Morgunblaðið - 24.03.1993, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
Sinfóníuhljómsveit íslands
Hátt í 200 manns flvtj a
Sálumessu Verdis
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands flytur „Requiein" eða
Sálumessu eftir Giuseppe Verdi
á tónleikum hljómsveitarinnar
fimmtudaginn 1. apríl næstkom-
andi, ásamt kór Islensku óper-
unnar sem Peter Locke stýrir.
Stjórnandi er Yoav Talmi, en
einsöngvarar eru Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, Elsa Waage, Ólaf-
ur K. Bjarnason og Guðjón Grét-
ar Óskarsson. „Þetta er afskap-
lega merkur tónlistaviðburður,“
segir Helga Hauksdóttur, tón-
leikastjóra Sinfóníuhljómsveitar
Islands, „enda er sálumessan
eitt af stórverkum tónbók-
menntanna og að mínu mati ein
alfallegasta sálumessa sem sam-
in hefur verið.“
Helga Hauksdóttur segir að
rúmlega 170 tónlistarmenn taki
þátt í flutningi Sálumessu Verdis,
kór íslensku óperunnar sé skipaður
90 söngvurum, 80 leika með Sin-
fóníunni og síðan eru einsöngvar-
arnir fjórir talsins.
Sálumessan var frumflutt í
Markúsar-kirkjunni í Mílanó árið
1874 með 120 manna kór og 100
manna hljómsveit. „Við erum ekki
alveg jafn fjölmenn," segir
Helga,„en státum samt af einvala
liði, og fögnum því að gera teflt
eingöngu fram íslenskum ein-
söngvurum.“ Hún segir að saga
tónverksins sé merkileg. „Þegar
Rossini lést árið 1868 var ætlunin
að fá fremstu tónskáld Ítalíu til
að semja þætti í sálumessu í minn-
ARSALIR hf.
Fasteignasala
Borgartúni 33 -105 Reykjavík
C 62 43 33
Björgvin Björgvinsson,
lögg. fasteigna- og skipasali,
Jón Halldórsson, sölumaður.
SÝNISHORN ÚRSÖLUSKRÁ
Hamrahlíð. 3ja herb. 80 fm íb.
með parketi. Nýl. eldhinnr. Nýtt
rafmagn o.fl. V. 6,7 m.
Meistaraveliir. Falleg 4ra herb.
íb. Áhv. langtlán 3,5 m.
Fossvogur. 4ra herb. 107 fm
nýl. íb. m. bflsk. Til afh. strax.
Arnartangi. 94 fm raðhús ásamt
30 fm bílsk. Verð 9,5 milij. Áhv.
4,5 millj.
Fífurimi. Ný 103 fm efri sérhæð
ásamt bílsk. Verð 8,6 millj.
Vesturbær - Kóp. 190 fm par-
hús ásamt innb. bílsk. Skipti á
minni eign í Rvík kemur til greina.
Grafarvogur. Giæsii. 145 fm
sérh. með 28 fm bílsk. V. 12,5 m.
Fálkagata. 4ra herb. 117 fm íb.
Parket. Suðursv. Verð 8,8 millj.
Áhv. 3,6 millj. veödeild.
Neshagi. Vönduð ca 120 fm
hæð. Vandaðar innr. Parket. Nýtt
eldhús. Hagstætt verð.
Vesturbær - sérh. Mikið end-
urn. efri sérh. í tvíbýli með bíl-
skúrsr. ca 140 fm. Verð 10,2 millj.
Logafold. Glæsil. 150 fm einb-
hús. Vandaðar innr. Ræktaður
garður. Verð 14,3 miilj.
Vesturbær - Kóp. Giæsii. 160
fm einbhús ásamt 40 fm bílsk.,
allt á einni hæð. Arinn í stofu,
heitur pottur í garði, sólstofa o.fl.
Frábært útsýni. Verð 15,8 millj.
