Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C
57. tbl. 81.árg.
MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Orðrómur um að Fischer verði af verðlaunafénu
Vasiljevic flýr
Serbíu í skyndi
Belgrad. The Daily Telegraph.
JEZDIMIR Vasiljevic, fjármálamaðurinn sem skipulagði
skákeinvígi Bobby Fischers og Borís Spasskís í Serbíu og
Svartfjallalandi, hefur flúið til ísraels og segir að glæpa-
menn á vegum serbneskra stjórnvalda hafi reynt að myrða
hann.
Hundruð manna söfnuðust í gær
saman fyrir utan banka Vas-
iljevics, Yugoskandik, til að athuga
um sparifé sitt en aðalútibúið í
Belgrad var lokað. Talsmaður
bankans sagði fólkinu að bankinn
myndi starfa áfram undir stjórn
annars manns.
Skyndileg brottför Vasiljevics
olli vangaveltum um að Fischer og
Spasskí fengju ekki það fé sem
þeim var lofað greitt að fullu.
Fischer hélt upp á 50 ára afmæli
sitt í gær í hótelíbúð sinni í Belgrad
og lagði á þegar fréttaritari The
Daily Telegraph hringdi í hann til
að spyija hvort hann hefði fengið
verðlaunaféð. „Hann kann að hafa
verið skilinn eftir einn og yfirgef-
inn,“ sagði stjórnarerindreki sem
hefur fylgst grannt með Fischer í
Belgrad.
Átti að fá 218 milljónir
Skákmennirnir hafa staðfest að
þeir hafí fengið einhvetja fyrir-
framgreiðslu áður en einvígið hófst.
Hins vegar hafa ekki fengist upp-
lýsingar um hvort þeim hafí verið
greitt að fullu. Fischer átti að fá
jafnvirði 218 milljóna króna fyrir
einvígið og Spasskí 108 milljóna.
Flúinn
JEZDIMIR Vasiljevic, sem
skipulagði skákeinvígi Bobby
Fischers og Borís Spasskís í
Serbíu og Syartfjallaiandi, er
nú flúinn til Israels.
Craxi svipt-
ur þinghelgi?
Róm. Reuter.
ITOLSK þingnefnd lagði til í gær að Bettino Craxi, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ítalíu, yrði sviptur þinghelgi svo hægt
yrði að sækja hann til saka fyrir meinta aðild að spillingarmáli.
Craxi neyddist til að segja af sér
sem leiðtogi Sósíalistaflokksins fyrr
á árinu vegna spillingarmálsins og
hefur háð harða baráttu gegn'TTl-
raunum ákæruvaldsins til að leiða
hann fyrir rétt. Þingið á eftir að
greiða atvæði um hvort svipta beri
hann þinghelginni.
Fleiri handtökur
Gengi lírunnar lækkaði og verð-
fall varð á hlutabréfamarkaðinum í
Róm eftir að lögreglan handtók sós-
íalistann Gabriele Cagliari, yfnrnann
næststærsta ríkisfyrirtækis Italíu,
orkufyrirtækisins ENI. Cagliari er
sakaður um spillingu og brot á lögum
um fjármögnun stjórnmálaflokka.
Franco Ciatti, stjómarformaður syst-
urfyrirtækis ENI, Nuovo Pignone,
var einnig handtekinn fyrir sömu
sakir.
Sljórnin riðar til falls
Ríkisstjórn Giulianos Amatos for-
sætisráðherra er að falli komin og
haft var eftir ráðherrum í gær að
hún kynni að víkja á næstu dögum.
Amato varð fyrir miklu áfalli þegar
hann neyddist til að falla frá tillögu
sem stjómin samþykkti á föstudag,
en hún miðaði að því að taka vægi-
lega á þeim sem gerast sekir um
pólitíska spillingu. Giovanni Conso
dómsmálaráðherra, höfundur tillög-
unnar, staðfesti í gær að hann væri
að íhuga afsögn. Þegar hafa fjórir
ráðherrar sagt af sér á undanförnum
fimm vikum.
Valdabarátta Jeltsíns og þingsins
Einíng Rúss-
lands sögð í
mikilli hættu
Moskvu. Reuter.
