Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
Medúsa - minning
Góðir hermenn klára af disknum sinum 2: Gjörningur í Fjölbrauta-
skólanum i Breiðholti 20. október 1980.
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Á hátíðarstundum er oft sagt
sem svo, að framtíðin liggi í æsk-
unni. En með slíkum orðum er
einatt einnig gefið í skyn, að æsk-
an eigi að þiggja það sem að henni
er rétt, en ekki blanda sér í mál-
efni hinna eldri og reyndari. Því
vill brenna við, þegar æskan lætur
í sér heyra, að þá veki slíkt meiri
athygli og jafnvel hneykslan en
ástæða er til, eingöngu vegna ald-
urs þeirra sem hlut eiga að máli.
Slík urðu örlög Medúsu, en svo
nefndi sig hópur ungra manna við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti,
sem kom fram á menningarsviðið
1979. Nú stendur yfir í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi minn-
ingarsýning um Medúsu, sem hlot-
ið hefur nafnið „Líksneiðar og ald-
inmauk". Félagamir vom við
stofnun hópsins á aldrinum 17 til
19 ára, en áttu á næstu árum eft-
ir að láta talsvert til sín taka við
sýningarhald, gjörninga, útgáfu-
starfsemi, tónlistarflutning og
fleira. Það þarf vart að taka fram,
að margt af því sem Medúsa stóð
fyrir vakti mikla athygli og varð
jafnvel tilefni leiðaraskrifa í dag-
blöðum, þó að flestir hefðu notið
þess græskulausa gamans, sem
var undirtónninn í öllu saman.
Medúsu-hópurinn hreifst mjög
af súrrealistum þriðja áratugarins,
og virðist m.a. hafa kynnt sér
málflutning André Bretons og fé-
laga nokkuð vel; um það vitna
ýmsar kennisetningar Medúsu,
(„Hvernig em hendur elskaðar";
„Logandi fótspor prests á barmi
mínum“) þýðingar á stefnuskrám
súrrealista o.fl. Þó að þessi list-
hreyfíng hafi áður notið nokkurrar
athygli hér, þá hefur þessi fræðsla
væntanlega verið nokkur opinber-
un fyrir ungt fólk um 1980.
Helstir Medúsu-manna vom
þeir Einar A. Melax, Matthías
Magnússon, Ólafur J. Engilberts-
son, Sjón (Siguijón B. Sigurðsson)
og Þór Eldon, þó fleiri hafi komið
við sögu í einstökum framkvæmd-
um hópsins. Af slíkum má nefna
ýmsa gjörninga, t.d. „Góðir her-
menn klára af disknum sínum 2“,
sem fór fram í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti haustið 1980; þessi
gjörningur er að nokkm endur-
skapaður á sýningunni í Gerðu-
bergi í undarlegri frystingu
augnabliksins.
Sýningin dreifist um ýmsa hluta
Gerðubergs, og getur þar m.a. að
líta sendibréf, ljósmyndir, bækur,
klippimyndir, málverk, yfirlýsing-
ar og skúlptúra, svo nokkuð sé
nefnt. Það verður að játast að
myndefnið ber æsku listamann-
anna nokkurt vitni, og verktæknin
er oft lítil og ófullkomin. Einnig
er nokkur hluti myndmálsins
bundinn við ýmsa kynóra, en slíkt
var ekki síður tilvísun til fyrri
súrrealista en áhuga ungra
manna; framsetningin er hins veg-
ar tæpast til þess fallin að hrífa
jafnréttiskonur. Þó má fínna hér
skemmtileg myndverk, svo sem
„Tónverk í D-dúr“ eftir Einar
Melax, „Bævax“ eftir Ólaf J. Eng-
ilbertsson og þijár portrettljós-
myndir eftir Matthías Magnússon.
Það má segja að það séu einkum
bókverkin, sem heilla á þessari
sýningu, enda vom þau einn veiga-
mesti þátturinn í starfi Medúsu
um mörg ár. Þau em oft nostur-
samlega unnin, full af kímni og
hnitmiðuðum tilvísunum, sem
höfða enn til lesenda. Hér má
nefna verk Ólafs J. Engilbertsson-
ar, „Taumlaus sæla“ og myndir
úr Ijóðabókinni „Oh!“ eftir Sjón.
Merkilegur þáttur í starfí Med-
Veflist er einn elsti sproti ís-
lenskrar myndlistar og líklega sá
eini sem hefur haldist í nokkuð
samfelldri rækt allt frá landnáms-
tíð. Í Þjóðminjasafni má finna
ýmis dæmi listvefnaðar fyrri alda,
og þó meginstarfið í vefnaði í
gegnum aldirnar hafí falist í að
sjá þjóðinni fyrir fatnaði og öðmm
þörfum, var hinni listrænu hefð
ávallt haldið til haga.
Á þessari öld hefur veflistin
öðlast traustan sess innan mynd-
listarinnar, eins og sjá má á vefn-
aðarverkum á söfnum og víða inn-
an stórfyrirtækja og banka, og
við höfum við eignast marga góða
listamenn á þessu sviði. Guðrún
Gunnarsdóttir er ein þeirra lista-
kvenna sem hefur unnið dijúgt
starf á vefnaðarsviðinu, en nú
stendur yfír sjötta einkasýning
hennar í Listasafni ASI við Grens-
ásveg.
Guðrún stundaði vefnaðarnám
á verkstæði Kim Naver í Kaup-
mannahöfn, auk þess að hafa sótt
nám sumarlangt til Bandaríkj-
anna. Hún hefur átt verk á fjölda
samsýninga, og má nefna norræn-
an textílþríæringinn og aðra sýn-
inguna undir nafninu Form Island
sem dæmi um slíkar. Guðrún hef-
ur ekki haldið sig eingöngu við
hefðbundinn vefnað, heldur hefur
hún einnig unnið að hönnun og
gert tilraunir með ýmis önnur
efni; þannig vom verk úr pappír
áberandi á sýningu hennar í Nor-
ræna húsinu fyrir þremur ámm.
úsu-hópsins og ein helsta tilraun
hans til að láta taka sig alvarlega
var rekstur myndlistargallerís
1982-83 á Suðurgötu 3a, sem
þeir nefndu Skmggubúð; þar vom
haldnar ýmsar sýningar, m.a. er-
lendra súrrealista, en staðurinn
lifði þó stutt. Eftirminnilegasta
sýningin var ef til vill „Við étum
ekki þetta brauð“ sem var alþjóð-
leg sýning á guðlastsgripum, og
var haldin sem andsvar við kirkju-
listasýningu á Kjarvalsstöðum
vorið 1983; slík sýning var auðvit-
að mjög í anda súrrealismans!
Þessi minningarsýning Medúsu
er haldin í tilefni af tíu ára af-
mæli menningarmiðstöðvarinnar
Gerðubergs, og tengir staðinn
traustum böndum við það félags-
starf æskunnar, sem þar fer fram.
Sýningin í heild sinni gefur ágæt-
an þverskurð af því ijölbreytta
starfí sem hópurinn kom að; einn-
ig sýnir hún Ijóslega, að starf
hópsins fólst frekar í gleðilegum
Að þessu sinni sýnir Guðrún
bæði ofín veggteppi (úr ull, hör,
hampi og basti) og nokkur verk
unnin úr tágum. Þetta tvennt er
að vissu leyti andstæður í því
hversu ólíkar kenndir þessi verk
vekja (tágaverkin veikbyggð, létt
og svífandi, en veggteppin þétt
og sterkleg), en þrátt fyrir það
verður áhorfandanum fljótt ljóst
að þau eiga einnig ýmislegt sam-
eiginlegt, einkum hvað varðar til-
vísun í rýmið, mikilvægi litanna
og vefnaðinn sjálfan.
Tágaverkin umlykja rýmið og
marka það, þannig að þau virka
nánast sem tilbriði við úmhverfi
sitt. „FIug“ (nr. 13) er samsett
úr láréttum hólkum, sem virkja
loftstreymið og minna þannig
sterklega á eðliseiginleika þess,
sem felst í titlinum. „Græn ljóð“
(nr. 15) eru líkt og lausbeislaður
spuni, þar sem hárfín litabrigðin
njóta sín til fullnustu til aðgrein-
ingar, auk þess sem lýsingin mót-
ar verkin. Listaverk þarf hvorki
að vera stórfenglegt né flókið til
að ná svifi.
Veggteppi Guðrúnar eru að
þessu sinni hvert fyrir sig ofíð í
einn grunnlit í ull, sem önnur efni
fylgja síðan eftir. Eitt sterkasta
einkenni þeirra að þessu sinni er
hið þrívíða gildi. í öllum teppunum
kemur fram ferli mynsturs eða
tákna, sem rísa út úr fletinum að
því er virðist á reglulegan hátt,
en sú regla reynist ávallt brotin,
í hverju verki fyrir sig, þannig að
uppgötvunum ungra manna á
ýmsum leyndardómum nútímalist-
ar en persónulegu og frumlegu
framlagi til listasögunnar. En með
þeim uppgötvunum var lagður
grunnur að frekara starfi margra
þeirra á ólíkum sviðum menning-
arinnar, um leið og þeir hneyksl-
stöðug spenna býr í fletinum.
Þetta sést glögglega í verkum
eins og „Fljúgandi teppi“ (nr. 12)
þar sem mynstrið virðist í fyrstu
samhverft, sem reynist við nánari
skoðun ekki rétt, auk þess sem
fínna má þar kunnuglegar tilvís-
anir í fornar mynsturgerðir. í
verkunum „Jörð“ (nr. 8) og „Jarð-
teikn“ (nr. 9) eru brúnir jarðlitir
ríkjandi, en í hinu fyrmefnda felst
fjölbreytnin í fjörugra litavali í
láréttum línum, sem móta allt
verkið.
Sterkasti þáttur sýningarinnar
felst í sex verkum, sem listakonan
nefnir „Með köflum“ (nr. 1-6). í
viðtali í tilefni sýningarinnar segir
Guðrún, að verkin séu eins konar
hughrif af landinu þegar flogið
er yfír það, og þessi ímynd kemur
vel heim og saman við þessi verk.
Öll byggja þau á föstum lita-
grunni og síðan reglulegu mynstri
láréttra og lóðréttra lína eða
punkta, sem er skyndilega rofíð
þegar línu sleppir, punkt vantar,
eða fyllist inn í reit á milli lína;
allt slíkt verður til þess að augað
hvarflar stöðugt um flötinn, þar
sem alltaf vantar örlítið upp á að
jafnvægi (og þar með hvíld) sé
náð. Gott dæmi um þetta er verk-
ið „Með köflum VI“, þar sem
guli liturinn er lagður til grunns.
Fyrir sýninguna hefur lista-
konan látið vinna litla en smekk-
lega sýningarskrá, þar sem fram
koma fróðleiksmolar um feril
hennar, og mætti framtak af
uðu góðborgara, en skemmtu jafn-
öldrum sínum og sjálfum sér.
Margar listhreyfingar hafa vissu-
lega skilið minna eftir sig en það.
Sýningu Medúsu-hópsins, „Lík-
sneiðar og aldinmauk", í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi lýkur
mánudaginn 5. apríl.
Guðrún Gunnarsdóttir: Með
köflum VI (hluti). 1992.
þessu tagi verða öðrum til eftir-
breytni, því slíkt eykur vissulega
á gildi góðra sýninga.
Sýning Guðrúnar Gunnarsdótt-
ur í Listasafni ASÍ við Grensásveg
stendur til sunnudagsins 4. apríl,
og eru listunnendur hvattir til að
líta inn.
Guðrún Gunnarsdóttir
UM HELGINA
Úr sýningu Þjóðleikhússins á söngleiknum My fair lady.
