Morgunblaðið - 24.03.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
29
Heimdaíliir með fund
um ríkisfjármál
HEIMDALLUR
efnir til opins
fundar um
ástand og horf-
ur í ríkisfjár-
málum að Hótel
Borg í dag kl.
17:15. Frum-
mælendur verða
Friðrik Sophus- Friðrik
son, fjármála- s»Phusson-
ráðherra og varaformaður
Aðalfundur hótels-
ins í Stykkishólmi
Aukning í
gistingu
AÐALFUNDUR Hótels Helga-
fells í Stykkishólmi fyrir árið
1992 var haldinn í salarkynnum
hótelsins laugardaginn 6. mars.
Var hann vel sóttur af hluthöf-
um.
Fyrir fundi lágu reikningar fé-
lagsins fyrir umrætt ár. Það skal
tekið fram að hótelið sér um rekst-
ur félagsheimilisins. Sturla Böðv-
arsson, formaður stjórnar, gaf
skýrslu stjórnar og sagði frá um-
ræðum um aukningu reksturs hót-
elsins.
Rekstrarreikningur var að
niðurstöðu yfir 67 millj. kr. og er
það hækkun miðað við sl. ár og
af rekstrartekjum var aukningin
mest í gistingu eða yfir 20 milljón-
ir kr. Þessar tölur sýna að ferða-
mannastraumurinn fer vaxandi um
Snæfellsnes.
Sigurður Skúli Bárðarson hótel-
stjóri, sem um nokkur ár hefur
haft á hendi stjórnun hótelsins, gaf
ýmsar upplýsingar um reksturinn
og kvaðst hafa meiri vonir nú um
meiri aðsókn að hótelinu eftir
árangur síðasta árs.
- Árni.
JNNLENT
Sjálfstæðis-
flokksins, og
Ólafur Ragnar
Grímsson, for-
maður Alþýðu-
bandalagsins og
fyrrverandi
fjármálaráð-
hen*a.
í fréttatilkynn-
ingu frá Heimd-
alli segir að á fundinum verði
rætt almennt um stöðu ríkissjóðs
og ekki síst með tilliti til aðstoðar
þeirrar, sem ríkisstjórnin ákvað
nýverið að veita Landsbankanum.
Framsögumenn verða einnig beðn-
ir um að svara því hvort að ríkislj-
ármálin séu á réttri leið eða rangri
og hvort einhver vandi verði leyst-
ur með enn frekari erlendum lán-
tökum. Þá verður reynt að fá svar
við því á fundinum hvort takist
að reka ríkissjóð án halla á næsta
ári en á fundi flokksráðs Sjálf-
stæðisflokksins í nóvember var
samþykkt að stefna að því.
Aðgangur að fundinum er
ókeypis og öllum heimill.
Morgunblaðið/RAX
Sýnir á
Akranesi
FRIÐÞJÓFUR Helgason ljós-
myndari og myndatökumaður
sýnir um þessar mundir 15 ljós-
myndir á upplýsingaskrifstofu
ferðamála við Skólabraut á
Akranesi. Þetta eru svonefndar
„panorama“ myndir teknar á
litla Minoltavél. Sýningin verður
opin til 15. apríl n.k.
Ólafur Ragnar
Grímsson.
Á Sjúkrahúsi Suðurlands voru höfð snör handtök við móttöku fólks
af æfingasvæðinu.
Selfoss
Æfing vegna stórslyss
af völdum jarðskjálfta
Selfossi.
UM 70 manns tóku þátt í björgunaræfingu sem fram fór í síðustu
viku á vegum björgunarsveitanna Tryggva á Selfossi, Tintron í
Grimsnesi og Sjúkrahúss Suðurlands og heilsugæslunnar. Það var
björgunarsveitarfólk úr Hveragerði sem lék hina slösuðu.
Verkefnið sem björgunarmenn
fengu var stórslys í Gagnheiði á
Selfossi þar sem hús höfðu hrunið
og um tugur manna slasast. Æfing-
in bauð upp á mjög erfiðar aðstæð-
ur þar sem björgunarmenn urðu að
taka ákvarðanir um skipulagða leit
og flutning á slösuðum. Starfsfólk
sjúkrahúss og heilsugæslu var kall-
að út og voru viðbrögð þess við
útkallinu mjög góð.
Að sögn Páls Bjamasonar, sem
var einn þeirra sem hafði umsjón
með æfingunni, komu fram smá-
hnökrar í framkvæmd, svo sem í
stjórnun á vettvangi og í íjarskipt-
um. „Við erum ánægðir með æfing-
una, hún var erfið, einkum þar sem
hún fór fram í myrkri og svæðið
var stærra en áður hafði verið
reynt,“ sagði Páll Bjarnason.
- Sig. Jóns.
Opinber
fyrirlestur
um geðheilsu
og mann-
lega ábyrgð
DR. ERIC Matthews heldur
fyrirlestur á vegum Sið-
fræðistofnunar Háskóla ís-
lands, fimmtudaginn 25.
mars, kl. 20 í stofu 101 Lög-
bergi. Fyrirlesturinn nefn-
ist: „Mental Illness and Re^
sponsibility for Actions“. í
fyrirlestrinum mun Eric<k
Matthews fjalla um siðferði-
lega og lagalega ábyrgð og
hvers vegna geðveikin getur
afsakað glæpsamlega hegð-
un.
Eric Matthews er prófessor
í heimspeki og formaður heim-
spekideildarinnar við Háskól-
ann í Aberdeen. Hann er með-
limur í heimspeki skori Hinnar
konunglegu bresku akademíu
um geðlækningar (British
Royal College of Psychiatry,
philosophy group). En sú
stofnun fæst við siðferðileg og
heimspekileg vandamál tengd
geðlækningum.
