Morgunblaðið - 24.03.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 24.03.1993, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993 t Móðir okkar og eiginkona mín, SIGRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR, Flúðaseli 61, Reykjavik, er látin. Lára Jóhannsdóttir, Elmar Freysteinsson, Freysteinn Jóhannsson. Maðurinn minn, + FINNUR STEPHENSEN skrifstofustjóri, Skeiðarvogi 95, er látinn. Guðmunda Stephensen. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓH ANNESDÓTTIR, áður til heimilis á Gránufélagsgötu 5, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð að morgni 23. mars. Jóhanna Marfa Pálmadóttir, Guðbjörg Pálmadóttir, Jóhannes Pálmason, tengdabörn og fjölskyldur. t Eiginmaður minn og bróðir okkar, SIGURÐUR SÆMUNDUR KRISTJÁNSSON, Viðimel 49, Reykjavfk, andaðist á heimili sínu 21. mars. Hildur Halldórsdóttir, Ingólfur Kristjánsson, Þórdfs Kristjánsdóttir. t Ástkaer sonur okkar, bróðir og mágur, GUÐMUNDUR GEIR GUÐMUNDSSON, Austurströnd 4, Seltjarnarnesi, áður til heimilis að Baðsvöllum 2, Grindavik, lést á heimili sínu 22. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Guðlaug Þ. Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Þorgerður G. Guðmundsdóttir, Sigurður Jónsson, Elva Björk Guðmundsdóttir. t MIKAEL SIGURÐSSON, Háaleitisbraut 24, Reykjavík, lést f Landspítalanum 22. mars. Aðstandendur hins látna. Konan mín, t RAGNHEIÐUR SVEINBJÖRNSDÓTTIR frá Þingnesi, Kjarrmóum 20, Garðabæ, er látin. Eðvarð Vilmundarson. t Útför bróður okkar, mágs og frænda, HARÐAR GUNNARSSONAR, bifreiðastjóra, Safamýri 34, fer fram fimmtudaginn 25. mars kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Rósa Gunnarsdóttir, Lára Ólafsson, Einar Gunnarsson, Guðlaug Guðjónsdóttir, Bergljót Gunnarsdóttir, Eyþór Júlíusson, Gígja Árnadóttir. Minning Jón Hallgrímsson bóndi, Reykhúsum Jón Hallgrímsson fyrrverandi bóndi í Reykhúsum í Eyjafjarðar- sveit andaðist á hjúkrunardeild Krist-. nesspítala aðfaranótt fímmtudagsins 25. febrúar sl. Þar hafði hann dval- ist nokkur síðustu árin þrotinn að kröftum og líkamlegri heilsu, en and- lega heill og minni hans var traust ti’ síðasta dags. Okkur verður jafnan ærið hverft við þegar fregnir berast um að vinur og samferðamaður sé horfínn úr hópnum, en þannig er það oft að dauðinn kemur snögglega og eins og óvænt jafnvel þó hann standi langtímum saman á næsta leiti - þar er nú genginn traustur bóndi og góður drengur, sem í engu mátti vamm sitt vita né gerði nokkum tíma miklar kröfur sjálfum sér til handa. Já, þannig endar lífsins sólskinssaga. Vort sumar stendur aðeins fáa daga. En kannske á upprisunnar mikla morgni við mætumst öll á nýju götuhomi. (Tómas Guðmundsson) Jón Hallgrímsson var af eyfírsku bergi brotinn og þar stóðu rætur hans, fæddur 30. september 1903 í Reykhúsum og því á nítugasta árinu, elstur af §órum systkinum. Næstur er Kristinn, lengi skrifstofumaður hjá SÍS í Edinborg, dvelur á Krist- nesspítala. Þriðrja í röðinni er Sigríð- ur sem dvelst nú í einni af íbúðum sem reistar hafa verið í námunda við Kristnesspítala og eru ætlaðar öldr- uðu fólki. Eiginmaður Sigríðar var Ingvar Brynjólfsson menntaskóla- kennari frá Stokkahlöðum, látinn fyrir allmörgum árum. Yngstur er Páll, fyrrverandi sýslumaður á Sel- fossi í Ámessýslu, búsettur þar. Foreldrar Jóns og þeirra systkina voru María Jónsdóttir bónda í Reyk- húsum Davíðssonar og Hallgrímur Kristinsson, þjóðkunnur félagsmála- og baráttumaður. Þau tóku við bú- skap í Reykhúsum árið 1902 og það ár varð Hallgrímur kaupfélagsstjóri á Akureyri jafnframt búskapnum. Stóð svo til 1918, að hætt er bú- skap, jörðin leigð og fjölskyldan flyst til Reykjavíkur þar sem Hallgrímur