Morgunblaðið - 24.03.1993, Síða 33
Minning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
33 -
Oddný Sigurðar-
dóttir Kristiansen
Fædd 2. júlí 1932
Dáin 14. mars 1993
Látin er í Noregi Oddný Sigurð-
ardóttir Kristiansen rétt liðlega sex-
tug eftir erfið veikindi. Hún dvaldi
áratugum saman í Noregi, átti þar
mann og börn, en gleymdi aldrei
uppruna sínum og hélt góðum
tengslum við ættland sitt þar til
yfir lauk.
Oddný, sem jafnan var kölluð
Odda, fæddist á Grund á Búðareyri
í Reyðarfirði annan dag júlímánað-
ar 1932, elst sex systkina, barna
Sigurðar M. Sveinssonar bifreiða-
eftirlitsmanns, sem er látinn fyrir
nokkru, og Bjargar Bóasdóttur hús-
móður, en þau bjuggu lengst af á
Sæbóli. Systkinin eru María, Bóas,
Sigríður, Sveinn og Karl, en einnig
áttu þau hálfsystur, Svövu, sem
ólst upp syðra. Oddá þótti snemma
hæglát og prúð, en um leið lífsglöð
og fylgin sér. Hún hafði mikið dá-
læti á útivist og fór á skíðum þegar
færi gafst á vetrum, en sumrin
voru vel nýtt til gönguferða þegar
stund gafst á milli stríða, en líkt
og alsiða var fór Odda snemma að
vinna þá vinnu sem gafst. Meðal
annars réð hún sig sem matselju á
Snæfuglinn sem gerður var út á
saltfisk og lagði upp í Englandi
heilt sumar. Þar var skipstjóri sá
kunni aflamaður Bóas Jónasson frá
Eyri, en það að ráða sig í svo langt
úthald sýnir kannski betur en margt
annað seiglu Oddu og dug, þvi á
þeim tíma voru konur fáar í sjó-
mannastétt og eru reyndar enn.
Meðal þeirra verka sem Odda
fékkst við á sumrum var skógrækt
á Hallormsstað, sem hún kunni
vel. í framhaldi af því bauðst henni
að fara í skógræktarvinnu í Nor-
egi. Þangað fór hún um 1950 og
fékk vinnu í Ostavík. Þar kynntist
hún myndarlegum Norðmanni,
Knut Kristiansen, þau felldu hugi
saman og í Östavík stofnuðu þau
sitt fyrsta heimili. Síðar fluttu þau
að Ási, þar sem Knut stundaði nám
í landbúnaðarháskólanum, en
lengst bjuggu þau í Steinkjær. Þar
áttu þau góða daga og þar ólust
upp synir þeirra, Sigurd og Kjell
Erik, efnispiltar. Sigurd er mennt-
aður umhverfisverkfræðingur í
Steinkjær og Kjell vinnur hjá land-
fógetanum í Rena. Bamabömin,
böm Kjells era tvö, Henríetta og
drengur sem skírður var í höfuðið
á afa sínum Sigurði Magnúsi.
Odda undi hag sínum vel í Nor-
egi; hún var fljót að ná góðum tök-
um á norskri tungu og eignaðist
margt vina í Steinkjær. Alltaf var
Island henni þó ofarlega í huga og
hún sótti mjög í að heimsækja
heimalandið eftir því sem færi
gafst, og var þá jafnvel sumarlangt
með drengina litla. Ferðunum
fækkaði eftir því sem á leið og
böndin urðu sterkari sem bundu
hana í Noregi, en á móti kom að
ættingjar að heiman fóra utan og
eiga þeir góðar minningar frá þeim
heimsóknum. í garðinum sínum í
Steinkjær kom hún upp vísi að ís-
lenskri flóru, því hún flutti með sér
íslenskar jurtir og ræktaði ytra.
Áhugamálin voru þó fleiri en ís-
land, því Odda unni góðum bók-
menntum og tónlist.
Sigurd sonur hennar smitaðist
snemma af íslandsáhuga og hefur
haldið góðu sambandi, sérstaklega
við ömmu sína sem býr enn á Reyð-
arfirði. Af móður sinni hefur hann
einnig erft útivistaráhuga og ís-
landsferðum sínum hefur hann
gjarnan eytt í fjallaferðir og nátt-
úraskoðun.
Odda kom í síðustu íslandsheim-
sóknina sumarið. 1991, en þá hafði
hún kennt lítillega þess meins sem
síðar varð henni að aldurtila, þó
engan hafi rennt í grun hversu al-
varlega hún væri veik, eða að ekki
yrðu heimsóknir hennar fleiri á
heimaslóðir. Hún sýndi aðdáunar-
verða seiglu og æðraleysi í veikind-
um sínum og var trúin henni styrk-
ur í erfiðri baráttu. Styrk sótti hún
einnig til íslands, en þær mægðum-
ar ræddust við nánast daglega.
