Morgunblaðið - 24.03.1993, Qupperneq 44
ttrgmiÞIjifrifef
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVAÍjuALMENNAR
MORG UNBLAÐW, ABALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMl 691100. SÍMBRÉF
'F 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Vegagerðin og Vesturís ganga frá breyttu verklagi við gröft Vestfjarðaganganna
Göngín opnuð árí
fyrr en áætlað var
ísafirði.
VEGAGERÐIN og Vesturís gengu í gær frá samningi um breytt verk-
lag við siðasta áfanga Vestfjarðaganga. Samkvæmt honum verður lögð
áhersla á að taka göngin í notkun haustið 1994, ári fyrr en áætlað var,
og ljúka frágangi sumaríð 1995.
Samgönguráðherra var á ísafirði
í gær til að kynna sér framgang
verksins. Hann sagði að breytingin
hefði engan kostnaðarauka í fór með
sér, því að í samningnum væri gert
ráð fyrir að Vesturís fengi í sinn
hlut jafnvirði áætlaðs snjómoksturs
vetrarins 1994-1995.
Mikil ánægja er með þessar að-
gerðir vestra, þar sem snjóþyngsli
og veðurfar í vetur hafa gert snjó-
mokstur tafsaman og oft ómöguleg-
an. Þegar ráðherrann og fylgdarlið
hans skoðuðu göngin í gær var búið
að grafa út um 250 metra í hvora
átt frá gangamótum. Samtals er þá
búið að grafa 2.460 metra inn úr
Tungudal auk 900 metra inn úr Súg-
andafirði. Grafnir hafa verið út um
150 þúsund rúmmetrar af bergi og
er þetta orðin lengsta og umfangs-
mesta neðanjarðarframkvæmd í
landinu. Næst í röðinni var ganga-
gerðin við Blönduvirkjun.
17 metrar á dag
Nú vinna 18 menn á vöktum allan
sólarhringinn við gröftinn og lengjast
göngin um 17 metra á dag.
- Úlfar.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
I göngxmum
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra og Páll Sigurjónsson for-
sljóri ístaks með tæknimönnum í jarðgöngunum í gær.
'Jf1
Veðurblíða í Bláfjöllum
Morgunblaðið/RAX
UM miðjan dag í gær höfðu 3.500 manns lagt leið sína
í Bláfjöll til að njóta besta veðurs sem þar hefur komið
í vetur og var búist við um 5.000 manns fyrir lokun
klukkan 22. „Við getum þjónað á níunda þúsund manns
á klukkustund," sagði Þorsteinn Hjaltason fólkvangs-
vörður. „Þetta er óskadraumur skíðamannsins."
Sinfóníuhljóm-
sveit Islands
Sálumessa
Verdis flutt
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands flytur „Requiem“ eða
Sálumessu eftir Giuseppe
Verdi á tónleikum hljóm-
sveitarinnar fimmtudaginn
1. apríl næstkomandi, ásamt
kór íslensku óperunnar sem
Peter Locke stýrir.
Stjómandi er Yoav Talmi,
en einsöngvarar eru Ólöf Kol-
brún Harðardóttir, Elsa Waage,
Ólafur Á. Bjamason og Guðjón
Grétar Óskarsson. „Þetta er
^> afskaplega merkur tónlistarvið-
burður," segir Helga Hauks-
dóttir, tónleikastjóri Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, „enda er
sálumessan eitt af stórverkum
tónbókmenntanna og að mínu
mati ein alfallegasta sálumessa
sem samin hefur verið.“
Sjá bls. 10: „Hátt í 200
r manns...“
Fermingarbömum
boðin solbránka
á niðursettu verði
SÓLBAÐSSTOFA í Keflavík hefur auglýst sértilboð á Ijósatímum
fyrir fermingarböm og segir sóknarpresturinn þar í bæ að þetta
sé enn eitt dæmið um að sölumennska setji æ meiri svip á ferming-
arathöfnina.
Fyrir skömmu
birtist auglýsing
frá sólbaðsstofu
í Keflavík í Suð-
urnesjafréttum
og hefst texti
hennar þannig:
„Hann fermdist
fyrir 19 árum.
