Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 43
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
Hræðilegur lokakafli
Svíar völtuðu yfir íslendinga
síðustu 15 mínúturnar - skor-
uðu þá sex mörk í röð
HEIMSMEISTARAR Svía hófu heimsmeistarakeppnina 1993
eins og þeir luku þeirri síðustu, með sigri. Að þessu sinni
voru það við íslendingar sem urðum að lúta ílægra haldi fyr-
ir þeim, viðtöpuðum 16:21 eftir að staðan f leikhléi hafði ver-
ið 9:9. Leikurinn var hægur framan af en Svíar gerðu út um
leikinn á síðasta stundarfjórðungnum og hreinlega völtuðu
yfir íslenska liðið sem gerði ekki mark i' rúmar 12 mfnútur en
Svíar gerðu þá sex mörk í röð.
Islendingar byrjuðu vel og léku
ágætlega alían fyrri hálfleikinn.
Engu að síður hefði liðið átt að
■■■■■■I hafa forskot því
Skúli Unnar Svíar léku alls ekki
Sveinsson vel, en samt tókst
skrifar frá okkur ekki nema að
Sviþjóð haldajöfnu. Sóknar-
leikurinn var í lagi en dálítið öðru-
vísi en liðið er vant að leika. „Við
lögðum áherslu á að halda boltanum
og leika agaðan sóknarleik og það
kemur niður á „fegurðinni" ef svo
má að orði komast,“ sagði Geir
Sveinsson fyrirliði eftir leikinn.
Mikilvægur sigur
Svíarnir virtust einnig þungir auk
þess sem þeir gerðu mikið af mis-
tökum, eins og íslenska liðið. Bengt
Johansson þjálfari Svíanna sagðist
vonast til að bæði lið léku betur í
næstu leikjum, en sigurinn hefði
verið mikilvægur.
Tók ðhættu
Þorbergur tók áhættu með því
að breyta „hefðbundnu“ byrjunar-
liði. Sigmar Þröstur var í markinú
og varði mjög vel í fyrri hálfleik
en náði sér síðan ekki á strik í þeim
síðari. Gunnar Beinteinsson var eini
vinstri hornamaðurinn og Geir eini
línumaðurinn í hópnum.
Dæmið virtist ætla að ganga upp
hjá þjálfaranum því það kom Svíum
greinilega á óvart að sjá Sigmar
Þröst í markinu. En þeir létu það
ekki á sig fá þó illa gengi í byrjun,
léku eins og þeir eru vanir og um
miðjan síðari hálfleik bar þolinmæði
þeirra árangur. Okkar menn skutu
úr lélegum færum og Svíar brunuðu
upp og gerðu út um leikinn á
skömmum tíma. Mats Olsson varði
einnig mjög vel á þessu tímabili,
en það breytir því ekki að lokakafl-
inn var hreint hræðilegur af hálfu
íslenska liðsins.
Hægri vængurinn
Það hefur ekki verið oft að und-
anförnu sem hægri vængurinn er
vandamál í sóknarleiknum en að
þessu sinni var það. Sigurður
Sveinsson náði sér alls ekki á strik,
gerði aðeins eitt mark og það með
gegnumbroti vinstra megin undir
lok leiksins. Lítið kom einnig út úr
Bjarka í hominu. Héðinn iék vel,
sérstaklega í fyrri hálfleik, Geir var
sterkur á línunni en aðrir ekki nógu
sannfærandi. Vömin var sterk
lengst af en það var sóknarleikurinn
sem brást. íslendingar stjómuðu
hraðanum í fyrri hálfleik en réðu
síðan ekki við það í þeim síðari
þannig að fimm marka tap var stað-
reynd.
Besti maður Svía var Ola Lind-
gren (nr. 5) en hann lék svo til án
þess að gera mistök. Magnus And-
erson var einnig mjög góður og
Mats Olsson hrökk í gang undir
lokin.
Ungverjar burstuðu
Bandaríkjamenn
Ungveijar, sem era í C-riðli eins og íslendingar, áttu
ekki í neinum vandræðum með slakt lið Bandaríkj-
anna og unnu, 33:18, eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 16:8. Stórskyttan Kertesz var í aðalhlutverki og
gerði 9 mörk fyrir Ungveija, sem mæta íslendingum
annað kvöld.
