Morgunblaðið - 13.03.1993, Page 42

Morgunblaðið - 13.03.1993, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993 t „Tfvir héldurSu aé vilji drcJztx^þettcL eftircú þó ert búinn Ctö busla, i þvi?* flensa smitandi, maður! HÖGNI HREKKVlSI jg „ HÆTTA — ÓTtSAUSTlNZ ÍS." BREF HL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811 Of mikið gert úr áhrifum Piagets Frá Gunnari Þorgrímssyni: í LESBÓK Morgunblaðsins 27. febr- úar má lesa grein eftir Helgu Sigur- jónsdóttur sem hún kallar „Kenning- ar Piagets". Þarna er ráðist fremur harkalega á þennan svissneska heimspeking, sálfræðing og uppeld- isfræðing sem væri hann einskonar „skólaskrímsli". Allt mögulegt illt er bitnað hefur á börnum og ungling- um er rakið til kenninga Jeans Pia- gets. Það er rétt að Piaget vann að greindarprófum barna, en að kenn- ingar hans hafi tafið fyrir vexti og viðgangi barnaskóla eða jafnvel komið í veg fyrir eðlilega þróun skólakerfa almennt er ekkert annað en hrein bábilja. Jean Piaget (1896-1980) var sem sagt einu ári yngri en Anna, yngsta dóttir Freuds. Það er því ótrúlegt að Piaget hafi getað heilaþvegið lærða kennara. Nútíma skólagenginn einstakling- ur sem hættir við að gera sinn vís- indalega lærdóm að trúarbrögðum, hvort heldur hann les Piaget, Freud, Jung, Flavell eða aðra slíka, er ann- að hvort alger skussi eða hefur geng- ið í alveg sérstaklega slæman skóla með hálfgerð fífl fyrir kennara. Helga virðist vera mjög ánægð með gagnrýni Arnórs Hannibalsson- ar á kenningar Piagets, en þegar gagnrýni Arnórs er athuguð vand- lega verður ljóst að hann hefur aldr- ei tekið raunverulegt próf í almennri rökfræði. Það væri að minnsta kosti áhugavert að fá að sjá próf hans í þeirri grein. Agúst H. Bjarnason segir á einum stað í ritum sínum: „Eins og menn kunna að tala og tala rétt, áður en þeir nema mál- fræði, eins geta menn hugsað rétt, áður en þeir nema rökfræði. En þar með er ekki sagt, að þeir kunni að greina rétt mál frá röngu, né held- ur, að þeir geti gert sér grein fyrir, í hveiju rétt hugsun er fólgin." Það má læra ýmislegt gott af bókum Piagets og enn nú á dögum vitna ýmsir þekktir sálfræðingar í rit hans með góðum árangri, og al- veg án þess að hafa gert kenningar hans að trúarbrögðum. Hinn þekkti enski kvensálfræðingur, Janet Say- ers, vitnaði nýlega mjög jákvætt í Piaget í nýrri bók sem fjallar um „mæður sálgreiningarinnar". Á dögum Ágústs H. Bjamasonar var Háskóli íslands á réttri leið í heimspekilegum efnum. Ég efast um að svo sé nú á dögum. GUNNAR ÞORGRÍMSSON, Norrköping, Svíþjóð. ÞAKKIK Frá Sigurði Hauki Guðjónssyni: SKYLDI þá hafa órað fyrir því 2. september 1956, er þuldu bænakvak sitt við fyrstu skóflustungu að Lang- holtskirkju, hverjar blessunardaggir áttu eftir að dijúpa yfir staðin? Fyrsta safnaðarheimili íslenskrar kirkju reis. Hjörtu sem brunnu af þrá til að rétta framtíð þjóðar sól- stafi í vefinn fylltu sali. Safnaðar- starf, engu öðru líkt, kærleikanum einum vígt, sýndi skrúð sem aðeins í draumheimi höfðu birst áður. Eitt þessara brama opnaðist undir tón- sprota organistans unga, Jóns Stef- ánssonar. Fyrr en varði var hann með „hljóðfæri" söngara sem hann lék á svo fólk varð allt að eyrum. Ekki aðeins mennsk eyra heyrðu, því til „himins hásals" hefir hljóm- urinn líka borist. Svarið var helgi- dómur með hljómgæði, eins og þau geta orðið best. Þetta era ekki skrumorð okkar sem staðnum unnum, heldur sam- hljómur þeirra er best kunna skil á. Margur hefir fastar að orði kveð- ið, til dæmis Henning Jensen orgel- smiður hjá Frobeniusi er stundi: „Ef ég ætti aðeins eftir að smíða eitt orgel til viðbótar vildi ég gera það í Langholtskirkju. Hversu stolt má íslensk þjóð ekki vera af starfí frumheijanna er lögðu hjörtu sín og trúarvissu í að rétta henni slíkt djásn í faðm sem Lang- holtskirkju. Einn þeirra var Vilhjálmur Bjamason forstjóri, sem kvaddur var frá kirkju sinni 11. febrúar sl. Allt frá fyrstu skóflustungu til vígslu helgidómsins, 16. september 