Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
31
Minning
Sigríður Haralds-
dóttir á Saltabergi
Það er mikil hlunnindi að finna
að maður sé velkominn, hvort sem
er til húss, starfs eða leiks. Það
voru mikil hlunnindi að kynnast
henni Bíu á Saltó vegna mannkosta
hennar og ekki síst vegna þess að
í návist hennar fann maður alltaf
á augabragði þá ánægju að vera
velkominn. Hvort sem maður hitti
hana eða talaði við hana í síma
leyndi hún aldrei eftirvæntingu
sinni eftir því að nú væri eitthvað
skemmtilegt á næstu grösum. Þessi
glæsilega kona hafði sérstætt fas
og hlý rödd hennar rímaði við svip
augnanna þar sem djúpt vinarþel
og svolítill prakkaraskapur sungu
saman dúett. Strax sem peyja var
manni auðvelt að skynja þegar
fundum bar saman við Bíu að mað-
ur skipti einhveiju máli og hún fór
aldrei í manngreinarálit.
Saltaberg í Vestmannaeyjum var
veröld Sigríðar Haraldsdóttur og
Jóns Hlöðvers Johnsen, Bíu og
Súlla, og það er ekki aðeins að
húsið setji svip á umhverfi sitt, eitt-
hvað íjarlægt og dularfullt, heldur
var samhljómur húsráðendanna í
samræmi við sérkenni hússins, opið
hús með góðan anda þar sem
úteyjastemmning ríkti allt árið,
gaman og alvara í bland, en umfram
allt það sjónarmið að gera gott úr
hlutunum og græða þannig sporin
til góðs. Bía minnti á sunnanblæ-
inn, svo fögur og fínleg ævina alla,
Súlli veiðimaðurinn og vísindamað-
ur í eðli sínu, enda hafði núverandi
háskólarektor orð á því fyrir
skömmu að í Súlla lægju þræðir sem
mikilvirtustu vísindamenn vildu
gjarnan hafa og ljóst taldi hann að
ef Súlli hefði á fyrra fallinu tekið
skipulega kóssinn í þágu vísindanna
þá hefði það verið bein braut. En
veiðimaðurinn var sterkur í skap-
miklum hugsjónamanni og það lét
honum betur að vera villt barn nátt-
úrunnar þó svo að vísindalegt eðli
hans hafi látið margt gott af sér
leiða.
í öllu þessu tók Bía þátt af mik-
illi alúð og ást við sinn síunga vin,
sem átti svo blíða undiröldu þótt
hvöss vindaldan ætti sér einnig far-
veg í fasi hans. En heimavöllur Bíu
var húsið þeirra og þar var hún við
störfin sín þegar ólánið dundi yfir
og eldur varð laus. Allt er umbreyt-
anlegt, svo mikið er víst, en þótt
Saltabergið verði endurbyggt af
nýjum viðarstofnum þá mun það
áfram búa við anda konunnar sem
átti þar svo stóran hlut þótt blik
augna hennar þessa heims sé
slokknað. í stíl hússins er innbyggð-
ur sterkur stíll þeirra Bíu og Súlla,
spjallið um lífið og tilveruna,
draumana, ævintýrin í hveiju fót-
máli ef menn nenna að sinna þeim,
söngurinn þeirra svo persónulegur
og einlægur og þannig lögðu þau
línuna börnum sínum og samferða-
mönnum, gestkomandi nær eða
ft'ær.
Lundinn nálgast Bjamarey og
vorið vaknar senn. Súlli er klár í
bergið og bjástrið við tilraunir sínar
og vangaveltur til farsældar fyrir
framtíðina, en Bía er horfín á braut.
En minningin um mikilsvirta per-
sónu er magnaður máttur og þótt
Súlli frændi minn sé ekki vanur að
mæla sporin sín þá veit ég að hann
mælir framhaldið við minninguna
um stóru ástina sína, Bíu. Hún var
hans mesta gæfa^
Arni Johnsen.
Minning
Guðni Sigþór Guðna-
son, hljóðfæraleikari
Fæddur 8. nóvember 1926
Dáinn 25. febrúar 1993
Hann Guðni er dáinn!
