Morgunblaðið - 10.03.1993, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
9
Franskir kjólar og dragtir
Ný sendingfrá stcerb 34
TESS
NEÐST VIÐ
v /vzri
DUNHAGA. °Pið virka daga 9-18,
S. 622230. laugardag 10-14.
Nú er rétti tíminn til aö
hefja reglulegan sparnað með
áskrift að spariskírteinum
ríkissjóðs.
Notaðu símann núna,
hringdu í
62 60 40,
69 96 00
eða 99 66 99
sem er grænt númer.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVÉRÐBRÉFA
Ilverfisgötu 6, sími 91- 626040
Kringlunni, sími 91- 689797
Kalkofnsvegi 1,
sími 91- 699600
| JSlorden i J5É1
Behov for nye samarbeidsformer
En ovalkommen gast
1* En mera grotesk fflustra- Kohls besök var omsorgs- ^Och
tion till den spSnningsom för fullt fórberett och ínbiu
L
illdenspanningsomior imu loiuc.tii
Det rádvilde rád
. ved«,uw»... ^ttssxssr^*.
■-cptafdet
Norræn blöð og
Norðurlandaráð
Flest dagblöð Norðurlanda hafa fjallað
um nýafstaðið Norðurlandaráðsþing í
forystugreinum sínum á undanförnum
dögum. Hefur hin umdeilda heimsókn
Rúslans Khasbúlatovs, forseta rúss-
neska þingsins, ekki síst verið þeim hug-
leikin og sýnist sitt hverjum.
Hvaðan kom
boðið?
I forystugrein í
Svenska Dagbladet er
heimsókn Khasbúlatovs
gerð að umræðuefni og
sagt að þetta „bijálæði"
sé gott tákn um þá
spennu sem ríki milli
þingmanna og ríkis-
stjórna á Norðurlanda-
ráðsþingi: „Án þess að
mjög margir hafi veitt
því athygli eða haft inn-
sýn í hvemig það gerðist
hefur einhver — deilt er
um hvort það hafi verið
forsætisnefnd ráðsins
eða einhver eiim nefnd-
armaður — boðið forseta
rússneska þingsins, Rúsl-
an Khasbúlatov, að halda
ræðu á Norðurlandaráðs-
þingi ... Líklega ber að
líta á þetta sem eins kon-
ar framhald af heimsókn
Helmuts Kohls, kanslara
Þýskalands, á fund ráðs-
ins í fyrra. Munurinn er
hins vegar verulegur.
Heimsókn Kohls var
vel undirbúin í alla staði
og naut víðtæks stuðn-
ings. Hlutverk hans var
að ræða við ráðið um
mál sem óhjákvæmilega
var flestum mjög ofar-
lega í huga: Samruna
Evrópu og þátt Norður-
landa i honum.
Boðið til Khasbúlatovs
virðist hins vegar bara
vera hugdetta, eitthvað
sem einhveijum hefur
fundist sniðugt ... Það
má ganga út frá því sem
vísu að Khasbúlatov og
stuðningsmenn hans
muni nýta sér boð Norð-
urlandaráðs sér i hag í
valdabaráttunni heima-
fyrir ... Norðurlöndin
eiga sameiginlegra hags-
muna að gæta í mörgum
málum. Velgengni manna
á borð við Khasbúlatov
er hins vegar ekki i þeim
flokki.“
Ureltir starfs-
hættír
I forystugrein Politi-
ken segir: „Þing Norður-
landaráðs í Ósló staðfest-
ir nokkuð sem þegar var
orðið Ijóst á þinginu í
fyrra: Þeir starfshættir,
sem verið hafa við lýði,
eru orðnir úreltir og ef
Norðurlandasamstarfið á
að þróast áfram verður
það að taka mið af breytt-
um aðstæðum á alþjóða-
vettvangi. Með því er
fyrst og fremst átt við þá
staðreynd að Finnar,
Svíar og Norðmenn hafa
sótt um aðild að EB.
