Morgunblaðið - 13.03.1993, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 13.03.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993 33 Minning Ólafur Rúnebergs- son, Kárdalstungu snaggaralegan mann er átti það til að koma óvænt í heimsókn og hlaupa rakleiðis út á tún í fótbolta með okkur krökkunum á Gunnars- stöðum ef þannig stóð á. Einhver 30-40 ára aldursmunur var þá engum umhugsunarefni. Við átt- um sama afmælisdag þrír frændur frá Hávarðsstöðum af jafnmörgum kynslóðum, ég, Jón og Friðrik á Flautafelli afabróðir minn og föðurbróðir Jóns. Þessu fylgdu þau hlunnindi fyrir mig að fá sem strákur að fljóta með í afmæli- sveislur á Flautafelli þegar þær bar upp á stórafmæli. Nú verður ekki af því að sinni sem annars hefði e.t.v. getað orðið að þrír ættliðir Hávarðsstaðamanna hitt- ust á nýjan leik til að fagna saman afmæli hinn 4. ágúst næstkom- andi. Þá hefði Jón orðið sjötugur, en ungur maður af enn nýrri kyn- slóð haldið upp á sitt fyrsta. En svona gengur nú lífíð. Jón var allan sinn aldur virkur í margs konar félagsmálastarfi og hafði fastmótaðar skoðanir á þjóð- málum, ekki síst því sem laut að atvinnumálum og stöðu lands- byggðarinnar. Hann sótti mikið fundi og sagði þá skoðanir sínar óhikað og umbúðalaust og prýði- lega máli farinn. Hann starfaði um áratugaskeið að slysavamamálum og vann brautryðjendastarf í sínu byggðarlagi á því sviði. Hann var gerður að heiðursfélaga í Slysa- vamafélagi íslands í viðurkenning- arskyni fyrir gott starf fyrir tveim- ur ámm. Um svipað leyti var tekin í notkun ný og glæsileg aðstaða björgunarsveitarinnar Hafliða á Þórshöfn, en Jón var driffjöðrin í stofnun hennar á sínum tíma. Jón var sýslunefndarmaður um langt árabil og gegndi fjölmörgum öðr- um trúnaðarstörfum um dagana. Nú er skarð fyrir skildi og horf- inn á braut maður sem lagði góðan skerf til mannlífsins í fámennu byggðarlagi með vaskleika sínum. Ég kveð hann með þökkum og votta Maríu, sonum þeirra og öðr- um aðstandendum samúð mína og fjölskyldu minnar. Steingrímur J. Sigfússon. Að mér sækir tregi og söknuður þegar ég kveð kæran vin og sam- ferðamann, Jón Kristbjörn Jó- hannsson verslunarstjóra, sem í dag er til moldar borinn. Jónsi, eins og hann var ætíð kallaður, varð bráðkvaddur laugardaginn 6. mars og kom andlát hans mjög Minning Fæddur 8. ágúst 1924 Dáinn 8. mars 1993 Á hvítasunnu fyrir fimm árum komu saman í Setbergskirkju flest okkar sem fermst höfðu þar fyrir 50 árum til þess að halda upp á afmælið í sameiningu. Þetta var ánægjuleg stund. Þar á meðal voru þrjú systkinabörn sem nú eru öll látin. Þau voru Hallgrímur Péturs- son, Kristólína Guðmundsdóttir og nú kveðjum við Þorkel Gunnarsson sem lést í Landspítalanum 8. þ.m. Þorkell fæddist að Akurtröðum í Eyrarsveit og átti þar heima allt sitt líf. Foreldrar hans voru Gunnar Guðmundsson og Matthildur Jóns- dóttir, en hún lést þegar Þorkell var 12 ára. Systkini hans voru þrjú, Friðjón, sem nú er látinn, Gísli, sem búsettur er í Reykjavík, og Guðrún, sem búsett er í Bandaríkjunum. Það var erfitt að missa móður sína svo ungur, en faðir hans hélt heimili áfram með hjálp systur sinnar, Guðrúnar, sem reyndist þeim ákaf- lega vel, en hún var um kjurt á Akurtröðum þar til Þorkell kvænt- isfy Árið 1956 kvæntist Þorkell eftir- á óvart, þar sem hann hafði alla tíð verið