Morgunblaðið - 13.03.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993
27
Kvikmyndasýning’
í Norræna húsinu
FÆREYSKA kvikmyndin Hannis
verður sýnd í Norræna húsinu
sunnudaginn 14. mars kl. 14.
Myndin segir frá systkinum frá
Þórshöfn sem fara til sumardvalar
hjá ömmu sinni á Skuvoy. Þar kynn-
ast þau gömlum manni sem hefur
orðið undir í lífínu og skemmta
börnin í þorpinu sér við að gera at
í honum. Systkinin taka þátt í þess-
um leik þorpsbamanna en síðan
gerist atburður sem á eftir að
breyta lífí þeirra allra.
Þessi kvikmynd er frá árinu 1991
og Katrin Ottarsdóttir er leikstjóri
og handritshöfundur. Mjmdin er
ætluð bömum og fullorðnum og er
hálf klst. að lengd með íslensku
tali. Allir em velkomnir og aðgang-
ur ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Grensassokn hefur byggingn nýrrar kirkju
Skóflustunga tekin
TEKIN verður fyrsta skóflu-
stungan að byggingu kirkju
Grensássóknar i dag, laugardag-
inn 13. mars. Athöfnin hefst kl.
14.
Athöfnin hefst með því að kirkju-
kórinn syngur sálm. Að því loknu
verður stutt helgiathöfn sem sókn-
arprestur stýrir. Þá tekur sóknar-
prestur fyrstu skóflustunguna en
að því loknu syngur kirkjukórinn.
Að athöfninni lokinni verður gengið
til safnaðarheimilis þar sem fram
verða bomar veitingar.
í lok yfírstandandi árs em liðin
30 ár frá stofnun Grensáspresta-
kalls. Fyrsti prestur safnaðarins var
séra Felix Ólafsson sem nú er bú-
settur í Danmörku. Séra Jónas
Gíslason, núverandi vígslubiskup í
Skálholti, tók við starfí sóknar-
prests árið 1970 en sl. 20 ár hefur
sóknarprestur verið séra Halldór
S. Gröndal. Séra Gylfí Jónsson hef-
ur gegnt starfí safnaðarprests sl.
fímm ár.
(Fréttatilkynnmg)
Dagskrá Færeyskra daga
DAGSKRÁ Færeyskra daga í
Norræna húsinu hefst laugar-
daginn 13. mars kl. 14 með sýn-
ingu á heimildarmyndinni Tre
blink mot vest. Myndina gerði
Ulla Boje Rasmussen og fékk hún
verðlaun Norðurlandaráðs,
Nordpris ’92 (nú á afstöðnu þingi
í Osló).
Myndin er tekin á Mykinesi sem
er vestasti útvörður Færeyja. Þema
myndarinnar er annars vegar hið
fjölskrúðuga fugla- og manniíf að
sumri til og hins vegar vetrartíminn
með fámenni og fábreytni.
Um kvöldið kl. 20.30 verður fær-
eyskt skemmtikvöld fyrir ungt fólk
frá Færeyjum og öðmm Norður-
löndum í umsjón Nordklúbbsins.
(Fréttatilkynning)
■ LISTA- og atburðadagar em
þessa dagana í Félagsmiðstöðinni
Bústöðum. Margt verður sér til
gamans gert og endað á árshátíð
18. mars nk. sem jafnframt er hald-
in sameiginlega með Réttarholts-
skóla. Unglingarnir em þegar
komnir á fullt í klúbbstarfsemi en
þessa daga er boðið upp á t.d.
myndbandahóp, ljósmyndahóp, lík-
amsrækt, kaffíhúsahóp, skreyt-
ingahóp, námskeið í skartgripagerð
og förðun, klettaklifur, tískusýn-
ingahóp, hljóðfærahóp og útvarps-
hóp. Kaffíhúsahópurinn mun reka
í Bústöðum veglegt kaffíhús (Café
Bústaðir) og útvarpshópurinn mun
reka Útvarp Bústaði með útsend-
ingu á FM 94,2. Fyrir utan klúbb-
starfsemina er boðið upp á ýmsar
uppákomur (aðkeyptar) s.s. töfra-
brögð, leikrit og hljómsveit.
(Fréttatilkynning)
■ ÁRLEGUR kynningar- og
nemendamótsdagur skólans,
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Austfirsk fegurð
STÚLKURNAR sem taka þátt í keppninni Ungrú Austurland. F.v. Matthildur Þórarinsdóttir, Rann-
veig Þórhallsdóttir, Stella Rut Axelsdóttir, Svava Rós Alfreðsdóttir, Valdís Jónsdóttir og Jóhanna
Sigríður Esjansdóttir.
Fegurðarsamkeppni Aust-
urlands haldin um helgina
Neskaupstað.
SEX stúlkur taka þátt í keppn-
inni um titilinn Ungfni Austur-
land sem fram fer í Hótel Egils-
búð í kvöld.
Dagskráin hefst með kvöldverði
og ýmis skemmtiatriði verða milli
þess sem stúlkumar koma fram.
Kynnir verður Guðmundur Rafn-
kell Gíslason. Guðrún Smáradóttir
danskennari hefur séð um undir-
búning keppninnar og um förðun
sér Klara Jónasdóttir.
Stúlkumar sem taka þátt í
keppninni eru Matthildur Þórarins-
dóttir, Neskaupstað, Rannveig Þór-
hallsdóttir, Egilsstöðum, Stella Rut
Axelsdóttir, Seyðisfirði, Svava Rós
Alfreðsdóttir, Neskaupstað, Valdís
Jónsdóttir Beck, Reyðarfírði, og
Jóhanna Sigríður Esjansdóttir,
Höfn. - Ágúst.
Skrúfudagurinn, verður haldinn
hátíðlegur laugardaginn 13. mars
klukkan 13-16.30. Þennan dag
gefst væntanlegum nemendum og
vandamönnum þeirra kostur á að
kynnast nokkmm þáttum skóla-
starfsins. Nemendur verða við störf
í verklegum deildum skólans og
veita upplýsingar um kennslutækin
og skýra gang þeirra. Auk þess
halda þeir sýningu á kennslubókum
og öðmm kennslugögnum. Kvenfé-
lagið Keðjan verður með kaffiveit-
ingar í matsal Sjómannaskólans
frá klukkan 14. Að Skrúfudeginum
standa þessir aðilar: SKóIafélag
vélskólans, Kvenfélagið Keðjan,
Vélstjórafélag íslands og Vél-
skóli íslands.
(Fréttatilkynning)
■ LÚDRASVEIT Hafníirfjarð-
ar og Lúðrasveit Akureyrar halda
sameiginlega tónleika í Víðistaða-
kirkju í dag, laugardaginn 13.
mars kl. 16. Á efnisskránni era
innlend og erlend léttklassísk verk.
Tónleikamir em liður í samstarfi
lúðrasveitanna en Lúðrasveit
Hafnarfjarðar heimsótti Lúðra-
sveit Akureyrar á síðasta vetri í
tilefni af 50 ára afmæli Lúðrasveit-
ar Akureyrar. Stjómendur á tón-
leikunum era þeir Atli Guðlaugs-
son og Stefán Ómar Jakobsson.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
■ SÝNING á damaskdúkum frá
Georg Jensen í Danmörku verður
laugardag og sunnudag í Safamýri
91 frá kl. 14-18. A sýningunni
kynnir Ragnheiður Thorarensen,
umboðsmaður Georgs Jensens á
íslandi, ný mynstur og nýja liti á
^iúkum. Georg Jensen er 500 ára
gamalt listvefnaðarfyrirtæki sem
alltaf hefur verið í eigu sömu ættar-
innar. Dúkamir era úr 100% bóm-
ull og öll mynstrin era teiknuð af
viðurkenndum hönnuðum og arki-
tektum. Dúkamir era sniðnir að
óskum hvers viðskiptavinar og þola
90 gráðu hita í þvotti.
■ FÖSTUVAKA verður í Árbæ- ,
jarkirkju sunnudaginn 14. mars
kl. 20.30. Þar verður flutt dagskrá
í tali og tónum, m.a. Messa eftir
Josquen Deprez í flutningi Schola
cantorum undir stjóm Orthulfs
Prunner. Tilangurinn með föstu-
vöku era að gefa fólki tækifæri til
að koma saman eina kvöldstund í
föstunni til íhugunar í erli daglega
lífsins. Fastan er tími sjálfsprófunar
og til að dýpka og þroska trúarlíf
sitt, samfélag sitt við Krist sem
lagði allt í sölur og „gerðist fátæk-
ur vor vegna, að vér auðguðumst
af fátækt hans“, segir í frétt frá
Árbæjarkirkju.
Framtíðarferðír senda frá sér greinargerð um starfsemi fyrirtækisins
Sívaxandi fjöldi fólks hefur
sér orlofseignarétt
tryggt
í TILEFNI af fyrirspurnum sem
fyrirtækið Framtíðarferðir hefur
fengið frá fjölmiðlum og einstakl-
ingum hefur það sent Morgun-
blaðinu eftirfarandi samantekt
um þann grunn sem fyrirtækið
hvílir á og í hverju starfsemi þess
felst.
í ferðaheiminum gerist sífellt al-
gengara að fólk kaupi sér orlofs-
eignarétt; rétt til að nota sumarhús
og íbúðir á eftirsóttum stöðum hve-
nær sem því hentar. Talið er að
ferðaþjónusta af þvi tagi aukist mik-
ið í framtíðinni. Á þeim granni
byggja Framtíðarferðir starfsemi
sína.
í stuttu máli er orlofseignaréttur
löglegt samkomulag, sem gefur eig-
andanum rétt til að nota nákvæm-
lega þann tíma sem hann vill nota í
ákveðinni orlofsíbúð. Tíminn er í vik-
um. Verktaki byggir einfaldlega or-
lofsstað með orlofsíbúðum og tilheyr-
andi aðstöðu á staðnum (m.a. sund-
laug, tennisvöll, golfvöll o.s.frv.).
Afnotaréttur af íbúðunum er seldur
i vikum. Kaupandinn velur þann frí-
tíma sem hentar honum best og er
eftir kaupin eigandi afnotaréttarins
til að nota eina eða fleiri vikur í ein-
hverri íbúð á hveiju ári í 99 ár.
Hugmyndin að orlofseignarétti
varð til í Frakklandi á miðjum 6.
áratugnum, en það var ekki fyrr en
við lok 7. áratugarins að hugmyndin
að orlofseignarétti fékk veralegan
byr. Á Flórida dróst sala á orlofs-hús-
um og íbúðum saman vegna lækkun-
ar olíuverðs og Bandaríkjamenn leit-
uðu nýrra leiða og aðferða til að
selja orlofsstaðina. Lausnin varð or-
lofseignaréttur eða sala á afnotarétti
á orlofsíbúðum sömu viku hvert ár.
Hugmyndin er einföld: Flestir vilja
gjarnan eiga orlofsíbúð en hafa ekki
ráð á því. Bæði er viðhaldskostnaður
dýr og afnot takmarkast við fáar
vikur hvert ár. Þess vegna er hent-
ugt að fjárfesta einungis í þeim tíma
sem maður notar og deila viðhalds-
kostnaði með öðrum.
Uppbygging orlofsaðstöðu með
þessum hætti opnar möguieika að
hafa hana Qölbreytta og vandaða án
þess að dvölin kosti mikið.
Þegar hugmyndin að orlofseigna-
rétti leit fyrst dagsins ljós var skipti-
möguleikinn ekki orðinn að veru-
leika. Þegar fjárfest var í einni eða
fleiri vikum var fríið takmarkað við
ákveðinn tíma og ákveðinn stað.
Söluaðilar fengu oft að heyra
spuminguna: „Hvað ef ég vil ekki
fara á sama staðinn ár eftir ár?“ Við
þessu var bragðist með því að opna
skiptimöguleikakerfí þar sem klúbb-
félögum er gert mögulegt að skipta
vikunum sinum milli staða og tíma.
Upphafíð má rekja til þess er John
og Christel DeHan komu auga á
þörfina fyrir sveigjanleika og stofn-
uðu þess vegna Resort Condominium
Intemational (RCI) í Indianapolis í
Indiana í Bandarílqunum 1974. Hug-
myndin var einföld. RCI tók saman
flölda eignaréttarstaða í eitt alþjóð-
legt skiptinet. Þegar meðlimir óskuðu
að fara í frí á öðrum stað en þeirra
eigin lögðu þeir inn sinn frítíma í
RCI-skiptibankann og óskuðu eftir
skiptum. RCI sá síðan um það. Síðan
hefur sjálf hugmyndin um orlofs-
eignarétt og skipti náð útbreiðslu um
allan heim.
Kannanir sýna að skiptimöguleik-
amir eru aðalástæðan fyrir því að
fólk vill vera meðlimur í RCI.
Framtíðarferðir bjóða hér á landi
til sölu eignarhlut í íbúð á orlofsstað
í Portúgal og jafnframt kaupunum
verða menn félagar í RCI-klúbbnum
og tengjast hinu alþjóðlega skipta-
kerfi. Verðið fer eftir þvi hve margra
vikna afnotaréttur er keyptur.
Ástæðan fyrir því að aðstaða í Port-
úgal var valin til sölu hér er bæði
hagstætt verðlag og að skipt er við
fjársterkt hlutafélag sem annast
rekstur orlofsstaðarins. Ennfremur
veita portúgölsk lög bankaábyrgð,
svo kaupendur hljóta nauðsynlegt
öryggi.
Síðan skiptimöguleikamir urðu að
veruleika hefur sívaxandi fjöldi fólks
tryggt sér orlofseignarétt. Umboðs-
aðilar, sem selja orlofseignarétt um
allan heim, bjóða orlofshús í háum
gæðaflokki og heillandi umhverfí.
Fyrstu orlofsstaðimir voru byggðir
og seldir af framkvöðlum, núna er
félagið rekið af virtum athafnamönn-
um bæði í þjónustu- og byggingaiðn-
aðinum.
Orlofseignaréttur er nú seldur i
70 löndum um allan heim. Orlofs-
staðir sem ná allt frá sólarströndum *
tii skíðastaða og húsbáta og ibúða i
stórborgum.
í mörgum löndum era ferðamála-
ráð sem setja iðnaðinum reglur um
að gæðakröfum sé framfylgt og sjá
um að ráðleggja og leiðbeina neyt-
endum og leysa úr ágreiningi.
Alþjóðlegt samskiptanet tengir
skrifstofur um allan heim og tryggir
meðlimum alþjóðlega skiptimögu-
leika og aðstoð hjá faglærðu RCI-
starfsfólki um allan heim.
Árið 1990 vora meira en 1,3 millj-
ónir meðlima í RCI um allan heim
og yfír 2.300 útvaldir orlofsstaðir í
meira en 70 löndum. Sama ár voru
meira en 881.000 skiptióskir stað-
festar. 98 prósent af óskum meðlima'
var mætt nákvæmlega eins og um
var beðið.
RCI er alþjóðlegt félag og starfar
í öllum fímm heimsálfunum. Höfuð-
stöðvamar eru í Indianapolis, með
svæðisskrifstofur um öll Bandaríkin.
Höfuðstöðvar RCI í Evrópu eru í
Kettering ca. 100 km norður af Lond-
on. Aðalskrifstofa Norðurlandanna
er í Kaupmannahöfn.
Jafnframt era þjónustuskrifstofur
RCI í London, París, Brassel, Ver-
ona, Diisseldorf, Kaupmannahöfn,
Helsinki, Aþenu, Tenerife, Madrid,
Costa del Sol og Algarve.
Auk þess era skrifstofur í Canada,
Mexíkó, Venezuela, Argentínu, Ástr-
alíu, Indlandi, Singapore og Japan.
RCI sendir ársíjórðungslega út
ferðatímarit á níu tungumálum, með
nýjustu upplýsingum, frásögnum af
ferðalögum, ásamt fréttum af nýjum
orlofsstöðum. Tfmaritið er sent til
allra meðlima RCI.