Morgunblaðið - 24.03.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
19
Guðlaugur Þór Þórðarson tekur við formennsku í SUS
Brýnasta verkefnið stuðn-
ingur við ríkisstjórnina
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson tók við embætti formanns Sambands
ungra sjálfstæðismanna síðastliðinn föstudag, en þá lét Davíð Stef-
ánsson af störfum sem formaður af persónulegum ástæðum. Guð-
laugur Þór er 25 ára. Hann hefur verið 1. varaformaður SUS síðan
árið 1989. Hann er að ljúka námi í stjórnmálafræði við Háskóla
íslands. en starfar auk þess að ýmsum verkefnum hjá Vátrygginga-
félagi Islands og IM Gallup.
„Það kom snögglega til að ég
þyrfti að taka við formennsku í
Sambandi ungra sjálfstæðismanna
er Davíð Stefánsson sá sér ekki
lengur fært að sinna því starfi
vegna anna,“ sagði Guðlaugur í
samtali við Morgunblaðið. „Þetta
raskar ýmsum áætlunum mínum,
en ég tel mig þó ágætlega undir
starfið búinn, enda hef ég lengi
starfað innan SUS og Sjálfstæðis-
flokksins.“ Guðlaugur var áður for-
maður Varðar, félags ungra sjálf-
stæðismanna á Akureyri, og Egils,
FUS í Mýrasýslu. Hann situr í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og
situr sjávarútvegsnefnd flokksins.
Hann er jafnframt formaður sjáv-
arútvegsnefndar SUS og varabæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Borgarnesi.
Málefnastarfið mikilvægt
Guðlaugur sagði að nú væri að
mörgu leyti erfiður tími að taka
við forystu í Sambandi ungra sjálf-
stæðismanna. „Stutt er í sam-
bandsþing ungra sjálfstæðis-
manna, sem haldið verður næsta
haust. Nú þarf að reka endahnútinn
á afar mikilvægt málefnastarf, sem
miklu skiptir að skili góðum árangri
fyrir SUS-þing, enda er ekki síður
verið að móta stefnu ungra sjálf-
stæðismanna fyrir landsfund Sjálf-
stæðisflokksins, sem haldinn verð-
ur í október," sagði Guðlaugur.
„Það er því skammur tími til stefnu
og mikla vinnu þarf að inna af
hendi fram að þinginu. Kjörtímabil
síðustu stjórnar SUS fór að miklu
leyti í kosningabaráttu. Nú höfum
við einkum unnið að málefnastarfi,
og öllu máli skiptir að frá hreyfing-
unni komi heilsteyptur málefna-
pakki, sem getur orðið þingliði og
ráðherrum flokksins stuðningur í
starfí þeirra. Mikilvægasta verk-
efni ungra sjálfstæðismanna er
stuðningur við forystu flokksins og
ríkisstjórnina í því erfiða hlutverki,
sem hún hefur tekist á hendur.
Ríkisstjórnin er að gera rétta hluti
við mjög erfiðar aðstæður og það
er gott til þess að vita að þar á
bæ taka menn ábyrga afstöðu í
stað þess að fara auðveldar leiðir
erlendra lántaka og skattahækk-
ana. í þessari baráttu verða ungir-
sjálfstæðismenn að vera ríkis-
stjórninni sterkur bakhjarl, jafn-
framt því að veita henni uppbyggj-
andi gagnrýni."
Fjölgun félaga á dagskrá
Guðlaugur sagði að aðildarfélög-
um SUS hefði íjölgað mikið á und-
anförnum árum, en ekki væri þar
með staðar numið. „Það hlýtur allt-
af að vera verkefni forystu SUS
að veita aðstoð við stofnun félaga
sem víðast um landið, fjölga félög-
um og halda góðum tengslum við
þau, sem starfa innan raða sam-
bandsins. Við stefnum á að fjölga
aðildarfélögum enn frekar á næstu
mánuðum," sagði hann.
Guðlaugur sagðist hlakka til að
takast á við þau verkefni, sem
Morgunblaðið/RAX
Guðlaugur Þór Þórðarson, nýr
formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna.
framundan væru hjá Sambandi
ungra sjálfstæðismanna. „Innan
SUS starfar mjög mikið af hæfu
fólki. Eg vona að mér farist verk-
stjórn í þeim góða hópi vel úr hendi
og að ég megi eiga gott samstarf
við alla aðila innan hreyfíngarinn-
ar,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðar-
son.
