Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 51 Minning Ingibjörg Margrét Guðmundsdóttir Fædd 15. september 1901 Dáin 8. mars 1993 Andlát gamallar konu, sem bar þverrandi lífskraft allt síðasta ár, kemur ekki á óvart. Ingibjörg var lögð til hinstu hvíldar að Mýrum í Dýrafirði 15. mars sl. og hennar minnst og getið af ástvinum hennar á þeirri stundu. Þó að mín kveðjuorð séu að því leyti seint á ferðinni kem- ur það ekki að sök. Þau eru frambor- in vegna snertinga í hugskoti mínu sem ekki breytast í tíma héðan af. Eitthvað brast innra með mér sem eflaust heitir tilfinningarugl sem enginn ætti að burðast með, eða velta sér upp úr, eins og núorðið er títt að taka til orða. Samt ætti ís- lenska þjóðin fáar sögur og færri ljóð, hefðu slíkar hræringar aldrei verið festar á blað. Orsökina hjá öðrum læt ég liggja milli hluta. Þegar Inga mín var dáin var eng- inn eftir af þeim sem leiddi stóra barnahópinn á Gemlufalli. Nú var allt horfið, allt fólkið, allar þúfurnar, allir kofarnir og engin gata meðfram hlöðunni eða niður að sjónum. Ég sá þetta allt í einu núna, ekkert til að spyija um, ég varð að trúa því að ég sjálf var bara gamla konan frá Gemlufalli. Ingibjörg Margrét var ein af 12 börnum hjónanna Önnu Jónínu Bjarnadóttur og Guðmundar Eiríks Engilbertssonar. Öll börnin voru fædd í Mýrahreppi í Dýrafirði og eru nú öll látin. Ingibjörg var tvíburi móti dreng er ekki varð lífs auðið. Vegna erfiðleika kringum fæðingu hennar var hún borin á fyrsta degi ævi sinnar að Mýrum í Dýrafirði til hjónanna Ingibjargar Guðmunds- dóttur og Friðriks Bjarnasonar hreppstjóra. Hjá þeim hjónum ólst hún upp. Mýrar hafa margir höfðingjar setið gegnum aldir. Ætt Ingibjargar á heima í 'þeirri sögu. T.d. var faðir hennar í beinan legg af Þorláki Ein- arssyni sýslumanni að Núpi í Dýra- firði, bróður Gissurar, fyrsta lúterska biskupsins í Skálholti, og séra Hall- dórs Einarssonar í Selárdal. Þessir bræður áttu allir dætur Hannesar Eggertssonar hirðstjóra fyrir konur. Móðir þeirra, kona Hannesar, var engin önnur en Guðrún eldri, dóttir Björns Guðnasonar sýslumanns í Ögri við ísafjarðardjúp. Móðir Björns var Þóra dóttir Björns Þorleifssonar ríka á Skarði á Skarðsströnd. Miklar sögur eru til af þessum stóru ættum sem víða er að finna í íslenskri sagna- gerð. Aldarandinn í æsku Ingibjargar ýtti ekki að öðru jöfnu ungum stúlk- um til mennta eða margbreytni. Ör- lög heimasætunnar á Mýrum, sem var glæsileg stúlka og fljúgandi greind, réðust í heimatúni. Að Mýrum réðst kaupamaður, Valgeir Jónsson, fæddur að Höfða- strönd í Grunnavíkurhreppi. Þau felldu hugi saman og gengu í hjóna- band 1924. Valgeir var fæddur 3. apríl 1899 og andaðist 5. júlí 1981. Með þeim hjónum var jafnræði, hann var kom- inn af þekktum ættum, afi hans var séra Jón Arnórsson í Vatnsfirði, prests Hannessonar. Kona Hannesar var Þórunn Jóns- dóttir, Gíslasonar, prests í Hjarðar- holti í Dölum, og seinna prófasts að Breiðábólstað á Skógarströnd, ridd- ari af dbr. 1843 (P.E.Ó.). Séra Jón var annálaður búforkur. Hann hlaut verðlaun fyrir jarðabætur frá danska landbúnaðarfélaginu og aftur verð- laun frá konungý fyrir ýmsar framkævmdir (P.E.Ó.). Kona hans var Hallgerður Magnúsdóttir, prests að Kvennabrekku, Einarssonar. For- eldrar Jóns Voru báðir frá Svigna- skarði. Þessa punkta úr ættum þeirra hjóna set ég hér að gamni mínu kynnu þeir að vera einhveijir í stóra afkomendahópnum sem gaman hefðu af að bæta þar við og gera nánari skil. Ungu hjónin á Mýrum dvöldust þar tvö ár og eignuðust þar sitt fyrsta barn. Þó hinir fyrri tímar höfðingja- ætta er leiddu böm sín til óðalssetra við giftingu, væru liðnir undir lok, örlaði þó aðeins á því þegar Guð- mundur faðir Ingibjargar bauð þeim að taka við búi sínu að Gemlufalli þar sem var þá tvíbýli. Ættir hans, sem reyndar höfðu átt þar heima mann fram af manni, sátu þar þá áfram eftir hans dag. Árið 1927 hófu þau búskap að Gemlpfalli og þar fæddust þeim átta börn og lifir allur hópurinn móður