Mörk Ungrerja: Kertesz 9, Eles 7/1, Sotnyi 4, Gyurka 4, Horvath 3/1,
Mohacsi 2, Mezei 1, Kalman 1, Csokhyai 1, Pastor 1.
Mörk Bandaríkjanna: Parat 4, Withtow 3, Travins 3, Fitzgerald 4/1,
Ryan 2, Heath.
Helena Stefánsdóttir
Héðinn Gilsson átti mjög góðan leik í fyrri
hálfleik og gerði þá fímm mörk. Hér reynir hann
að bijótast í gegnum vörn Svía.
Svíþjóð - ísland 21:16
Scandinavium íþróttahöllin I Gautaborg, heimsmeistarakeppnin í handknattleik, c-riðill,
þriðjudaginn 9. mars 1993.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:3, 3:3, 3:4, 4:4, 5:5, 6:6, 7:7, 8:8, 9:9, 9:11, 11:11, 12:12,
14:12, 14:14, 15:15, 21:15, 21:16.
Mörk Svíþjóðar: Magnus Andersson 9/4, Ola Lindgren 6, Per Carlén 3, Magnus Wisland-
er 2, Per Thorsson 2.
Varin skot: Mats Olsson 13 (þaraf fimm til mótheija).
Utan vallar: Pjórar mínútur.
Mörk íslands: Héðinn Giisson 5, Geir Sveinsson 3, Gunnar Beinteinsson 3, Júlíus Jónas-
son 3/3, Sigurður Bjaranson 1, Sigurður Sveinsson 1, Bjarki Sigurðsson, Gunnar Gunn-
arsson, Einar G. Sigursson. Valdimar Grímsson kom ekki inná. Bergsveinn Bergsveins-
son, Patrekur Jóhannesson, Gústaf Bjamason og Konráð Olavson hvfldu.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 12 (þaraf 3 aftur til mótheija). Guðmundur
Hrafnkelsson 4/1 (þaraf 1 aftur til mótheija).
Utan vallar: Sex mínútur.
Dómarar: Stefan Jug og Herbert Jeglic frá Slðveniu. Vora ails engir heimadómarar,
eins og margir höfðu óttast.
Áhorfendur: 10.017.
37,2% sóknamýting
Leikkerfin gáfii mörk
- sagði Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins
Sóknamýting íslenska liðsins gegn
Svíum var 37,2%. Alls voru 43
sóknir og enduðu 16 þeirra með marki.
í fyrri hálfleik var nýtingin 40,9% og
í síðari hálfleik 33,3%.
íslenska liðið gerði 6 mörk með
langskotum, 4 mörk af línu, 3 úr víta-
köstum, 2 úr hornum og 1 eftir gegn-
umbrot. Ekkert mark var gert úr hrað-
aupphlaupi, en Geir Sveinsson fiskaði
viti eftir eina hraðaupphlaup íslend-
igna í leiknum.
BÁrangur einstakra leikmanna:
• Gunnar Beinteinsson gerði 3 mörk
úr fjórum skotum (75% skotnýting)
og viskaði eitt vítakast.
• Bjarki Sigurðsson átti eitt skot
sem misheppnaðist og eina línusend-
ingu sem gaf mark.
• Gunnar Gunnarsson átti 2 skot
sem misheppnuðust, tapaði bolta
tvisvar og rekinn útaf í 2 mín.
• Sigurður Bjarnason gerði eitt
mark úr tveimur skotum (50%).
• Héðinn Gilsson gerði fimm mörk
úr 9 skotum (55%), tapaði bolta fjórum
sinnum, átti eina línusendingu sem
gaf mark.
• Geir Sveinsson gerði 3 mörk úr 4
skotum (75%) og fiskaði tvö vítaköst.
• Júlíus Jónasson gerði þtjú mörk
úr jafnmögum vítum og átti eitt skot
utan af velli sem misheppnaðist (75%),
tapaði bolta einu sinni og var rekinn
útaf í 4 mín.
• Sigurður Sveinsson gerði eitt mark
úr 11 skotum (9%), tapaði bolta tvisv-.
ar, átti tvær línusendingar sem gáfu
mark.
• Sigmar Þröstur varði samtals 12
skot; 5 langskot, 2 af línu, 2 eftir
hraðaupphlaup, 2 úr hornum, 1 eftir
gegnumbort.
