Morgunblaðið - 10.03.1993, Side 3

Morgunblaðið - 10.03.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993 3 Ljós könn- uð hjá218 LÖGREGLAN á höfuðborgar- svæðinu og á Suðurnesjum stöðv- aði 218 ökumenn’ í gær, þegar kannað var hvort Ijósabúnaður bíla væri í lagi og hvort ökumenn væru ölvaðir undir stýri. Af þessum 218 fengu 106 áminn- ingu fyrir ýmislegt, sem var að- finnsluvert við ljósabúnaðinn, 4 voru kærðir þar sem búnaðurinn var með öllu óvirkur og einn öku- mannanna reyndist ölvaður. Sameiginlegt átak lögreglunnar í, höfuðborginni og á Suðurnesjum stendur út vikuna og næstu helgi. Góðsalaá laxveiði- leyfum Heimatilbúin sprengja sprakk í porti við Einholt í gærmorgun 2 drengir grunaðir SPRENGING varð í porti við Einholt í gærmorgun og urðu nokkrar skemmdir á girðingu, auk þess sem rúða brotnaði í bíl í grenndinni. Talið er að dreng- ir, sem sáust á ferli skömmu áður, hafi komið heimatilbúinni sprengju fyrir. Sprengjunni, sem hefur líklega verið lítill jámhólkur með púðri, var stungið niður á milli trébita og bárujárns í girðingunni. Brot úr hólknum þeyttust í steinvegg, svo kvarnaðist úr honum og steypubrot brutu rúðu í mannlaus- um bíl, sem var í stæði skammt frá. Engan sakaði við sprenging- una. Ekki er vitað hveijir voru að verki, en grunur beinist að tveimur drengjum, sem sáust á ferli í port- inu skömmu áður en sprengingin varð. Morgunblaðið/Sverrir Skemmdir eftir sprengingu TIL VINSTRI sést gatið, sem kom á girðinguna. Hægra meginn er bíllinn, sem rúðan brotnaði í. Alusuisse rekið með 5,2 milljarða króna hagnaði Bílstjórinn gleymdi sér um borð Bíldudai. MINNSTU munaði að vöru- bílstjóri, sem sat við kaffi- drykkju um borð í línubátn- um Geysi BA, hafi farið í tveggja daga sjóferð með bátnum þegar haldið var úr höfn sl. sunnudagskvöld. Verið var að setja línubala um borð í bátinn og brá bílstjór- inn sér í kaffisopa um borð á meðan. En þegar báturinn var kominn á fullan skrið á leið til hafs uppgötvaðist að bílstjórinn var enn um borð. Skipstjórinn snéri bátnum við hið snarasta og skilaði honum í land. Ekki fylgir sögunni hvort kaffið hafi verið svona gott um borð en bílstjórinn var í það minnsta feginn að komast aftur í land. R. Schmidt. Tap ISAL nam 645 milljónum króna á síðasta ári ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. ALUSUISSE-LONZA (A-L) var rekið með 121 milljónar sv. franka (5,2 milljarða króna) hagnaði síðastliðið ár. Þó voru nokkur dótturfyrir- tæki svissneska efna- og álfyrirtækisins rekin með halla, eða samtals 125 milljóna sv. franka (5,3 milljarða króna) tapi. Theodor M. Tschopp, framkvæmdasljóri A-L, sagði að um hálf tylft dótturfyrirtækja þess hefði verið rekih með verulegu tapi og stjórn fyrirtækisins færi nú rækilega yfir rekstur þessara „vandræðabarna", eins og hann kallaði tapfyrirtækin á árlegum blaðamannafundi fyrirtækisins í gær. ÍSAL var rekið með um 15 millj- Þar af voru 83 milljónir (3,5 milljarð- franka (645 milljóna ISK) tapi 1992. Edward S. Notter, fram- kvæmdastjóri hráálsviðs A-L, sagði að álverið á íslandi væri þó ekki eitt „vandræðabarnanna“. „Það væri það ef