Morgunblaðið - 10.03.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
Michigan í Bandaríkjunum, gift
Grétari Tryggvasyni doktor og pró-
fessor í vélaverkfræði við háskólann
þar og eiga þau tvö börn. Ég flyt
hér kveðjur og_ þakkir mínar og
þeirra allra.
Mér verður oft hugsað til þess,
hver gæfa það er að hafa átt svona
góða nágranna í tvær kynslóðir.
Með þeim orðum lýk ég þessari
minningu um Nonna-Stóra,
Mömmu-Siggu og Pabba-Jón.
Jón Brynjólfsson.
í morgunsárið á afmælisdaginn
sinn andaðist Jón tengdafaðir minn.
Miðjan þann sama dag var jarðsett
við hlið Sigríðar heitinnar Oddleifs-
dóttur, tengdamóður minnar, systir
hennar, Elín Oddleifsdóttir, sem
andaðist fyrir skömmu, nær eitt
hundrað ára. Þetta var undarlegur
dagur, þar sem kvödd var Ella, sem
svo lengi hafði beðið þess að mega
leggjast til hinstu hvfldar við hlið
systur sinnar, en Jón, sem hafði
allur verið að hressast, var sam-
kvæmt venju búinn að tryggja sér
konfektkassa af stærstu gerð til að
gæða gestum sínum á er líta myndu
inn til hans á St. Jósepsspítala.
Hann vaknaði, átti orðastað við
hjúkrunarkonu, sem brá sér frá að
hans ósk í mínútu eða svo. Þegar
hún kemur aftur er hann allur.
Jón fæddist 26. febrúar 1914 í
Reykjavík. Foreldrar hans voru
Herdís Kristjánsdóttir og Jón Jóns-
son. Alsystkini hans voru Alfreð,
Kristján og Bára. Hálfsystkinin
sammæðra voru Karitas, Hafsteinn
og Lilla.
Þegar Jón er á fyrsta ári verða
sraumhvörf í lífi hans. Við sambúð-
arslit fer hann í fóstur til fjölskyld-
unnar í Þúfu í Landsveit, þar sem
bjuggu sæmdarhjónin Hans Brynj-
ólfsson og Guðrún Jónsdóttir ásamt
börnum sínum. Hjá þessu öndvegis-
fólki elst Jón upp við besta atlæti,
sem völ er á.
Árið 1930, þegar Jón er sextán
ára og fóstri hans látinn, flytjast
þau, sem eftir eru í Þúfu, til Reykja-
víkur í nýbyggt hús Þormóðar og
Jónínu, fóstursystur hans, á Báru-
götu 22. Stefán og Guðrún, fóstur-
systkini Jóns, voru þama einnig.
Þar með er hafin samfelld 30 ára
búseta Jóns í þessu íjölskyldusetri.
Skólagangan hafði verið hefðbund-
in farkennsla í Landsveit, en 1931,
þá sautján ára, bætir hann við ein-
um vetri í Ingimarsskóla. Jóni var
það ljóst að honum stóð til boða
stuðningur til frekara náms ef hann
kærði sig um, því að hæfíleikana
hafði hann, en hann kaus að verða
fyrr að gagni og tók því meirapróf
með kennsluréttindum átján ára og
byrjar að aka leigubíl frá Nýju bíla-
stöðinni í Reykjavík, ásamt öku-
kennslu. Þessa atvinnu stundar
hann í tvö ár eða þar til hann ræð-
ur sig 1935 sem bílstjóra hjá Pönt-
unarfélagi verkamanna, sem síðar
varð KRON. Virðing bílstjóra hefur
ekki í annan tíma verið meiri á ís-
landi en þá og mikið lán að hafa
svo góða vinnu. Næstu árin er hann
í þessu starfí og enn eltir lánið Jón.
Hann kynnist verslunarstjóra hjá
KRON, Sigríði Oddleifsdóttur. Þau
gifta sig og hefja búskap í fjöl-
skyldusetrinu á Bárugötu 22 og
fýrsta bamið, Guðni, fæðist 30.
ágúst 1942, Rútur fæðist 8. nóvem-
ber 1943 og loks_ Heiða 15. júní
1948.
