Morgunblaðið - 24.03.1993, Page 35

Morgunblaðið - 24.03.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993 35 Maureen t.v. með Cörlu og Marie með Gemmu. GJAFIR Gaf dans- skóna í safnið Leikararnir Sylvester Stallone, Arnold Schwarz- enegger og Bruce Willis eru eigendur veit- ingahúsakeðjunnar Planet Hollywood í Bandaríkj- unum. Þar eru meðal annars til sýnis ýmsir gripir úr kvikmyndum sem þeir félagar hafa leikið, sam- anber mótorhjólið, sem Sylvester Stallone þeysti um á í myndinni Rocky. Nýlega bættist þeim félög- um dýrgripir í safnið þegar Patrick Swayze af- henti þeim skóna sem hann dansaði hvað mest í í myndinni Dirty Dancing. Patrick Swayze og eiginkona hans, Lisa, með dans skóna, sem notaðir voru í myndinni Dirty Dancing. MISTÖK Otrúleg mistök á fæðingar- deild Því varð hrikalega á í mess- unni, starfsfólkinu á fæðingar- deild Princess Anne sjúkrahússins í Southampton 5. desember á síð- asta ári. Þá voru útskrifaðar tvær mæður sem eignuðust stúlkubörn sama daginn nokkru áður. Þetta voru þær Maureen Bursey og Marie Doyle. Ellefu dögum síðar varð Marie síðan á að skoða nánar nafnmerkið á fæti dóttur sinnar sem hún geymdi ofan í skúffu. Þar stóð ekki Gemma, eins og foreldr- arnir höfðu skírt dóttur sína heldur Carla. Við þetta vöknuðu hræðilegar grunsemdir, Marie hraðaði sér á sjúkrahúsið og krafðist skýringa. Einhvetjir fulltrúar ypptu öxlum og töluðu um minni háttar mistök, en Marie var ákveðin og heimtaði að tekin yrði blóðprufa. Var það gert og í ljós kom að ekki var um hennar barn að ræða. Var þá haft upp á þeim sem útskrifuðust um líkt ieyti og kom upp úr dúrnum að Maureen hafði verið afhent barn Marie og öfugt. Þetta bar að sjálfsögðu að leið- rétta, en ekki gekk það sársauka- laust, því þótt ekki væru liðnir svo ýkja margir dagar, höfðu foreldr- arnir í báðum tilvikum bundist kornabörnunum nánum böndum. Bæði Marie og Maureen segja að það hafi tekið þær margar vikur að komast yfir skelfinguna og áföllin sem þessi mistök hefðu haft í för með sér. Þann tíma hefðu þau ekki getað veitt raunveruleg- um börnum sínum fullkomna ást og umhyggju vegna söknuðar til hins barnsins. Raunar sagði Marie að ástandið væri enn svart hjá sambýlismanni sínum sem gengi illa að vinna úr sorg sinni. „Hann var svo stoltur að verða faðir í fyrsta sinn, að hann lét barnið varla úr sjónmáli. Hann neitar að trúa því að blóðprufa sé fullkom- lega örugg vísbending og ég er hrædd um að sá efi að Carla hafi í raun verið barnið hans eigi eftir að naga hann alla tíð. Ég hef hvatt hann til að leita sér sérfræðingsað- stoðar og vona að hann geri það fyrr heldur en seinna,“ segir Marie. Þær stöllur, Maureen og Marie, eru sammála um að ekki sé á það bætandi með því að vasast í skaða- bótamálum gegn sjúkrahúsinu. Aftur á móti hafi þær staðfastlega ákveðið að halda sambandi, vinátta hafi tekist með þeim og þær séu ákveðnar í því að Gemma og Carla fái að alast upp sem systur væru. „Við skuldum þeim það,“ segir mæðurnar tvær. íslensk fjölskylda varð 12,1 milljón króna rikari á miðvikudaginn í síðustu viku. íslendingar deildu fyrsta vinningi með Dönum og Finnum. Náðu þér í Víkingalottóseðil og framvísaðu honum á næsta sölustað íslenskrar getspár fyrir kl. 16.00 á morgun. Dregið verður í annað sinn i Víkingalottói, stærsta lottópotti á Norðurlöndum, í sameiginlegri útsendingu á báðum sjónvarpsstöðvunum kl. 19.50 annað kvöld. Spilaðumeð í Vikiiigalottói fyrir kL 16j00 ídag! Síðastvom 36,3 milljónir í l.viiming:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.