• Guðmundur Hrafnkelsson varði
samtals 4 skot; 2 langskot, 1 úr homi
og 1 úr víti.
að var að vonum dauft yfir ís-
lensku leikmönnunum eftir
leikinn gegn Svíum. „Þegar maður
lítur svona í fljótheitum á þetta þá
voram við að skora þegar við lékum
leikkerfin. Það vora þau sem gáfu
mörkin, sérstaklega gekk vel að
leika Héðin frían. Sóknarleikurinn
var agaður þó svo hann hafi sjálf-
sagt ekki verið neitt sérstaklega
góður. Þegar fimmtán mínútur voru
eftir var eins og menn töpuðu ein-
beitingunni og við fóram að skjóta
úr vonlitlum færam og þeir refsuðu
okkur. Hausinn á okkur virtist bara
einfaldlega ekki í lagi þarna í lok-
in,“ sagði Geir Sveinsson fyrirliði.
Hann bætti síðan við brpsandi:
„Þetta er samt í áttina því á Ólymp-
íuleikunum töpuðum við á síðustu
fimm mínútunum í fyrri hálfleik,
núna ekki fyrr en í þeim síðari!"
í lagi í 45 mínútur
„Við settum okkur það markmið
að leika agaðan sóknarleik og það
tókst okkur í 48 mínútur en þá fór
allt í baklás. Strákarnir fóra að
skjóta úr ótímabæram skotum og
sóknimar voru allt of stuttar. A
þessum tíma gáfum við þeim hrein-
lega leikinn. Við voram búnir að
ráða hraðanum í leiknum og þó svo
sóknarleikurinn hafi ef til vill ekki
verið áferðarfallegur þá skiptir það
ekki máli. Þú getur leikið ljótasta
handknattleik í heimi en unnið samt
og það er það sem skiptir máli ekki
fegurð sóknarieiksins. Þetta var of
stórt tap miðað við gang leiksins,
þegar staðan var 15:15 og fimmtán
mínútur eftir misstum við einbeit-
inguna og þar með var þetta búið,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson
landsliðsþjálfari.
Mjög óhress meó mig
„Ég er ekki beint ánægður með
sjálfan mig í þessum leik og raunar
mjög óhress," sagði Sigurður
Sveinsson eftir leikinn. „Það er
langt síðan ég hef leikið svona illa
en það þýðir ekkert að fárast yfír
því heldur einbeita sér að næsta
leik, við Ungveija, og vinna þá. Ég
vona bara að svona leikur verði
ekki viðvarandi ástand hjá mér. Ég
held að við höfum ekki náð að halda
ró okkar. Við áttum góða möguleika
á að sigra, en klúðruðum því,“ sagði
Sigurður.
Svipað og á Ólympíuleikunum
„Þetta var ágætt í fyrri hálfleik
en slakt í þeim síðari. Leikurinn er
ekki ósvipaður og á Ólympíuleikun-
um en þar töpuðum við leiknum
niður á stuttum tíma eins og núna,“
sagði Héðinn Gilsson sem átti einna
bestan leik í íslenska liðinu.
„Mér gekk ágætlega í fyrri hálf-
leik enda held ég að Svíamir hafi
búist við að leikið yrði uppá Sigga
[Sigurð Sveinsson] og því miijni
áhersla á að stoppa mig og því var
ég alltaf dauðafrír. í seinni hálf-
leiknum var ekki eins góð hreyfing
á okkur og klippingar mun minni
en í þeim fyrri. Síðan kom þessi
slæmi kafli þar sem við voram að
skjóta ótímabærum skotum og því
fór sem fór,“ sagði Héðinn.
Rólegt hjð mér
„Ég man held ég bara ekki eftir
leik þar sem það hefur verið svona
lítið að gera hjá mér,“ sagði Bjarki
Sigurðsson. „Það var leikið þannig
að boltinn kom varia út í hornið óg"
þeir klipptu líka vel á spil þangað
og því var þetta svona rólegt. Við
lékum vel í 45 mínútur en svo kom
þessi „hefðbundni“ slæmi kafli hjá
okkur. Við fóram að skjóta vonlaus-
um skotum og þeir branuðu upp í
hraðaupphlaup og fengu þannig
ódýr mörk á stuttum tíma. Þa$,
gleymdist hjá okkur á þessum kafla
að nota höfuðið," sagði Bjarki.