Sjáið þið hvað hann er hvítur? Því
fyrir 19 árum þá var Sólhúsið ekki
til. Þá fermdust böm hvít, brún
eða bara á litinn eins og náttúran
hafði ætlað þeim. Því var Palli eins
og endurskinsmerki í kirkjunni á
fermingardaginn..."
Dæmigerð
auglýsingamennska
„Auglýsingamennska af þessu
tagi er dæmigerð fyrir nútímasam-
félagið og fyrir skömmu fékk ég
meira að segja upphringingu frá
manni sem bað
mig að auglýsa
fyrir sig í ferm-
ingarhópnum,"
sagði Ólafur
Oddur Jónsson
sóknarprestur í
Keflavík í sam-
tali við Morgun-
blaðið.
Hann sagðist leggja áherslu á
að kenna fermingarbömunum að
vega og meta hlutina. Það eina sem
prestamir gætu gert væri að inn-
ræta bömunum trúararfinn svo
þau yrðu ekki alveg rótlaus í nú-
tímasamfélaginu sem ætlaði að
selja öllum hamingjuna. Ólafur
sagði að þó ytri aðstæður ferming-
arinnar hefðu breyst til hins verra
væru fermingarbörnin einlæg og
því góður jarðvegur til staðar fyrir
trúfræðslu.
Alþingi bannar vinnustöðvun stýrimanna á Heijólfi með lögum
Heijólfur siglir að nýju
eftir siö vikna verkfall
VESTMANNAEYJAFERJAN Heijólfur legg-
ur upp í fyrstu ferð sína milli lands og Eyja
um sjö vikna skeið klukkan hálfníu árdegis
í dag. Verkfall stýrimanna á Heijólfi, sem
staðið hefur síðan 3. febrúar, var bannað
með lagasetningu Alþingis í gær.
Halldór Blöndal samgöng-uráðherra iagði í gær
fram á Alþingi fmmvarp, sem bannar verkföll
og verkbönn á Heijólfi. Frumvarpið var sam-
þykkt með 36 atkvæðum gegn sex. Allir þing-
menn Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks, sem viðstaddir vom þingfundinn,
samþykktu fmmvarpið, að undanskildum Stefáni
Guðmundssyni, þingmanni Framsóknarflokks,
sem sat hjá. Þingmenn Kvennalistans, fimm
talsins, og Guðrún Helgadóttir, þingmaður Al-
þýðubandalags, greiddu atkvæði á móti. Aðrir
Alþýðubandalagsmenn sátu hjá.
í lögunum em ákvæði um að hafi ekki samizt
í kjaradeilu stýrimanna fyrir 1. júní, verði henni
vísað til gerðardóms. Dómurinn á að ljúka störf-
um fyrir 1. ágúst og hafa hliðsjón af gildandi
kjarasamningum á kaupskipum og almennri
launaþróun í landinu.
Fáar leiðir eftir
Grímur Gíslason, formaður stjómar Heijólfs,
sagðist ánægður að skipið væri að komast í
rekstur á ný. „Það voru ekki margar leiðir eft-
ir. Þetta er neyðaraðgerð, sem stjórnvöld fóm
út í,“ sagði Grímur.
Hann sagðist ekki geta nefnt tölur um tap
útgerðar Heijólfs á verkfallinu. „Það er ekki
aðeins beint fjárhagslegt tjón, heldur einnig tjón
til lengri tíma. Skipið datt úr rekstri í sjö vikur
og það tekur alltaf ákveðinn tíma að vinna sig
af stað aftur. Fyrir bæjarfélagið í heild var þetta
mikið tjón,“ sagði Grímur.
Erum löghlýðnir og vinnum
„Við erum löghlýðnir borgarar og fömm bara
að vinna í fyrramálið,“ sagði Sævaldur Elíasson,
annar tveggja stýrimanna á Heijólfi, í samtali
við Morgunblaðið. Hann sagði að stýrimennirnir
byndu vonir við að samkomulag næðist, annað-
hvort í viðræðum eða með gerðardómi, sem lög
Alþingis kvæðu á um. „Við vonum það bezta,“
sagði hann.
Sjá bls. 26: „Verkfall stýrimanna bann-
að ... “