Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 38
-88 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993 „1/íS erum butn ob venx,gift i meira, en i>jö márxubo, Begga. IBttiréu ekkl <xé vtrtx otb straujCL eSa eitthuab ? " Sjáðu nú til: Engin hlaup með þungt tæki í eftirdragi, engar leiðslur, enginn rafmagns- reikningur og engin rör sem fara í sundur! Ast er að loka ekki tilfinningam- ar ofan í krukku TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved • 1993 Los Angetes Times Syndicate BRÉF TTL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811 ffljómburður Frá Sigurði Þór Sigurðssyni: GREINARHÖFUNDUR er mikill kvikmyndaáhugamaður og vill því ólmur og uppvægur fagna þeim áfanga sem náðst hefur í kvik- myndahúsamenningu okkar ís- lendinga. Hver er svo þessi merki- legi áfangi? Jú, Sambíóin hafa tekið upp eitthvert magnaðasta hljóðkerfi okkar tíma hvað kvik- myndahús viðkemur, svokallaða Dolby Stereo Digital kerfí sem ásamt THX kerfí þeirra Lucas- manna gerir hljómburðinn í Bíó- borginni svo magnaðan að með ólíkindum er, jafnvel fyrir þaulvön- ustu áhugamenn á þessu sviði. Bravó Sambíó! Það vill nefnilega oft gleymast að við kvikmyndahúsgestir höfum fullkomið heymarskynkerfí (sem er ekki síður merkilegt en sjón- skynkerfí okkar) og að fullkomin hljóðrás er samfara flestum þeim kvikmyndum sem framleiddar eru í dag. í þessu sambandi vísa ég einkum til þjónustu Laugarásbíós sem hvað eftir annað hefur sýnt fram á það bíóstjórar gera sér enga grein fyrir þessari staðreynd. Það hefur nefnilega viljað loða við starfsemi þessa kvikmyndahús að svo mikið er dregið niður í hljóm- burðinum að menn á aftasta bekk þurfa að ræða við næsta mann við hliðina á sér til þess að sannfæra sig um það að þeir séu ekki orðn- ir heymarlausir. Þeir Laugarás- bíósmenn verða að fara að gera sér grein fyrir því að nýjustu kvik- myndirnar era gerðar með það í huga að hljómburðurinn skili sér til fullnustu í stereó, í „surround" og með það háum hljóðstyrk að þessir þættir njóti sín til fulls sem þeir svo sannarlega gera ekki í Laugarásbíói við núverandi að- stæður. Nýjasta dæmi þessa er gaman- og spennumyndin Raising Cain sem eins og aðrar spennu- myndir samtímans reiðir sig á skyndihækkanir á hljómstyrk á mögnuðum augnablikum. í Laug- arásbíói verður þetta einungis til þess að menn hugsa með sér „nú, myndin er þá ekki þögul eftir allt saman“ og hið fyrirhugaða sam- spil hljóðs og myndar er fyrir bí. Raising Cain á betra skilið. Aðrar myndir sem greinarhöfundur man sérstaklega eftir að vora vanvirtar á þennan hátt í fyrmefndu kvik- myndahúsi era Backdraft og The Babe (á 9 sýningum?) og ekkert þýddi að kvarta. Hefur greinarhöf- undur og heyrt það frá öðram kvikmyndaáhugamönnum að lítið hefur þýtt að kvarta um þessi mál á þeim bænum. Vaknið Laugarás- bíómenn! Það ætti að hafast með því að hækka í hljómflutnings- tækjunum og troða steinull milli kvikmyndahússins og elliheimilis- ins. Eini ljósi punkturinn í þessu máli er sá að flestar stórmyndim- ar frá Universal era jafnframt sýndar í Laugarásbíói og Sambíó- unum og þeir sem virða heyrnar- skyn sitt einhvers vita þá hvert á að snúa sér. Þetta er þó þrauta- lending þeirra sem alist hafa upp við það að fara á kvikmyndasýn- ingar í Laugarásbíói og vilja enn líta á það sem fullgilt kvikmynda- hús sem vert sé að sækja kvik- myndasýningar í. Bent skal á það að greinarskrif þessi era á engan hátt ætluð til þess að valda vist- mönnum Hrafnistu ama, heldur er einungis bent á vandamál sem er til staðar og eigendur Laugarás- bíós verða að fara að gera sér grein fyrir síharðnandi og tækniv- æddri samkeppni. Hljóðeinangran milli húsa er annað mál ef nálægð elliheimilisins er þá á annað borð ástæðan fyrir lágum hljóðstyrk kvikmyndahússins. Ekki er heldur verið að tala um aukinn „hávaða" heldur það að kvikmyndahús nú- tímans nýti sér þá tækni sem völ er á. Þessi tækni er jú hönnuð með það fyrir augum að áhorfend- ur geti lifað sig betur inn ævin- týri það sem þeir sjá á tjaldinu með auknum og betur dreifðum hljóðstyrk en áður þekkist án nokkurra óþæginda fyrir áhorf- endur. Það er aukin innlifun sem er þungamiðjan í þessum málum. Fyrst að greinarhöfundur er á annað borð farin að benda á brota- lamir í íslenskri skemmtanaþjón- ustu hvað hljómflutning varðar þá telur hann ekki síður vert að benda þeim Stöðvar 2 mönnum á það að það er hið