Morgunblaðið - 13.03.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993
Leikklúbbur VMA
HL-stöðin
„Fyrir aust-
an mána“
frumsýnd
LEIKKLÚBBURINN Locos í
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri frumsýnir á mánudagskvöld
í fyrsta sinn á íslandi leikritið
„Fyrir austan mána“ (Cloud nine)
eftir Caryl Churcill í þýðingu og
leikstjórn Jóns Bjarna Guð-
mundssonar, leikara hjá Leikfé-
lagi Akureyrar.
Leikritið er tvíþætt og gerist fyrri
hluti þess í Afríku árið 1880 og sá
síðari í London árið 1980, en sögu-
persónur upplifa þennan tíma ein-
ungis sem 25 ár. Þetta er „meló-
dramatísk kómedía", eins og segir
í fréttatilkynningu frá leikklúbbn-
um, og við allra hæfi, en bömum
undir 10 ára aldri er þó ekki ráð-
iagt að sjá sýninguna.
Sýnt verður í Gryflunni í Verk-
menntaskólanum og frumsýning
verður á mánudagskvöld, 15. mars
-t og hefst hún kl. 20.30 og er miða-
sala við innganginn, en gestum er
ekki hleypt inn í salinn eftir að
sýningar heijast.
■ KVIKMYNDAKLÚBBUR Ak-
ureyrar sýnir myndina Einiberja-
tréð næstkomandi mánudag, 15.
mars, kl. 19 í Borgarbíói. Myndin
Einibeijatréð er íslensk-amerísk
kvikmynd gerð eftir kunnu ævin-
týri Grimsbræðra með sama nafni.
Með öll aðalhlutverkin fara íslensk-
^ir leikarar, Björk Guðmundsdótt-
ir, Bryndís _ Petra Bragadóttir,
Valdimar Orn Flygenring og
Geirlaug Sunna Þormar.
Tilbúnar
ÁKVEÐNAR stúlkur úr MA tilbúnar í hörkukeppni í bandý við stúlkumar í Verkmenntaskólanum.
Iþróttadagur
framhaldsskóla
Árlegur íþróttadagur þar sem nemendur fram-
haldsskólanna á Akureyri, Menntaskólans á Akur-
eyri og Verkmenntaskólans á Akureyri, reyna með
sér í ýmsum greinum íþrótta var haldinn í fyrradag,
en jafnframt lauk sameiginlegum listadögum skól-
anna sem staðið hafa síðustu tíu daga. Það hefur
því mikið verið um að vera í skólunum á sviði menn-
ingar og lista að undanfömu og því mál til komið
að reyna á líkamann. Keppt var í sundi, fijálsum
íþróttum, blaki, borðtennis, körfubolta, fótbolta,
handbolta, skák og bandý og fór keppnin fram í
íþróttahöllinni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sigri fagnað
STÚLKUR i Uði Verkmenntaskólans fögnuðu
sigri yfir stöllum sínum í MA í handknattleik.
Stærstu kröfuhafar K. Jónssonar fara yfir stöðuna á fundi í dag
Freistað að finna nýja aðila
til að reka verksmiðjuna
Akureyrarbær tapar 45 milljónum
STÆRSTU kröfuhafar í þrotabú Niðursuðuverksmiðju K.
Jónssonar og Co munu hittast á fundi með skiptastjóra,
Ólafi Birgi Arnasyni, í dag, laugardag. Á fundinum verður
farið yfir stöðuna og teknar ákvarðanir um framhaldið,
en strax eftir að fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota var
farið að leggja á ráðin um endurreisn þess. Ljóst er að
Akureyrarbær tapar tugum milljóna á gjaldþrotinu.
Starfsfólk mætti til vinnu í gær,
föstudag og ábyrgðist Landsbanki
íslands laun þess, en að sögn Ólafs
Birgis Ámasonar skiptastjóra lá
ekki annað fyrir síðdegis í gær en
'að þrífa tæki og Ioka fyrirtækinu.
Hann sagði að aðilar í skyldum
rekstri bæði innanbæjar og utan
hefðu sýnt því áhuga að koma inn
í reksturinn og sagði hann afar
mikilvægt að einhvers konar rekstr-
arfélagi yrði komið á fót.
Kröfuhafar funda
„Það er mjög mikilvægt að rekst-
urinn stöðvist ekki, m.a. vegna við-
skiptasamninga sem gerðir hafa
verið. Það var allt sett á fulla ferð
strax eftir að fyrirtækið var úr-
skurðað gjaldþrota til að leita að
áhugasömum aðilum til að leigja
þennan rekstur og það mál er í
gangi,“ sagði Ólafur Birgir.
Hartn hefur kallað fulltrúa
stærstu kröfuhafa búsins til fundar
í dag, laugardag, til að ræða málið
og má búast við að ákvörðun um
framhaldið verði tekin á fundinum.
Á fundinn koma fulltrúar Lands-
banka Islands, Iðnþróunarsjóðs,
Iðnlánasjóðs, Byggðastofnunar og
Akureyrarbæjar. „Málin verða að
ganga hratt fyrir sig, við megum
engan tíma missa," sagði Ólafur
Birgir.
Tugmilljóna tjón
Halldór Jónsson bæjarstjóri á
Akureyri sagði að bæjarsjóður yrði
fyrir tugmilljóna tjóni í lqölfar
gjaldþrotsins. Sjóðurinn er í ábyrgð
fyrir láni upp á 30 milljónir króna
og þá sagði Halldór að aðrar kröfur
bæjarins á hendur fyrirtækinu væru
um það bil 25 milljónir króna, en
þar af eru tæpar 10 milljónir vegna
fasteignagjalda sem eru með lög-
veði og því ekki tapað fé.
