Morgunblaðið - 10.03.1993, Page 17

Morgunblaðið - 10.03.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993 17 Taka upp samband við PLO BRESKA ríkisstjórnin hefur ákveðið að taka að nýju upp formlegt samband við Frelssi- samtök Palestínu (PLO) á ráð- herrastigi en slíkt samband hefur ekki verið til staðar und- anfarin tvö ár. Douglas Hogg aðstoðarutanríkisráðherra átti í gær fund með tveimur fulltrú- um PLO ásamt Faisal al-Hus- seini, formanni sendinefndar Palestínumanna í friðarviðræð- unum um Mið-Austurlönd. Kasparov malaði Karpov Kasparov lagði Karpov að velli í 10. umferð stórmótsins í Linares sem tefld var í gær. Heimsmeistarinn beitti kóngs- indverskri vörn, fór í sókn og fórnaði hrók. Óvenjulegt atvik varð er Karpov var lentur í tímaþröng. Kasparov lauk ekki við að ljúka leik með löglegum hætti, að því er virðist í því skyni að nýta sér tímahrak andstæðings. Skákdómarinn tók í taumana og fékk Karpov tvær mínútur aukalega. En það kom fyrir ekki og féll hann á tíma í 27. leik. Kasparov er nú einn efstur með Vh vinning af 10 mögulegum. Afram Maastricht JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði í breska þing- inu í gær að hann myndi áfram berjast fyrir því að þingið stað- festi Maastricht-sáttmálann, þrátt fyrir að þingmenn úr röð- um Ihaldsflokksins hefðu geng- ið í lið með Verkamannaflokkn- um og samþykkt breytingartil- lögu við sáttmálann á mánu- dag. Sakaði hann Verka- mannaflokkinn um óhefta hentistefnu, flokkurinn segðist vera fylgjandi Maastricht en greiddi svo atkvæði gegn sátt- málanum til að koma stjórninni í vandræði. Chirac ffeffn GATT JACQUES Chirac, fyrrum for- sætisráðherra Frakklands, sagði í gær að Frakkar ættu að hætta að sækja fundi Evr- ópubandalagsins ef þyrfti til að stöðva GATT-samkomulag- ið. Búist er við að flokkur Chiracs, RPR, muni vinna mik- inn sigur í þingkosningum í Frakklandi síðar í mánuðinum. Annar leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, Valéry Giscard d’Esta- ing, fyrrum Frakklandsforseti, hefur einnig lýst yfir efasemd- um um GATT-samkomulagið. „Stríðsótti“ í N-Kóreu RÚMLEGA 100 þúsund manns komu í gær saman til fundar í Pyongyang, höfuðborg Norð- ur-Kóreu, til að styðja þá ákvörðun stjórnvalda að láta íbúa búa sig undir styijöld. Var það gert í kjölfar umfangsmik- illa heræfinga í Suður-Kóreu. „Það er enginn trygging fyrir því að [Suður-Kóreumenn og Bandaríkjamenn] ráðist ekki á okkur," sagði Choe Tae-pok einn leiðtoga kommúnista- flokksins á fundinum. Sagði hann Norður-Kóreumenn vera reiðubúna að beijast til síðasta manns til að veija hið sósíalíska kerfí sitt. Reuter Kveikt í ólöglegum reknetum Starfsmaður suður-afríska umhverfis- ráðuneytisins kveikir í rekneti í Höfða- borg sem gert hefur verið upptækt. Tævanskir togarar hafa verið staðnir að reknetaveiðum við Suður-Afríku en allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna lagði bann við slíkum veiðum sem taka átti gildi um síðustu áramót. Bandarísk stjórnvöld boðuðu á mánudag aðgerðir til að framfylgja banninu á alþjóðlegu hafsvæði. Sannreynt yrði hvar skip væri skráð, haft samband við heimarík- ið og gripið til viðeigandi ráðstafana í samræmi við samninga Bandaríkjanna og viðkomandi ríkis. Trúgjörnum íbúum Pétursborgar boðin 250% ávöxtun Allt að 400.000 blekkt- ir í svikamáli aldarinnar Sankti Pétursborg. Frá Lárusi Jóhannessyni, fréttaritara Morgunblaðsins. MIKIL reiði hefur brotist út í Sankti Pétursborg í kjöl- far máls sem embættismenn kalla svikamál aldarinnar. Allt að 400 þúsund manns fjárfestu um einn milljarð rúblna, samsvarandi 100 milljónum íslenskra króna, hjá tveimur fyrirtækjum sem hafa bókstaflega horfið af yfir- borði jarðar. Fyrirtækin, Amaris Ao og Revansh Ltd., eru Iöglega skráð en hafa ekki leyfi til verðbréfavið- skipta. Þau höfðu lofað viðskiptavinum 250% ávöxtun á mánuði. í upphafi var staðið í skilum við fólk sem varð til þess að vinna traust þess. Fréttaritari þekkir nokkur dæmi og lýsandi er saga Borísar Bogdanovs. Hann fjár- festi 3.000 rúblur í desember og fékk 10.000 rúblur um miðjan janúar. Eftir þetta lét hann af hendi 50.000 rúblur en hefur ekki