Vantar allar stærðir
fasteigna á skrá.
Skoðum og verðmetum
samdægurs.
Höfum til sölu eða leigu
atvinnuhúsnæði af
ýmsum stærðum og gerðum.
624333
ki *
Ólöf Kolbrún Elsa Waage. Ólafur Á. Guðjón Grétar
Harðardóttir. Bjarnason. Óskarsson.
ingu hans, en einhverra hluta
vegna, líklegast af skorti á fjár-
magni, runnu þessu áform í
sandinn. Verdi var hins vegar bú-
inn að semja sinn þátt og geymdi
til betri tíma. Þegar rithöfundurinn
og þjóðfrelsishetjan Manzoni lést,
dustaði hann rykið af tónsmíð sinni
og úr varð það snilldarverk sem
við þekkjum í dag.“ Efnisvalið virð-
ist mælast vel fyrir, því Helga seg-
ir að allt stefni í að verði uppselt
á Sálumessuna, og komi jafnvei
til greina að endurtaka flutning
hennar.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sem
hefur um árabil verið ein fremsta
söngkona landsins og sungið í öll-
um helstu óperusýningum sem
færðar hafa verið upp í Þjóðleik-
húsinu og íslensku óperunni; Elsa
Waage stundaði söngnám sitt að
mestu í Hollandi og í Bandaríkjun-
um, og hefur hún komið fram í
margvíslegum óperuhlutverkum,
bæði hér og erlendis, síðast í Ot-
ello hjá íslensku óperunni og Rigo-
letto; Ólafur Á. Bjarnason mennt-
aði sig hér og í Bandaríkjunum,
en starfar nú í Þýskalandi og hef-
ur fengið góða dóma gagnrýnanda
fyrir söng sinn; Guðjón Grétar
Oskarsson menntaði sig hér og á
Ítalíu, en starfar nú sem einsöngv-
ari við Norsku óperuna í Osló.
Stjórnandinn Yoav Talmi er fædd-
ur í ísrael og hlaut tónlistarmennt-
un sína í Tel Aviv og Julliard-tón-
listarskólanum í New York. Hann
hefur stjórnað mörgum þekktustu
hljómsveitum í Evrópu og Amer-
íku, og er nú hljómsveitarstjóri San
Diego hljómsveitarinnar.
Sálumessan er á fjórðu
áskriftartónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í grænni tónleika-
röð á þessu starfsári, og verður
þeim útvarpað beint í Ríkisútvarp-
inu.
Sigriin Þor-
geirsdóttir
á Háskóla-
tónleikum
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í
Norræna húsinu í dag miðviku-
dag og hefjast klukkan 12.30.
Flytjendur verða Sigrún Þor-
geirsdóttir, sópran, og Vilhelmína
Olafsdóttir, píanóleikari. Sigrún
Iauk áttunda stigi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík, þar sem
kennari hennar var Sieglinde Ka-
hmann og mastersprófi frá Boston
University undir handleiðslu Mary
Davenport. Núverandi kennari
011 KH 01 07fl L^RUS Þ- VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
(m \ lOU'LlO/U KRISTINNSIGURJÓNSS0N,HRL.lögqilturfasteibnasalI
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Skammt frá Menntaskólanum við Sund
Steinhús, ein hæð, 165 fm auk bílsk. Vel byggt og vel með farið.
Skipti æskileg á góðri 3ja-5 herb. íbúð með bílskúr.
Fyrir smið eða laghentan
Rúmgóð 3ja herb. íbúð í reisulegu steinhúsi í gamla bænum. Þarfn.
nokkurra endurbóta. Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
í Garðabæ - tilboð óskast
4ra herb. mjög góð íb. á 2. hæð, tæpir 100 fm við Lyngmóa. Góður
bílsk. Mikið útsýni. Vinsæll staður. Gott verð.