Árið 1943 er Jón ráðinn aðal-
verkstjóri, annar af tveimur, í vöm-
geymslur, fóðurblöndunarstöð og
skipadeild SÍS með aðalstöðvar við
Geirsgötu niðri við höfn í Reykja-
vík. Þar með hefst samfelldur giftu-
ríkur 38 ára ferill í þessu starfí, sem
lýkur ekki fyrr en Jón fer á eftir-
laun 1981 sextíu og sjö ára gam-
all. Framan af er stöðug aukning
í starfseminni og vinnuálag mikið
og sýnu mest á áranum 60-65.
Jóni líkaði vistin vel hjá SÍS og
víst er að eiginleikar númer eitt, tvö
og þrjú hjá Jóni; samviskusemi,
heiðarleiki og reglusemi (gildir einu
hvaða röð er á þeim) nýttust vel
hjá SÍS. Aldrei hafði Jón órað fyrir
því að hann myndi lifa SÍS.
Árið 1960 ræðst Jón í að kaupa
stóra og myndarlega íbúð í Hvassa-
leiti og er flutt inn í hana tilbúna
með öllu nýju innanstokks. Þetta
er stór biti, en það er unnið myrkr-
anna á milli og synimir komnir á
árina líka, svo að allt lukkast þetta
eins og allt hjá Jóni. Þegar fækkaði
í heimili er skipt yfir í minni íbúð
í Fellsmúlanum.
Jón og Sigga vora alla tíð vin-
mörg, enda ræktarsöm við fjöl-
skyldur sínar og leið varla sá dagur
að ekki væri einhver í heimsókn.
Jón var stálminnugur og hafði gam-
an af segja frá á sinn græskulausa
hátt, hafsjór af fróðleik, eftirtektar-
samur og gamansamur og gjörsam-
lega laus við rætni og illkvittni,
þannig að öllum leið vel í návist
hans. Umhyggju fyrir vinum og
vandamönnum var við bragðið og
vandlega var þess gætt að gera
ekki upp á milli. Siggu sinni gaf
hann gjaman fallega hluti og handa
börnum átti hann alltaf góðgæti,
þannig að Fellsmúlinn virkaði á
börnin eins og segull á jám.
Það sem vantaði upp á Jón bætti
Sigga upp því að hún var gersemi,
sem Jón kunni að meta og mátti
ekki vera án. Þau sátu á friðarstóli
í Fellsmúlanum, ungarnir löngu
flognir úr hreiðrinu, en þá dregur
ský fyrir sólu, Sigga, sem aldrei
varð veik og alltaf til reiðu, leggst
á spítala 1984 og á ekki aftur-
kvæmt. Þetta var reiðarslag. Jón
flutti inn á heimili okkar og kom
sér þar vel fyrir. Nærvera hans var
okkur og bömunum mikil ánægja,
hann tefldi við þau og spilaði, hann
var einn póll í viðbót á heimilinu,
sem við kunnum vel að meta. Jón
kom vængbrotinn inn á heimilið og
á hann sótti astminn og fleiri kvill-
ar, en af eigin rammleik og með
aðstoð dóttur sinnar, sem hann tre-
ysti fullkomlega, komst hann á
nokkurt flug aftur og fer síðan að
sækja dagvistun á Hrafnistu í Hafn-
arfirði og eignast þar nýja félaga.
Eftir íjögurra ára dvöl á heimili
okkar tekur hann flugið á ný og
kemur sér fyrir í frábærlega góðu
íbúðarherbergi á Hrafnistu í Hafn-
arfírði, með málverkin sín, bækurn-
ar, fjölskyldumyndirnar og aðra
persónulega muni, sem voru honum
kærir.
Síðustu tvö árin dvaldist Jón á
sjúkradeild Hrafnistu með hléum
er hann hefur legið á Vífílsstöðum,
en astminn lét hann aldrei alveg í
friði. Síðustu tvo mánuði lagðist
margt þungt á hann í senn. And-
legri reisn hélt hann allt þar til er
yfír lauk, augun voru jafn skýr og
handtakið þétt er ég kvaddi hann
á sjúkrasænginni, eins og þegar ég
hitti hann í fyrsta skipti í Fells-
múlanum.
Vel lukkað lífshlaup er svo sann-
arlega gleðilegt en varir því miður
ekki að eilífu og það er sárt þegar
kærir hverfa á braut, en Jón er
áreiðanlega sáttur við að vera kom-
inn til fundar við Siggu sína á ný.
Hann trúði að svo myndi verða.
Tengdaföður minn kveð ég með
innilegu þakklæti, því að hann
reyndist mér svo einstaklega vel.
Blessuð sé minning hans.
Tengdasonur.