1984, var hann í forsvari' byggingarnefnd- ar. Leiftrandi eldmóður hans, hag- sýni og kunnátta leiddu hann og lið hans allt til gerðar musteris sem lyft getur hjörtum til flugs frá amstri daganna að hástóli þess kærleikans Guðs, sem yfir okkur vakir. Á útfarardegi sínum minnti hann, og ástvinir hans, okkur á að enn er smíð ekki lokið. Feimin störðum við á orgelið litla, sem stendur þarna, að láni, og nakinn vegginn, þar sem orgel, er musterinu hæfír, á að prýða. Tendraðir af hugsjónaeldi Vilhjálms réttu vinir og aðstandend- ur fram gjafir í Orgelsjóð Langholts- kirkju. Fyrir það þökkum við hrærð, Vilhjálmur Bjarnason forstjóri eins öllum þeim er styðja okkur í því ætlunarverki, að ómöldur veg- legs hljóðfæris í Langholtskirkju lyfti sálum í gleðiheima. Þökk til skaparans er menn eins og Vilhjálm gaf og gefur. F.h. orgelnefndar Langholtskirkju SIGURÐUR HAUKUR GUÐJÓNSSON Víkveiji skrifar Obilgirni þess fólks, sem hefur að starfi að sekta náungann fyrir bifreiðastöður, ríður á stund- um ekki við einteyming. Víkveiji lenti í því síðastliðinn þriðjudag, að þurfa að skreppa inn í verzlun við Laugaveg og lagði á auðu bílastæði rétt við Stjörnubíó. Erindi Víkveija var að skila í fataverzlun fötum, sem Köfðu verið fengin að láni. Víkveiji yfirgaf bíl sinn og skauzt inn í verzlunina. Lítið var að gera þar inni og gerði Víkveiji því lítt annað en segja til nafns og skila fatnaðinum. Að svo búnu skundaði Víkveiji út að bíl sínum, þar sem ung stúlka stóð þá við bíl hans með kaskeyti á höfði og var að troða gíróseðli undir þurrkublað bílsins. Víkveiji vildi ræða við stúlkuna, sem stransaði á brott sem mest hún mátti. Það er í raun ótækt ef menn mega ekki skjótast inn slíkra erinda sem Víkvetji gerði án þess að þurfa að greiða sérstaklega fyrir það. Auk þess voru öll önnur stæði þarna við Stjörnubíó auð, svo að ekki er unnt að halda því fram að í þessu tilfelli hafi Víkveiji verið að upptaka stæði fyrir öðram, sem greiddu fyrir stæðin. Svona framkoma er í senn óþolandi, þar sem viðkomandi stúlka hlýtur að hafa séð viðkom- andi fara inn í verzlunina, því að svo stutt stund leið frá því er Vík- veiji yfirgaf bifreiðina og þar til hann var aftur kominn að henni. xxx etta atvik minnti Víkveija á annað slíkt, sem Víkveiji lenti í fyrir fjölda ára. Hann stöðvaði bifreið sína og þurfti að skreppa inn í verzlun. Lögregluþjónn horfði á hann leggja bifreiðinni og gerði enga athugasemd við. Víkveiji fór inn í verzlunina og kom út að vörmu spori og var þá lögregluþjónninn allur á bak og burt, en sektarmiði fyrir ólöglegt bifreiðastæði kominn undir þurrkublaðið. Víkveiji hringdi í lögregluna um leið og færi gafst og skýrði sitt mál, hvort lögregluþjóninum hafí ekki borið að benda Víkveija á að hann væri að bijóta reglur um stöð- ur bifreiða og þar af leiðandi koma í veg fyrir brotið — í stað þess að bíða eftir því að viðkomandi öku- maður hyrfí til þess að geta sektað hann. Yfirlögregluþjónninn, sem hlustaði á útskýringarnar, var sam- mála Víkveija og kippti málinu í lag og því var eytt. Hann sagði að fyrst og fremst væri það skylda lögregl- unnar að koma í veg fyrir brotin, en starf hennar væri ekki að sitja fyrir vegfarendum og reyna að hanka þá. Nú er lögreglan hætt að sinna stöðumælasektum, en þess í stað er sett í það starf ungt fólk, sem greinilega á mikið ólært í mannleg- um samkiptum. Það virðist hafa það eitt í huga eins og lögregluþjónn- inn, sem hér er lýst að framan, að geta með einhveiju móti hankað náungann og haft af honum fé. Það er að minnsta kosti mat Víkveija eftir reynsluna síðastliðinn þriðju- dag. xxx íkveija varð það á í blaðinu í gær að fara vikuvillt í umfjöll- un sinni um samkeppni íslenska markaðsklúbbsins um athyglisverð- ustu auglýsingu sl. árs. Allt annað stendur nema hvað umrædd eftir- vænting auglýsingamanna frestast þar af leiðandi til næsta föstudags. Beðist er velvirðingar á þessu glappaskoti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.