mjög hraustur og vann ennþá fullan vinnudag. Þegar ég lít til baka yfír farinn veg og rifja upp kynni mín af Jónsa hlaðast upp minningar um góðan vin og fyrrverandi samstarfsmann. Ég kynntist Jónsa fyrst sumarið 1976, er ég hóf störf sem kaupfé- lagsstjóri hjá Kaupfélagi Langnes- inga á Þórshöfn. Jónsi var þá versl- unarstjóri við byggingarvöruversl- un Kaupfélagsins og var því sam- starfsmaður minn þau tólf ár sem ég starfaði hjá Kaupfélagi Lang- nesinga. Jónsi hóf störf hjá Kaup- félaginu sem verslunarstjóri bygg- ingarvöruverslunar árið 1971 og gegndi því starfi af dugnaði og samviskusemi allt til dauðadags. Áður hafði hann um nokkurra ára skeið starfað sem verkstjóri við radarstöðina á Heiðarfjalli. Auk þess stundaði Jónsi sjómennsku og ýmis önnur störf. Jón var kvæntur Maríu Jóhanns- dóttur frá Þórshöfn, og lifir hún mann sinn. Þau eignuðust þrjá syni, sem allir eru uppkomnir og. búnir að stofna sín eigin heimili. Þeir eru: Jóhann Amgrímur, fram- kvæmdastjóri á Þórshöfn, Rafn, vélstjóri á Þórshöfn, og Hreggvið- ur, nemi við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Þegar í upphafi starfs míns á Þórshöfn tókst með okkur Jónsa gott samstarf sem aldrei bar skugga á þau tólf ár sem við störf- uðum saman. Jónsi lét sér hag fyrirtækisins sem hann starfaði fyrir miklu skipta og tók virkan þátt í lífsbaráttu íbúa héraðsins, bæði til sjávar og sveita. Hann lét sér málefni sveitanna við Þistilfjörð miklu varða og bar hag bænda fyrir brjósti. Hann var einnig til langs tíma deildarstjóri Þórshafn- ardeildar Kaupfélagsins og tók ætíð virkan þátt í störfum á aðal- fundum félagsins. Starf sitt rækti Jónsi af ánægju og dugnaði. Hann byggði upp og mótaði frá upphafi byggingarvörji- verslun Kaupfélagsins, fyrst í fremur litlu húsnæði, en síðar í nýbyggingu, sem tekin var í notk- un sumarið 1981. Jónsi átti veg og vanda að undirbúningi þeirrar framkvæmdar og skipulagði og tók þátt í því verki á öllum stigum þess. Byggingin tókst með miklum ágætum og fannst mér hann alla tíð stoltur af henni. Jónsi var afar stundvís maður til vinnu og komst á sá siður hjá okkur tveimur að ég leit við hjá honum á morgnana, og að vinnudegi loknum kom hann lifandi konu sinni, Mörtu Böðvars- dóttur. Þau eignuðust tvo syni og búa þeir báðir í Grundarfirði, Þor- kell Gunnar múrari, kona hans er Olga Einarsdóttir og eiga þau tvö böm; Sigurður rafvirki, hans kona er Dagný Jeremíasdóttir og eiga þau tvö börn. Fyrir átti Marta þijá syni, Böðvar, Má og Finn, og voru þeir meira og minna hjá þeim. Var Þorkell þeim sem faðir. Nú í seinni tíð era börn þeirra iðulega á Akur- tröðum á sumrin. Reyndar hafa mjög mörg ungmenni verið á Akur- tröðum á sumrum og höfðu Þorkell og Marta sérstaklega gott lag á börnum. Var gaman að heyra Þor- kel tala um vinnumennina sína sem hann talaði um sem duglegt fullorð- ið fólk. Þegar við Þorkell vorum að alast upp í Framsveit var þar mikill fjöldi ungmenna og stutt á milli bæja sem reyndar er enn þó að nokkur býli hafi farið í eyði. Á árunum fyrir stíð var búið á þrettán eða fjórtán bæjum frá Setbergi að Hjallabjam- areyri að þeim meðtöldum og næst- um á hveijum £æ voru börn og unglingar og reyndar fólk á öllum aldri. Já, maður átti margt sporið ætíð við á skrifstofunni hjá mér og voru þá málefni fortíðar, nútíð- ar og framtíðar rædd, og var þá oft farið um víðan völl. Strax í upphafi veru minnar á Þórshöfn var ég tíður gestur á heimili þeirra hjóna, Jónsa og Maju. Heimili þeirra hjóna kom mér strax fyrir sjónir sem mikið myndarheimili og þar var gestrisni í hávegum höfð. Mikill samgangur og vinátta varð milli okkar Öddu og þeirra hjóna. Alltaf var uppör- vandi og skemmtilegt að koma í heimsókn til þeirra, hvort sem set- ið var að spilum eða bara spjallað um daginn og veginn. Ánægjulega og eftirminnilega ferð fórum við fjögur saman með Norrænu til Færeyja sumarið 1986 og ferðuðumst um eyjamar í mjög góðu og björtu veðri. Sú ferð er okkur ógleymanleg, enda skemmtilegir ferðafélagar þar sem þau Jónsi og Maja voru, og léttleik- inn og gamansemin í fyrirrúmi. Eftir að við Adda fluttumst frá Þórshöfn til Sauðárkróks vorið 1988 minnkuðu að sjálfsögðu sam- skipti okkar fjögurra, en af og til var þó talað saman í síma og eins komum við annað slagið til Þórs- hafnar, nú síðast í júlí á síðasta ári. Að venju voru viðtökur góðar og alltaf jafn skemmtilegt að heim- sækja þau Jónsa og Maju. Síst af öllu hefði okkur dottið í hug þá að það væri í síðasta skipti sem við hittum Jónsa og að næsta ferð okkar til Þórshafnar yrði farin til þess að vera viðstödd útför hans. Jón Kr. Jóhannsson var sam- vinnu- og félagshyggjumaður að lífsskoðun og fór ekki dult með það. Hann var trúr sinni hugsjón og bar hag byggðarlags síns fyrir bijósti, hvort sem hann starfaði á vettvangi kaupfélagsmála, í stjóm Sparisjóðsins eða sveitarstjóm. Hann var auk þess mikill heimilis- maður og kunni vel að meta það myndarlega heimili sem Maja bjó honum og fjölskyldu þeirra. Að lokum viljum við þakka allar þær samverustundir sem við áttum með Jónsa og vissulega eram við auðugri en ella að hafa átt þess kost að kynnast honum og um- gangast hann í jafn ríkum mæli og við gerðum. Elsku Maja, við vottum þér og fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúð. Megi góður Guð styrkja ykkur á erfíðum tímum. Blessuð sé minning Jóns Kr. Jóhannssonar. Þórólfur og Andrea. á milli bæja þá, þó að erindið væri oft lítið. Sækja hesta, líta eftir kind- um, fara með bréf og annað smá- legt. Við Þorkell vorum mikið sam- an sem unglingar þó að við væram ólíkir að ýmsu leyti. Þorkell varð snemma stór og sterkur, lipur og íþróttamaður góður. Hans ljúfa lund laðaði mann að honum og glettnin í brosti hans var svo falleg. Þannig var hann þegar við kvöddum þau hjón síðast. Þegar við urðum eldri störfuðum við saman í ýmsum félögum, þar á meðal í sveitarstjóm. Alltaf var gott að leita til Þorkels hvers sem þurfti með og fyrir það vil ég þakka. Þegar við minnumst Þorkels, minnumst við góðs drengs sem gerði hvers manns greiða ef hægt var. Vora þau hjón samtaka þar eins og í öðru. Það var gott að heimsækja þau að Akurtröðum. Manni leið alltaf vel í stofunni hjá þeim. Þetta fundu bæði fullorðnir og böm, enda er fólk, sem laðar að sér ungmenni, gott fólk. Að lokum við ég þakka fyrir sam- verana nú þegar þessu æviskeiði er lokið og kveðja Þorkel með þessu versi úr 4. Passíusálmi: Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér. Vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð I þinni hlíf. Við hjónin vottum þér, Marta, börnum, tengdabörnum og barna- börnum innilega samúð. Guð styrki ykkur í