Morgunblaðið - 24.03.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
21
Sniðiö að
mannlegum þörfum
FRJÁLS MÆTING OG ÁSTUNDUN
Tímar allt að sex sinnum í viku. Góðir
teygju- púl og þrektímar fyrir konur á öllum
aldri.
SVONA FERÐU ÞÚ AÐ:
Þú kemur eða hringir í síma 79988 og
pantar kort. Morgun- dag og kvöldtímar.
4 vikna kort á kr. 4.500,-
Sauna og þrektæki innifalið
Nú bjóðum við uppá barnapössun alla daga.
NYTT! Kíirltilíniíir í btí(lef>iim
Pöntunarsími 79988
,if\>) 10% afsláttur af kortunum
víkuna 22.-27. mars.
SUÐURVERI • HRAUNBERGI 4
Danskur auðmaður vill láta götu heita í höfuð á sér
Brask fær tilboð frá Nebraska
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EFTIR að hafa árangurslaust reynt að freista borgaryfirvalda í Kaup-
mannahöfn með miklum fjárhæðum fyrir að fá Norrebrogade nefnda
í höfuð sér hefur danski auðmaðurinn Alex Brask Thomsen fengið
fyrirspurn úr annarri átt. Bæjarstjórinn í smábænum Papillion i Ne-
braska í Bandaríkjunum hefur haft samband við Brask og látið í ljós
áhuga á að nefna götu eftir honum.
Bæjarstjórinn heyrði um viðskipti stjórans segir hann það heiður að
Brasks og borgaryfirvalda í Kaup- nefna götu eftir Brask, „sem tákn
mannahöfn í fréttum ABC-sjón- um það sem gott er í veröldinni".
varpsins. í bréfi bandaríska bæjar- Borgaryfirvöldum í Kaupmanna-
höfn þótti það hins vegar ekki koma
til greina að breyta nafni
Norrebrogade fyrir sem samsvarar
2,5 milljörðum íslenskra króna. Ekki
er ljóst hvaða fjárhæð bandaríski
bæjarstjórinn hefur í huga. Brask
virðist ekki setja stærðina fyrir sig,
en bæinn er ekki að finna í kortabók-
um sem aðeins sýna bæi með meira
en 10.000 íbúa.
Serbar ákærðir
STJÓRN Bosníu hefur höfðað mál gegn stjórnvöldum í Serbíu og
Svartfjallalandi fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag og sakar þau um
mannréttindabrot. Bosníumenn saka Serba og Svartfellinga um
brot á stofnskrá Sameinuðu þjóðanna, sáttmála samtakanna um
þjóðarmorð frá 1948, Genfarsáttmálunum frá 1949 og Mannrétt-
indasáttmálanum. Málið var lagt fyrir dómstólinn á laugardag en
ekki var skýrt frá því fyrr en á mánudag. Á myndinni má sjá bíla-
lest frá SÞ sem stöðvuð var á landamærum Bosníu af Serbum.
Rannsóknir í Japan staðfesta aldagamla trú
Skógargróður stuðlar
að aukinni fiskgengd
Bandaríkin
Sjónvarps-
þættir um
Norðurlönd
Washington. Frá ívari Guðmundssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
HAFINN er í Bandaríkjununt
undirbúningur að gerð sjón-
varpsþátta um Norðurlöndin
fimm. Verður ekkert til sparað
til að gera þættina eins vel úr
garði og mögulegt er.
Sjónvarpsfrömuðurinn kunni,
Walter Cronkite, hefur verið ráðinn
aðalframkvæmdastjóri og umsjón-
armaður þáttanna. Ráðgert er að
unnt verði að hefja sýningar í byrj-
un næsta árs. Myndataka hefst
þegar í þessum mánuði undir for-
ystu Franks Frosts, annars þekkts
sjónvarpsmanns. Vinnan hefst í
Finnlandi en síðast verður kvik-
myndað á íslandi. Frost gerir ráð
fyrir að kvikmyndað verði í allt að
20 daga í hveiju Norðurlandanna
fyrir sig. Myndatökur fara einnig
fram í Bandaríkjunum og Kanada.
Talið er að rúmar 30 milljónir
manna muni fylgjast með „Skand-
inavia", en svo nefnast þættirnir,
í Bandaríkjunum einum.
smivo
UM aldaraðir hafa japanskir fiskimenn staðið í þeirri trú, að skógar-
gróður með ströndum fram og við ár pg vötn stuðlaði að aukinni
fiskgengd og öðru lífi í sjó og vatni. Á árunum 1604 til 1868 var
skógarhögg í strandhéruðum í Japan takmarkað og víða plantað
trjám til að auka veiðina og á Meiji-tímanum frá 1868 til 1911
voru strandskógarnir friðaðir á stórum svæðum. Vísindalegar rann-
sóknir í Japan hafa nú sýnt og sannað, að þessi gamla trú hefur
við full rök að styðjast.
Fyrr á öldum voru síldveiðar
mikill atvinnuvegur á Hokkaido en
með vaxandi landbúnaði hurfu
skógarnir og síldveiðin varð smám
saman ekki nema svipur hjá sjón.
I nýlegu tölublaði af Japan Agr-
info Newsletter er sagt frá rann-
sóknum, sem japanskir vísinda-
menn hafa unnið að, og þar kemur
fram, að skógurinn komi að mestu
í veg fyrir, að gruggugt vatn ber-
ist til sjávar en fyrst og fremst
gefur tijágróðurinn frá sér með
vatni mjög mikilvæg næringarefni
fyrir fisk, skelfisk og ýmsan sjáv-
argróður. Þar sem skógur grær
myndast lífrænt jarðvegslag, sem
er þeim eiginleikum gætt að halda
vel í sér vatni og greiða um leið
fyrir upptöku járns í vatnið.
Það eru ekki aðeins Japanir, sem
hafa áttað sig á þessu samhengi.
I Bordeaux í Frakklandi þar sem
mikil ostruræktun er við ströndina
er staðinn vörður um skógana við
sjóinn og árnar og þótt víða hafi
verið pottur brotinn í Sovétríkjun-
um, sem áður voru, vissu menn
hvað þurfti til að heimtur í laxán-
um yrðu góðar. Það var að veija
skógana við árnar.