afköst verksmiðjunnar hefðu ekki verið aukin á undanförnum árum,“ sagði Notter. „Álverið í Straumsvík er nú eitt samkeppnisfærasta álver Evrópu." Mikilvægi þess innan A-L mun aukast þegar álverinu í Steg í Sviss verður lokað 1994. A-L gerði nýlega samning um málmframleiðslu fyrir álbílaframleiðanda. Málmplöt- urnar fyrir bílana verða unnar í Si- erre í Sviss en hráálið í þær mun meðal annars koma frá íslandi. Velta A-L var 350 milljónir sv. frankar (15 milljarðar króna) 1992. ar króna) á álsviði, 142 milljónir á efnasviði og 127 milijónir á pakkn- ingasviði, en pakkningasvið er nú árangursríkasta rekstrarsvið fyrir- tækisins. Tschopp sagði að álfram- leiðsla gæti aftur orðið arðbær hluti rekstursins ef óarðbærri framleiðslu yrði hætt eða hún endurbætt. Hnit- miðuð álframleiðsla fyrir samgöngu- iðnaðinn, litógrafíu og annan iðnað væri hluti af framtíðarstefnu A-L. BETUR gengur að selja laxveiði- leyfin nú en í fyrra hjá Stanga- veiðifélagi Reykjavíkur. Jón Gunnar Borgþórsson sagði í sam- tali að ef litið væri á staðfestar og að hans mati tryggar pantan- ir væri eftirspurnin um 20% meiri en í fyrra. Segir Jón mest um vert, að veruleg verðlækkun hafi náðst í Norðurá og það skili sér nú í aukinni eftirspurn. Jón sagði milli 80 og 90 prósent leyfa í Norðurá ýmist staðfest eða fastbókuð og reynslan sýndi að ein- hver hreyfing væri á leyfum allt til sumars. í fyrra seldust aðeins 68 prósent leyfa í Norðurá. Hins vegar er allur gangur á sölu og bókun leyfa í aðrar ár SVFR. Árni Baldursson, leigutaki Laxár í Kjós, sagðist vera búinn að selja um það bil 85% veiðileyfa í Laxá. Nánast uppselt væri frá 20. júní og fram í miðjan ágúst. '2 - 'S- >■ - Loðnuvertíð virð- ist vera að ljúka Um 220 þús. t enn óveidd af kvótanum EKKI mun veiðast meira úr loðnugöngunni úti fyrir Vest- fjörðum og eru allir loðnubátar farnir þaðan. Reytings- veiði var við Eldey í gær en loðnan þar á stutt eftir í hrygn- ingu. Ekki hefur orðið vart við vestangöngu en hafrann- sóknaskipið Árni Friðriksson leitar nú loðnu undan Vest- fjörðum. Rúmlega 220 þúsund tonn eru óveidd af loðnukvót- anum en útlit er fyrir að loðnuveiði sé að ljúka. „Loðnan sem var úti af Vestfjörð- um virðist vera lögst á botninn til hrygningar og veiðist þá ekki meira af henni,“ sagði Hjálmar Vilhjálms- son, leiðangursstjóri á Árna Frið- rikssyni, í samtali við Morgunblað- ið. Hann sagði að allir loðnubátar hefðu verið famir af miðunum fyrir miðjan dag í gær. Árni Friðriksson mun leita út af Vestfjörðum næstu daga en Hjálmar sagði að ekki væri útlit fyrir vestangöngu. Hann sagði að það kæmi á óvart hversu snemma loðnan legðist í hrygningu að þessu sinni og hefðu menn átt von á að vertíðin stæði fram undir 20. mars. Reytingsveiði við Eldey Reytingsloðnuveiði var við Eldey í gær. Eggert Þorfinnsson, skip- stjóri á Hilmi NK, sagði að loðnan þar væri komin að hrygningu og myndi ekki veiðast miklu meira af henni. Um 220 þúsund tonn eru eftir af loðnukvótanum en rúmlega 600 þúsund tonn af loðnu hafa borist á land á haust- og vetrarvertíð. Njóttu vel!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.