mesta skemmdarverk við heilsteypt kvikmyndaverk að troða inn tilkynningum og tala inn á erlendar kvikmyndir sem áskrif- endur þessarar stöðvar hafa valið að njóta samverustundar með. Hljóðrásin í lok myndar er jafn- mikill hluti kvikmyndaverksins og hvað annað sem í henni er ber því að líta á slíkan verknað sem skemmdarverk á hljóðrás myndar- innar. Það er óþolandi til þess að vita að þegar heilvita fólk er að búa sig undir lok myndar eins og The Duelist að skjmdilega sé til- kynnt ofan í afslappandi og vand- aða hljómlist lokakafla myndar- innar t.d. „dokið nú við því að Patrekur Sæsni fer á kostum í næstu mynd sem byrjar eftir örfá- ar sekúndur". Auðveld lausn á þessum málum fyrir málglaða fjöl- miðlamenn sem greinilega álíta sig ómissandi á öldum ljósvakans og líta auk þess á áhorfendur sem treggáfaða einstaklinga sem hvorki geta lesið dagskrárblöðin sé fylgst með dagskránni á annan hátt er að lesa sinn „bráðnauðsyn- lega“ boðskap annað hvort rétt á undan kvikmyndinni eða strax á eftir henni. Að lokum til þess að enda grein- arpistil þennan á sömu nótunum og hann byijaði þá vill greinarhöf- undur þakka Ríkisútvarpinu Sjón- varpi fyrir að hafa haft dugnað og þor í að koma Nicam hljóm- burðinum í loftið. Þvílíkur munur fyrir þá sem hafa samsvarandi móttökubúnað og geta notað heyrn sína til fullnustu. Nú er bara að bæta tónlistar- og kvik- myndaúrvalið á þeim bæ í sam- ræmi við getuna. Ríkisútvarpið og Sambíóin hafa sýnt fram á það að þau fylgjast með því sem er að gerast í tækniheiminum og láta hendur standa fram úr ermum þannig að sem flestir geti notað tvö af höfuðskynfærum sínum til fullnustu. SIGURÐUR ÞÓR SIGURÐSSON, Hverfísgötu 55. Reykjavík. Víkveiji skrifar Víkveija brá í brún í gærmorg- un þegar hann las frétt á baksíðu Morgunblaðsins þar sem greint var frá því að á milli 25 og 30% nemenda grannskólanna hafa ekki náð lágmarkseinkunn á loka- prófí undanfarin 4-5 ár. Lág- markseinkunn sem framhaldsskól- arnir miða við, þegar þeir ákveða hvort viðkomandi nemandi fær að hefja skólagöngu er miðuð við ein- kunnina 5. Það sem enn válegra virtist í þessari frétt var að greint var frá því að á undanfömum áram hefur hlutfall þeirra nemenda sem ekki ná lágmarkseinkunn heldur farið lækkandi. Hvert var þá eigin- lega hlutfallið, þegar það var hæst? Samkvæmt bestu vitneskju Vík- veija, sem á böm á grannskóla- aldri og reynir að fylgjast glöggt með námsefni þeirra og námskröf- um sem gerðar era til þeirra, þá verður að segjast eins og er að Víkveiji telur ekki að grannskólinn geri miklar kröfur til nemenda sinna. Raunar hefur Víkveiji talið í langan tíma að auka bæri kröf- umar til muna. Því er ekki óeðli- legt að spurt sé á hvaða braut grannskólastarfíð sé á íslandi? Utilokað er að halda því fram að fjórðungur íslenskra grannskóla- nemenda sé svo tornæmur, að hann geti ekki tileinkað sér náms- efni grannskólanna á þann veg að hann nái lágmarkseinkunninni 5, sem vel að merkja þykir engin af- burðaeinkunn, heldur miklu frem- ur skussaeinkunn. XXX Nú þegar kennarar hafa haft vit fyrir forystu síns stéttar- félags og ákveðið að hafna verk- fallshugmyndum forystunnar, tel- ur Víkveiji tímabært að kennar- arnir taki sig saman um að beina nú sjónum sínum fyrst og fremst að innra skólastarfi og kanna hvað hefur farið úrskeiðis, fyrst grann- skólinn stendur ekki undir meiri kröfum en fregnin í blaðinu í gær gefur til kynna. Fáist vitneskja um það í megindráttum á hvaða hátt skólastarfið hefur bragðist hlut- verki sínu, er fyrst hægt að hefja umbótastarf, sem skilar þjóðinni betur undirbúnum grannskólanem- endum inn í framhaldsskólana. Ekki satt? xxx Fátt fínnst Víkveija jafnógeð- fellt, þegar hann þarf að nýta sér þjónustu opinberra stofnana og banka, en að afgreiðslufólkið jórtri tyggigúmmí í gríð og erg á sama tíma og það veitir umbeðna þjónustu. Víkveiji á nokkuð oft leið í íslandsbankann og Lands- banka íslands. í þeim fyrmefnda sést það yfirleitt ekki að starfsfólk- ið sitji og tyggi gúmmí sitt af stakri áfergju, þar sem það vinnur sín störf, en sömu sögu er ekki að segja úr Landsbankanum, að minnsta kosti ekki úr aðalaf- greiðslustað bankans við Austur- stræti. Væri ekki tilvalið að opin- berar stofnanir og hverskonar þjónustufyrirtæki bættu við eins og einni starfsreglu, sem beinlínis bannaði notkun tyggigúmmís?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.