Eric Matthews hefur sér-
hæft sig í siðfræði og fengist
við ýmis siðferðileg vandamál
heilbrigðisstétta. Heimsókn
hans til íslands er styrkt af
British Council.
(Fréttatilkynning)
Endur-
hæfing á
hestbaki
FYRIRLESTUR í Háskóla ís-
lands verður haldinn fimmtudag-
inn 25. mars í fyrirlestrarsal 201
í Odda.
Fyrirlesarar eru Solveig Ingo,
sjúkraþjálfi og Susanne Ingman-
Fribeg, ljósmóðir. Þær hafa starfað
við reiðþjálfun og hestamennsku
fatlaðra í Finnlandi og sérhæft sig
á þessu sviði. Undirbúningur er
hafinn að slíkri þjónustu hérlendis
og eru allir sem áhuga hafa á að
kynna sér þetta meðferðarform
hvattir til að mæta. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku og hefst
klukkan 20.
ÁR ALDRAÐRA
í EVRÓPU 1993
Öldrunarráð fslands
ÁSTIN
Opin ráðstefna í Borgartúni 6,
fóstudaginn 26. mars kl. 13.15.
Róðstefnustjóri: Ingibjörg R. Mognúsdóttir, skrifstofustjóri.
Dogskró:
Kl. 13.15. Setning: Pétur Sigurðsson, formaður Öldrunorróðs íslonds.
Póll Skúloson, prófessor í heimspeki við Hóskóla íslonds, skilgreinir hugtakið ÁST,
út fró heimspekilegu sjónorhorni.
Einsöngur: Sigurveig Hjaltested, söngkona, syngur um óstino.
Ljóðolestur: Herdis Þorvaldsdóttir, leikkona, les óstorljóð.
Kaffihlé
Kynlíf aldroðro: Herdís Sveinsdóttir, lektor í Hóskóla íslands.
Er óstin olltaf söm við sig?: Holldóra Gunnorsdóttir, félagsmólostjóri ó Höfn.
Nafnlausi leikhópurinn flytur leikþótt.
Róðstenfugjald kr. 1.000,- kaffi innifalið.
Róðstefnan er öllum opin.
MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ PRÓFA
þennan ódýra, góða og heimilislega mat?
Lifur cr ódýrt hráefni sem fæst allt árið um kring. Það er tilvalið að lækka matarreikninginn með því að hafa rétti úr lifur á borðum minnst einu
sinni í viku. Hér eru tvær góðar og einfaldar uppskriftir að ljúffengum og fljótlegum réttum úr lifur. Gerið svo vel og verði ykkur að góðu.
LAMBALIFUR MEÐ SVEPPUM OG SINNEPSSOSU
1 lambalifur, um 450 g
150 g svef)pir, í sneiðum
olía eda smjörlíki
salt ogpipar
1 1/2 dl mysa
2 1/2 dl vatn eba soð (af teningi)
1 msh sojasósa
fint maísmjöl (maisena)
1-2 tsk dijonsimiep (ósætt)
2 msk rjómi (má sleppa)
söxuð steinselja
Hreinsið lifrina, skerið hana í
þunnar litlar sneiðar og þerr-
ið þær. Steikið sveppina létt í
olíu á pönnunni, saltið þá
ögn og piprið og takið þá af
pönnunni. Bætið við olíu og
brúnið lifrina létt. Kryddið
hana með salti og pipar og
takið hana af pönnunni.
Setjið, mysu, vam og
sojasósu á pönnuna og látið
sjóða við vægan hita í 5 mín-
útur. Þykkið sósuna örlítið
með fínu maísmjöli hrærðu
.saman við kalt vatn. Hrærið
sinnepið saman við sósuna á-
samt ijóma, ef hann er not-
aður, og setjið sveppina og
lifrina út í. Látið hana sjóða
með stutta stund eða þar til
hún er heit í gegn og hæfi-
lega soðin, en alls ekki leng-
ur. Hún að vera mjúk og
gjarnan ljósrauð innst. Stráið
steinselju ofan á.
Berið réttinn fram með
soðnum kartöflum og nýju
grænmeti.
LIFRARPANNA MEÐ EPLUM OG RAUÐROFUM
1 lambalifur, um 450 g
1 lauliur, saxaður
olía eða smjörlíki
salt ogpipar
1-2 grcen epli
1 tsk timjan eða kryddmæra
(meiran)
1 dl súrsaðar rauðrófur í
teningum
1 dl vatn
1 dl sýrður rjómi (má sleppa)
Skerið lifrina í þunnar sneið-
ar og síðan í fremur litla,
jafna bita. Þerrið lifrina vel og
brúnið hana létt á pönnu á-
samt lauknum. Hrærið í á
meðan. Kryddið með salti og
pipar. Þeir sem vilja geta byij-
að á því að velta lifrarbitunum
létt upp úr hveiti með salti og
pipar saman við.
Afhýðið eplin, takið burt
kjarnann og skerið þau í ten-
inga. Blandið þeim saman rið
lifrina og laukinn og steikið á-
fram stundarkorn. Bætið rið
timjani eða kryddmæm. Setj-
ið loks rauðrófuteningana og
vatnið á pönnuna. Látið sjóða
stutta stund en gætið þess að
lifrin soðni ekki um of. Setjið
ef til rill sýrðan ijóma ofan á
eða hrærið hann saman rið.
Berið ffam með soðnum kart-
öflum föa brauði og gjaman
hvítkálssalati eða öðm græn-
metissalati.
SAMSTARFSHÓPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS