Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJÓVÁI
iÁLMENNAR
MORGUNBLADW, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJA VÍK
StMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Mikill viðbúnaður vegna sprengjuhótunar í Leifsstöð
Morgunblaðið/Kristinn
Ollum leiðum lokað
ÖLLUM leiðum til og frá Leifsstöð var lokað fyrir umferð meðan á neyðarástandinu stóð í kjölfar sprengjuhótunarinnar.
Flugvélunum beint til
lendingar í Reykjavík
MIKILL viðbúnaður varð vegna sprengjugabba. í Leifsstöð
í gærkvöldi og allt flug til landsins fór úr skorðum. Karl-
maður hringdi á afgreiðslu Flugleiða í Leifsstöð kl. 18.57
a. og sagði að sprengja spryngi í flugstöðinni kl. 20.00. Flug-
* stöðin var þegar rýmd af öllu fólki og sprengjusérfræðing-
ar frá Landhelgisgæslunni og Varnarliðinu kallaðir til.
Auk þess var allt öryggiskerfi Varnarliðsins sett í við-
bragðsstöðu. Þrjár flugvélar voru á leið til Keflavíkurflug-
vallar er hótunin barst og var ákveðið að láta tvær þeirra,
Aldísi á leið frá Glasgow með 25 farþega og SAS-vél á
leið frá Kaupmannahöfn með 64 farþega, lenda í Reykja-
vík en neyðarástandi var aflétt áður en SAS vélin kom
til landsins og Ienti hún því í Keflavík.
Auk þessara flugvéla var stödd
við Leifsstöð DC-8 þota frá Inter-
national Cargo Express á leið frá
Calgari í Kanada til Moskvu. Með
henni voru 15 farþegar sem var
hleypt inn í flugstöðina vegna mis-
taka en síðan vísað strax út í vél
aftur.
Einnig var DC-9 fraktvél frá
Flugleiðum á leið frá Ostende í
Belgíu til Keflavíkur en hennar
áætlun raskaðist ekki.
Ekki unnt að rekja símtalið
Samkvæmt upplýsingum frá
Elíasi Jónssyni, aðalvarðstjóra í
lögreglunni á Keflavíkuvelli,
reyndist ekki unnt að rekja samtal
það sem barst en það var erlendur
starfsmaður Flugleiða sem tók á
móti því. Alls voru tæplega 50
manns staddir í Flugstöðinni þegar
hótunin barst. Þeim var vísað út
úr stöðinni og kallað til slökkvilið
og allt tiltækt lögreglulið.
Sprengjusérfræðingamir fóru inn
í stöðina um klukkan 20.30 og
hófu leit að sprengjunni. Ekkert
fannst og var neyðarástandi aflétt
klukkan 21.50.
Tilfærslur aflaheimilda milli útgerðarfyrirtækja frá síðasta ári
Þau stærstu bæta við 3%
ELLEFU stærstu sjávarútvegsfyrirtækin
bættu hlutdeild sína í heildaraflaheimildum
um 2-3% milli áranna 1992 og 1993. Er það
áframhald á þeirri þróun að aflaheimildir
safnist á færri hendur. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Fiskistofu voru ellefu stærstu
fyrirtækin með 28,6% af botnfiskkvótanum
I byijun mars á móti tæplega 27% i maí í
fyrra og 17% árið 1991. Af heildarkvóta
höfðu fyrirtækin 25,6% hlutdeild á móti
tæplega 23% hlutdeild I maí í fyrra og 13%
hlutdeild árið 1991.
Fimm stærstu fyrirtækin, Grandi hf., Útgerðar-
félag Akureyringa hf., Samherji hf., Vinnslustöðin
hf. og ísfélag Vestmannaeyja hf., ráða nú yfir
,1^.6% botnfískkvótans og tæplega 16% af heildar-
kvóta landsmanna. A síðasta ári réðu þessi fyrir-
Aflakvóti 11 stærstu
utgenðarfypiptækjanna
Botnfiskur
28,6% Allurafli
1992 mars 1992 mars
1993 1993
tæki yfir 16,6% botnfiskkvótans og um 14% af
heildarkvótanum. Aflatölumar að baki hlutdeild-
inni, mældar í þorskígildum, hafa hinsvegar lækk-
að á milli áranna 1992 og 1993 vegna verulegs
niðurskurðar á þorskafla. Þannig nemur botnfiskk-
vóti ellefu stærstu fyrirtækjanna nú 88.403 tonnum
en hann var 96.545 í maí í fyrra. Heildarkvóti
þessara fyrirtækja er nú 106.425 tonn en var
117.345 tonn í fyrra.
Grandi með mesta kvótann
Þeim fyrirtækjum sem eiga yfír 1% af botnfískkvót-
anum hefur fjölgað úr 16 í fyrra í 24 nú og þeim
fyrirtækjum sem eiga yfir 1% af heildarkvótanum
hefur fjölgað úr 12 í fyrra í 16 nú.
Tvö stærstu fyrirtækin, Grandi og Útgerðarfélag
Akureyringa, hafa bætt töluvert við hlutdeild sína
af heildarkvótanum frá árinu 1991 en þá var hlut-
deildin 2,3% hjá Granda en 2,6% hjá ÚA. Nú hefur
Grandi 3,6% kvótans en ÚA er með 3,3%.
Bolvfldng-
ar stofna
útgerðar-
fyrirtæki
Bolungarvík.
BOÐAÐ hefur verið til
stofnfundar nýs útgerðarfé-
lags í Bolungarvík, Utgerð-
arfélagsins Ósvarar hf., í
kvöld. Félaginu er meðal
annars ætlað að leita eftir
leigusamningi og kaupum á
skipum, veiðiheimildum og
öðrum eignum þrotabús Ein-
ars Guðfinnssonar hf.
Á fjölmennum undirbúnings-
fundi í gærkvöldi skrifuðu hátt í
100 einstaklingar sig fyrir hlut í
félaginu, allt að 300 þúsund hjá
einstaklingi, auk þess sem Bolung-
arvíkurkaupstaður og verkalýðsfé-
lögin gáfu fyrirheit um hlutafjár-
kaup.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur boð-
aði til undirbúningsfundarins, sem
haldinn var í Víkurbæ. Hátt í 200
manns sátu fundinn.
Stofnfé 2,5 milljónir
Stofnfé Útgerðarfélagsins
Ósvarar hf. verður í upphafí 2,5
milljónir kr. og eftir viðtökum í
gærkvöldi að dæma má ætla að
'sala þess sé tryggð. Bærinn er
tilbúinn að leggja fram allt að einni
milljón, Verkalýðsfélagið 500 þús-
und 0g Verslunarmannafélagið
200 þúsund, auk hlutafjárloforða
einstaklinga. Menn geta skrifað
sig fyrir hlutafé í dag.
Á stofnfundinum í kvöld verður
kosin stjóm hlutafélagsins. Verk-
efni hennar verður að leita eftir
leigusamningi og kaupum á eign-
um þrotabús EG hf. og þegar þau
mál skýrast verður boðað til nýs
hluthafafundar og hlutafé vænt-
anlega aukið.
Gunnar
Tap í fyrsta
leik
HEIMSMEISTARAR Svía
höfðu betur gegn Islendingum
í fyrsta leik HM í handknatt-
leik, sem hófst í Gautaborg í
gærkvöldi. íslendingar höfðu
undirtökin til að byija með og
jafnt var í hálfleik, 9:9, en
Svíar tóku leikinn í sínar hend-
ur síðasta stundarfjórðunginn,
gerðu þá sex mörk gegn einu
og unnu 21:16.
Nánar um HM á bls. 41-43.