sína. Gemlufall er fyrsti bær við Gemlu- fallsheiði sem hefur verið þjóðvegur frá landnámstíð. Á öðrum bænum . bjuggu foreldrar mínir sem þar höfðu þá búið í sjö ár. Það var lögskipuð feijuskylda yfir Dýraljörð á jörðinni. Henni gegndu foreldrar mínir. Þann- ig var það í það minnsta skráð. Átti faðir minn því bátinn og bar uppi skylduna um að kalli væri svarað. Faðir minn var einyrki sem kallað var. Að ég vil minnast þessa nú, kemur til af því að þessi þjónusta við samfélagið var í rauninni afar erfið. Hún átti samt eftir að tengja bæina svo að segja óijúfandi bönd- um. Faðir minn átti við vanheilsu að stríða sem ágerðist langt um ald- ur fram. Valgeir var aftur á móti þrekmenni, sem frekar óx við álag en hitt. Þannig réðust því málin að leitað var til Valgeirs með hjálp við flutn- ingana. Því get ég um þetta hér, að sú greiðasemi hans að hann var allt- af reiðubúinn, hvaða verk sem hann var að vinna og hvernig sem á stóð, lýsir honum og heimilinu hans, sem aldrei tók sínar eigin þarfir framyfir kröfu ferðamannsins eða bón föður míns. Allt sem hann vann að þessum málum var af trúmennsku og heilind- um gert. Konan hans sem heima sat með hópinn sinn og óunnu verkin, tók ajlt á sig og bætti úr. Þegar ég var barn var ég ógurlega hrædd við vonda veðrið þegar faðir minn var í þessum flutningum, en það var mitt leyndarmál að væri Geiri, eins og við kölluðum hann nú alltaf, með í förinni, var ég aldrei neitt hrædd. Þess vil ég minnast núna, í nafni þeirra hjóna beggja, að þar sem Geira naut við áttum við í efri bænum sannarlega máttar- stólpa. Þessu blaði trúi ég til að flytja að leiðarlokum þakklæti frá okkur systrunum sem ennþá erum á lífi úr þeim bæ, þakklæti sem kannski veg- ur ekki þungt, en er þó sönnun til afkomenda þeirra fyrir því að það litla samféiag sem var með þessum heimilum báðum var alltaf metið og virt sem stór þáttur í því sem oft mátti kalla sameiginlega lífsbaráttu. Það er svo margt sem mig langar í raun að segja núna um móðurina sem kom ung af allsnægtaheimili, settist að í litlum bæ með lítinn heim- anmund, en hefur gefið þjóð sinni stóran hóp manndómsfólks sem fékk ósköp tæknialdarinnar beint í fangið, ekki eftir langan undirbúning, ekki annan en að hafa gengið yfir þrösk- uldinn inn í bæinn sinn og klifið sín móðurkné og hlotið þar ást og blíðu sem var af hjartans hlýju nærð. Um háls þeirra hékk aldrei neinn lykill sem sagði þeim, að mamma væri ekki heima. Hún var alltaf heima að hugsa um börnin sín eins og hennar máttur sagði til um. Það var hljótt um verk hjónanna á þessum bæ, einskis krafist nema þess sem eiginn hugur og hönd fengu áorkað. Hveijar stóru stundirnar eru í lífi manns skýrist alltaf betur og betur eftir því sem tíminn líður. Þó breytist yfirsýnin. Eitt var það sem sigrast var á, jinnað það sem í engu varð breytt. Á efri árum erum við mörg hver, jafnvel enn, að leita að mælistikum, þrátt fyrir það. Líðandi stund kallar auðvitað fram það sem hvorki reynsla né þekking getur sagt manni, að svona skuli hún vera eða ekki vera. Inga og Geiri eru dáin. Neðri bærinn jafnaður við jörð, ekkert merki sýnilegt fyrir allar þær mynd- ir sem þyrlast um huga minn. Þó eru þær svo skýrar. Tifið í litlu lindinni fyrir neðan brekkuna, brekkuna sem ilmaði af reyr,_ gulmöðru og öllum móablómum á íslandi, það nær eyr- um mínum. Bæði voru þau hjónin ljóðelsk og höfðu rniklar og fallegar söngraddir. Nú heyri ég Geira syngja við eyrað á Ingu sinni, sitjandi á þúfu út á Stekknum á Mýrum, ljóðið hans Friðriks Hansens: Ætti ég Hörpu hljóma þýða Innsta þrá í óska höllum á svo margt í skauti sínu, ég vildi geta vafíð öllum vorylnum að hjarta þínu. Nú eru þau aftur komin að Mýrum og verða að eilífu eitt. Guð launi þeim dagsverkið og blessi allra þeirra afkomendur. Nína. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR, áðurtil heimilis á Gránufélagsgötu 5, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju föstudaginn 2. apríl kl. 13.30. Jóhanna María Pálmadóttir, Guðbjörg Pálmadóttir, Jóhannes Pálmason, tengdabörn og fjölskyldur. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÁGÚSTAR JASONARSONAR, Bolungarvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks góða umönnun. Sjúkrahúss Bolungarvíkur fyrir Guðrún Thorsteinsson, Sveinn Johnson, Jóhann Kárason, Ragnheiður Guðbjartsdóttir, Maríus Kárason, Guðrún Káradóttir, Ástríður Káradóttir, Kristbjörg Jónsdóttir, Árni Ingimundarson, Jakobína Guðmundsdóttir Konráð Eggertsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Brynhildur Olgeirsdóttir. Rósa Friðriksdóttir, Baldvin Stefán Jóns- son - Mmning Mér er ljúft að minnast frænda míns og góðvinar, Baldvins Stefáns Jónssonar, eða Balda frænda eins og hann var ávallt kallaður, en hann lést eftir stutta sjúkrahúslegu rétt sextugur. Það var mikil harmafrétt er Jón Ingi frændi minn hringdi í mig og sagði mér að pabbi sinn væri dáinn. Mín fyrsta hugsun var að það gæti ekki verið að Baldi frændi væri dáinn, hann sem alltaf var svo lifandi og skemmtilegur, með stríðnisblik í augunum, spilandi lista- vel á píanó og harmónikku, en í þeirri list var hann sjálfmenntaður. Oft hugsaði ég hve hann hefði náð langt ef hann hefði farið í tónlistarnám. Allir sem þekktu frænda dáðust að spilamennskunni og var hann oft fenginn til að spila, og þá bókstaf- lega dansaði hann á nótnaborðinu. Ég kom oft á heimili hans og konu hans Sísíar, en blíðari og samtilltari hjónum hef ég ekki kynnst og alltaf fór ég hamingjusöm og sátt frá þeim. Pabbi minn og Baldi frændi eru bræður frá Hámundarstöðum í Nes- kaupstað. Oft heirtisóttum við fjöl- skyldan þau hjónin og var gestrisni þeirra og alúð einstök. Þó við værum 8 manna fjölskylda var alltaf pláss og tími fyrir okkur. Er ég var 18 ára bjó ég hjá þeim heilan vetur og mun ég aldrei gleyma góðvild þeirra og velvild í minn garð. Með söknuði ég kveð þig, elsku frændi minn og megi góður guð styrkja þig Sísí mín, börn þín og fjölskyldur þeirra á þess- ari erfiðu stundu. Guð hlustar á grát okkar þegar atburðarás- in er ofvaxin skilningj okkar en engu að síður afrakstur umhyggju hans og ástar. (Daníel A. Poling (1884-1968). Sólveig Ólafsdóttir. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát elsku- legrar dóttur minnar og systur okkar, ODDNÝJAR SIGURÐARDÓTTUR KRISTIANSEN frá Reyðarfirði. Björg Bóasdóttir og systkini hinnar látnu. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG HANNESDÓTTIR fyrrverandi Ijósmóðir, Jörfa, verður jarðsungin frá Kolbeinsstaöarkirkju laugardaginn 3. apríl kl. 14.00. Ólafur Agnar Jónasson, Guðrún Jónsdóttir, Hanna Jónasdóttir, Helgi Jónasson, Erla Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Jónasdóttir, Baldur Ólafsson og barnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, ÞÓRLAUG VESTMANN, Helgamagrastræti 20, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 2. apríl kl. 14.30. Þeir, sem vildu minnast hennar, láti Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri eða Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa njóta þess. Þorvaldur Vestmann Magnússon, Bergljót Jónsdóttir, Már Vestmann Magnússon, Rannveig Þórhallsdóttir, Magnús Vestmann Magnússon, Sigrún Guðmundsdóttir, Sigursteinn Vestmann Magnússon, Elísabet Birgisdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN R. NORDGULEN áðurtil heimilis á Brávallagötu 8, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. apríl kl. 13.30. LúðvikS. Nordgulen, Sigríður Einarsdóttir, Asta Hallý Nordgulen, barnabörn og barnabarnabörn. + Okkar bestu þakkir fyrir samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JAKOBS ÞORSTEINS JÓHANNSSONAR fyrrv. vörubifreiðastjóra, Hrafnistu, áðurtil heimilis í Skálagerði 11. Ingibjörg Hjartardóttir, Björgvin Jakobsson, Elsa Jakobsdóttir, Bára Jakobsdóttir, Ólafur Haukur Árnason, Jóhann Jakobsson, Unnur Ólafsdóttir, Hjörtur Jakobsson, Auður Gunnarsdóttir, Guðmundur Jakobsson, Anna Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.