Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 61
Ifftl
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
61
HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ
Svavar Vignisson
og skorar eina mark
Morgunblaðið/Þorkell
, línumaðurinn ungi hjá ÍBV, vippar hér knettinum yfir Gunnar Erlingsson markvörð Stjörunnar
sitt í leiknum.
Sigurmark úr
vflakasti að
leiktíma loknum
|j[g vissi að ég gat tryggt okkur
tvö stig og ætlaði mér það,“
sagði heimsliðsmaðurinn Bjarki
Sigurðsson, eftir að
qtpfíin hafa tryggt Víkingi
Brlsson sigur á KA, 26:25,
skrifar nieð marki úr vítak-
asti eftir að leik-
tíminn var liðinn.
Víkingar byrjuðu mun betur og
náðu fljótt fjögurra marka forskoti.
Það hvarf þó eins og dögg fyrir
sólu er KA-menn gerðu fjögur mörk
í röð. Eftir það var leikurinn í jám-
um og í hálfleik var staðan jöfn
12:12.
Liðinn skiptust á að hafa foryst-
una í síðari hálfleik, en þegar um
tíu mínútur voru eftir komust Vík-
ValurB.
Jónatansson
skrífar
Stjaman
niður á
jorðina
ÍBV kom Stjörnunni niður á
jörðina með því að sigra með
eins marks mun, 18:19, í
Garðabæ. Sigurður Friðriksson
gerði sigurmarkið þegar þrjár
sekúndur voru eftir. Þetta var
fyrsta tap Stjörnunnar f deild-
inni síðan gegn Víkingum 28.
október f fyrra. Sigurinn blasti
við Stjörnunni þegar 9 mínútur
voru til leiksloka og staðan
17:15, en Eyjamenn tóku þá tvo
leikmenn Garðbæinga úr um-
ferð og það herbragð heppnað-
ist fullkomlega.
Leikurinn einkenndist af mikilli
taugaspennu og sóknarleikur-
inn var lengst af mistækur hjá báð-
um liðum. Það tók
Stjörnuna rúmar sjö
mínútur að skora
hjá ÍBV, sem hafði
þá gert 3 mörk.
Spennan var mikil og hélst út allan
leikinn og sigurmark Sigurðar úr
horninu var ævintrýri líkast.
„Ég er mjög ánægður með signr-
inn. Fyrsta stundarfjórðunginn lék
liðið mjög vel sem heild. En það
vill loða við okkur að vera of bráð-
látir þegar staðan er orðin væn-
leg,“ sagði Sigurður Gunnarsson,
þjálfari IBV. „Það heppnaðist vel
að taka Patrek og Einar úr umferð
síðustu mínúturnar. Markmiðið er
að halda sætinu í deildinni allt
umfram það yrði bónus.“
Stjarnan lék ekki eins og hún á
að sér. Kannski að leikmenn hafi
ofmettnast af velgengninni fyrir
fríið og haldið að þeir þyrftu ekki
að hafa fyrir þessu. Getur verið að
þeir hafi vanmetið Eyjamenn? „Nei,
það held ég ekki við vorum skýt-
hræddur fyrir þennan leik. Þetta
var hörmulegt hjá okkur og þeir
náðu að stjórna leiknum nær allan
leikinn. Skúli var sá eini sem lék
vel,“ sagði Patrekur Jóhannesson,
leikmaður Stjömunnar.
Eyjamenn eiga hrós skilið fyrir
mikla baráttu og kænsku í lokin.
Sigmar Þröstur varði mjög vel, alls
16 skot þar af 12 í fyrri hálfleik.
Endurkoma Gylfa Birgissonar virk-
aði sem vítamínssprauta á liðið.
Hann var mjög sterkur í vöminni
en virkaði þungur í sókinni og skor-
aði ekki fyrr en í sjöttu tilraun.
Stjarnan verður að gera betur en í
þessum leik ætli hún sér að ná
Evrópusætinu. Skúli og Gunnar
voru þeir einu sem stóðu uppúr.