Endaíbúð á 1. hæð - tilboð óskast
4ra herb. íbúð í vesturenda við Stóragerði. Nýleg eldhúsinnr. Tvennar
svalir. Mikil og góð lán fylgja.
Stór og góð við Fellsmúla
3ja herb. íb. á 3. hæð. Vel með farin. Sérhiti. Mikið útsýni. Rúmgóðar
sólsvalir. Laus strax.
Rétt við „Fjölbraut" í Breiðholti
Mikið endurn. 4ra herb. íb. á 2. hæð. Nýlegt parket. Sólsvalir. Sér-
þvottaaðst. Bílskúr. Frábært verð.
Nýtt og vandað
stein- og stálgrindahús grunnfl. 300 fm við Krókahraun, Hafnarfirði.
Vegghæð 7 metrar. Glæsilegt ris, 145 fm, íbúð/skrifstofa. Húsið má
stækka. Margskonar nýtingarmöguleikar. Eignaskipti möguleg.
• • •
Óvenju margirfjársterkir
kaupendur á skrá.
Margskonar eignaskipti.
Opið á laugardaginn. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGMASALAW
Sigrún Þorgeirsdóttir, sópran.
hennar er Sigurður Demetz Franz-
son.
Á efnisskránni eru verk eftir
Mozart, Fauré og Poulenc.
Svala Signr
leifsdóttir
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Sagan sýnir að þeir listamenn
sem ná því að verða þekktir og
vel metnir á mælikvarða eins
lands (eða heimsins alls) gera það
oftast í krafti §érstöðu sinnar
fremur en fylgispektar við for-
dæmi annarra. Sú sérstaða getur
verið varðandi myndefni, miðla,
vinnubrögð eða tjáningarhátt, en
byggist fyrst og fremst á persónu-
legum gildum viðkomandi lista-
manns. Hið sérstæða lifir, en verk
sporgöngumanna hverfa fljótt í
skuggann.
Svala Sigurleifsdóttir hefur
skapað sér nafn og sérstöðu í ís-
lenskri myndlist fyrir markviss
vinnubrögð með vandmeðfarinn
miðil, þar sem er ljósmyndin. Hún
hefur gjarna málað yfir
svart/hvítar ljósmyndir, og þannig
fært þær yfir á annað svið, jafn-
framt því sem táknmyndir hafa
orðið sífellt ríkari þáttur í verkum
hennar og skapað þeim dýpt sem
ekki er að finna víða í myndheimi
yngri listamanna hér á landi.
Svala hefur verið dugleg við sýn-
ingarhald og hefur á undanförn-.
um árum haldið nokkrar einka-
sýningar, auk þess sem hún hefur
átt verk á mikilvægum samsýn-
ingum, m.a. á Kjarvalsstöðum á
síðasta ári.
Nú stendur yfir í Gallerí einn
einn við Skólavörðustíg sýning á
sex stórum verkum frá hendi lista-
konunnar. Verkin er að fínna
bæði í fremra og innra rými stað-
arins, en þar hefur emfaldlega
verið byrgt fyrir glugga til að
gera rýmið hentugra fyrir verk
af þessu tagi.
Oll vísa verkin á einn eða annan
hátt til fallvaltleika lífsins og
hringrásar náttúrunnar. í sumum
þeirra er þetta gert með því að
nýta tilvitnanir í listasöguna. Gildi
þeirra reynist þó ekki síður breyt-
ingum undirorpið en aðrir þættir
í sögu mannsins; þannig eru hin
„Nýju goð“ (nr. 3) þekkt listaverk
tuttugustu aldar, en við hliðina á
„Memento Mori“ (nr. 2) virðast
örlög þeirra ráðin — þau lifa að-
eins fyrir náð tíðarandans á hverj-
um tíma.
Náttúran og lífsbarátta hins
smáa er mikilvirkur þáttur í
nokkrum verkanna. „Hráefni í
drauma“ (nr. 5) setur drauma-
heim Rousseau tollheimtumanns
í öndvegi, en hrörnun dauðans er
ætíð nálæg, hér í formi fiskhræs.