verður forstjóri SÍS. Hann lést í Reykjavík 1923. Jón vandist öllum venjulegum sveitastörfum í æsku og á unglings- árum, en þegar í foreldrahúsum gætti hjá honum þeirrar vanheilsu, sem setti mark sitt á hann alla tíð síðan, og ekki bætti úr skák að ný- kominn til Reykjavíur árið 1918 sýk- ist hann af „spönsku veikinni" sem svo var kölluð. Lék hún Jón hart sem marga fleiri, og má nærri geta hve gífurlegt áfall þetta hefur verið ung- um manni. Er líklegt að þá hafi byggst upp hjá honum sá andlegi styrkur, trú og velvilji sem við vinir hans þekktum svo vel og nutum oft. Jón stundaði nám í Samvinnuskól- anum árin 1921 og 1922 og minnt- ist hann oft þeirrar skólagöngu og hve ómetanlegt veganesti hún hefði verið sér alla ævi. Tímabilið 1931-44 starfaði Jón hjá Grænmetisverslun ríkisins. Var hann lengst af gjald- keri og skrifstofustjóri. Stóð honum það starf opið áfram, en hér var komið að þáttaskilum - líklega var gamall draumur að verða að veru- leika. Jón flyst alfarinn norður til Eyjafjarðar og byijar búskap á jörð feðra sinna, sem hafði verið leigð öðrum til ábúðar. Reykhús var lítil Sérfræðiiigar í blóinaslireyiiiigTiiii vió «11 tjrkiliiT'i blómaverkstæði I INNA^I Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 jörð, en eins og nafnið bendir til er þar allmikill jarðhiti og gott til garð- ræktar. Foreldrar hans höfðu fyrir löngu keypt samliggjandi eyðijörð, Hjálmsstaði, sem var nokkru stærri. Seinna bættist við smábýlið Klúkur, samliggjandi, svo að allt þetta til samans varð ágætis jarðnæði. Jón fór sér að engu óðslega við búskapinn fyrstu árin, en fljótlega sáu menn að þama var kominn góð- ur liðsmaður og hygginn bóndi, sem heill og óskiptur vann að búi sínu. í gegnum árin voru öll útihús byggð upp og túnstærð aukin mjög. Ætíð voru heybirgðir miklar í Reykhúsum og hægt að miðla verulega til þeirra sem skorti - enda vantaði ekki vilj- ann til þess eða ljúfmennskuna. Verkafólk hélt Jón ætíð, sérstak- lega um sumartímann, og hjúasæld var mikil. Sumt var þar árum saman og unglingar sumar eftir sumar. Jón var mjög þrautseigur og út- sjónarsamur maður, hann var þrek- lítill og þoldi illa erfíðisvinnu og varð því að temja sér sérstakt vinnulag og þótti því stundum ungum mönn- um og sterkum hægt ganga og sér- viska viðhöfð í verki. En vinsældir og virðing hans þoldi þetta vel og sagt hafa mér menn sem þama voru að Jón hafí ætíð verið þeim sem besti faðir og dvölin í Reykhúsum einn besti tími þeirra. Við Jón kynntumst ekki fyrr en hann var kominn hátt á fímmtugsald- ur. Tókst þá með okkur samstarf og vinátta sem aldrei bar skugga á, við áttum saman tæki og höfðum sam- starf um að heyja vothey, stóð það félag í nær tuttugu ár og oft hallaði á Jón í þeim viðskiptum. Ég held hann hafí viljað hafa það svo. Það var því árviss þáttur i heyskapnum hjá mér að vinna 4-5 daga í ágúst í Reykhúsum og þá kynntist ég heim- ilinu nokkuð vel og jafnan var mikil veisla alla dagana hjá ráðskonunni, Kristínu Stefánsdóttur frá Kristnesi. Það var mikil myndar- og dugnaðar- kona, ákveðin í skoðunum og traust- ur vinur vina sinna. Þáttur hennar í heimilinu var stór og þar var hún meðan heilsa og líf entust. Jón var kosinn til starfa í ýmsum félagsmálum. Hann sat í hrepps- nefnd Hrafnagilshrepps í átta ár, 1954-62. Þar var hann vinnufús og tillögugóður. Traust minni hans leiddi stundum til hinna bestu lausna þegar aðrir voru nær uppgefnir á málum. Hann var í bygginganefnd félagsheimilisins Laugarborgar og hafði á hendi bókhald og gjaldkera- störf. Árið 1970 var svo komið að Jón treysti sér ekki til að halda áfram búskap óbreytt. Tók þá Páll frændi hans ásamt konu sinni, Önnu Guð- mundsdóttur frá Selfossi, við