Morgunblaðið - 03.03.1993, Síða 34
34
fclk f
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993
r
MATARGERÐ
Nýr matar-
og vínklúbbur
í vændum
Andri Þór Guðmundsson hefur verið ráðinn
markaðsstjóri Almenna bókafélagsins og
verður eitt af fyrstu verkum hans að koma á lagg-
imar matar- og vínklúbbi. Ritstjóri klúbbsins verð-
ur matreiðslumeistarinn Sigurður Hall, sem kunnur
er orðinn af matreiðsluþáttunum á Stöð 2. Aðspurð-
ur hvort hann héldi áfram með þættina þar sagði
hann svo vera og nú þegar væri búið að taka upp
rúmlega þijátíu þætti. Andri Þór segist ekki vera
með mikla reynslu af matargerð. „Ég ætla að láta
Sigurði alveg eftir faglegu hliðina og held að ég
noti bara tækifærið og læri eitthvað af honum.
Ekki veitir af,“ sagði hann.
Andri og eiginkona hans, Gréta Björk Guðmunds-
dóttir, eru nýkomin úr brúðkaupsferð frá Kúbu og
aðspurður hvort hann hefði komið með einhvem
góðan rétt handa Sigurði sagðist hann kannski
geta gaukað að honum einhveijum humarrétti.
í hveijum mánuði verða gefnar út mat-
reiðslubækur um eitthvert ákveðið efni, s.s. nauta-
kjöt eða sósur o.s.frv. „Með hverri bók fylgir mán-
aðarrit, þar sem gefin em holl ráð í sambandi við
matreiðslu, ábendingar um ódýrt hráefni, svör til
klúbbfélaga, ráðgjöf og umíjöllun um það sem
hæst þer hveiju sinni og heimilsráð. Við ætlum að
leggja mikla áíierslu á að gefa hagnýt ráð til spam-
aðar og segja frá hvemig hægt er að búa til veislu-
máltfð úr ýsu, nautahakki og slíku hráefni,“ sagði
Sigurður.
— Maður þarf þá ekki að eiga ijóma, humar og
slíkan munað í ísskápnum til að búa til réttina?
„Nei, það er ekki alltaf dýra hráefnið sem skipt-
ir máli, heldur áhuginn við að búa til matinn."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigurður Ilall verður ritstjóri nýs matar- og
vínklúbbs, sem er að hefja göngu sina hjá Al-
menna bókafélaginu. Með honum á myndinni
er Andri Þór Guðmundsson, sem tók við starfí
markaðsstjóra um mánaðamótin.
Ekki bara bókaútgáfa
Ekki verður eingöngu um útgáfu á matreiðslu-
bókum að ræða, heldur verður ýmis starfsemi tengd
matargerð á dagskrá, eins og vínklúbbur, mat-
reiðslukennsla og fleira. Einnig stendur til að kynna
veitingahús mánaðarins, þar sem verður gefinn 15%
afsláttur af heildarreikningi. Síðan er ætlunin að
félagar klúbbsins velji veitingahús ársins. „Eins
verður boðið upp á samstarf við heildsölur með
áhöld til matargerðar líkt og pastavélar, tortilla-
pressur og fleira. Verður veittur afsláttur gegn
framvísun klúbbskírteinis," sagði Sigurður.
Hann sagði einnig að til stæði að fara í sælkera-
ferðir út fyrir landsteinana og jafnvel hópferðir á
veitingahús innanlands.
-Svona litu þau Bill og Hillary Clinton út árið 1979. Myndin er greini-
lega tekin áður en hún var nokkuð farin að velta útliti sínu fyrir sér.
BANDARÍKIN
Hillap/ Clinton
þá og nú
Hillaiy Clinton segist aldrei hafa
hugsað eins mikið um föt og
undanfarið hálft ár. Þá segist hún
heldur aldrei hafa einblínt eins mik-
ið á ímynd sína eins og þennan tíma,
og það er að skilja á henni að hún
sé hvort tveggja undrandi og fari
hálfpartinn hjá sér vegna þessa.
En þegar flett er blöðum sem sýna
myndir af henni frá árinu 1979
þykir manni ekki mikið, að hún
hafi gert eitthvað fyrir útlit sitt.
Eða hver hefði trúað því, að með-
fylgjandi mynd frá 1979 sýni sama
kvenmann og myndin frá 1993?
Hillary er sú manngerð sem
kaupir fiit af nauðsyn ekki áhuga
og yfirleitt alltaf á síðustu stundu
— eða svo var það þar til hún fór
að vera meira í sviðsljósinu um það
leyti sem Bill Clinton var kosinn
ríkisstjóri. Meira að segja brúðar-
kjóll hennar var keyptur daginn
fýrir brúðkaupið, 11. október 1975.
Nú fer hún mun oftar í búðir, en
að sögn er hún ekki haldin neinu
kaupæði og fær sér því aðeins eina
flík í einu. Uppáhaldslitimir eru
himinblár (túrkís), jaðigrænn, rauð-
ur og purpurarauður.
Nemendur 8.,9. og 10. bekkja fengu kennslu í hinum ýmsu blóma-
skreytingum, m.a. borð- og hattaskreytingum.
SKÓLAR
Listavika í Folda-
skóla
Nemendur Foldaskóla brugðu út svo sem forðun, blómaskreytingar
af hefðbundnu skólahaldi ný- og fleira. Á myndunum má sjá af-
lega og héldu Listaviku. Þar var rakstur þessara listgreina.
ýmislegt gert sér til skemmtunar,
Morgunblaðið/Sverrir
Edda Sóley Þorsteinsdóttir málar Huldu Sigríði Ólafsdóttur.
Hljómsveitin Facon.
leiSarf
Söngleikur
Baldurs-
manna
Leikfélagið Baldur hélt árshá-
tíð sína fýrir skömmu í Bald-
urshaga fyrir fullu húsi. Frum-
sýndur var söngleikur eftir Haf-
liða Magnússon við góðar undir-
tektir. Þá var endurvakin hljóm-
sveitin Facon með Jóni K. ólafs-
syni söngvara í fararbroddi. Dans-
að var fram eftir nóttu á þessari
vel heppnuðu árshátíð Baldurs.
Bræðurnir.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt