Morgunblaðið - 13.03.1993, Side 32

Morgunblaðið - 13.03.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993 Jón Kr. Jóhannsson verslunarstjóri, Þórshöfn - Minning Fæddur 4. ágúst 1923 Dáinn 6. mars 1993 Þegar mér barst sú frétt að Jónsi mágur væri dáinn hugsaði ég strax með mér: Þórshöfn verður ekki söm eftir sem áður, svo samofínn var hann hringiðu kauptúnsins og því sem þar var að gerast hverju sinni og vildi helst hvergi annars staðar vera. Hann var aldrei kallaður ann- að en Jónsi meðal Þórshafnarbúa, ~-en fullu nafni hét hann Jón Kr. Jóhannsson fæddur 4. ágúst 1923 að Hvammi í Þistilfírði. Eg rek ekki ætt hans hér frekar, það verða mér aðrir fróðari til þess. Ég man fyrst eftir Jónsa þegar ég var smápolli á Þórshöfn. Þá var Jónsi einn af örfáum bflstjórum á staðnum og man ég vel hvað við strákamir dáðum þessa menn og reyndum hvenær sem við gátum að fá að sitja í. Það var oftast auð- sótt mál, ef til vill hef ég haft sér- stöðu þar sem hann var tilvonandi mágur minn. Jónsi var mikið nátt- úrubam og átti ég þess kost að fara í æði marga veiðitúra með honum, bæði í lax, til ijúpna og þó ekki væri nema að skreppa út á fjörðinn og ná sér í nokkrar ýsur í soðið. Ég minnist þess er við fórum eitt sinn sem oftar í laxveiði við Hafralónsá í Þistilfírði, ásamt öðr- um mági mínum, höfðum við barið ána allan daginn án þess að verða varir, en Jónsi lét okkur gestina að sunnan eina um ána og snerti ekki stöng fyrr en undir kvöldið er við vorum að búast til heimfarar og búnir að gefa upp alla von. Þá vor- um við staddir við svokallaðan ^elduhyl, sem mér fannst nú ekki tilkomumikill, en viti menn, minn maður landaði sjö löxum á örfáum mínútum (þessi saga er dagsönn), beint fyrir framan nefíð á okkur. Þótti okkur súrt í broti og ekki laust við örlitla öfund, en eins og svo oft áður þegar veiðimennskan var ann- ars vegar kunni hann virkilega sitt fag. Að vísu læddist að okkur sá grunur að brögð væru í tafli, en Jónsi átti það til að vera svolítill hrekkjalómur þegar sá gállinn var á honum, en hvað um það, hann var sigurvegari þann daginn, svo að ekki varð um villst. Mæja og Jónsi eignuðust þijá drengi, sem nú eru fullorðnir menn '^.g miklir dugnaðarforkar og mætir þjóðfélagsþegnar hver á sínu sviði. Við hjónin kynntumst vel þeim efnivið sem í bömum þeirra bjó því að um tíma dvöldu þeir hjá okkur, allir þrír, er þeir voru hér fyrir sunn- an, ýmist við nám eða störf sem ekki síst átti þátt í því að tengja fjölskyldur okkar enn frekari bönd- um. Við höfðum ráðgert ásamt eigin- konum okkar að fara til Bandaríkj- anna í maí og vera viðstödd út- skrift yngsta sonar Jónsa, Hregg- viðs Jónssonar, sem útskrifast þá frá Harvard-háskóla í Boston, en margt fer öðruvísi en ætlað er, þessi ferð verður samt sem áður farin og veit ég að Jónsi verður með okkur í huganum, því hann fylgdist vel með sínum bömum og þeirra velgengni. En menn sigra ekki alltaf og svo fór að maðurinn með ljáinn sigraði að lokum, allt of snemma að okkur finnst, en fáum engu ráðið þar um. Jónsi var við bestu heiisu alla tíð og því kom andlát hans öllum að óvömm. Við njótum ekki lengur glaðværðar hans og glettni sem hann átti í svo ríkum mæli og ger- ir hann ógleymanlegan í okkar huga, skapgerð hans var einstök og ég fullyrði að óvini átti hann ekki til. Ég vil að lokum þakka mági mínum fyrir alla þá natni og um- hyggju sem hann sýndi foreldrum mínum meðan þau lifðu og var þeim ómetanleg stoð. Systur minni, bömum, tengda- bömum og bamabömum vottum við okkar innilegustu samúð. Guð blessi ykkur öll. Gói. Það er erfitt að trúa því að Jón tengdafaðir minn skuli vera farinn í sitt síðasta ferðalag. Það svo stuttu áður en við vomm byijuð að skipuleggja ferð hans og annarra ættingja til Ameríku, í heimsókn til okkar hjónanna. En skyndilega breytist allt og hverfulleiki lífsins kemur í ljós. A andartaki kollvarp- ast áætlanir og eftirvænting og gleði breytast í söknuð og sorg. Ekki lá fyrir Jóni að koma til okkar í heimsókn, í stað þess hefur hann nú farið í þá ferð sem ekki verður skipulögð fyrirfram. Vettvangur Jóns var ætíð við Þistilfjörðinn í Norður-Þingeyjar- sýslu. Hann sleit bamsskónum að Hvammi þar í sveit, en fluttist síðan til Þórshafnar á Langanesi þegar aldur og viska leyfði. Á Þórshöfn giftist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðnýju Maríu Jóhannsdótt- ur, og eignaðist með henni þijá syni. Tveir þeirra, Jóhann og Rafn, búa á æskuslóðum, en yngsti sonur- inn, Hreggviður, er að ljúka námi í vor frá háskóla Vestanhafs. Jón unni heimaslóðum og naut sín vel þegar komið var út í þing- eyska náttúm. Þegar færi gafst var áhugamálinu sinnt og haldið var af stað út í náttúruna, helst þangað sem von var veiði. En áhugi hans á umhverfinu einskorðaðist ekki við veiðar. Hann var sánnkallaður viskubmnnur um staðhætti fyrir norðan sem og um ýmis önnur málefni. Það var gaman að heyra frásagnir hans sem fluttar vom á kjammiklu og góðu máli. Hugsunin var orðuð í rólegheitum og með yfirvegun, en kveðið var fast að þegar hin ýmsu málefni vom rædd. Þó svo að Jón hafí verið dulur um margt og seinn til náinna kynna einkenndist viðmót hans ætíð af velvild og góðsemi. Með sínu já- kvæða hugarfari þar sem aldrei var sagt styggðaryrði um náungann var gott að njóta samvista við Jón. Nú þegar hann hefur gengið á vit feðra sinna fyllist ég söknuði yfír því að samverustundimar yrðu ekki fleiri. Dapurleika yfír því að ófædda bam- ið okkar fær ekki að kynnast afan- um sem með sínu trausta rólega yfírbragði hændi bömin að sér. Elsku Maja, nú hefur sorgin sótt þig heim. Þessi undarlega tilfínning sem oft særir svo djúpu sári og skilur eftir sig tómarúm. Á slíkum stundum getum við leitað huggunar í því að tíminn sefar sorgartárin og upp mun birta um síðir. Eftir mun standa minningin um tryggan eiginmann og félaga. Ég geymi í hjarta mér fölskva- lausa minningu um góðan mann sem ég kveð með þakklæti og virð- ingu. Hlín. Hið lokkandi frelsi. Hið leiftrandi fjör, ljúfasta hnoss á mannsins fór, fáksins dansandi fætur. Hans leikur við tauma léttur og ör nær langt inn í hjartarætur. (Þ.A.) Laugardaginn 6. mars sl. var veður fagurt, sólskin og hlýtt enda notuðu margir sér veðrið til útivist- ar. Jón Kr. Jóhannsson, eða Jónsi eins og hann var kallaður, var einn þeirra. Fór hann í útreiðartúr. En er hann var nýstiginn af baki hné hann niður og var allur. Þegar at- vik gerast svo skjótt, verður áfallið þungt og menn setur hljóða, fínnst lífíð mikið breytt og söknuður er sár. Þannig varð okkur flestum við, starfsfélögum hans, þennan laugar- dag og í huga okkar komu fram svipmyndir frá liðnum árum. Jónsi var góður starfsmaður, og sinnti starfí sínu af trúmennsku og ist skrifstofumaður hjá Kaupfélag- inu. Sú eldri okkar naut örugglega góðra orða afa Péturs er hún fékk sumarstörf hjá Kaupfélaginu, enda afí Pétur hátt skrifaður og vel lið- inn. Hann afí Pétur var vel hag- mæltur og gaman var að fá heilu ljóðabréfin frá honum er við syst- óeigingirni, og var hann máttar- stólpi fyrir Kaupfélag Langnesinga og mikil gæfa fyrir það að njóta starfskrafta hans svo lengi, sem raun varð á. Starfsfélagi var hann heill, bæði í leik og starfí, frásagnarlist hans var slík að unun var á að hlýða, og eigum við margar góðar minn- ingar frá árshátíðum og skemmti- ferðum Starfsmannafélagsins, en þar var Jónsi hrókur alls fagnaðar. Bömum þótti vænt um hann og segir það kannski meir en mörg orð, enda gaf hann sér tíma til að tala við þau og hlusta á þeirra svör. Að hafa sannan áhuga á kjömm annarra og fylgjast með daglegu lífi samferðarmanna sinna er mikils virði og gerir hvem einstakling stærri í hugum manna. Þannig var Jónsi, allt vildi hann vita og þó allra helst fréttir af búskapnum í sveit- inni og aflanum úr sjónum. Jákvæð- ur var hann og víðsýnn og átti landsbyggðin góðan málsvara í hon- um. Gæfumaður var hann í einkalíf- inu, enda unni hann heimili sínu mikið, frístundimar vom notaðar til að fegra það og bæta jafnt úti sem inni, enda ber það þess vott. Starfsmenn Kaupfélags Langnes- inga senda Maríu eiginkonu hans, sonum þeirra ásamt fjölskyldum, innilegar samúðarkveðjur. Þökkum fyrir samstarfíð. Hvíl þú í guðs friði. Starfsfólk Kaupfélags Langnesinga. Kveðja frá Kaupfélagí Langnesinga í dag er til moldar borinn Jón Kr. Jóhannsson, verslunarstjóri byggingarvöruverslunar KL á Þórs- höfn. Nú er skarð fyrir skildi. Úr „Jónsabúð" númer tvö er horfmn nafngjafínn. Það lýsir Jóni að vinnu- staður hans tók nafn af honum, en ekki hann af staðnum. Hans verður saknað, hlýlegra kveðja, lifandi og hressilegra tilsvara og persónu- umar voram langt í burtu. Afí Pét- ur var alltaf tilbúinn að hjálpa. Eitt sinn er sú yngri okkar átti að flytja ávarp á hátíðarsamkomu samdi afí Pétur fyrir hana ávarp í ljóðformi. AIls þessa minnumst við með miklu þakklæti. Á efri ámm tók afí Pétur bílpróf og keypti sér fólksbíl. Þau vom ófá skiptin sem við systumar fómm með í bíltúr út á Eyju og síðan var keyptur ís handa öllum. Þetta var einn af föstu punktunum í tilver- unni. Við finnum núna að það hafa verið forréttindi að fá að alast upp í svo nánum tengslum við ömmu og afa. Amma lést árið 1972. Eins og hjá öðmm Vestmannaeyingum urðu straumhvörf í lífi afa við eldgosið 1973. Eftir það fluttist hann ekki til Eyja aftur. Síðar kvæntist hann Þorbjörgu Sigurðardóttur og bjuggu þau í Reykjavík. Hún lést fyrir nokkram ámm og síðustu æviárin bjó afí Pétur á Droplaugar- stöðum, þar sem hann lést eftir langa og erfíða sjúkdómslegu. Afí Pétur starfaði mikið innan safnaðar Sjöunda dags aðventista og var sannfærður í sinni trú. Við systumar þökkum fyrir öll árin og blessuð sé minning hans afa Péturs. Ásta og Gyða Arnmundsdætur. töfra, sem seldu okkur hiklaust hamar sem við vissum ekki að okk- ur vantaði, í stað skiftilykils sem okkur vantaði, en var ekki til, og við héldum sæmilega ánægð á brott og dagurinn var strax orðinn líf- legri. Um nær hálfrar aldar skeið hafði hann unnið hjá þessu samvinnufyr- irtæki okkar. Þó með hléum en aldr- ei slitnaði þráðurinn. Fyrst var hann bflstjóri og utanbúðarmaður, kjöt- matsmaður, hrognasaltari og raun- ar hvað sem þurfti. Síðustu tuttugu árin veitti hann forstöðu byggingar- vömdeild KL og var þar mikill fyrir- greiðslumaður, oft við erfíðar að- stæður, en slíkt óx honum ekki í augum. Um langt árabil og til dán- ardægurs var hann deildarstjóri Þórshafnardeildar KL og fjölda annarra trúnaðarstarfa gegndi hann fyrir sína heimabyggð. Hann hafði lifandi áhuga á öllu umhverfi sínu og ákveðnar skoðanir á þjóð- málum. Vel var Jón máli farinn og lét skoðanir sínar hiklaust í ljós við hvern sem var. Var þó oft manna- sættir. Við vissum raunar að líða tók að venjulegum starfslokum, þar sem sjötugsafmælið nálgaðist óð- um, en engan óraði fyrir að kallið kæmi svo fljótt. Hafðu þökk fyrir mikið og far- sælt starf hjá KL. Eftirlifandi eiginkonu, sonum, tengdadætmm, bamabömum og öðmm aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Stjórn Kaupfélags Langnesinga. Þær vora heldur óvæntar frétt- imar sem biðu mín heima þegar ég kom úr stuttri ferð til útlanda aðfaranótt sl. mánudags, að föður- bróðir minn, Jón Kr. Jóhartnsson, hefði orðið bráðkvaddur um helg- ina. Nokkram dögum áður hafði ég síðast tekið í höndina á honum eftir ágætan fund á Þórshöfn þar sem hann lét sig ekki vanta og lagði sitt til málanna, tæpitungu- laust að venju. Nei, það gerir ekki alltaf boð á undan sér þegar sláttumaðurinn slyngi lyftir orfinu. Jón var fæddur að Hvammi í Þistilfirði, þriðji í röð átta systk- ina, en af þeim komust sjö til full- orðins ára. Sonur hjónanna Jó- hanns Jónssonar frá Hávarðsstöð- um og Kristínar Sigfúsdóttur konu hans frá Hvammi. Þar í Hvammi ólst upp stór bamahópur við lítil efni og systkinanna beið því snemma eins og alsiða var á þeim tíma að hjálpa til eftir því sem kraftar og þroski leyfðu. Jón fór snemma að vinna og fékkst við margt. Um og fyrir fermingaraldur fór hann að sækja vinnu við það sem til féll, svo sem vegavinnu og störf í sláturtíð, til að létta undir með heimilinu. Hann stundaði nám í Héraðsskólanum að Laugum veturinn 1942-43 en dvaldist síðan nokkuð í Reykjavík næstu vetur. Hann fluttist til Þórs- hafnar 1945 og hóf störf sem vöra- bifreiðastjóri, fyrst hjá Kaupfélagi Langnesinga, en síðar á eigin bfl. Hann var verkstjóri á Heiðarfjalli í allmörg ár, en hóf síðan aftur störf hjá Kaupfélagi Langnesinga og var þar verslunarstjóri um langt árabil og allt til dauðadags. Jón giftist eftirlifandi eiginkonu sinni, Maríu Jóhannsdóttur, 31. mars 1956, en þau höfðu nokkm áður hafíð búskap á Þórshöfn. Þau eignuðust þijá syni, Jóhann Am- grím, f. 27. nóvember 1955, Rafn, f. 17. nóvember 1957, og Hreggv- ið, f. 18. júní 1963. Jón var vinsæll maður og vel látinn af samferðarmönnum, enda einstaklega hressilegur f samskipt- um og yfírleitt hrókur alls fagnað- ar þar sem hann fór. Ýmislegt gat borið á góma þegar leiðin lá í versl- unarerindum í „Jónsabúð", en eitt var alveg víst og fyrirfram gefíð að ferðir þangað vom aldrei leiðin- legar. Jón bar aldur sinn vel, var kvik- ur í hreyfíngum og varðveitti í sér talsvert brot af stráknum til hinstu stundar. Meðal fyrstu minninga minna sem honum tengjast eru um Minning Pétur Guðbjartsson Fæddur 14. júlí 1904 Gott var að leita til afa Péturs Dáinn 28. febrúar 1993 þegar eitthvað bjátaði á, því að Þegar okkur barst fréttin um að hann afí Pétur væri dáinn komu strax upp í hugann margar og góð- ar minningar. Afí, Pétur Guðbjartsson, fæddist og ólst upp á Tálknafírði. Rúmlega tvítugur kom hann til Vestmanna- eyja í atvinnuleit. I Eyjum kynntist hann ömmu okkar, Vigdísi Hjartar- dóttur. Hún bjó á Norðfírði, en var orðin ekkja og var með dætur sínar tvær í Eyjum, þar sem hún stund- aði vinnu. Afí og amma hófu bú- skap í Vestmannaeyjum og afí Pét- ur gekk dætmnum Kristínu og Báru í föðurstað. Amma og afi eign- .uðust eina dóttur, Emu, sem þau ~"trriisstu af slysfömm í fmmbemsku. Amma og afí ólu upp sem sinn eig- in son Ottó Laugdal. Við systumar sem þetta skrifum voram svo lánsamar að alast upp í næsta húsi við ömmu og afa. Það leið vart sá dagur að við væmm ekki meira og minna hjá ömmu og afa. hann var einstaklega bamgóður. Þau vom ófá skiptin sem honum tókst að hugga litla bamssál með sínu ljúfa viðmóti. Þegar við lítum til baka sjáum við hversu allar æskuminningar okkar em nátengd- ar samskiptunum við afa Pétur. Afí Pétur var höfðingi heim að sækja og þær vom glæsilegar veisl- umar sem hann útbjó. Enn munum við jólaboðin. Afí Pétur var kjötiðn- aðarmaður og vann lengi hjá Vöra- húsinu og síðar hjá Kaupfélagi Vestmannaeyja. Ein aðaltilhlökk- unin fyrir jólin hjá okkur systmnum eins og öðmm í Eyjum í þá daga var að skoða jólaútstillingarnar í verslunum bæjarins. Fremstur í flokki var hann afí Pétur með sína frábæm útstillingu í matvöradeild Vöruhússins, þar sem heilt jóla- sveinaævintýraland birtist. Afi Pét- ur var greindur og vel lesinn og sjálfmenntaður maður og hafði sér- staklega fallega rithönd. Það kom honum að góðu gagni er hann gerð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.