Þessi alúðlegi, stillti og laun-
háðski ljúflingur er horfínn okkur
vinum hans.
Mér, sem þessar línur skrifa,
hlotnaðist þau forréttindi að eignast
þennan hljóðláta höfðingja fyrir vin.
Aldrei hafði Guðni svo mikið að
gera að hann gæfi sér ekki tíma
til samræðna.
Guðni var mjög greindur maður
og þótt ég gæti ekki fýlgt honum
á fluginu, urðu samræðurnar oft
nokkuð skondnar, skarpskyggni og
meitlað innsæi var áberandi, en
yfírlæti fann ég aldrei í fari hans,
hann átti mikla en hljóðláta kímni
og kunni manna bezt þá list að
gera grín að sjálfum sér og gerði
það ótæpilega, en einnig skopaðist
hann, af greind og þekkingu, að
samfélaginu, sem því miður hefur
haldið heimsku sinni óskertri. Kímni
hans var þannig, að manni dettur
í hug nóbelskáldið íslenska svo hlað-
ið fínháðsku að lengra verður vart
komist, nema hjá bijóstvitrustu,
lífsreyndustu og bezt sjálfmenntuðu
alþýðustéttarmönnum. Aldrei minn-
ist ég þess að hafa heyrt Guðna
tala illa um nokkum mann, en vel
um flesta.
Liprari, bónbetri og elskulegri
mann en Guðna hefí ég fáa þekkt.
Á verkstæðinu hans fannst mér
vera yndislegasta óreiða, sem ég
hefí séð, en alltaf vissi hann hvar
hvaðeina var að finna.
Þótt hljóðfæraviðgerðir og still-
ingar, ásamt hljóðfæraleik, væri
uppistaðan í lífsstarfi Guðna, var
nánast sama hvað hann tók sér
fyrir hendur. Allt leysti hann með
prýði.
Gaman þótti mér að sjá hann
fara höndum um hljóðfæri, jafnt
fjaðra og strengja, og færa allt í lag.
Far þú í friði vinur, friður Guðs
þig blessi. Hafðu þökk fyrir ljúf og
mannbætandi kynni.
Ástvinum Guðna og öðrum að-
standendum, votta ég djúpa og inni-
lega samúð mína.
Þórarinn Samúelsson.
DAGBÓK
SKIPIN____________
REYKJAVÍKURHÖFN:
í fyrradag kom Selfoss af
strönd og fór aftur samdæg-
urs. Grænlandsfarið Arina
Artica kom og fór aftur sam-
dægurs. Björgunarskipið
Goði fór í leiðangur og Brú-
arfoss kom að utan. Andey
kom. í gær fór Freyja á veið-
ar og Kyndill og Viðey komu
og fóru aftur samdægurs.
Snorri Sturluson kom og
Reykjafoss og Katla komu
af strönd. Dettifoss, Stapa-
fell og Skógarfoss eru vænt-
anlegir í dag.
H AFN ARF JARÐ ARHÖFN:
í fyrradag kom Lagarfoss
að utan til Straumsvíkur.
Norski togarinn Remöy fór á
veiðar í gær.
KIRKJA__________________
ÁRBÆ J ARKIRK J A: Opið
hús í dag kl. 13.30. Fyrir-
bænastund kl. 16.30. Starf
10-12 ára TTT í dag kl. 17.
FELLA- OG HÓLA-
KIRKJA: Félagsstarf aldr-
aðra í Gerðubergi. Lestur
framhaldsögu verður í dag
kl. 15.30. Helgistund á morg-
un kl. 10.30 í umsjón Ragn-
hildar Hjaltadóttir.
KÁRSNESSÓKN: Mömmu-
morgun í safnaðarheimilinu
Borgum í dag kl. 9.30-11.30.
10-12 ára starf í safnaðar-
heimilinu Borgum í dag kl.
17.15-19.
GRINDAVÍKURKIRKJA:
Bænastund í dag kl. 18.
ÁSKIRKJA: Samverustund
fyrir foreldra ungra barna í
dag kl. 10-12. 10-12 ára
starf í safnaðarheimilinu í dag
kl. 17. Föstumessa kl. 20.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA:
Fræðslukvöld kl. 20.30. Hvað
er kristin siðfræði? Efni fyrir-
lestrarins: Siðferðilegur
grundvöllur fjölskyldunnar og
hjónabandsins. Fyrirlesari dr.
