Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
3S
Hvað heitir þú?
Frá Páli Þorgríms Jónssyni:
HEITIR þú nafni sem Manna-
nafnanefnd hefur samþykkt í
fyrstu atrennu, eða þurftu foreldr-
ar eða forráðamenn þínir að breyta
fyrirhuguðu nafni eins og t.d.
Belinda í nafnið Bella eða nafninu
Bogga í Sveinborg. Belinda og
Bogga eru nöfn sem hefur verið
hafnað, en aftur á móti var nafnið
Bella samþykkt, þó svo að það sé
ungt í málinu og á þjóðskrá 1989
voru aðeins fjórar konur sem báru
það sem einnefni eða sem fyrra
af tveimur. Bella er ítalskt lýsing-
arorð eða stytting af nafninu ísa-
bella. Belinda er líka ungt í málinu
og á þjóðskrá 1989 voru átta kon-
ur sem hafa það einnefni eða sem
fyrra af tveimur. Um uppruna
þess er óljóst en giskað á að hann
sé einnig ítalskur. Hins vegar er
nafnið Bogga ungt í málinu og á
þjóðskrá 1989 voru tvær konur
sem báru það einnefni eða sem
fyrra af tveimur. Það er talið, at-
hugið, það er talið vera, ekki stað-
hæft, að það sé stytting af t.d.
Sveinborg eða Borghildur.
Aftur á móti eru leyfð tökuorð
eins og t.d. Lissý sem er stytting
á orðinu Elísabet, en þessu nafni
hét ein kona að einnefni eða fýrra
af tveimur samkvæmt þjóðskrá
1989. Annað nafn sem aðeins ein
kona bar samkvæmt þjóðskrá
1989 og er stytting er nafnið Jara.
Jara er stytting af nafninu Jar-
þrúður. Annað nafn sem er ungt
í málinu og tvær konur báru sem
einnefni eða fýrra af tveimur, er
Tekla, sem nefndin hefur sam-
þykkt. Styttingin á Dóróthea og
síðar Theodóra, en þessi nöfn voru
samþykkt, er nafnið Thea, en því
var hafnað, en á þjóðskrá 1989
var ein kona skráð með þessu
nafni sem einnefni eða fyrra af
tveimur. Það er heldur ekki sama
hvort nafnið er með ritháttinn á
reiki. T.d. má láta skíra bam
gælunafni Margrétar, en það er
Maggý, og er ýmist ritað -í eða
-ý. En í þjóðskrá 1989 voru sextán
konur skráðar með þessu nafni
þ.e. með -ý að einnefni eða fyrra
af tveimur. Annað nafn, Vibekka,
enþað bar ein kona 1989, er ýmist
ritað -í- eða -i-, eða -k- eða -kk-.
Svo er ekki leyft að rita Est(h)er,
það er með -h-, vegna þess að það
er að erlendri fyrirmynd. Aftur á
móti má nota Dorothea, sem ýmist
er ritað -o- eða -ó- eða -t- eða
-th-, en á þjóðskrá voru einungis
fjörutíu og fjórar konur skráðar
Dóróthea árið 1989. En nafnið
Theódóra var einnefni eða sem
fyrra nafn af tveimur á eitt hundr-
að og fjórum konum.
Hvað má þá blessað barnið heita
ef það má heita ónefni, en ekki
góðu nafni, sem hefur verið gegn-
umgangandi síðan á 18. eða 19.
öld? Þurfum við að sætta okkur
við alræðisvald Mannanafna-
nefndarinnar? Hver er munurinn
á að heita Belinda eða Bogga eða
Bella. Bogga og Bella eru stutt-
nefni en Belinda er fallegt nafn
og lætur betur í munni en mörg
önnur orð sem heyrast nú í mál-
inu. Heldur fólk virkilega að böm-
in okkar muni ekki spyija: „Hvers
vegna fékk ég svona ónefni, sem
hinir krakkarnir stríða mér á?“
Eigum við þá að segja þeim að
það vom þrír einstaklingar sem
sögðu að þú mættir heita þessu
nafni, en ekki í höfuðið á henni
ömmu þinni. Munu börnin þá ekki
fá minni tiltrú á hið háa Alþingi,
sem samþykkir svona lög? En það
er þó einn ljós punktur í þessum
lögum. Hann er sá, að það er
hægt að breyta nafninu án þess
að um eiginlega nafnbreytingu sé
að ræða, þ.e. að breyta ritun þess.
En þó fylgir böggull skammrifi,
en hann er sá, að Nefndin þarf
að samþykkja.