Valur frábær
VALSMENN höfAu mikla yfirburði gegn FH-ingum í Kaplakrika
í gærkvöldi. Þeir skutust uppí efsta sæti deildarinnar og með
sama áframhaldi halda þeir þvftii loka íslandsmótsins í hand-
knattleik. Bikarmeistararnir unnu 27:18 eftir að hafa náð fimm
marka forystu f fyrri hálfleik og vonir Hafnfirðinga um Evrópu-
sæti minnkuðu til muna.
Jafnræði var með liðunum eftir
fyrstu fjórar sóknimar, sem
gengu upp, en síðan ekki söguna
meir. FH-ingar áttu
ekki svar við öflug-
um vamarleik Vals-
manna og réðu ekki
við gagnsóknir gest-
anna — fengu fjögur mörk á 'feig í
röð eftir hraðaupphlaup og voru í
hlutverki músarinnar til hlés.
Allt annað var að sjá til heima-
manna eftir hlé; þeir börðust og
reyndu með þeim árangri að þeim
Steinþór
Guðbjartsson
skrífar
tókst að halda í við gestina í 25
mínútur, þó munurinn væri aldrei
minni en fjögur mörk. En þeir játuðu
sig sigraða undir lokin, skoruðu ekki
í síðustu átta sóknum sínum og Vals-
menn nýttu sér uppgjöfina — gerðu
fjögur síðustu mörkin og þar af þijú
eftir hraðaupphlaup.
Það verður að segjast eins og er
að FH-ingar hafa ekki mannskap til
að vera í baráttunni um efsta sætið.
Bergsveinn er sterkur í markinu og
vömin þétt en sóknarleikurinn er
ráðlaus og ómarkviss og því gengur
dæmið ekki upp. Guðjón er sá eini,
sem ógnar fyrir utan níu metrana
og þó Hálfdán sé sprækur á línunni
og Gunnar hvar sem er, nægir það
ekki gegn sterkari liðum.
Hins vegar er Þorbjöm Jensson
með Valsmenn vel mannaða og æfða
í hverri stöðu á hraðri siglingu undir
öruggri forystu Geirs Sveinssonar,
besta handknattleiksmanns landsins
um þessar munir. Vamarmúrinn
stöðvaði fimm sóknir og gagnsókn-
imar skiluðu 11 mörkum, en níu
skot af níu metra færi eða meira
rötuðu rétta leið. Þeir áttu svar við
öllum vamartilraunum FH-inga og
breiddin hafði sitt að segja — þegar
tvær skyttur voru teknar úr umferð
var sú þriðja bara sett inná. Í stuttu
máli: Algjörir yfirburðir hjá frábæru
liði.
Sviptingar í Seljaskóla
MAGNÚS Sigmundsson, mark-
vörður ÍR, var hetja liðsins þeg-
ar það vann lið Selfoss auð-
veldlega í Breiðholtinu í gær-
kvöldi, 29:22. Selfyssingar
þurfa að breyta um stíl fyrir
úrslitakeppnina.
Hjá okkur eru mörg vandamál
og ekki von á góðu þegar við
hættum að spila sem lið, heldur sem
einstaklingar. Við erum ekki betri
en þetta, sagði Einar Þorvarðarson
Stefán
Stefánsson
skrífar
þjálfari Selfyssinga.
Heimamenn byij-
uðu betur en góður
kafli gestanna um
miðjan hálfleik sneri
dæminu við, úr tveimur mörkum
undir í íjögur yfir. ÍR-ingar náðu
þó að jafna fyrir hlé og skora sex
fyrstu mörkin eftir hlé, sem sló
Selfyssinga útaf laginu.
„Eg fann mig vel eftir hlé og
vörnin small saman. Við höfum
engan landsliðsmann svo við misst-
um engan á HM í Svíþjóð og æfðum
vel í fríinu," sagði Magnús mark-
vörður ÍR. Baráttan í liðinu var
geysigóð með Róbert Þór Rafnsson,
Branislav Dimitrijv og Ólaf Gylfa-
son fremsta í flokki.