sorginni. Halldór Finnsson. Það hefur löngum verið lán ein- stakra byggðarlaga að þar búa hag- leiksmenn, sem geta’ lagfært eða endumýjað þá hluti sem miður fara. Þetta hefur komið betur í ljós á seinni árum, er tæknivæðing hefur aukist hröðum skrefum. Ólafur Rúnebergsson ól allan sinn aldur í föðurgarði í Káradalstungu í Vatnsdal. Hann leitaði sér ekki menntunar eftir að skyldunámi lauk, en kaus að sinna bústörfum og eftir því sem til féll, smíðum eða vélavið- gerðum. Eftir á að hyggja er þetta vel skiljanlegt, enda var Olafur hag- leiksmaður af guðs náð. Reyndar var hugur Ólafs alltaf bundinn við véla- viðgerðir og þrátt fyrir erfiðar að- stæður tókst honum að koma sér upp ágætlega búnu verkstæði. Það skipti litlu máli hvemig tæki var um að ræða, er honum vora færð til viðgerðar og hvort það var til viðgerða eingöngu eða til endur- bóta. Ólafur hófst jafnan ótrauður handa við verk sitt. Kannski hallaði hann örlítið undir flatt og lét nokkur fleyg orð falla um viðkomandi tæki eða hver bilunin var. Fyrir mig, sem hafði ákveðið að leita mér menntunar, vora ferðir heim í skólafrí alltaf tilhlökkunar- efni, enda að mörgu að gæta þegar á heimaslóðir var komið. Það var alltaf ánægja að fylgjast með því sem var að gerast í dalnum og hvem- ig einstaka bændum vegnaði. Oftar en ekki lá leiðin að lokum að Káradalstungu til að kíkja í skúr- inn þjá Ólafi og ræða um landsins gagn og nauðsynjar. Oft vora þessar heimsóknir til Ólafs nokkurs konar vendipunktur ferðarinnar. Þegar leið að slætti tók undirbún- ingur heyskapar við og var þá ómet- anlegt að hafa viðgerðarmanninn nánast við túngarðinn, en um há- annatímann eru frátafir dýrar. Ólaf- ur var þá alltaf reiðubúinn að veita nágrönnum sínum aðstoð ef eitthvað ____________Brids________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Frá Skagfirðingum í Reykjavík Ekki verður spilað í sunnudagsbrids næsta sunnudag. Síðasta þriðjudag var eins kvölds tvímenningur hjá Skagfirðingum. Góð mæting var, þrátt fyrir landsleikinn við Svía Hátt í 40 spilarar mættu til leiks. Úrslit urðu: N/S: Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 268 EðvarðHalIgrimsson-JóhannesGuðmannss. 249 ÞórirLeifsson-ÓskarKarlsson 246 Lárus Hermannsson - Guðlaugur Nielsen 243 A/V: Andrés Ásgeirsson - Ásgeir Sigurðsson 255 GuðlaugurSveinsson-MagnúsSverrisson 249 Sigrún Jónsdóttir - Ingólfur Lilliendahl 239 Benedikt Helgason - Gylfi Jón Gylfason 232 Alla þriðjudaga er eins kvölds tví- menningskeppni hjá Skagfirðingum í Reykjavík. Spilamennska hefst kl. 19.30. Ailt spilaáhugafólk velkomið. Spilað er í Drangey við Stakkahlíð 17. Keppnisstjóri er Ólafur Lárusson. Bridsdeild Barðstrend- ingafélagsins Nú er lokið firmakeppni deildarinn- ar og varð lokastaðan þessi:. Pétur O. Nikulásson 584 Spilarar Friðjón Margeirsson, Valdimar Sveinsson. Nói Síríus hf. 583 Spilarar Egill Haraldsson, Ragnar Björnsson. Smurstöðin í Hafnarstræti 375 Spilarar Anton Sigurðsson, Ámi Magnússon. Starfsmannafélag Samskipa hf. 567 Spilarar Skarphéðinn Lýðsson, Guð- bjöm Eiríksson. Samskip hf. 566 Spilarar Kristján Jóhannsson, Guðm. Sigurvinsson. Deildin þakkar öllum þeim fyrir- tækjum sem veittu henni stuðning í þessari keppni. Mánudaginn 15. mars nk. hefst 5 kvölda barómetertvímenn- ingskeppni. Getum bætt við fleiri pör- bilaði. Oft var