Stríðinu lauk svo 14. mars sl. og
hún var jarðsett í Steinkjær 18.
mars.
Björgu, systkinum, Knut, Sigurði
og Kjell ásamt öllum vandamönnum
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Nanna Sigurðardóttir og
Björg Sveinsdóttir.
Birting af-
mælis- og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík, og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Ákjósanlegast er að fá grein-
arnar sendar á disklingi.
t
Ástkær móftir okkar,
ELfN SVEINSDÓTTIR,
Hulduhól,
lést í Sjúkrahúsi Húsavíkur, sunnudaginn 21. mars.
Jarðarförin fer fram frá Húsavíkurkirkju, laugardaginn 27. mars
kl. 14.00.
Börn hinnar lá'tnu.
t
Ástkær móftir mín, tengdamóftir, amma og langamma,
BJÖRG EINARSDÓTTIR,
Snælandi2,
Reykjavík,
verftur jarftsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 26. mars kl.
13.30.
Erlingur Lúðvíksson, Jakobína Ingadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ertídrykkjur
Glæsileg kafli-
hlaðlxvrð fídlegir
Síilir og mjög
góð þjónasto.
Upplýsingíir
ísíma22322
FLUGLEIDIR
1ÍTEL LIFTLEIIIK
erfidrykkjur í
ný uppgerðum
Gyllta salnum.
Hlaðborð og
nýlagað kaffi
kr. 790,-
Hótel Borg
sími 11440.
+
Minningarathöfn um ástkæran eiginmann minn og föftur okkar,
NIKULÁS HELGA KAJSON,
Vogabraut 10,
Akranesi,
verður í Akraneskirkju fimmtudaginn 25. mars ki. 14.00.
Jarftsett verftur frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn 27. mars kl.
14.00.
Margrét Brandsdóttir,
Anna Björk Nikulásdóttir,
María Hrönn Nikulásdóttir,
Jóna Kolbrún Nikulásdóttir,
Hörður Kristján Nikulásson,
+
Eiginkona mín, móftir okkar, tengda-
móftir, amma og langamma,
GUÐNÝ JÓHANNSDÓTTIR,
Kvisthaga 27,
Reykjavfk,
sem lést í Borgarspítalanum 17. mars,
verftur jarftsungin frá Neskirkju föstu-
daginn 26. mars kl. 13.30.
Kristján Sigurmundsson,
Snæbjörn Kristjánsson, Hulda Kristinsdóttir,
Smári Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA EIRÍKSDÓTTIR
Lönguhlfð 3,
Reykjavík,
sem lést 19. mars sl. verftur jarðsungin frá Háteigskirkju föstudag-
inn 26. mars kl. 15.00.
Þorkell Björnsson,
Björn Þorkelsson, Oddný Óskarsdóttir,
Anna Þrúður Þorkelsdóttir, Gunnar Lárusson,
Eirfkur S. Þorkelsson, Sigrún Skaftadóttir,
Ingvi Þór Þorkelsson, Hansfna Á Björgvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
ARNGRÍMUR SIGURJÓNSSON,
Hjallavegi 42,
Reykjavfk,
sem lést 12. mars sl. verður jarðsung-
inn fré Áskirkju 25. mars kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeir
sem vildu minnast hans eru beftnir að
láta líknarfélög njóta þess.
Guðrún Alda Sigmundsdóttir,
Sigmundur Örn Arngrfmsson, Vilborg Þórarinsdóttir,
Baldur Már Arngrfmsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Haraldur Arngrímsson, Dóra Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Ástkær eiginmaftur minn, faðir okkar,
tengdafaftir og afi,
HARALDUR SIGURÐSSON
leigubílstjóri,
Barónsstíg 39,
sem andaðist í Borgarspítlanum 22.
mars s.l. verður jarðsunginn frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík, föstudaginn 26. mars
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans er bent
á Krabbameinsfélag Islands.
Guðrún Samúelsdóttir,
Sigurður Guðni Haraldsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Árni Haraldsson, Sigurður Baldur.
+
Innilegar þakkir sendum vift öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar,
móftur, tengdamóftur, dóttur og systur,
ÓLAFÍU ÓLAFSDÓTTUR,
Grenigrund 33,
Akranesi.
Karvel Lindberg Karvelsson,
Karvel Lindberg, Linda Björk Pálsdóttir,
Ólafur Lindberg, Andri Lindberg,
Jóhanna Sigurðardóttir,
Þorvaldur Ólafsson,
Guðlaug Ólafsdóttir,
Sesselja Ólafsdóttir.