Okkur systkinin langar að minn-
ast ástkærs afa okkar með nokkram
orðum.
Okkur er það efst í huga nú á
kveðjustundu hversu heppin við
vorum að eiga svo góðan afa,
hversu áhugasamur hann var um
okkar nám og stárf. Hann spurði
mikið hvernig gengi í skólanum og
hafði mikinn metnað fyrir okkar
hönd. Hann studdi okkur alltaf,
hvatti okkur áfram og hrósaði þeg-
ar vel gekk.
Afí hafði alltaf tíma fyrir okkur,
tíma til að setjast niður og spjalla
eða spila, t.d. kenndi hann okkur
að tefla. Það era okkur sérstaklega
minnisstæðar stundir. Hann gaf
okkúr forgjöf í byijun, svo við næð-
um að vinna hann. Þó að við yrðum
betri með tímanum var alltaf jafn
gaman að tefla við afa. Það var líka
gott að setjast niður með afa Jóni
og spjalla um daginn og veginn.
Hann fylgdist ætíð með tíðarandan-
um og gerði sér grein fyrir breyttum
aðstæðum og viðhorfum unglinga
í dag.
Hann sagði okkur margar sögur
frá því í gamla daga, enda hafði
hann frá mörgu að segja, frá áran-
um sem hann keyrði leigubíl, vöra-
bfl eða tímanum sem hann var verk-
stjóri hjá Sambandinu.
Við bömin náðum líka að kynn-
ast afa Jóni sérstaklega vel er hann
bjó hjá okkur í nokkur ár eftir að
amma Sigga dó. Það var afa þung-
bært að missa ömmu, enda var hún
yndisleg og samband þeirra sér-
staklega náið og gott. Eigum við
eldri bræðurnir margar góðar minn-
ingar um ömmu og afa í Fellsmúla,
t.d. þegar við fengum að gista hjá
þeim. Var þá ávallt passað upp á
að uppáhaldsmaturinn okkar væri
á borðum, og dekrað við okkur á
alla kanta. Nokkrum mánuðum eft-
ir Iát ömmu Siggu, fæddist litla
systir sem ber nafn ömmu, og var
hún mikil sólargeisli hjá afa.
En það sem stendur alltaf mest
uppúr er hve mikla væntumþykju
hann bar til okkar og hve mikinn
áhuga hann hafði á leik okkar og
starfí, hve mikla áherzlu hann lagði
á að okkur liði vel og gengi vel í
lífinu. Hversu reiðubúinn hann var
alltaf að rétta styrka hjálparhönd
ef eitthvað bjátaði á hjá okkur.
Við kveðjum nú yndislegan afa,
sem skilur eftir sig djúpar og hlýjar
minningar.
Við vitum að vel verður tekið á
móti afa í nýjum heimkynnum.
Hann hefur nú hitt aftur ömmu
Siggu. Það var h'ann sjálfur alveg
viss um. Og saman munu þau halda
áfram að fylgjast með okkur systk-
inunum.
Við eram þakklát fyrir að hafa
átt svo góðan afa.
Blessuð sé minning afa Jóns.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu hug
þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna
þess sem var,gleði þín.
(Kahil Gibran)
Jón Þór, Kjartan Örn,
Birgir Már og
Sigríður Ásta.
Heildsöluverð á undirfatnaði
frá CACHAREL og PLEYTEX.
Einnig snyrtivörurá
kynningarverði.
VERSLUNIN ÞOKKI
Glæsibæ, sími 677594
HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
Leikbrúdugerd
Kennari: Helga Arnalds.
25. mars - 29. apríl. Fimmtudaga kl. 19.30- 22.30.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga
-fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800.
V
i
Olöf Einarsdóttír
Stevens - Minning
Föðursystir mín, Ólöf Einars-
dóttir Stevens, lést 25. febrúar sl.,
en hún var búsett í Grimsby í
Englandi. Mig langar að minnast
hennar með nokkram orðum. Ólöf
bjó meirihluta ævinnar erlendis,
en hélt góðu sambandi við ætt-
ingja og vini á íslandi. Hún missti
ekki niður íslenskuna þrátt fyrir
áratuga dvöl erlendis. í maí síðast-
liðnum hélt hún upp á áttræðisaf-
mæli sitt hér á landi. Einnig var
hún hér um síðustu jól ásamt
barnabami sínu, Hönnu.