Og þá eram við komin á upp-
hafspunktinn aftur. Við fáum ekki
ritháttarbreytingu frekar en að
nota nafnið upphaflega við skím-
ina. Þannig er þessi grein, sem
er sú tuttugasta og fyrsta í lögun-
um, til lítils. Hún er bara til þess
að gefa falska von um ritháttar-
breytingu á nöfnum.
Einnig gefur hún blessuðum
stúlkunum sem áttu að heita Be-
linda eða Bogga falska von vegna
þess að grein tuttugu og eitt seg-
ir að heimilt sé að fá slíka breyt-
ingu aðeins einu sinni, en með
samþykki nefndarinnar. Hins veg-
ar segir í handbókinni „Meginregl-
ur um mannanöfn" samkvæmt
lögum um mannanöfn nr.
37/1991, að samkvæmt sérstök-
um ákvæðum sé hægt að breyta
eiginnafni. Hvaða sérstöku ákvæði
leyfa slíkt? Ekki hef ég séð þau.
Er það kannski grein tuttugu og
fimm, en þar er dómsmálaráðherra
heimilt með reglugerð að kveða
nánar á um framkvæmd þessara
laga. Annað sem ég hef velt fyrir
mér er það vald, sem þremenning-
amir hafa í þessari nefnd. Þeir
ráða því hvað við heitum. Vonandi
era ekki allir sammála því sem
kemur frá nefndinni og láti okkur
hin vita og hið háa Alþingi. Það
er ekki allt svo slæmt að ekki
megi breyta því til betri vegar.
Annað sem nefnin er fræg fyrir
er neitun hennar að heimila karl-
mannsnöfn sem enda á -berg, þó
svo að þau hafi fyrst komið í þjóð-
skrá 1870, og era á skrá 1989.
Nöfn eins og t.d. Guðberg og Ingi-
berg og fleiri. Hvað veldur þessari
ákvörðun annað en geðþótti?
Á þjóðskrá 1989 vora þrjátíu
og fimm karlar með nafnið Guð-
berg, þar af vora tuttugu og fimm
skráðir svo að síðara nafni. Sama
ár voru skráðir þrjátíu og níu með
nafnið Ingiberg, þar af vora tutt-
ugu og einn að síðara nafni. En
flestir einstaklingar á þjóðskrá
1989 er bára nafn með -berg, og
nefndin hefur hafnað, heita Svan-
berg, þeir vora fimmtíu og tveir,
þar af voru tuttugu og fjórir með
.það sem síðara af tveimur. Ég get
talið upp fjórtán nöfn sem enda á
-berg og nefndin hefur hafnað, þar
af níu sem era að fínna í skráðum
heimildum og sótt var um notkun
á. Þessar heimildir eru í bókinni
„Nöfn íslendinga".
Einungis er hægt að rökstyðja
synjun á fimm, en ekki hinum níu.
Hver er tilgangur nefndarinnar
með þessari afgreiðslu annar en
sá, að sýna vald sitt. Vald, sem
fólk þarf að hlíta, þó svo að ekki
séu allir sáttir við úrskurðinn.
Sótt var um nafnið Esther hinn
4. janúar 1993 til nefndarinnar,
og því var hafnað í bréfi dagsettu
13. janúar 1993, þ.e. með rithætt-
inum -h-, og aftur 27. janúar 1993.
í nafnaskrá frá Hagstofunni frá
19. febrúar 1993 er ekkert minnst
á nafnið, hvorki synjun né sam-
þykki, þó nefndin segi að afrit sé
sent Hagstofu íslands. Hvað þarf
maður eiginlega að bíða lengi áður
en nafnið birtist á skránni til þess
að geta sótt málið áfram á erlend-
um vettvangi?
PÁLL ÞORGRÍMS JÓNSSON,
Reykjavík.
Pennavinir
Frá Ghana skrifar 22 ára piltur
með áhuga á knattspyrnu, tónlist
og kynnast fólki af öðru þjóðerni:
Sebastian Turkson,
P. O. Box 46,
Cape Coast,
Ghana.
Frá Prag í Tékkneska lýðveldinu
skrifar 25 ára karlmaður, virðist
verkfræðingur og kveðst eiga
margvísleg áhugamál:
Ing. Jirí Markuci,
Bimova 529,
108 00 Praha 8,
Czech Republic.
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á bókalestri, matargerð,
kvikmyndum:
Kami Miyashita,
2514 Arai Matsukawa-machi,
Shimoina-kun Nagano-ken,
399-33 Japan.