ábúð á jörðinni og kúabúinu, en Jón rak í nokkur ár enn fjárbú með aðstoð Mig setti hljóðan þegar ég frétti að Þórir vinur minn hefði verið flutt- ur á sjúkrahús, mikið veikur, og enn meira brá mér þegar dóttir mín hringdi í mig frá Egilsstöðum til að láta okkur vita að Þórir væri dáinn. Aðeins þremur vikur fyrr hafði ég hitt hann brosandi á heimili sínu. Einlægni og hlýja voru ríkur þáttur í skapgerð hans og þessi kærleiks- ríki maður var ævinlega boðinn og búinn að gera öðrum greiða. Ég kynntist Þóri sem ungum manni á heimili frændfólks míns. Þangað kom hann oft og var þá ein- att glatt á hjalla. En nú er allt það fólk farið yfir móðuna miklu. í rúm 30 ár lágu leiðir okkar Þóris ekki saman. Á þeim tíma gift- um við okkur báðir og stofnuðum ættingja og vina. Systursonur hans, Hallgrímur, sem býr í Svíþjóð var þar oft að vorinu við hirðingu á lambfé. Um þetta leyti, líklega 1968, var reist nýtt íbúðarhús. Gerðu þeir það í félagi Jón og Brynjólfur læknir frændi hans. Kona Brynjólfs er Rósa Aðalsteinsdóttir frá Kristnesi og í skjóli þeirra dvaldi hann þar til við tók hjúkrunardeild Kristnesspítala sem fyrr segir. Þar dvaldi hann ná- lægt Qölskyldunni og naut samvista hennar og umönnunar og þá ekki síst frá hendi Guðrúnar Maríu frænku sinnar og manns hennar, Páls Jóhannssonar frá Siglufírði, sem búa í húsinu Reykhús III. Jón kvæntist ekki og eignaðist ekki afkomendur, en hann var mikill og ástríkur heimilisfaðir, sem rækt- aði vináttu og frændsemi. Munu syst- urböm hans og fjölskyldur þeirra hafa notið þess í ríkum mæli. Ég reyndi að heimsækja Jón eins oft og tími leyfði þau árin sem hann lá á KristnesspStala. Leið þó stundum nokkuð langt á milli og lét hann mig þá heyra það að ég kæmi sjaldan. Oft fann ég að hann var þjáður, þó að hann gerði lítið úr því, en hugsun og minni skýrt. Fylgdist hann vel með öllu sem gerðist í sveitinni og hlustaði mikið á útvarp, og gladdist yfir því sam hann taldi framfarir til bóta. Mátti strax heyra hvaða skoðun hann hafði í þeim efnum. Jón sagði það sér mikið ánægju- efni að Reykhús væri í góðum hönd- um og jörðin vel setin, þær miklu byggingar sem búið væri að reisa bentu til að þar mundi búskapur haldast þó að víða væri hann á und- anhaldi. Eitt sinn bað hann mig þess ef ég gæti að skila innilegri kveðju frá sér til allra sveitunga og vina með þakklæti fyrir liðna tíð og samstarf. Sagði hann það von sína og bæn að þeir bæru gæfu til að standa fast saman um heill og hag sveitar og héraðs. Er þessu hér með komið til skila. Að leiðarlokum þakka ég Jóni fyr- ir góða vináttu og langt og ánægju- legt samstarf. Af honum mátti læra það sem ekki verður numið af bókum. Útför Jóns var gerð að Grund í Eyjafírði laugardaginn 6. mars að viðstöddu fjölmenni sveitunga og vina. heimili. Kynni okkar endurnýjuðust eftir að dóttir mín kynnti fyrir okkur hjónunum ungan pilt sem hún var farin að vera með og síðar varð eig- inmaður hennar. í ljós kom að hann var sonur Þóris. Mikil var gleði mín að kynnast honum á ný og hans yndislegu konu, Guðfríði Hermanns- dóttur. Ég vildi að við Þórir hefðum getað verið meira saman, en vinna okkar kom í veg fyrir það. Ég var sjómað- ur, en hann vann í landi. Áldrei kom ég þó svo að landi, að við hefðum ekki samband og ég sakna þeirra stunda mjög mikið. Við hjónin vottum hans elskulegu eiginkonu og börnum þeirra, svo og aldraðri móður hans, innilega samúð okkar og biðjum Guð að styrkja þau í sorg þeirra. Eysteinn Viggósson og Halldóra Guðvarðardóttir. Aðstandendum votta ég innilega samúð. Haraldur Hannesson. ÞórirJ. W. Bjama- son - Minning Fæddur 2. febrúar 1927 Dáinn 15. mars 1993

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.