fleiri, en oft munaði mjóu, einkum á striðsárunum. Sigrún var heima sem húsmóðir, en eins og aðrar konur sem áttu menn sína á sjónum hefur henni sjálfsagt ekki alltaf verið rótt, þar sem fréttir bárust ekki heim fyiT en eftir marga daga ef eitthvað hefði komið fyrir. En lífið átti einnig sínar björtu hlið- ar og fór Sigrún með manni sínum í siglingar bæði til Þýskalands og Englands, og hafði hún mjög gam- an af þeim ferðum. Oft þegar Agúst var á sjónum, fór hún til Eyrar- bakka og dvaldi hjá sínu fólki í nokkra daga. Sigrún og Ágúst eignuðust tvo syni, Ingvar, fæddan 19. ágúst 1938, kona hans er Bergþóra Óg- mundsdóttir, eiga þau einn son Ágúst Ottó, fæddan 11. júní 1974, einnig ólust upp hjá þeim þijú böm hennar af fyrra hjónabandi. Og Gunnar Jón fæddan 31. ágúst 1944, hans kona heitir Signý Þorsteins- dóttir, og eiga þau þijú böm, elst er Sigrún Ágústa, fædd 5. apríl 1966, á afmælisdegi ömmu sinnar og nöfnu, þá Þorsteinn Bessi, fædd- ur 26. september 1972, yngstur er Gunnar Ingi, fæddur 4. júlí 1975. Fyrsta búskaparárið bjuggu þau hjónin á Fjölnisveginum, síðan á Snorrabrautinni í 14 ár, en þar var mjög gestkvæmt og oft einn eða fleiri næturgestir, þó að þetta væri bara tveggja herbergja íbúð. Var þá sofið í flatsæng á gólfinu eftir þörfum. Voru það vinir og vandamenn frá Eyrarbakka og austan úr sveitum sem oft nutu gestrisni þeirra hjóna, enda allt fólk Sigrúnar þaðan að austan, því að hún var bæði af Bergsætt og Víkingslækjarætt. Af Snorrabrautinni var flutt í Klepps- holtið og byggðu þau húsið í Njörva- sundi 27, þar sem þau þjuggu fram í júní 1980, en þá dó Agúst. Eftir það flyst Sigrún í Álfheima 2_6, og bjó þar ein alla tíð eftir það. í Álf- heimunum eignaðist Sigrún margar góðar vinkonur, og emm við þakk- látar fyrir þá vináttu og hjálpsemi sem henni var þar sýnd. Sigrún starfaði í mörg ár með Kvennadeild Slysavamafélagsins bæði í merkjasölu og allskyns söfn- unum, sótti þar marga fundi og fór með Slysavarnafélagskonum í ferðalög, bæði innanlands og utan. Einnig passaði hún Sigrúnu nöfnu sína meðan hún var lítil, og þar sem hún var lengi eina bamabamið var hún í miklu uppáhaldi hjá ömmu og afa. Hún var líka hjálpleg við ömmu sína síðustu árin, þegar hún þurfti á aðstoð að halda. Þegar fólk sem hefur verið sam- tíða manni í tvo til þijá áratugi kveður, er margs að minnast. Sig- rún var ákaflega minnug og mann- glögg, einnig mjög ættfróð og gat oft sagt manni deili á hinu og þessu fólki og um margt hefur hún frætt okkur í gegnum árin. Hér látum við staðar numið þótt margt sé enn ósagt. Við sendum öllum ástvinum hennar okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Sigrúnar Jónsdóttur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Tengdadætur. Minning Páll H. Wium málarameistari Fæddur 15. maí 1911 Dáinn 20. febrúar 1993 Það var árla morguns laugardag- inn 20. febrúar sl. að tengdafaðir minn, Páll H. Wium málarameist- ari, kvaddi þennan heim. Hann hafði um skeið verið til lækninga