séð eyri eftir það. Fjöldamótmæli Fyrir nokkru voru margir famir að sakna umsaminna peninga- greiðslna og ekki virtist hægt að ná sambandi við fyrirtækin. Greip mikil örvænting um sig í borg- inni, fjöldagöngur voru farnar og mótmælafundur haldinn fyrir utan ráðhúsið. Er lögreglan gekk í málið voru talsmenn fyrirtækj- anna horfnir og búið að hreinsa allt út úr skrifstofum þeirra. í fyrstu gáfu borgaryfirvöld út Braskað í aftursætinu ÞÓTT upphæðirnar séu háar gera Rússar ekki miklar kröfur til „viðskiptaumhverfis" ef svo má að orði komast. yfirlýsingu um að skaðinn yrði ekki bættur. Þetta var eins og að hella olíu á eld enda fólk hér vant því að yfirvöld grípi í taumana. Nú hefur verið ákveðið að komast til botns í þessu máli og þeim efna- minnstu heitið fullum bótum. Það eitt segir ekki mikið því talið er að allt að 90% þjóðarinnar búi við mikla efnahagslega erfiðleika. Rannsókn málsins verður erfið því yfírheyra verður hvern og einn. Til að flýta fyrir hafa borgaryfír- völd ákveðið að eyða 100 milljón- um rúblna til kaupa á tölvum og öðrum útbúnaði til gagnasöfnun- ar. Til að undirstrika umfang málsins má geta þess að hér í Sankti Pétursborg búa um fímm milljónir manna og meðailaun eru á bilinu 6-10 þúsund rúblur, eða 600-1.000 íslenskar krónur, á mánuði. Trúgirni og gróðafíkn Að sögn Alexanders Petrovs, fulltrúa hjá innanríkisráðuneyt- inu í borginni, leikur grunur á að málið tengist skipulagðri und- irheimastarfsemi. „Margir geta sjálfum sér um kennt, trúgirni fólks er með ólíkindum þegar von er á gróða. Hluti af þessum við- skiptum fór fram í venjulegum verslunum eða jafnvel undir ber- um himni.“ Og hann bætir við: „Fólki fannst þetta ekkert vafa- samt og ekki heldur hvernig ná ætti svo fáránlegri ávöxtun.“ DEMPARAR í MARGAR GERÐIR BÍLA VERÐ FRÁ KR. 1.366.- Bílavörubú&in Beresford- hjónin fá að vera í Israel FRÁ því var sagt í Morgunblaðinu fyrir skemmstu að kristnir gyð- ingar væru litnir hornauga af stjórnvöldum í ísrael og til stæði að reka hjónin Gary og Shirley Beresford úr landi vegna trúar sinnar. í nýju hefti fréttabréfsins A Word from Jerusalem koma fram nýjar upplýsingar í málinu. Samkvæmt fréttabréfínu sem gef- ið er út af kristnum í ísrael urðu Beresford-hjónin vel þekkt þegar hæstiréttur ísraels hafnaði umsókn þeirra um ríkisborgararétt og þeim var vísað úr landi. 31. janúar síðast- liðinn komu þau fram í vinsælum sjónvarpsþætti í ísrael og ræddu um viðhorf sín. Eftir þáttinn hafði innan- ríkisráðuneyti ísraels samband við þau og neitaði því að til stæði að reka þau eða aðra sem svipað væri ástatt um úr landi. 3M Plástrar HÁSKÓLIÍSLANDS - ENDURMENNTUNARSTOFNUN PENINGAR OG AHÆTTA Hvernig á að túlka upplýsingar og fréttir af fjármálamarkaði? Leiðbeinandi: Sigurður B. Stefánsson, hagfrœðingur ogjramkvœmdastjóri VÍB Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti slcilið og metið umfjöllun blaða og tímarita um ávöxtun og fjármál. Það er ætlað starfsfólki banka, tryggingafélaga og lífeyrissjóða, endurskoðendum, lögfræðingum, fjölmiðla- fólki svo og einstaklingum, sem þurfa að taka ákvarðanir um ráðstömn eigin fjár. Efni: Upplýsingar af fjármálamarkaði verða sífellt umfangsmeiri og flóknari. Sífellt þarf meiri þekkingu til að ráðstafa peningum rétt og til að meta innri sem ytri aðstæður í íslensku efnahagslífi. Á námskeiðinu verður fjallað um helstu tegundir skuldabréfa og verðbréfa og hvernig meta skal áhættu og ávöxtun þeirra. Hvernig starfa verðbréfasjóoir og hvernig má meta stöðu þeirra? Hver er tilgangurinn með fjárfestingum í erlendum verðorémm og hvernig skal velja þau? Hvaða áhrif hafa ýmsir Siættir í íslenskum þjóðarbúskap á þróun á jármálamarkaði og hvernig verka atburðir erlendis á þá sömu þætti og þar með ákvarðanir fjárfesta á fjármálamarkaði? Tími og verð: Tvö námskeið: Hið fyrra verður 16.-17. mars, kl. 20:00-23:00, en hið síðara 30.-31. mars, kl. 16:30-19:30. Þátttökugjald er kr. 4.800,-. Skráning í móttöku Tæknigarðs, í síma 69 49 40. Nánari upplýsingar á skrifstofu Endurmenntunarstofnunar, í símum 69 49 23, 69 49 24 og 69 49 25.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.