RÚSLAN Khasbúlatov, forseti rússneska þingsins, hafnaði í
gær nýjustu tillögu Borís Jeltsíns Rússlandsforseta um skipt-
ingu valda milli hans og þingsins. Jeltsín ræddi í gær við
leiðtoga héraða, sem njóta takmarkaðrar sjálfstjórnar, og
þeir vöruðu við því að valdabarátta forsetans og þingsins
stefndi einingu Rússlands í alvarlega hættu.
dag að hann hygðist leggja drögin
fyrir fulltrúaþingið. Hann sagði hins
vegar á fundinum með leiðtogum
héraðanna í gær að drögin væru
ekki eini kosturinn og hann léði
máls á því að ræða fleiri tillögur sem
miðuðu að því að binda enda á valda-
baráttuna sem hefur lamað stjórn-
kerfið og hindrað frekari efnahags-
umbætur. „Við þessar aðstæður
myndi frekari togstreita hafa stór-
hættulegar afleiðingar," hafði frétta-
stofan Itar-Tass eftir forsetanum.
Upplausn yfírvofandi
Leiðtogar héraðanna vöruðu hins
vegar Jeltsín við því að valdabaráttan
beindi athyglinni frá enn alvarlegri
vanda sem stefndi sambandi ríkis-
stjórnarinnar í Moskvu og héraðanna
í hættu. Togstreitan á milli þeirra
gæti leitt til þess að Rússland leyst-
ist upp. „Ef það sem er að gerast í
Moskvu breiðist út til héraðanna leik-
ur enginn vafi á því að Rússland
verður ekki sameinað ríki öllu leng-
ur,“ sagði Akhsarbek Galazov, leið-
togi Norður-Ossetíu. Leiðtogamir
kvarta yfir því að héruðin fái ekki
nægilegan stuðning frá ríkisstjórn-
inni og þeim sé gert að greiða of
mikið í ríkissjóð Rússlands.
Khasbúlatov sagði í gær að ekki
bæri að ræða drög Jeltsíns að lögum
um valdaskiptinguna á fundi full-
trúaþingsins, æðstu löggjafarsam-
kundu Rússlands, í dag. „Það er
ekki hægt að taka drögin alvarlega,"
sagði hann við fréttamenn. „Þetta
er einhvers konar leikur."
Jeltsín lét svo um mælt á sunnu-
Miðausturlönd
Boðað til við-
ræðna í apríl
Washington. Reuter.
BANDARÍSK og rússnesk stjórnvöld
ætla í dag að gefa út formlegt boð
til fulltrúa ísraela og araba um að
heija friðarviðræður að nýju 20.
apríl. Viðræðunum var hætt 17. des-
ember þegar ísraelar sendu 415 Pal-
estínumenn í útlegð. Fulltrúar Pal-
estínumanna hafa sagt að þeir vilji
ekki hefja viðræðurnar að nýju fyrr
en ísraelar heimili útlögunum að
snúa heim tafarlaust. ísraelar hafa
boðist til að taka við þeim öllum fyr-
ir árslok en á það hafa Palestínu-
menn ekki enn fallist.
MIKIL átök urðu í gær í Nantes í Frakklandi þegar um 1.000 sjómenn stormuðu inn á fiskmarkaðinn í borginni
til að mótmæla innflutningi á ódýrum físki og öðrum sjávarafurðum. Slösuðust nokkrir lögreglumenn í slagnum
við sjómennina, sem voru loksins flæmdir burt með táragasi. Hér eru þeir að bæta á bálköst úr fiskpöllum.
Sjómenn í uppreisnarhug
Reuter
Þorskkílóið á krónu!
Verðhrun í Noregi vegna gífurlegra kaupa á rússafiski
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunbiaðsins.
TÆPLEGA króna fyrir kílóið af fyrsta flokks þorski. Þetta
er verðið, sem áhöfnin á norsku fiskiskipi fékk í síðustu viku
í Vadsö í Norður-Noregi og að sögn talsmanna fiskiðnaðarins
á Finnmörku er ástæðan ofureinföld: Gífurleg kaup á rússn-
eskum fiski á spottprís. Taka sumir þannig til orða, að Norð-
menn séu upp á sitt eindæmi að kippa fótunum undan eigin
sjávarútvegi.
Að því er segir í norska blaðinu
Adresseavisen var skipið með fimm
tonn af úrvalsþorski en fískverkend-
ur í Norður-Noregi sögðu nei takk,
allir nema einn. Hann bauðst til að
gefa rúmar þijár krónur íslenskar
fyrir kílóið en þegar hann komst að
því, að sjómennirnir áttu ekki í önn-
ur hús að venda hélt hann því fram,
að fiskurinn væri ekki nógu góður
og lækkaði verðið í tæpa eina krónu
eða 10 aura norska. Fyrir fimm
tonnin fengust 4.650 kr.
Lágmarksverð á þorski til norskra
sjómanna er tæplega 99 íslenskar
krónur. Norskum fiskverkendum
kemur hins vegar ekki til hugar að
kaupa þorskinn á þessu verði þegar
þeir geta fengið hann miklu ódýrari
frá Rússunum.
Sjá fréttir á bls. 16.