á Landspítalanum vegna meinsemdar á eyra. Sú lækning bar árangur, en eitthvað annað og meira, sem við kunnum ekki skil á, batt að lok- um enda á jarðvist okkar ástkæra vinar. Já, kallið er komið. Mætur og traustur samferðamaður er horf- inn yfir móðuna miklu og eftir stendur minningin um ástríkan föð- ur, tengdaföður, afa og langafa. Páll var fæddur í Bárugerði í Miðneshreppi, sonur hjónanna Giss- urar Hans Wium og Rannveigar Pálsdóttur. Faðir hans var fæddur í Bárugerði einn af fimmtán systk- inum og er ein systir hans enn á lífi, Guðbjörg á Sjónarhól í Hafnar- firði sem gift var Birni Eiríkssyni. Móðir Páls, Rannveig, var fædd í Vallarhúsum í Kirkjubólshverfi, en það er mitt á milli Garðskaga og Sandgerðis. Páll átti þijú systkini, Guðjón er nú dvelur á vistheimili aldraðra, Garðvangi í Garði, Kristín búsett í Garði og Sveinbjörg búsett í Reyjavík. Páll var af þeirri kynslóðinni sem fór ung út á vinnumarkaðinn. Tíu ára gamall fór hann til sjós og um fermingu var hann af fullum krafti þátttakandi í bústörfum ásamt öðru heimilisfólki. í þá daga var vélarafl- ið maðurinn sjálfur. Það gerðist ekkert nema fólkið sjálft hefði frumkvæðið og gengi að þeim verk- um sem nauðsynleg voru til þess að framfleyta sér og sínum. Og þannig hefur lífsstíll þessa heiðurs- manns verið. Árið 1930 fer Páll til Reykjavíkur og hyggst komast að sem nemi í málaraiðn. Það má segja að þetta ár, þegar minnst var 1000 ára af- mælis Alþingis, hafi eyðilagt ætlan hins unga manns. Hann yfírgefur Reykjavík og heldur heim, en biður frændfólk sitt í Reykjavík að láta sig vita ef einhver auglýsir eftir nema. Og svo er það í apríl 1931 að honum berast boð þess efnis, að Jón Bjömsson málarameistari, Vesturgötu 17, hafi auglýst eftir nema. Það er ekki að orðlengja það. Páll ræðst til Jóns og er hjá honum í verklegu námi, en stundar bóklegt nám í Iðnskólanum sem þá var til húsa í Iðnaðarmannahúsinu við Tjömina. Á námsárum sínum bjó Páll hjá Vigdísi Halldórsdóttur á Bjargar- stíg 7, en hún rak þar greiðasölu. Þar bjó einnig frænka Vigdísar, Þorbjörg Guðlaugsdóttir frá Eski- firði. Þorbjörg hafði stundað nám í Samvinnuskólanum, en vann við verslunarstörf hjá R.P. Leví á þess- um ámm. Á Bjargarstígnum lágu leiðir þeirra Páls og Þorbjargar saman. Málarasveinninn hikaði ekki, bað um hönd stúlkunnar þótt námi væri ekki lokið. Þau giftu sig í september 1934. Hjúskaparár þeirra urðu tæplega fimmtíu og eitt, en Þorbjörg lést 23. ágúst 1985. Fljótlega eftir giftinguna fer Páll til Kaupmannahafnar og lýkur þar námi og tekur sveinspróf um vorið 1935. Kemur heim í apríl það ár og fer að vinna hjá Jóni Ágústssyni málarameistara. Ungu hjónin festu kaup á húsi við Hörpugötu 13 í Skeijafirði og má segja að jiar hafi þau byijað sinn búskap. Á næstu árum búa þau á ýmsum stöðum, en 1946 festa þau kaup á íbúð við Drápuhlíð 15 í Reykjavík. Páll og Þorbjörg eignuðust fimm börn og eru fjögur þeirra á lífi. Elst var Vigdís og hennar maður var Einar Sveinbjömsson