Selfyssingar léku ekki sem heild,
eins og þjálfarinn benti réttilega
á. Einstaklingsframtak Gústafs
Bjarnasonar og Sigurðar Sveins
sonar var árangursríkast.
ingar fjórum mörkum yfir. Þegar
mínúta var eftir voru Víkingar
tveimur mörkum yfir, en með miklu
harðfylgi náðu KA-menn að jafna.
Víkingar byijuðu á miðju er fimm
sekúndur voru eftir af leiknum og
áður en leiktíminn var úti náði
Bjarki Sigurðsson að fiska vítakast,
sem hann skoraði síðan úr eins og
áður sagði.
Þjálfararnir Gunnar Gunnarsson
og Dagur Jónasson léku vel og
gerðu samtals helminginn af mörk-
um Víkings. Bjarki Sigurðsson var
í strangri gæslu nær allan leikinn
en náði þó að sína ágæt tilþrif af
og til. Erlingur Kristjánsson var
yfirburðamaður í liði KA, og mark-
vörðurinn Iztok Race varði vel.
Tómas
Hermannsson
skrífar
Bjami
tryggði
HKstig
Ole Nielsen, Daninn í liði Þórs,
fór illa að ráði sínu þegar
hann tók vítakst gegn HK í gær-
kvöldi eftir að leik-
tíminn var liðinn.
Staðan var jöfn,
23:23, og Bjami
Frostason varði skot
hans — og var með þriðja vítaskot
sitt í leiknum; öll í seinni hálfleik.
Eftir jafntefli er HK komið úr botn-
sætinu, hefur stigi meira en Fram,
og Þór er með 13 stig í 10. sæti.
HK hafði tveggja marka forystu,
20:22, þegar fimm mín. voru eftir
en þá brugðu Þórsarar á það ráð
að taka Hans Guðmundsson og
Michal Tonar úr umferð. Það hefðu
þeir mátt gera fýrri því tvímenning-
amir bára uppi lið HK og gerðu
bróðurpart marka liðsins. Þórsarar
gerðu þijú mörk í röð og komust
þar með yfir en Tonar jafnaði er
40 sek. vora eftir. Sigurpáll Ámi
Aðalsteinsson fékk svo víti í þann
mund er flautað var til leiksloka,
en Bjarni varði glæsilega frá Niels-
en, sem fyrr segir.
Leikurinn var dæmigerður fall-
baráttuslagur, leikmenn mjög taug-
astrekktir og mistækir. Segja má
úrslitin hafði verið sanngjöm.
Haukar sterkari
í síðari hálf leik
HAUKAR gerðu út um leikinn
við Fram á fyrstu fimmtán mín-
útum sfðari hálfleiksins þegar
liðið náði sex marka forskoti
og Fram átti sér ekki viðreisnar
von eftir það. Lokatölur voru
24:19.
Framarar léku mun framar í
vöminni en þeir hafa gert í
vetur og það virtist taka Haukana
Mnokkrar mínútur að
Frosti læra 'nn á. þá varn-
Eiðsson araðferð. Framarar
skrífar náðu þó ekki að nýta
sér það í sókninni
sem var hæg og illa gekk að opna
Haukavörnina en gestirnir höfðu
marki betur eftir fýrri hálfleik. í
upphafi þess síðari náðu Haukar
góðum tökum á leiknum og munaði
þar mestu um hraðaupphlaup liðs-
ins. Haukar komust í 19:13 og
Framarar gerðu ekkert meira en
að rétta stöðu sína.
Páll Þórólfsson var bestur hjá
Fram en hann var mjög dijúgur í
vinstra horninu. Gunnar V. Andrés-
son lék að nýju með eftir langvinn
meiðsli en er enn nokkuð frá fyrri
styrkleika.
Páll Ólafsson og Halldór Ingólfs-
son áttu góðan dag hjá Haukum
og nýliðinn Konráð Olavson sýndi
hvers hann er megnugur í síðari
háfleiknum.
■F