Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 1
88 SIÐUR B/C
76. tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Höfnum
lokað á
fisk frá
Noregi
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, frctta-
ritara Morgunblaðsins.
NÆSTUM allur fiskút-
flutningur Norðmanna til
meginlands Evrópu hefur
stöðvast vegna aðgerða
sjómanna í Danmörku og
Þýskalandi. Hafa þeir
hindrað flutningabíla með
norskan fisk í að komast
í land frá feijunum og það
hefur aftur leitt til þess
að feijurnar neita nú að
flytja bílana.
Allur danski fiskiflotinn og
um 6.000 sjómenn hafa verið
í höfn síðan á mánudag og
koma þeir í veg fyrir fiskflutn-
inga Norðmanna um Hirtshals
og Fredrikshavn og þýskir sjó-
menn um Kiel. Hefur norska
utanríkisráðuneytið verið í
sambandi við það danska vegna
þessa máls, en norska stjórnin
og fiskiðnaðurinn í Noregi hafa
miklar áhyggjur af ástandinu.
Umdeildur kvóti
Mótmælin í Danmörku og
víðar stafa af óánægju sjó-
manna með minnkandi kvóta
og lækkandi fískverð, sem þeir
kenna að nokkru miklu fisk-
framboði frá Noregi um. Leif
Skytte, formaður í útflutnings-
samtökum danska fiskiðnaðar-
ins, sagði í gær, að þá hefði
sama og engan físk verið að
fá á uppboðsmörkuðunum í
landinu. „Innflutningsbannið
mun hins vegar skaða fískút-
flutning okkar sjálfra til ann-
arra Evrópulanda verulega,
ekki síst núna á föstunni,“
sagði hann.
SÞ heimil-
ar hervald
í Bosníu
New York. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gærkvöldi að
framfylgja loftbanni yfir Bosníu
með hervaldi. Verður flugvélum
á vegum Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) fengið það hlutverk.
Ályktun um að beita hervaldi í
Bosníu var samþykkt með atkvæð-
um 14 ríkja af 15 sem sæti eiga í
öryggisráðinu. Einungis Kínveijar
sátu hjá. Ályktunin beinist einkum
gegn Serbum en herflugvélar þeirra
hafa margsinnis rofið loftferða-
bannið í þá fimm mánuði sem það
hefur verið í gildi. Henni er ætlað
að þrýsta á deiluaðila í Bosníu að
semja um frið sín í milli. Samþykkt-
in kemur til framkvæmda að viku
liðinni.
Reuter
Aðþrengdir flóttamenn
SEX MANNS tróðust undir og biðu bana er þúsundir múslima
reyndu að komast með bílum flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna frá Srebrenica, í austurhluta Bosníu, til Tuzla í gær.
Miklu fleiri vildu komast með bílunum en pláss var fyrir. Var
þröng á þingi á bílunum svo sem myndin gefur til kynna en
þar má sjá ungan pilt í klemmu á palli eins flutningabílsins.
Frekari fólksflutningum frá Srebrenica var frestað um sinn.
Sjá „Sex deyja í troðningi . . .“ á bls. 31
Stjóm Bíldts kom-
in að krossgötum
Jafnaðarmenn andvígir lækkun atvinnuleysisbóta
Stokkhólmi. Reuter.
VIÐRÆÐUR minnihlutastjórnar Carls Bildts forsætisráð-
herra og leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins um leiðir til að
draga verulega úr greiðslu atvinnuleysisbóta fóru út um
þúfur í gærkvöldi. Gert verður út um málið á þingi og
töldu stjórnmálaskýrendur í gærkvöldi að dagar stjórnar
Bildts væru senn taldir.
Viðræður fulltrúa stjórnarinnar
og Jafnaðarmannaflokksins höfðu
staðið í nokkra daga en þegar á
reyndi voru jafnaðarmenn ófáan-
legir til að standa að aðgerðum
sem leitt hefðu til lækkunar at-
vinnuleysisbóta.
Bildt sagðist í gær myndu beita
sér fyrir því að þingið greiddi at-
kvæði sem fyrst um frumvarp um
lækkun bótanna, í þessari viku eða
þeirri næstu. Framgangur málsins
mun þá standa og falla með af-
stöðu Nýs lýðræðis sem er í odda-
aðstöðu á þingi. Fyrir hálfum
mánuði komu þingmenn flokksins
stjórninni til bjargar með því að
sitja hjá við atkvæðagreiðslu um
efnahagsstefnu hennar.
Afstaða Nýs lýðræðis ókunn
Afstaða Nýs lýðræðis til
lækkunar atvinnuleysisbóta lá
ekki fyrir í gær. Ian Wachtmeist-
er, leiðtogi flokksins, sagði að af-
staðan réðist af því hvort stjórnin
yrði reiðubúin til samninga um
málið.. Ósveigjanleiki af hennar
hálfu yrði einungis til þess að flýta
fyrir þingkosningum. Að óbreyttu
ættu kosningar ekki að fara fram
fyrr en í september 1994.
Stefnir í
allsheijar-
verkfall í
Færeyjum
Þórshöfn. Frá Grækaris D. Magnus-
sen, fréttaritara Morgunblaðsins.
ALLT bendir til að alls-
herjarverkfall hefjist í
Færeyjum á miðnætti í
kvöld, fimmtudag, þar sem
landstjórnin hefur neitað
að falla frá áformum um
að skerða greiðslur til at-
vinnulausra.
Ákveðið hefur verið að skerða
greiðslurnar, sem nú eru 70%
af launum, niður í 61%. „Það
eru einfaldlega ekki til peningar
í landssjóði," sagði Márita Pet-
ersen lögmaður.
Ráðgert var að lækka hlut-
fallið niður í 30-35%. Land-
stjórnin ákvað að lokum að það
yrði 61%. Verkalýðsfélög krefj-
ast þess að það verði áfram 70%.