SÁÁ lokar
Staðarfelli
1. júní
MEÐFERÐARHEIMILINU að
Staðarfelli verður lokað __ 1. júní
vegna fjárskorts en SAA hefur
staðið að rekstri þess undanfarin
ár. Þórarin Tyrfingsson, formaður
SÁA, segir að samtökin hafi ekki
tök á að sinna áfengismeðferð með
viðunandi hætti sökum fjárskorts.
„Stjórn samtakanna hefur tekið
ákvörðun um að hætta meðferðar-
starfsemi á Staðarfelli 1. júní en
ástæðan er einfaldlega niðurskurður
á fjárveitingum til okkar," sagði
Þórarinn Tyrfingsson formaður SAÁ,
Samtaka áhugafólks um áfengis-
vandamálið.
Mikið áfall
Hann sagði að um 400 innritanir
hefðu verið hjá Staðarfelli árlega og
væri það mikið áfall fyrir áfeng-
ismeðferð í landinu ef til lokunarinn-
ar kæmi. Þórarinn sagði að vegna
niðurskurðar á Qárlögum starfaði
SÁÁ eftir eins konar neyðaráætlun
og yrði að láta brýnustu verkefnin
ganga fyrir. Samtökin gætu ekki
borið ábyrgð á áfengismeðferð í
landi, það væri stjórnvalda að sjá til
þess að nægilegt fé færi til þessa
málaflokks þannig að hægt væri að
sinna áfengissjúklingum með viðun-
andi hætti.
Á annað hundrað hlutafélög með
gamlar kennitölur reist úr dvala
HLUTAFÉLAGASKRÁ gerir ekki kröfur til þess þegar tilkynningum
um breytingar á högum hlutafélags er veitt viðtaka, að tilkynningarn-
ar séu undirritaðar af þeim sem t.d. eru sagðir víkja úr sljórnum fé-
laga, að sögn Benedikts Þórðarsonar, forstöðumanns Hlutafélaga-
skrár. Benedikt telur að á annað hundrað hlutafélög sem ekki hafa
haft neina starfsemi árum saman hafi verið endurvakin undanfarin
misseri, eftir að skilyrði fyrir stofnun hlutafélaga voru hert og gjöld
þau sem greiða þarf við stofnun þeirra hækkuð. Einnig telst eftirsótt
að eiga hlutafélög með gamalli kennitölu þar sem slík eigi auðveldara
með að fá fyrirgreiðslu en fyrirtæki með nýja kennitölu.
í Morgunblaðinu í gær var greint inni taldi ríkissaksóknari ekki tilefni
frá því að Hlutafélagskrá hefði skráð
breytingar á nafni og stjórn Útgerð-
arfélagsins Óðins hf á Eyrarbakka
eftir tilkynningu sem send var án
þess að leitað frá fyrri skráðum
stjórnarmönnum eða eigendum Óð-
ins, sem eru u.þ.b. tíu talsins.
Sambærilegt mál í fyrra
Annað sambærilegt mál kom upp
á síðasta ári, að því er Benedikt
Þórðarson upplýsti. Samkvæmt upp-
lýsingum RLR var það mál rannsak-
að hjá stofnuninni. Að rannsókn lok-
til frekari aðgerða í málinu en „við-
skiptin" gengu til baka.
Ötgerðarfélagið Óðinn, sem var
stofnað um miðja öldina, hefur ekki
rekið neina starfsemi áratugum sam-
an en því hefur ekki verið slitið og
telja eigendur hugsanlegt að í því
sé að finna eignir. Einn eigendanna
sagði við Morgunblaðið í gær að mál
þetta yrði kært til lögreglu á næstu
dögum.
Kaupandinn segist í góðri trú
Sá sem „keypti" hlutafélagið Óð-
inn sagðist í samtali við Morgunblað-
ið í gær hafa keypt það af manni
sem haft hafi milligöngu um við-
skipti af þessu tagi. Hann kvaðst
hafa verið í góðri trú um að fyrri
eigendur félagsins hefðu verið með
í ráðum og ekki vilja standa í við-
skiptum af þessu tagi „ef maðkur
væri í mysunni,“ eins og hann tók
til orða.