vinnudagurinn þá langur. Olafur átti sér marga drauma varðandi umbætur heima fyrir. Suma lét hann rætast. Vil ég sér- staklega nefna tvö verkefni sem ég tel að beri vott um kjark Ólafs til að takast á við framandi verkefni. í samvinnu við vísindamenn við Raunvísindastofnun Háskóla íslands byggði Ólafur vindmyllu er skyldi notuð til að hita upp íbúðarhúsið í Káradalstungu. Þetta var ekki þrautalaust, þar sem lítil reynsla var til staðar hérlendis, er varðaði bygg- ingu slíkra mannvirkja. Vindmyllan fór í gang og skilaði sínu um stund. En áður en Olafi tókst að klára þetta margslungna verkefni missti hann heilsuna. Ólafur ákvað einnig að virkja litla á, er rann við túngarðinn og hóf ótrauður verkið. Þetta vann hann í samvinnu við Hjálmar son sinn og tókst það farsællega. Þegar litið er til baka er margra ánægjustunda að minnast, þegar við voram í sameiningu að reyna að lag- færa eitthvað sem hafði bilað. Ánægjan fólst ekki eingöngu í því að vinna með Ólafi og ná oft að gera betur en forsendur leyfðu að maður gæti vænst. Hluti ánægjunn- ar fólst í að félagsskapurinn við Ólaf var einnig mikils virði, enda var honum góð frásagnargáfa í blóð borin, athugasemdir hans og tilsvör oft stórskemmtileg. Fyrir allnokkrum áram veiktist Ólafur alvarlega og háði langa bar- áttu við að ná heilsu aftur. Sú bar- átta vannst aldrei til fulls, þrekið var skert, þótt andinn væri óbugað- ur. Það var þungbært að sjá þennan hæfileikamann þurfa að sitja að- gerðarlausan, þótt verkefnin væru ærin. Ég vil ljúka þessum fátæklegu orðum með því að votta þeim Sig- rúnu og Hjálmari samúð mína. Páll Gíslason. I um. Spilastjóri er ísak Öm Sigurðs- son. Þeir sem hafa áhuga á að vera með eru beðnir um að láta Ólaf í síma 71374 vita. Bridsfélag kvenna Sl. mánudag lauk sveitakeppninni með sigri sveitar Ingu L. Guðmunds- dóttur, í sveitinni voru auk fyrirliðans Hanna Friðriksdóttir, Anna ívarsdóttir og Gunnlaug Einarsdóttir, annars varð lokastaðan þessi: Sv. Ingu L. Guðmundsdóttur 245 S v. Ólínu Kj artansdóttur 244 Sv. Hrafnhildar Skúladóttur 217 Sv. Gullveigar Sæmundardóttur 209 Sv. Ólafíu Jónsdóttur 194 Næsta keppni félagsins verður parakeppni og geta pör skráð sig í s. 32968 (ðlína) og 689360 á skrifstofu BSÍ. Laugardaginn 20. mars verður síðan árshátíð félagsins haldin á Holiday Inn og hefst kl. 11 f.h. Upplýs- ingar í s. 46925 (Biyndís), 612112 (Guðný) og 32968 (Ólína). Vesturlandsmót í tvímenningi Vesturlandsmótið í tvímenningi verður haldið á Akranesi dagana 3. og 4. apríl nk. Þátttaka tilkynnist til Þórðar Elíassonar í síma 93-11104 eða Einars Guðmundssonar, sími 93-11080, fyrir 1. apríl. Bridsklúbbur Félags eldri borgara, Kópavogi Spilaður var tvímenningur þriðju- daginn 9. mars 1993 og mættu 18 pör. Spilað var í tveimur riðlum 10 og 8 para og urðu úrslit: A-riðli Jóhanna Gunnlaugsd. - Hersv. Breiðfjörð 134 Ingiríður Jónsd. — Helgi Pálsson 124 JónFriðriksson-EnarEysteinsson 119 GarðarSigurðsson-EysteinnEinarsson 115 Meðalskor 108 stig. B-riðill Ásthildur Sigurgfslad.—Lárus Amórsson 105 ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 98 FriðgeirÁgústsson-Guðm.Á.Guðmundsson 98 Meðalskor 84 stig. Næst verður spilað þriðjudaginn 16. mars kl. 19 á sama stað og venjulega. Á Þorkell Gunnars- son, Akurtröðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.