Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
Mikill óróleiki og þrýstingur á verð einkenna evrópsku fiskmarkaðina
Þúsund franskir
sjómenn börð-
ust við lögreglu
ÓÁNÆGJA sjómanna í Evrópu með mikið framboð af ódýr-
um fiski magnast enn. Um 100 manns réðust í gær um borð
í rússneskt verksmiðjuskip í Peterhead í Skotlandi og helltu
olíu yfir farminn og í Grimsby komu sjómenn í veg fyrir;
að flutningabílar með franskan fisk væru afgreiddir. I
Nantes í Frakklandi slösuðust sjö lögreglumenn í átökum
við um 1.000 sjómenn, sem unnu gífurlegar skemmdir á
fiskmarkaði borgarinnar.
Sjómennimir í Peterhead helltu
um 70 lítrum af dísilolíu yfir fiskinn
um borð í rússneska verksmiðju-
skipinu Romb til að mótmæia inn-
flutningi á ódýrum fiski en fyrir
nokkrum dögum olli farmur úr öðm
rússnesku skipi miklu verðhmni á
markaðnum þar. Til aðgerðanna í
Grimsby gegn franska fisknum var
hins vegar gripið í hefndarskyni en
franskir sjómenn hafa oft komið í
veg fyrir sölu breskra skipa í Frakk-
landi. í yfirlýsingu, sem samtök
breskra sjómanna gáfu út í gær,
sagði, að það væri ódýr fiskur frá
Noregi og Rússlandi, sem hefði
valdið verðfallinu, og gegn þessum
innflutningi yrði að beijast.
Átökin I Nantes í Frakklandi
vom miklu alvarlegri en þar gengu
um 1.000 sjómenn berserksgang á
fiskmarkaði borgarinnar. Varð að
gera að sámm sjö lögreglumanna
eftir viðureignina við sjómennina
en þeir létu ekki undan síga fyrr
en beitt var táragasi gegn þeim.
Reuter
Milljónatjón
FRÖNSKU sjómennirnir réðust meðal annars inn í frystigeymslu og skemmdu þar mikið af rækju en
talið er, að með aðgerðunum hafi þeir valdið tjóni, sem metið er á meira en 10 milljónir króna.
Afmæli Barbie
Barbie-dúkkan átti 34 ára af-
mæli í gær. Efnt var til veislu í
sendiráði Bandaríkjanna í Lond-
on af því tilefni. Til hennar var
boðið þijátíu bömum sem eiga
sama afmælisdag og Barbie,
þ. á m. Charlotte Hutchinson,
fjögurra ára, sem hér sést.
Rússarnir bjóða fiskinn á
nánast hvaða verði sem er
- segir Páll Sveinsson hjá umboðsfyrirtækinu Fylki hf. í Grimsby
MÓTMÆLI sjómanna í Frakklandi og Bretlandi gegn inn-
flutningi á ódýrum fiski hafa ekki beinst gegn íslenskum
fiski að sögn talsmanna íslensku sölusamtakanna en þeir
eru sammála um, að ástandið á markaðinum almennt ein-
kennist af óvissu og þrýstingi á verðið. Að því er fram kem-
ur hjá Páli Sveinssyni hjá umboðsfyrirtækinu Fylki hf. í
Grimsby beindust aðgerðirnar, sem gripið var til í Bretlandi
í gær, aðallega að innflutningi á ódýrum fiski frá Noregi
og Rússlandi en Páll segir, að Rússarnir virðist tilbúnir til
að selja fiskinn á nánast hvaða verði sem er. Elísabet Óskars-
dóttir, sem starfar hjá uppboðsfyrirtækinu Unipeche í Bou-
logne-sur-Mer, segir aftur á móti, að frönsku sjómennirnir
beini spjótum sínum fyrst og fremst að lýsu og ufsa, sem
flætt hafi yfir franska markaðinn frá írlandi og Bretlandi.
Spánveijar boða tafir á afgreiðslu EES-samkomulagsins
Kom flatt upp á menn
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Yfirlýsingar Spánverja um Evrópska efnahagssvæðið (EES)
að loknum fundi utanríkisráðherra Evrópubandalagsins (EB)
í Brussel á mánudag komu flestum í opna skjöldu. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins höfðu Spánverjar ekki gert neinar
athugasemdir við viðbótarbókun sem samið hefur verið um
vegna fráhvarfs Svisslendinga.
Spánveijar staðfestu bókunina Maastricht-sáttmála EB. Yfírlýs-
ásamt öðrum aðildarríkjum EB og
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) 26. febrúar og samþykktu
hana athugasemdalaust á utanrík-
isráðherrafundinum I Brussel á
mánudag. Heimildum um umræður
á fundinum ber ekki saman en tal-
ið er að utanríkisráðherra Spánar
hafi lesið hluta þeirrar yfirlýsingar
sem dreift var til blaðamanna eftir
fundinn a.m.k. þann sem íjallar um
háleit markmið evrópskar samvinnu
en þar er EES-samingurinn tengdur
ingin var hins vegar ekki formlega
lögð fram á fundinum.
í henni eru tekin af öll tvímæli
um óánægju Spánveija með EES-
samninginn og afgreiðsla hans
tengd samþykkt Maastricht-sátt-
mála aðildarríkja EB. Óánægja
Spánveija með landbúnaðarþátt
EES er vel kunn en tenging þess
samnings við Maastricht-samning-
inn kemur mönnum hér í borg veru-
lega á óvart, þau tengsl þykja ekki
augljós. í yfírlýsingunni þykir leyn-
ast hótun um að tefja afgreiðslu
EES þar til Maastricht-samningur-
inn er í höfn auk þess sem þess er
krafist að framkvæmdastjórn EB
beiti sér tafarlaust fyrir endurbót-
um á landbúnaðarþætti EES-samn-
ingsins.
Flestir viðmælenda Morgun-
blaðsins í Brussel töldu að lítið
mark væri á yfirlýsingu Spánveija
takandi. Þeim hefðu gefist ærin
tækifæri til að koma athugasemd-
um sínum formlega á framfæri
undanfarnar vikur. Þeir hefðu hins
vegar kosið að þegja og samþykkt
viðbótarbókun við EES í tvígang.
Það væri þess vegna ljóst að þeir
gerðu ekki tilkall til þess að athuga-
semdir þeirra væru teknar alvar-
lega.
Halldór Bernódusson hjá IFP,
dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Englandi, og
Aðalsteinn Gottskálksson, for-
stöðumaður framleiðslusviðs hjá
íslenskum sjávarafurðum hf.,
sögðu, að aðgerðir sjómanna í
Evrópu hefðu ekki bitnað á ís-
lenskum fiski en ástandið á mark-
aðnum einkenndist hins vegar af
miklum óróa og þrýstingi á verðið.
Sagði Aðalsteinn, að í Frakklandi
kæmi þetta til dæmis fram í því,
að harðar væri tekið á ýmsum
formsatriðum eins og skoðun og
tafir væru á afgreiðslu. Héðan
hefði hins vegar ekkert farið af
rússáfiski inn á Evrópu þannig.að
Frakkar eða aðrir hefðu ekkert
upp á það að klaga við okkur.
„Það er óvissan, sem er allsráð-
andi, og menn lifa fyrir hvem
dag. Nú er steinbítsvertíðin að
hefjast hér við land en kaupendur
halda að sér höndum og þora ekki
að gera samninga til langs tíma,“
sagði Aðalsteinn.
Lýsa og ufsi frá írlandi og
Bretlandi
„Ólgan meðal franskra sjó-
manna hefur ekki haft nein áhrif
gagnvart íslenska fiskinum,"
sagði Elísabet Óskarsdóttir í við-
tali við Morgunblaðið. „Þeir beina
spjótunum aðallega að öðrum teg-
undum en við erum með, fyrst og
fremst lýsu og ufsa frá Bretlandi
og írlandi. í Bretlandi hefur orðið
mikið verðfall á lýsu og nú er
búið að kaffæra franska markað-
inn líka. Það hefur ekki orðið neitt
uppistand hér í Boulogne ennþá
en sjómenn annars staðar frá hafa
þó verið að hóta aðgerðum hér
síðustu tvær vikurnar. Við erum
reyndar dálítið hrædd um, að það
kunni einmitt að sjóða upp úr nú
í kvöld og eftir því sem við vitum
best þá verða þessar tvær tegund-
ir, lýgan og ufsinn, leitaðar uppi.“
Elísabet sagði, að það yrði að
segja það eins og væri, að norski
þorskurinn væri til vandræða.
Hann væri boðinn á allt of lágu
verði og drægi annan físk niður,
'ekki bara þorskinn. Hún vildi þó
fremur tala um, að verðið hefði
sigið en fallið.
Enginn botn hjá Rússum
Páll Sveinsson hjá Fylki í
Grimsby sagði, að ólgan, sem
væri meðal breskra sjómanna;
bitnaði ekki á íslenskum fiski. I
Grimsby hefðu sjómennimir verið
að gjalda Frökkum líku líkt en
með Rússana gegndi hins vegar
öðru máli. Þeir virtust tilbúnir til
að selja bara á einhveiju verði,
lækkuðu það endalaust og drægju
um leið niður verð á öðrum fiski.
Páll kvaðst hafa verið að selja
íslenskan físk, steinbít, kola og
ýsu, sem fengist hefði þokkalegt
verð fyrir, en þorskurinn hefur
heldur lækkað. Þó hefðu fengist
um 130 kr. fyrir íslenskan neta-
þorsk og taldi Páll það ágætt mið-
að við, að netafískurinn væri ekki
eftirsóttur. Páll sagðist annars
furða sig mest á því hve breski
markaðurinn tæki við miklu magni
án þess að fiskur færi í gúanó
eins og í Þýskalandi. Þá sagði
hann, að töluvert bærist nú af físki
frá Færeyjum vegna ástandsins
þar og gjaldþrots margra frysti-
húsa.
Fufl búi) at nýjum, ítiHskum vor- og sumarfatnaði f- >
20% staögreiðsluafsláttur næsfu daga eneon-
w w Krinqlunni