Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 31 Bílalest send eftir múslimum í austurhluta Bosníu Ofbeldið í útlegð Sex deyja í troðningi ör- væntingarfulls flóttafólks Belgrad. Reuter. TVO BÖRN krömdust til bana í gær þegar þúsundir örvænt- ingarfullra flóttamanna reyndu að troða sér í vörubíla á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem fluttu múslima frá Sre- brenica, umsetnum bæ í norðurhluta Bosníu. Að minnsta kosti fjórir farþegar biðu síðan bana á leiðinni og talið er að þeir hafi kafnað í mannþrönginni. Ákveðið var að fresta frekari flutningum þar til hægt yrði að senda fleiri her- menn með bílalestunum til að hafa hemil á flóttafólkinu. Fregnir hermdu að 2.000 flótta- menn hefðu troðið sér í 14 vöru- bíla sem fóru frá Srebrenica til borgarinnar Tuzla í norðurhluta landsins. Flestir flóttamannanna voru léttklæddir og sumir skólaus- ir í nístandi kuldanum. Þeir höfðu hvorki matvæli né vatn. Serbnesk- ir hermenn köstuðu snjókúlum til múslimanna svo þeir gætu sogið þær og svalað þorsta sínum. Örvænting Fréttir um atburðinn voru óljós- ar. „Það eina sem við vitum er að allt fór úr böndunum. Þúsundir manna flykktust að bílunum. Svo virðist jafnvel sem fólkið hafi tek- ist á, sem sýnir hvílík örvænting hefur gripið um sig,“ sagði emb- ættismaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Tuzla. „Skelfing fólksins þarna er meiri en nokkru sinni áður,“ sagði annar embættismaður Sameinuðu þjóðanna í Belgrad. „íbúarnir hafa ekki lengur trú á því að Samein- uðu þjóðirnar geti verndað þá.“ Sex biðu bana á mánudag Yfirvöld í Bosníu sögðu að sex manns hefðu beðið bana í svipuð- um flutningum á mánudag. Þá hefðu flóttamenn á öllum aldri verið svo þjappaðir saman í bílun- um að þeir hefðu þurft að standa alla leiðina. Ferðin tók 18 klukku- stundir vegna tafa við varðstöðvar Serba. Flóttamannahjálpin áætlar að 30-40.000 múslimar séu enn inn- lyksa í Srebrenica og nágrenni. Serbar hafa setið um bæinn frá því borgarastyijöldin í Bosníu hófst fyrir ári. „Markmið okkar er að fækka þessu fólki og draga úr skelfingunni,“ sagði talsmaður hjálparstofnunarinnar. „Þetta fólk er mjög illa á sig komið vegna vannæringar og í rauninni ekki ferðafært." „Þetta á eftir að gerast í hvert sinn sem við sendum bíla á eftir fólkinu því það eru svo margir sem láta einskis ófreistað til að komast í burtu,“ sagðj Tricia Purves, breskur undirofursti í Bosníu. Serbar hafa takmarkað fjölda þeirra hermanna sem mega fylgja bílalestunum til að hafa hemil -á flóttafólkinu. „Ég held raunar að heil stórdeild geti ekki haft stjórn á fólki sem er svona örvæntingar- fullt,“ sagði Purves. JOHN Birt, aðalframkvæmda- stjóri breska ríkisútvarpsins, BBC, sagði í gær, að sjón- varpsefni, sem héldi á loft grimmd og ofbeldi, ætti ekk- ert erindi í dagskrána. Birt sagði, að BBC ætlaði ekki að ýta undir það meðal óþroskaðra áhorfenda, að það væri fínt og jafnvel karlmann- legt að valda öðrum manneskj- um kvöl og skaða. Kom þetta fram í ræðu, sem hann flutti um framtíðaráform BBC, en þar sagði hann meðal annars, að stofnun ætti