Morgunblaðið - 10.03.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
21
Formaður Samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarútvegi
Lífsnauðsynlegt er að lækka
raunvexti strax um 3 prósent
EINAR Oddur Kristjánsson formaður Samstarfsnefndar atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi segir stöðu fiskvinnslunnar um þessar mund-
ir vera með þeim hætti að lífsnauðsynlegt sé að lækka raunvexti
strax um að minnsta kosti 3%. „Því miður höfum við ástæðu til
að halda að við séum ekki búnir að sjá fyrir endan á þessu, en 3%
raunvaxtalækkun, að minnsta kosti til að byrja með, slær strax á.
Það er bara fyrsta skrefið," segir hann.
Einar Oddur sagði í samtali við
Morgunblaðið að fréttir sem upp
á síðkastið hefðu verið að berast
Háskólarektor
Skýringar
taldar full-
nægjandi
VEGNA fréttar í ýmsum fjöl-
miðlum undanfarna daga af at-
viki sem átti sér stað í kosning-
um til stúdentaráðs og háskól-
aráðs fimmtudaginn 25. febrúar
sl. þar sem einn stúdent kaus
tvívegis vill rektor Háskóla ís-
lands taka fram eftirfarandi:
„Kjörstjóm kosninganna ritaði
háskólaráði bréf þar sem mála-
vextir voru skýrðir og lagði jafn-
framt fram bréf sem stúdentinn
hafði lagt fyrir fund kjörstjórnar
áður en kjörfundi lauk 25. febrúar
þar sem hann skýrði mistök sín.
Ljós er að hér urðu mistök sem
gefa tilefni til strangari aðgæslu
við gerð kjörskrár í framtíðinni.
Kosning til stúdentaráðs og há-
skólaráðs er á ábyrgð stúdenta
sjálfra, kjörstjórn annast fram-
kvæmd hennar og ber ábyrgð á
að kosningin fari rétt fram. Niður-
staða kjörstjórnar var að aðhafast
ekkert að eigin frumkvæði annað
en að láta hlutaðeigandi aðila vita
hvernig í málum lægi.
Á fundi háskólaráðs fimmtu-
daginn 4. mars sl. voru áðurnefnd
bréf lögð fram til kynningar án
þess að málið væri rætt sérstak-
lega og síðar sama dag átti rektor
fund með forseta lagadeildar, ein-
um fulltrúa stúdenta í háskólaráði
og stúdentinum sem í hlut á og
óskaði eftir þessum fundi. Þar gaf
stúdentinn skýringar á málavöxt-
um. Þær voru taldar fullnægjandi
og ekki ástæða til frekari að-
gerða.“
-----»-♦.-----
■ NÝDÖGUN, samtök um sorg
og sorgarviðbrögð í Reykjavík,
standa fyrir fræðslufundi fimmtu-
daginn 11. mars kl. 20.30-22 í
safnaðarheimili Grensáskirkju.
Efni fundarins er atvinnumissir.
Fyrirlesari er Halldór Júlíusson,
framkvæmdastjóri Miðstöðvar
fólks í atvinnuleit.
■ OPINBER fyrirlestur verður
haldinn í guðfræðideild Háskóla
Islands fimmtudaginn 11. mars kl.
10.15. Robert Benne, siðfræðipró-
fessor frá Bandaríkjunum, heldur
þá fyrirlestur í V. kennslustofu
aðalbyggingar og nefnir hann:
„Christianity at the Dawn of the
21st Century“.
3M
Scotchcal
um ástandið á fiskmörkuðunum
væru hreint skelfilegar, og því
miður virtist ekki vera bitið úr
nálinni með það. Hann hefði lengi
verið þeirrar skoðunar að það
væri lífsnauðsynlegt að beita öll-
um ráðum til þess að lækka vexti
verulega, og hann væri sannfærð-
ur um að það mætti lækka raun-
vexti hér um að minnsta kosti 3%
í fyrstu atrennu.
I fréttatilkynningu sem Samtök
fiskvinnslustöðva sendu frá sér
fyrir síðustu helgi kom m.a. fram
að botnfískvinnslan væri nú rekin
með 6,5% halla af tekjum miðað
við rekstrarskilyrði eins og þau
voru í febrúar, og þær breytingar
sem hér hefðu verið gerðar á vöxt-
um að undanförnu væru það smá-
vægilegar að gagnsemi þeirra
væri vart mælanleg og gætu
naumast flokkast undir annað en
sýndaraðgerðir. Einar Oddur
sagðist taka undir að menn hefðu
ástæðu til að ætla að svo væri.
„Ég gekk í gegnum það á síð-
astliðnum vetri að fá alla aðila á
fjármagnsmarkaði til þess að
standa að þeim ferli að vextir
gætu lækkað hér umtalsvert, og
það var einn af aðal liðunum í því
að við náðum síðustu kjarsamning-
um. Eftir þá reynslu er ekkert
skrýtið þó að ég sé mjög tortrygg-
inn í garð þessara manna, og ég
er mjög tortrygginn gagnvart tali
um vaxtalækkanir. Eg vantreysti
mönnum stórkostlega í þessu. Það
er þegar sýnt og margra ára
reynsla er fyrir því að það er fá-
keppnin á þessum markaði sem
heldur uppi vöxtunum, og menn
halda hér uppi vöxtum sem engin
atvinnurekstur getur borgað.
Þessir aðilar halda uppi vöxtunum
og ríkið ber þar höfuðábyrgð nú
eins og fyrr,“ sagði hann.
Agúsáfrr
si Ifaífsff
) i •':
; ) f*4
| tófere: \ \
_ 4 m
'm -1 s&œim- :
i SifÁA ús-
■ " 4 &imká&i0sKtev.
:*» I
* i&tiíœía-.' ■
SitjtóKtoatif,.;
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
uaMFLETT il1
Wlarfes&ir
i UWHíf
Fylgstu meb á miðvikudögum!
Úr verinu kemur út á miðvikudögum. Þar er ítarleg umfjöllun um allt sem viðkemur
sjávarútveginum, allt frá veiðum til sölu sjávarafurða. Nýjustu fréttir eru sagðar af sjávarút-
veginum, birt eru aðgengileg yfirlit yfir aflabrögð, fréttir af fiskmörkuðum, kvóta, dreifingu
skipa á miðunum og fleira. Úr verinu er blað sem allir lesa sem láta sig sjávarútveginn,
höfuðatvinnuveg landsins, einhverju varða.
- kjami málsins!