Tvítug Ghanastúlka með áhuga
á ferðalögum, tónlist og dansi:
Jennifer Cook Connelly,
P. O. Box 835,
Jackson Street,
Cape Coast,
Ghana.
Tvítug þýsk stúlka með mikinn
íslandsáhuga auk þess sem ferðalög
heilla hana og hefur gaman af
dansi:
Michaela Jacob,
Sulzburgstr. 23,
D-7318 Lenningen 1,
Germany.
Tvítugur tékkneskur piltur með
margvísleg áhugamál:
Roman Krivanek,
U Kaplicky 442/5,
412 01 Litomerice,
Czhechoslovakia.
Frá Ghana skrifar 22 ár karlmað-
ur með margvísleg áhugamál:
Adu Yeboah Clement,
P. O. Box 1061,
Sunyani Brong-Ahafo,
Ghana.
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist:
Yumiko Kojima,
9-4 Hirono 5 chome,
Shizuoka-shi,
Shizuoka,
421-01 Japan.
VELVAKANDI
GÆLUDÝR TAPAÐ/FUNDIÐ
Páfagaukur tapaðist
GRÆNN páfagaukur flaug út
um glugga í Vogahverfí föstu-
daginn 5. mars sl. Upplýsingar
i síma 37151.
Týndur köttur
EINS árs gamall grábröndóttur
högni tapaðist frá Hverfísgötu
í Reykjavík (ofarlega) fimmtu-
daginn 4. mars. Hann er eyrna-
merktur og er á skrá hjá Katt-
holti og í Dýraspítalanum í Víði-
hlíð. Upplýsingar í síma 687720
á daginn og 13811 á kvöldin.
Fundarlaun.
Læða fæst gefins
MJÖG fallega rósótta 2 ára læðu
vantar heimili. Mjög góð í um-
gengni. Upplýsingar í síma
37542 og 683894.
Vasareiknir tapaðist
VASAREIKNIR, Texas Instra-
ments, tapaðist í strætisvagni
nr. 111 sl. mánudag eftir kl.
19.30. Eigandinn er skólastúlka
og er missirinn mikill fyrir hana.
Upplýsingar gefur Auður í síma
691399 á daginn og 77805 á
kvöldin.
Taska týndist í Tunglinu
LÍTIL brún handtaska með skil-
ríkjum og öðrum persónulegum
munum tapaðist í Tunglinu sl.
föstudagskvöld. Upplýsingar í
síma 611752.
Armband tapaðist
ÞYKKT silfurannband (keðja)
tapaðist, líklega í miðbænum,
föstudaginn 19. febrúar sl.
Finnandi vinsamlega hafí sam-
band í síma 51525.
Mjög falleg 2ja herbergja
íbúð við Víkurás með bílskýli til sölu. Flísalögð, þvottahús
pg geymsla á hæðinni, suðursvalir. Áhv. ca 2,9 millj.
íbúðin er laus. Verð 5,950 millj.
Upplýsingar veitir Fasteignamarkaðurinn í síma 91-11540.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
Námskeió fyrir
leiöbeinendur
Kennarar: Arndís Jóhannsdóttir, Bjarni Kristjáns-
son og Margrét Guðnadóttir.
26., 27. og 28. mars.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga
-fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800.
1 jr * m " ' m ■ m i • __ ■ _
I
J
NY FRIMERKI
3000
I dag koma út ný frímerki. Fyrstadagsumslög fást
á pósthúsum um land allt.
Einnig fást þau með pöntun frá Frímerkjasölunni.
PÓSTUR OG SÍMI
Pósthólf 8445, 128 Reykjavík, Slmi 63 60 51
Við vorum 3 Ódýrastir í fyrra og
erum það enn
Misstu ekki af ódýrustu fermingarmyndatökunni í vor, innifalið í
myndatökunni er: 12 myndir allar stækkaðar í 13 x 18 cm
tilbúnar til að gefa vinum og ættingjum, tvær stækkanir 20 x 25
cm og ein stækkun 30 x 40 cm í ramma. Þessari myndatöku má
skifta þannig, að meuihlutinn sé af fermingarbaminu og hluti af
því og foreldrum þess, eða af fermingarbaminu og tveim til þrem
systkinum saman.
Verð aðeins kr. 14.000,oo
Ljósmyndastofan Mynd sími: 6 542 07
Bama og fjölskylduljósmyndir sími: 677 644
Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 4 30 20
p 4V$UfÍWI
| Metsö/ub/aó á hveijum degi!