ekki að eltast við lágkúruna í dagskrárgerð en forðast um leið að verða aðeins vettvangur fyrir það, sem fáir vilja njóta. Efnahagshrun í nánd á Kúbu Washington. Reuter. KÚBVERSK hreyfing í Bandaríkjunum kvaðst í gær hafa undir höndum leyniskýrslu sem gerð hefði verið fyrir Fídel Kastró Kúbuleiðtoga og þar kæmi fram að efnahagshrun yrði þar í landi innan átta mánaða að öllu óbreyttu. Kúbversk-bandaríska þjóðar- stofnunin, CANF, hreyfing and- stæðinga kommúnistastjórnarinn- ar á Kúbu, sagði að leyniskýrslan hefði verið lögð fram á fundi Kast- rós með ríkisstjórninni í nóvem- ber. „Skýrslan lýsir efnahag sem er í algjörri óreiðu," sagði í yfirlýs- ingu frá hreyfingunni og bætt er við að skorturinn á erlendu fjár- magni torveldi mjög tilraunir til að snúa þróuninni við. „I skýrsl- unni er spáð algjöru efnahags- hruni á Kúbu ekki síðar en eftir átta mánuði haldi hnignunin áfram á sama hraða.“ Hreyfingin segir að í skýrslunni komi fram að Kúbveijar geti ekki flutt inn eða framleitt sjálfir 226 vörur af 415, sem taldar séu nauð- synlegar til að halda efnahagnum gangandi. Aðrar vörur, svo sem matvæli, eldsneyti og ýmsar neyt- endavörur eins og sápa, séu einnig af skornum skammti. Þá hafi sykurútflutningurinn minnkað úr 6,8 milljónum tonna árið 1991 í tæp fimm tonn í fyrra. Biðstaða er í valdabaráttunni milli þingsins og forsetans í Rússlandi Barátta Jeltsíns rétt að hefjast Reuter. Stuðningsmenn forsetans Stuðningsmenn Borís Jeltsíns Rússlandsforseta liafa undanfarna daga safnast saraan fyrir utan Kreml til að lýsa yfir stuðning við hann. ENN einu fulltrúaþingi er lokið í Moskvu, vopnagl- amrið var mikið, menn voru móðir en enginn kom bein- línis sár af vígvellinum. Fyrir Borís N. Jeltsín for- seta er baráttan um það hver skuli stjórna landinu aðeins rétt að hefjast. Mað- urinn sem virðist tvíeflast þegar hætta er á ferðum en er miður lagið að fást við hefðbundin stjórnunar- störf verður að horfast í augu við ógnvægileg vand- kvæði. Eitt af þeim er hvernig bregðast skuli við því að fulltrúaþingið hefur ákveðið hvaða skilyrðum skuli fullnægt og hvert orðalagið á spurningunum skuli vera sem bera skal undir þjóðina 25. apríl nk. Orðalagið er vísvitandi haft þannig að það skaði málstað og markmið forsetans sem vill fá skýra niðurstöðu um skiptingu valda milli þings og forseta. Á laugardag munu þeir hittast í Vaneouver, Jeltsín og Bill Clint- on Bandaríkjaforseti og fær Rúss- landsforseti þá einstakt tækifæri til að koma fram í hlutverki al- þjóðlegs stjórnmálaskörungs. En þetta er ekki hættulaust, m.a. verður Jeltsín fjarri heimavíg- stöðvunum í nokkra daga. Orð- rómur um nýtt valdarán í Moskvu gýs þar upp með stuttu millibili. Þar að auki er hætt við að sú ósk Clintons að vilja veita 'Jeltsín hjálparhönd geti styrkt betlaraí- mynd Jeltsíns hjá örvæntingar- fullum, rússneskum þjóðerniss- innum sem svíður sárt niðurlæg- ing fóstuijarðarinnar og þar er ekki eingöngu um að ræða hálf- fasíska ofstækismenn. Öllu meiri vandi verður fyrir forsetann að átta sig á því hve langt hann getur gengið í þeirri viðleitni sinni að