bóndi á Ysta-Skála í V-Eyjafjallahreppi og varð þeim fimm bama auðið og eru fjögur þeirra á lífí; Narfí, kvæntur Svanhvíti Aðalsteinsdóttur og eiga þau fyögur böm; Guðlaug, gift Ragnari S. Magnússyni, áttu þau þijú böm og eru tvö þeirra á lífi; og Karl Viðar og á hann tvö börn. Og barnabamabömin em þrettán. Páll naut ætíð virðingar og trausts þeirra sem hann vann fyrir. Hann var góður fagmaður sem skil- aði sínu verki af stakri prýði og samviskusemi. En honum var fleira til lista lagt. Mér er nær að halda að tónlistargáfuna hafi hann fengið í vöggugjöf. Ekki er mér kunnugt um hvort hann átti þess kost í æsku að stunda tónlistarnám, og hafi svo ekki verið þá hefur verið um sjálfsmenntun að ræða. Páll spilaði á orgel og munnhörpu. Þessi heiðursmaður ræktaði þennan eig- inleika með sjálfum sér, spilaði fyr- ir sig og sína, okkur sem á hlustuð- um til mikillar ánægju. Og nú hafa síðustu tónar hörp- unnar hljóðnað. Hendur meistarans hvíldu létt á munnhörpunni góðu að morgni laugardagsins 20. febr- úar sl. Frábært starfsfólk á Land- spítalanum, á deild 11E, hafði lagt hann í rúm á stofu 4 og búið svo um þar inni, að börn og tengdabörn Páls sem þama komu saman um morguninn, munu seint gleyma þessari morgunstund. Á þessari kveðjustund þakka ég miklum heiðursmanni samfylgdina. Bið hinn hæsta höfuðsmið að vaka yfír börnum hans og afkomendum öllum og fjölskyldum þeirra, systk- inum hans og háaldraðri föðursyst- ur. Ljúfi Guð þig lofum vér, lútum, játum, viðurkennum. Alda faðir, einum þér ástarfóm til dýrðar brennum. Hátt þér syngur helgi ljóð heimur vor og englaþjóð. (Stefán frá Hvítadal) Ragnar S. Magnússon. Nú er lífsgöngu afa míns lokið hér í heimi. Við sem eftir lifum erum komin mislangt á okkar gönguför en enginn veit í raun hvar hann er staddur. Afi fór hægt og hljótt um, en skildi efti sig mörg auðnuspor sem verma hjartaræt- umar og fylgja manni áfram veg- inn. Hlýja, kærleikur, samviskusemi og heiðarleiki einkenndu meðal ann- ars afa minn og geislar þetta frá minningu hans. Hvað er betra en að skilja þetta líf og hafa gefíð börnum sínum slíkt veganesti. Reyndar uppskar afí sem hann sáði. Eitt af aðaláhugamálum afa var tónlistin, gaf hún honum ríkulega lífsfyllingu ekki síst eftir að hann lagði málningarpenslana á hilluna. Mér fannst hann bæði hlusta á tón- list og spila af einhverri mildi sem ég get ekki lýst. Það fylgdi þessu einhver lotning. Hin síðari ár eftir að elskuleg amma mín hvarf úr lífi hans sefuðu stundirnar við orgelið og munnhörpuna eflaust sárasta söknuðinn. Nú eru þau saman á ný og aftur kemur vor í dal - bara öðrum dal. Ég mun sakna stund- anna í Drápuhlíðinni. Þær koma aldrei aftur en góðar minningar lifa áfram, verðmætari en nokkurt gull. Dagurinn í gær er orðinn minn- ing í dag, þess vegna skulum við láta gæfusporin hans afa fylgja okkur á morgun. Elsku besti-afi minn, ég þakka fyrir allt og allt. Guð veri með þér. Sigríður Anna Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.