Það er augljóslega í
þágu hagsmuna Dana að
sem flest ríki á Norður-
löndum gerist aðilar að
EB. Fleiri Norðurlönd
innan EB þýðir að vægi
hinna pólitísku/menning-
arlegu gilda Norður-Evr-
ópu eykst... I stað þeirra
deilna um innanrikismál
milli þingmanna og
þeirra eigin ráðherra,
sem tóku mestallan tím-
ann í Ósló en hefðu allt
eins getað farið fram á
viðkomandi þjóðþingum,
ætti Norðurlandaráð að
leggja áhersiu á að ræða
hvemig hið norræna sam-
starf innan EB muni líta
út“
Ráðvillt ráð
Einnig er íjallað um
Norðurlandaráð í for-
ystugrein í Berlingske
Tidender. „Norðurlanda-
ráð á erfitt með að aðlaga
sig að nútimanum ...
Fyrst er Khasbúlatov
boðið að halda ræðu, en
síðan sagt að hann ætti
nú helst ekki að vera að
segja neitt stuðandi. Og
til að bæta gráu ofan á
svart þá mótmæla margir
þingmenn, með forsæt-
isráðherra Danmerkur
og Svíþjóðar í broddi
fylkingar, með fjarveru
sinni, er Khasbúlatov
flutti ræðu sína.
Það er fáheyrt og
móðgandi að taka á móti
gesti, sem maður hefur
boðið, með þessum hætti
og dæmi um raunveru-
leikaflótta sem ekki kem-
ur ráðinu að neinu
gagni."
Blaðið segir að fyrst
menn vilji á annað borð
líta út fyrir landamærí
Norðurlanda þá verði
menn líka að horfast í
augu við óþægilegar stað-
reyndir á borð við þá að
Rússar eiga við minni-
hlutavandamál að stríða
i Eystrasaltsríkjunum,
sem Norðurlöndin hafa .
tekið upp á arma sína.
Þá sé ekki æskilegt að
nota Norðurlandaráð tii
að lýsa yfir stuðningi við
einstaka menn. Það geti
vel verið að Poul Nyrup
og Carl Bildt lfld betur
við Jeltsin en Khasbúl-
atov. Það leysi hins vegar
engan vanda i Rússlandi
að láta sem Khasbúlatov
sé ekki til.
„Óháð því hver ber sig-
ur úr býtum í valdabar-
áttunni verður Rússland
áfram nágrannaríki
Norðurlanda — þá stað-
reynd er ekki hægt að
afmá með ályktunum, rít-
skoðun eða þögn í Norð-
urlandaráði."
Bókasafn Kópavogs 40 ára
Sektaaflausn gefin 8.
I TILEFNI af 40 ára afmæli Bóka-
safns Kópavogs 15. mars nk. verð-
ur boðið upp á aflausn sekta dag-
ana 8. til 27. mars. Bókasafn Kópa-
vogs skorar á alla þá sem eru með
bækur eða önnur gögn í vanskilum
að nota tækifærið og gera hreint
fyrir sínum dyrum.
Á afmælisdaginn verður boðið
fram kaffi og kökur fyrir gesti safns-
ins frá kl. 14 og til lokunar kl. 21.
Eru allir hjartanlega velkomnir.
Bókasafnið er opið mánudaga til
fimmtudaga kl. 10 til 21, föstudaga
kl. 10-17 og laugardaga kl. 13 til
17. Bókasafnið minnir á að böm og
unglingar fá ókeypis skírteini í safn-
inu svo og þeir sem eru 67 ára og
-27. mars
eldri. Hinir þurfa aðeins að greiða
550 kr. fyrir ársskírteini.
Bókasafnið hefur á boðstólum all-
ar íslenskar bækur, blöð, tímarit,
plötur, geislaplötur, myndbönd og
fleira. Lesstofa safnsins er opin kl.
13 til 19 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 13 til 17 föstudaga og laugar-
daga. (Fréttatilkynning)
RABBFUNDUR í V[B-STOFUNNI
HVAÐA ÞÆTTIR MUNU RÁÐA
SAMKEPPNI Á FLUTNINGAMARKAÐI
í FRAMTÍÐINNI?
A morgun, fimmtudaginn 11. mars, verður Hörður
Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, í VIB-stofunni og
ræðir við gesti um Eimskip og framtíð íslensks
flutningamarkaðs. Hvað olli tapi Eimskips á síðasta
ári? Hvernig eru horfurnar? Hversu mikilvæg er
starfsemi Eimskips erlendis? Hvað mun ráða
samkeppni á flutningamarkaði? Mun Eimskip áfram
breikka starfsemi sína?
Fundurinn hefst kl. 17:15 og er öllum opinn.
Ármúla 13a, 1. hæð.