Ólöf giftist Englendingi, James
P. Stevens, og bjuggu þau í
Grimsby. Þau eignuðust einn son,
Einar Róbert, sem er kennari í
S-Englandi, kvæntur enskri konu,
og eiga þau tvær dætur, Hannah
og Viola.
Fyrir nokkurm árum lést James,
og var það mikill missir fyrir Ól-
öfu, því að þau voru mjög samrýnd
hjón og hjónaband þeirra sérstak-
lega ástríkt. Eftir dauða manns
síns bjó hún ein í Grimsby, en
hafði gott samband við son sinn
og fjölskyldu hans.
Ég dvaldi sumarlangt hjá þeim
hjónum árið 1961 og þá kynntist
ég henni vel. Síðan hef ég dáðst
mjög að þessari frænku minni sem
var mjög dugleg og jákvæð kofia.
Síðustu ár höfum við skrifast á og
báru bréf hennar vitni um hve
annt henni var um fjölskyldu sína
á íslandi.
Sendi ég Einari Róbert og fjöl-
skyldu hans samúðarkveðjur.
Bróðurdóttir.
Ráðstefna Samtaka félagsmálastjðra 1993:
Námskeið um liðveislu við fatlaða
Málbing um sjálfræðishugtakið
Samtök félagsmálastjóra gangast fyrir fimmtu
ráðstefnu sinni dagana 15. og 16. mars nk. í
Borgartúni 6, Reykjavík.
Ráðstefnan er tvíþætt.
Mánudaginn 15. mars, kl. 9.00 til kl. 17.00 síðdegis,
er námskeið um liðveislu við fatlaða, en samtökin
Geðhjálp, Sjálfsbjörg, Landssamband fatlaðra, Lands-
samtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag íslands
standa að því með samtökum félagsmálastjóra.
Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:
Setning. *
Lagaákvæði um liðveislu:
Bragi Guðbrandsson, aðstoðarm. félagsmálaráðherra.
Fyrirkomulag liðveislu hjá sveitarfélögum:
Aðalsteinn Sigfússon, féiagsmálastjóri í Kópavogi.
SJÁLFSBJÖRG:
Þörfin fyrir liðveislu. Liðveisla og líkamlega fatlaðir:
Jóhann Pétur Sveinsson, form. Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.
ÞROSKAHJÁLP:
Liðveisla, fjölfötluð börn og fjölskyldur þeirra: *
Andrés Ragnarsson, foreldri og sálfræðingur.
Liðveisla og framhaldsskóli:
Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, námsráðgjafi M.H.
GEÐHJÁLP:
Liðveisla og geðfatlaðir:
Sigrún Bára Friðfinnsdóttir, framkvstj. Geðhjálpar.
Steinunn Arnórsdóttir.
Leiksýning: Hala-leikhópurinn.
ÖRYRKJABANDALAG ÍSLANDS:
Liðveisla blindra og daufblindra:
Kristín Jónsdóttir, blindraráðgjafi.
Táknmálið, liðveisla heyrnarskertra:
Valgerður Stefánsdóttir, forstöðumaður
samskiptastöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Umræður í smáhópum - almennar umræður.
Þriðjudaginn 16. mars, kl. 9.00 til kl. 17.00 síðdegis,
er málþing um sjálfræðishugtakið, en dagskrá þess
er eftirfarandi:
Setning.
Sjálfræðishugtakið í heimspeki:
Guðmundur H. Frímannsson, heimspekingur. ri
Sjálfræðishugtakið og félagsleg þjónusta:
Jón Björnsson, félagsmálastjóri.
Sjálfræðishugtakið:
Guðbergur Bergsson, rithöfundur.
Sjálfræðishugtakið í lögum:
Davíð Þór Björgvinsson, lögfræðingur.
Sjálfræðissvipting og afleiðingar hennar:
Sigmundur Sigfússon, geðlæknir.
Athugasemdir og umræður.
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Þátttöku er æskilegt að tilkynna fyrirfram til Félagsmála-
stofnunar Kópavogs, Fannborg 4, sími 91-45700,
fax 91-46240.
Móttaka gesta hefst kl. 8.30 báða dagana.
Mætið tímanlega til að forðast ös.
Þátttökugjald er kr. 3.500 fyrir námskeiðið eitt,
kr. 3.500 fyrir málþingið eitt, en kr. 6.000 fyrir hvort
tveggja. Innifalið í gjaldinu eru gögn, kaffi og meðlæti.
Gjald greiðist við komu.
Samtök félagsmálastjóra á íslandi.