draga Rússa á hárinu, hvað sem líður kvalaópum, inn á umbótabraut markaðs- og lýðræðisstefnu. í þessum efnum hefur hann aldrei markað ákveðna og sjálfri sér samkvæma stefnu. Það stafar að nokkru leyti af mis- klíð meðal nánustu samstarfs- manna forsetans, annars vegar milli þeirra sem vilja málamiðlun, liins vegar þeirra sem vilja láta sverfa til stáls gegn hægfara öfl- um og afturhaldi. Jeltsín virðist eiga érfitt með að gera upp hug sinn. Málamiðlun ólíkleg Sem stendur virðist ólíklegt að málamiðlun náist fram milli þings og forseta. Rúslan Khasbúlatov þingforseti reyndi að semja við Jeltsín, þeir urðu ásattir um nýjar þingkosningar strax. Hann hlaut nærri því brottrekstur úr þingfor- setastólnum að launum, það voru harla óvænt harðlínuöflin sem björguðu honum — og telja sig nú hafa hann í vasanum fyrir vik- ið. Khasbúlatov tekur vart sams konar áhættu aftur. Jeltsín telur sig hafa treyst stöðu sína með því að fá stuðning allrar ríkisstjórnar- innar við stefnu sína, einnig þeirra ráðherra sem hann virðist hafa þurft að strjúka ákaft með hárun- um. Meðal þeirra er Viktor Tsjernómýrdín forsætisráðherra, sem andstæðingar Jeltsíns þröngvuðu upp á forsetann en hefur síðan reynst vera hlynntari umbótum en margir gerðu ráð fyrir. Mikilvægast er þó að ráð- herrar landvarna, öryggismála og innanríkisráðuneytis studdu allir Jeltsín, þótt með nokkrum sem- ingi væri. Það var engin tilviljun heldur skýr skilaboð til andstæð- inganna er þessir ráðherrar stóðu við hlið forsetans á fjöldafundin- um sl. sunnudag þegar Jeltsín lýsti yfir sigri á afturhaldsöflum kommúnista. Goðin blíðkuð Því fer þó fjarri að stuðningur hersins sé tryggur. Skýrt var frá því í dagblaði á þriðjudag að Jelts- ín hefði í sl. mánuði rekið háttsett- an embættismann, Júrí Boldýrev, er rannsakaði spillingu meðal liðs- foringja. Boldýrev hafði verið full- duglegur, vakið reiði hershöfð- ingjanna og forsetinn ákvað að reyna að blíðka goðin. Jeltsín hefur ákveðið að láta stjórnlagadómstól úrskurða hvort þingið hafi mátt orða spurning- arnar í þjóðaratkvæðinu með þeim hætti sem gert var og setja skil- yrði um að minnst helmingur at- kvæðisbærra kjósenda tæki þátt í henni svo að niðurstaðan yrði lögmæt. Dæmi dómstóllinn þing- inu í vil er ólíklegt að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar verði ein- hlít. Forsetinn gæti þá efnt til annarrar skoðanakönnunar eða atkvæðagreiðslu, þar sem hann réði orðalaginu og bæði þjóðina m.a. að segja álit sitt á þinginu. Óljóst er hver afstaða ráðamanna í einstökum héruðum verður. Sums staðar verður sennilega engin atkvæðagi'eiðsla og því er hætt við að engin niðurstaða fáist á landsvísu sem mark verður á takandi. Valdatogstreitan heldur þá áfram á meðan efnahagsóreið- an, sjálfstæðistilburðir einstakra héraða, glæpafár og almenn ring- ulreið grafa enn frekar undan trú almennings á lýðræðinu. Við slík- ar aðstæður er hætt við að krafan um sterkan leiðtoga, afturhvarf til einræðis, fái byr undir báða vængi. K. J. Byggt á The Daily Te- legraph o. fl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.