„Ég gæti trúað að beint tap
bæjarins vegna gjaldþrotsins væri
um 45 milljónum króna, en þar við
gæti óbeint tap orðið nokkuð. Við
væntum þess hins vegar að það
finnist einhver flötur á því að gerð-
ur verði leigusamningur um áfram-
haldandi rekstur til að byija með.
Menn einbeita sér í fyrstu að
skammtímalausn til að halda þessu
gangandi enda mikið í húfi og síðan
verður hægt að leita langtíma-
lausna.
Að engu að hverfa
„Þetta er mjög alvarlegt mál,
þetta er stór vinnustaður á okkar
mælikvarða," sagði Bjöm Snæ-
bjömsson formaður Verkalýðsfé-
lagsins Einingar en um 60 af 70
starfsmönnum K. Jónssonar vom í
Einingu. Bjöm sagðist halda í þá
Keypt nýtt
þrekhjól
AÐALFUNDUR HL-stöðvar-
innar, endurhæfingarstöðvar
hjarta- og lungnasjúklinga,
var haldinn fyrir skömmu.
Rekstur stöðvarinnar hefur
gengið vel, fullskipað er í alla þijá
þjálfunarhópana, alls um 60
manns og fáeinir bíða eftir plássi.
Árangur af þjálfuninni er mjög
góður en það kom fram í erindi
sem Jón Þór Sverrisson yfirlæknir
stöðvarinnar hélt.
Verkalýðsfélagið Eining gaf
HL-stöðinni fjögur þrekæfingahjól
sem tekin voru í notkun í haust.
Þessi hjól eru hið mesta þarfaþing,
því hægt er að hjóla á þeim með
bæði höndum og fótum sem kemur
sér vel fyrir þá þrekminnstu.
Þrekmælingalyól
Á næstunni verður tekið í notk-
un nýtt þrekmælingahjól með
fylgibúnaði sem bætir aðstöðu tii
muna og gerir þrekmælingar og
yfirfærslu þeirra á þrekhjól auð-
veldari. Hjarta- og æðavemdarfé-
lag Akureyrar og nágrennis gaf
150.000 kr. til kaupa á þessum
tækjum í minningu Baldvins Þor-
steinssonar skipstjóra. Alls kostar
þessi tækjabúnaður um 400.000
krónur.
♦ ♦ ♦-----
■ FORELDRAFÉLAG blásara-
deildar Tónlistarskólans á Akur-
eyri efnir til fjáröflunartónleika á
morgun, sunnudag 14. mars, kl. 15
í Sjallanum. Fram koma eldri og
yngri blásarasveitir ásamt minni
hópum, saxófónkvartett, tromp-
ettríói, slagverkssveit og tréblást-
urshópi.
von að einhverjir tækju að sér að
byggja reksturinn upp að nýju, ann-
ars væri ljóst að starfsfólkið missti
vinnuna og hefði ekki að neinu að
hverfa. Þegar væru á þriðja hund-
rað Einingarfélagar á Akureyri án
atvinnu, en alls eru um 540 manns
skráðir atvinnulausir nú.
Eining tapar um 500 þúsund
krónum á gjaldþrotinu vegna fé-
lagsgjalda og greiðslna í sjúkra- og
orlofssjóð. Þá nema skuldir vegna
lífeyrisiðgjalda um 2,5 milljónum
króna.
Messur á
Akureyri:
AKUREYRARKIRKJA
Helgistund verður á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu kl. 10 á morgun,
sunnudagaskólinn heimsækir
Glerárkirkju. Messað verður kl.
14. Þorgrímur Daníelsson pred-
ikar. Messað í Seli kl. 14.
GLERÁRKIRKJA
Biblíulestur og bænastund í dag
kl. 13. Kirkjuhátíð barnanna
verður haldin í kirkjunni kl. 11
og munu þá börn úrsunnudaga-
skólum af Eyjafjarðarsvæðinu
koma saman. Messað verður
kl. 14 og eru fermingarbörn og
foreldrar þeirra sérstaklega
hvött til að mæta.
Krossanesverksmiðjan stendur ekki undir greiðslubyrði
Bærinn eykur hlutafé
um 100 nulljónir króna
MEIRIHLUTI bæjarráðs Akureyrar hefur
samþykkt að auka hlutafé í Krossanesi um
100 milljónir króna. Ljóst þykir að verksmiðj-
an stendur ekki undir greiðslubyrði sinni og
fjármagnskostnaður er mikill.
Halldór Jónsson bæjarstjóri sagði að Akureyrarbær
yfirtæki lán sem Krossanesverksmiðjan væri með upp
á 191 milljón króna, en lánið er með bæjarábyrgð. Þá
mun bærinn greiða 100 milljónir kr. í nýtt hlutafé og
síðan verður 91 milljón kr. skuldbreytt, þannig að
Krossanesverksmiðjan mun skulda Akureyrarbæ þá
upphæð.
Gengur vel
Halldór sagði að rekstur verksmiðjunnar hefði gengið
vel og nægt hráefni hefði borist til vinnslunnar á vertíð-
inni, en annað væri upp á teningnum er kæmi að fjár-
magnskostnaði og greiðslubyrði, stofnkostnaður hefði
verið meiri en áætlað var og eins hefði ekki tekist að
selja öll tæki sem selja átti. Fyrsta árið eftir að búið var
að endurbyggja verksmiðjuna eftir bruna fyrir nokkrum
árum var svo til loðnulaust og setti það strik í reikninginn.