Benedikt Þórðarson sagði við
Morgunblaðið að hjá Hlutafélaga-
skrá væru ekki skráðar upplýsingar
um eigendur hlutafélaga og breyt-
ingar á eignarhaldi þeirra heldur
tæki skráin til upplýsinga um t.a.m.
bféytingar á nafni, hlutafé, stjórn
og framkvæmdastjórn. Látið væri
nægja þeir sem samkvæmt tilkynn-
ingu væru nýir stjórnendur undirrit-
uðu tilkynningu og væri tilkynning-
um veitt viðtaka á ábyrgð þeirra.
Til þessa hefði ekki verið talið
nauðsynlegt að fá einhvers konar
framsalsyfirlýsingar fyrri stjórnenda
en í ljósi þess að undanfarin ár hafa
komið upp tvö mál af þessu tagi,
sagðist Benedikt telja tímabært að
ræða við viðskiptaráðuneyti, hvort
nauðsynlegt væri að krefjast slíks
eða breyta starfsreglum skrárinnar
að öðru leyti.
2-3 þús. hlutafélög í dvala
Benedikt kvaðst telja að til væru
hér á landi 2-3 þúsund hlutafélög
sem enga starfsemi hefðu haft með
höndum árum saman.
Undanfarin misseri virðist sem
menn hafí séð fram á að gera mætti
sér verðmæti úr þessum félögum
með því að selja þau og giskaði Bene-
dikt á að á annað hundrað slík hafi
verið endurreist undanfarin 3 ár.
Það sem menn sækjast eftir með
því að kaupa hlutafélög í dvala er
annars vegar það að á árunum 1989-
1990 voru skráningargjöld nýrra
hlutafélaga hækkuð úr 10.300 krón-
um í tæplega 105 þúsund krónur og
lágmark hlutafjár hækkað úr 20
þúsund krónum í 400 þúsund. Því
getur verið ódýrara að kaupa gam-
alt hlutafélag en stofna nýtt.
Gömul kennitala auðveldar
fyrirgreiðslu
Hins vegar kemur það til, að sögn
Benedikts Þórðarsonar, að svo virðist
sem fyrirtæki sem státa af gamalli
kennitölu, sem beri með sér að þau
hafi starfað lengi, eigi auðveldara
með að afla sér fyrirgreiðslu í fjár-
málastofnunum og í viðskiptalífinu
en félög með kennitölu sem gefí til
kynna að þau séu nýstofnuð.
Benedikt sagði að svo virtist sem
nokkrir menn í Reykjavík hefðu boð-
ið fólki þá þjónustu að hafa milli-
göngu um að útvega því gömul hluta-
félög til kaups og virtust þeir m.a.
afla sér upplýsinga um hlutafélög í
dvala úr fyrirtækjaskrá Hagstofunn-
ar.
efhann er tengdur stafrœna símakerfinu
Þriggja manna tal
Þú getur komið á símafundi með þremur þátttakendum. Viðmælendur þínir tveir
geta verið hvar sem er á landinu eða jafnvel í sínu landinu hvor. Þú getur talað við
systur þína sem býr á ísafirði og bróður þinn sem býr í Danmörku í einu.
Svona ferðu að: fyrst hringir þú í númer systur þinnar. Þegar hún hefur svarað ýtir þú
á E3 og bíður eftir són og hringir síðan í bróður þinn.
Þá tengirðu ykkur öll saman með því að ýta á Qog svo á 3.
Ef bróðir þinn svarar ekki færðu aftur samband víð systur þína með þvl að ýta ó Q
* H R
SÉRÞJÓNUSTA
SlMANS
Nð tr meira spunnið í símann þinn en þú heldur
Þú getur nýtt þér alla möguleika sérþjónustu stafræna simakerfisins
meö því að greiða 790 kr. skráningargjald. Til að fá nánari upplýsingar
um sérþjónustuna getur þú hringt i Grænt númer 99-6363 á
skrifstofutíma (sama gjald fyrir alla landsmenn), á söludeild Pósts og
sfma eða á næstu póst- og simstöð.