Morgunblaðið - 13.03.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993
17
Þessum rúmlestum skal eytt! Þjóð-
félagið skal aðlagað að reiknilínu-
riti! Nú skal smábátaútgerðinni,
sparsömustu útgerð landsins, líka
eytt! A mörgum stöðum við landið
er smábátaútgerðin „sálin“ í
byggðarlögunum og hvernig verð-
ur lífíð í sjávarplássunum verði
þeirri útgerð tortímt með þarf-
lausri ofstjóm? Vill félagsvísinda-
deild Háskóla íslands Ijalla um
málið strax, eða á að geyma um-
fjöllunina þar til skaðinn er skeður
og koma þá með þykka fína skýrslu
um „ástandið“? Flestir þeir sem
hafa verið brautryðjendur í íslensk-
um sjávarútvegi byijuðu á smá-
bátaútgerð. Hvað með framtíðina?
Á að hanna brautryðjendur á færi-
bandi á einhvérri braut í skólakerf-
inu? Stórfé (milljörðum) á nú að
fara að ráðstafa í nýjan „þróunar-
sjóð sjávarútvegsins" til þess að
eyða enn fleiri rúmlestum „of stórs
flota" þegar tugir vannýttra fisk-
tegunda synda á djúpslóð og toga-
flotinn nær ekki að veiða leyfílegan
þorsk-, ýsu- og rækjukvóta og
ekki tekst heldur að veiða leyfílegt
magn af loðnu og síld! Samt skal
þetta heita að „flotinn sé of stór“.
Er Háskóli íslands ætlaður „að
berja höfðinu við steininn" aðferð-
inni, eða til þroskandi umfjöllunar?
Svokölluð „fískihagfræði“ er
kennd við Háskóla íslands sem
faggrein. Forsendur „fískihag-
fræðinnar“ er reiknilíkanið marg-
umtalaða. Margar áleitnar spum-
inar banka á dymar. Hvað töpuð-
um við miklum afurðamörkuðum
varanlega vegna skorts á þorksaf-
urðum í Bandaríkjunum á „upp-
byggingartíma" þorskstofnsins
1987-1991?
Ég vonast til þess að fá svar
við þessu bréfi í Morgunblaðinu
og hvað Háskólinn hyggst gera til
þess að fískifræði (og fiskihag-
fræði) geti þróast sem alvöru vís-
indi í Háskóla Islands en ekki sem
endurmenntunamámskeið í krón-
ískum farvegi sem afneitar stað-
reyndum um einfalt samspil í sínu
nánasta umhverfi.
Höfundur stundar atvinnurekstur
á Bakkafirði.
isti Úlrik Ólason. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Helgi Bragason.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
KAPELLAN, St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
MOSFELLSPREST AKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Álafosskórinn kemur í heimsókn.
Stjórnandi Helgi Einarsson. Und-
irleikari Hrönn Helgadóttir.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Jón Þorsteinsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
STOKKSEYRARKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Kaffi-
veitingar og aðalsafnaðarfundur
eftir guðsþjónustuna.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa kl. 14. Æsku-
lýðsfundur kl. 20. Kvöldsöngur kl.
20 miðvikudagskvöld. Sigurður
Sigurðarson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Rún-
ars Reynissonar. Tómas Guð-
mundsson.
HEILSUHÆLI NLFÍ: Messa kl.
11. Tómas Guðmundsson.
AKRAN ESKIRKJ A: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í dag, laugar-
dag, í safnaðarheimilinu kl. 13 í
umsjá Axels Gústafssonar.
Barnasamkoma í kirkjunni sunnu-
dag kl. 11.30 í umsjá Hauks Jón-
assonar (ath. breyttan dag).
Messa kl. 14, altarisganga. Björn
Jónsson.
DVALARHEIMILIÐ Höfði: Messa
kl. 12.45. Björn Jónsson.
Aðstöðuleysi farið að há
verkefnum nefndarinnar
Mannanafnanefnd segir af sér
GIJÐRÚN Kvaran, formaður mannanafnanefndar, segir að nefnd-
in hafi ákveðið á segja af sér vegna þess að hún hafi talið að
aðstöðuleysi væri farið að há verkefnum hennar. Hún neitar því
að gagnrýni á störf nefndarinnar hafi átt þátt í ákvörðun hennar.
Fram kom á Alþingi á fimmtu-
dag, að mannanafnanefnd hefði
öll sagt af sér vegna aðstöðuleys-
is. Guðrún Kvaran sagði að gert
hefði verið ráð fyrir að nefndin
hefði aðstoðarmann til að svara í
síma en svo hefði ekki verið. Hún
hefði heldur ekki fengið annað
húsnæði eftir að hún hefði misst
húsnæði á Hverfisgötu. Þannig
hefði nefndin ekki haft vinnuað-
stöðu til að sinna verkefnum sínum
og nefndarmenn hefðu þurft að
taka við símtölum vegna nefndar-
starfa á vinnustöðum sínum og
heimilum.
Hún neitaði því að gagnrýni á
störf nefndarinnar hefði átt þátt
í þeirri ákvörðun hennar að segja
af sér. Ekki væri óeðlilegt að
heyrðist í óánægjuröddum og mjög
margir hefðu verið ánægðir með
störf nefndarinnar.
Nefndi Guðrún í því sambandi
að í öllum þeim málum sem vísað
hefði verið til umboðsmanns hefði
harin verið sammála nefndinni í
úrskurði sínum.
Silver Reed
skólaritvBlar
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24-SlMI0977OO
AlUaf skrefi á undan
D INGERSOLL-RANP
VERKLEG
Sýning á framleiðsluvörum
Ingersoll Rand verður haldin
í Véladeild Heklu
Laugardaginn 13. mars kl. 13-17.
Á sýningunni verða m.a.:
) Loftpressur og skyldur búnaður
fyrir iðnað, sjúkrahús o.fl.
) Færanlegar loftpressur, rafstöðvar
og dælur.
> Loftverkfæri og brothamrar.
I Borvagnar og tæki til jarðborana.
> Jarðvegsþjöppur og valtarar.
I Malbikunarvélar og malbiksfræsarar.
HEKLA
VÉLADEILD
Laugavegi 172. Sími 69 57 26.