Siguijón Árni Eyjólfsson.
Mömmumorgun fimmtudag
kl. 10.30. Heitt á könnunni.
DÓMKIRKJAN: Hádegis-
bænir kl. 12.10. Léttur há-
degisverður á kirkjuloftinu á
eftir. Opið hús fyrir eldri
borgara í safnaðarheimilinu í
dag kl. 13.30-16.30. Tekið í
spil. Kaffiborð, söngur, spjall
og helgistund.
ELLIHEIMILIÐ GRUND:
Föstuguðsþjónusta kl. 18.30.
Bryndís Elídóttir, guðfræði-
nemi.
GRENSÁSKIRKJA: Hádeg-
isverður aldraðra kl. 11. Farið
verður í heimsókn að Hótel
Loftleiðum.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Föstumessa kl. 20.30. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld-
bænir og fyrirbænir í dag kl.
18.
NESKIRKJA: Föstuguðs-
þjónusta kl. 20. Guðmundur
Oskar Ólafsson.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Kyrrðarstund kl.
12. Söngur, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður
í safnaðarheimilinu.
MINNINGARSPJÖLP
MINNINGARKORT Flug-
björgunarsveitarinnar fást
hjá eftirtöldum: Flugmála-
stjórn s. 69100, Bókabúðinni
Borg s. 15597, Bókabúðinni
Grímu s. 656020.
Eiginmaður minn,
lést 8. mars sl.
t
ÁGÚST SIGURÐSSON,
Stykkishólmi,
Rakel Olsen.
Elskuleg móðir okkar,
INGIBJÖRG MARGRÉTGUÐMUNDSDÓTTIR
frá Gemlufalli í Dýrafirði,
síðast til heimilis
\ i'Sólbrekkku 14,
Húsavfk,
lést í sjúkrahúsinu á Húsavík 8.mars.
Börn hinnar látnu.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
DÝRLEIF ÁRNADÓTTIR,
Sauðárkróki,
lést í Sjúkrahúsi Skagfirðinga aðfaranótt mánudagsins 8. mars.
Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn
13. mars kl. 14.00.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Sveinn Guðmundsson,
Anna Pála Guðmundsdóttir,
Árni Guðmundsson, Hjördfs Þórðardóttir,
Hallfrfður Guðmundsdóttir, Egill Einarsson,
Stefán Guðmundsson, Hrafnhildur Stefánsdóttir.
t
Ástkaer móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SESSEUAJ. MAGNÚSDÓTTIR
frá Borgarnesi,
Þverárseli 10,
Reykjavfk,
lést í Landspítalanum þann 8. mars sl.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
EGILL BJARNASON
fornbóksali,
Kópavogsbrautla,
lést 7. mars sl.
Gyða Siggeirsdóttir,
Hrafnkell Egilsson, Anna Sigurjónsdóttir,
Ólaffa Egilsdóttir, Jóhann Gunnar Friðjónsson,
Soffía Stefanía Egilsdóttir, Gunnar Haraldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Jarðarför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ELÍSABETAR
BÖÐVARSDÓTTUR,
verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 12. mars kl. 13.30.
Böðvar B. Sigurðsson, Hjördfs Ágústsdóttir,
Hrefna Sigurðardóttir,
Sigfús B. Sigurðsson, Jóhanna Sumarliðdóttir,
Sigurður Sigurðsson, Sigrfður Sigurðardóttir,
Guðný Sigurðardóttir,
Bryndís E. Sigurðardóttir, Einar Sigurjónsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar og ömmu,
KRISTÓLINU KRISTINSDÓTTUR
frá Siglufirði.
Guðmundur B. Guðmundsson,
Asta Guðmundsdóttir,
Ingvar Á. Guðmundsson, Kristfn Andersen,
Margrét S. Guðmundsdóttir, Ágúst Guðjónsson,
Þóra B. Guðmundsdóttir,
Kristinn I. Guðmundsson, Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Hulda Guðmundsdóttir,
Björg Guðmundsdóttir, Kristján Hauksson,
barnabörn og barnabarnabörn.