„Fjallamaður" (nr. 6) teflir saman
sterkum og dimmum dráttum
annars vegar og hins vegar veik-
um gárum sem hin auvirðilega
marglytta getur þó komið af stað
í umhverfi sínu; spurningar um
samhengi hlutanna, orsök og af-
leiðingu, koma ávallt upp þegar
slíkum andstæðum er stillt upp
saman.
Verkið „Vorblót" (nr. 4) kann
að vera óljóst í fyrstu, en ísfirðing-
ar og aðrir þeir sem hafa lifað
um tíma í þröngum fjörðum þessa
lands ættu að þekkja hér kunnug-
legt fagnaðarefni. Annars vegar
má sjá kalda sólargeislana skríða
yfir fjallið nokkru eftir vetrarsól-
stöður og hins vegar er sama
fjallshlíðin böðuð í mildurn litum
miðnætursólar að sumri. Á milli
má kenna skrautmuni og trúar-
Málverkasýning Krist-
mundar Þ. Gíslasonar
KRISTMUNDUR Þ. Gíslason opnaði í gær málverkasýningu í
salarkynnum Menningarstofnunar Bandaríkjanna. Þetta er 15.
einkasýning Kristmundar, en hann á þegar, þrátt fyrir ungan
aldur, tæpra sex ára feril að baki sem fuilmótaður listmálari.
Á sýningunni getur að líta nýieg olíumálverk, mest landslags-
myndir.
Kristmundur fæddist árið 1969
og ólst upp í Reykjavík. Að loknu
grunnnámi í myndlist hér heima
lá leið hans til náms í Bandaríkjun-
um, þar sem hann dvaldi í Cupert-
ino, Sunnyvale og Freemont í
Kaliforníu um tveggja ára skeið.
Þar ytra hreppti hann fyrstu verð-
laun í samkeppni myndlistarnema
í De Anza í Cupertino árið 1986.
í kjölfar hennar tók hann þátt í
fyrstu samsýningu sinni, þar sem
sýnd voru verk þeirra nema sem
tilnefningu hlutu til verðlauna.
Kristmundur Þ. Gíslason hefur
gert víðreist um Bandaríkin og
lönd Vestur- og Norður-Evrópu,
til náms og kynnisferða. Hafa verk
hans vakið óskipta athygli víða
um lönd fyrir sakir skerpu og lita-
beitingar. Þau hafa laðað að kaup-
endur af ýmsu þjóðerni, auk þess
sem þau prýða veggi einstaklinga
og stofnana víða hérlendis.
Sýning Kristmundar í húsa-
kynnum Menningarstofnunar
Bandaríkjanna á Laugavegi 26
verður opin alla virka daga frá
klukkan 8.30 til 17.45, fram til
miðvikudagsins 7. apríl nk.
(Fréttatilkynning)
Tölvunotkun við
myndlistarkennslu
FÉLAG íslenskra myndlistarkennara, FÍMK, heldur almennan
félagsfund í Kennarahúsinu Laufásvegi 81, hinn 25. mars, kl.
20. Gestur fundarins verður Guðbrandur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Prenttæknistofnunar.
Guðbrandur ætlar að kynna þá
möguleika sem tölvan býður
myndlistarmönnum og kennurum.
Með honum verður Börkur Arnar-
son ljósmyndari, brautskráður frá
London College of Printing 1991.
Hann starfaði áður sem ijósmynd-
ari á Morgunblaðinu. Undanfarin
ár, hefur hann í félagi við þijá
aðra ljósmyndara, rekið „Fotog-
uttene", The East End Image
Factory í London. Hefur hannað
plötuumslög, bækur og margt
fleira. Notar Makintos Fotoshop í
myndvinnslu sinni.
Auk þeirra kemur endurmennt-