Tónlist
Gospel-tónleikar í
Hafnarfirði
Kór Flensborgarskóla stendur fyrir
tvennum gospel-tónleikum í Hafnarfírði
í þessari viku. Fyrri tónleikarnir verða
í Víðistaðakirkju fimmtudaginn 1. apríl,
en þeir síðari í menningarmiðstöðinni
Hafnarborg föstudaginn 2. apn'I.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Auk
kórsins koma fram sex hljóðfæraleikar-
ar og dansarar frá Kramhúsinu í
Reykjavík. Að sögn kórstjórans Mar-
grétar Pálmadóttur, eru þetta afar ein-
stakir tónleikar, þar sem sungið verður
og dansað við tónlist með afró-ívafi.
Undanfarnar vikur hefur kórinn æft
af kappi undir stjóm danskennarans
Orwells Pennants, en hann er ættaður
frá karíbsku-eyjunum og alinn upp við
gospel-söngva og dans.
Lúðrablástur
Lúðrasveitin Svanur verður með vor-
tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur, laugar-
daginn 3. apríi klukkan 17. Endurvakin
verður tónleikastemmning fyrri ára, og
heiðursfélagi og stjómandi til margra
ára, Snæbjörn Jónsson, heldur á tón-
sprotanum á þessum tónleikum.
Leikin verður létt tónlist og má þar
nefna, Three Caprices for band eftir
Henk van Lijnschooten, forleikinn
Lustspiel eftir Kéler Béla, Orginial
Dixieland Concerto, eftir John Warring-
ton og The Typewriter eftir Leroy And-
ersson, einleikari á ritvél er Jóhann
Gunnarsson. Aðstandendur vonast til
að sem flestir lúðrasveitaunnendur njóti
dagstundar með þeim.
Leiklist
Lokasýning á
„Heima er best“
í tengslum við sýninguna „Líksneiðar
og aldinmauk" hefur Leiksmiðjan LAB
unnið sérstaka leikdagskrá byggða á
verkum Medúsuhópsins fyrir menning-
armiðstöðina Gerðuberg. Leiksmiðjan
LAB Jeikur leikritið „Heima er best“ og
verður lokasýningin fimmtudaginn 1.
apríl klukkan 20.30.
Félagar í leiksmiðjunni eru Árni Pét-
ur Guðjónsson, Rúnar Guðbrandsson,
Björn Ingi Hilmarsson, Harpa Arnar-
dóttir og Steiriunn Ólafsdóttir. Umsjón
með dagskránni höfðu Árni Pétur Guð-
jónsson og Rúnar Guðbrandsson. Sýn-
ingunni „Líksneiðar og aldinmauk" lýk-
ur mánudaginn 5. apríl.
30. sýning á
May fair lady
í dag, fimmtudag 1. apríl, verður 30.
sýning á söngleiknum vinsæla May fair
latiy sem sýndur hefur verið við miklar
vinsældir síðan á jólum. Á tólfta þúsund
áhorfenda hafa séð sýninguna sem er
sú viðamesta á fjölum Þjóðleikhússins
f vetur. Rúmlega 30 manns koma fram,
leikarar, söngvarar og dansarar ásamt
20 manna hljómsveit undir stjórn Jó-
hanns Guðm. Jóhannssonar en leikstjóri
er Stefán Baldursson.
My fair lady er sannkölluð fjölskyldu-
skemmtun til ánægju fyrir jafnt unga
sem aldna og hefur aldursdreifingin
vissulega verið mikil á sýningunum í
vetur.
Söngleikurinn fjallar um óheflaða og
illa talandi alþýðustúlku, Elísu Doolittle,
sem málvfsindaprófessorinn Henry
Higgins hirðir upp af götunni. Hann
veðjar við kunningja sinn að hann geti
gert úr henni hefðarkonu á örskömmum
tíma. Að sjálfsögðu trúir Higgins því
að hann geti kennt Elísu heldri manna
siði en Elísa litla er ekki öll þar sem
hún er séð og von bráðar hefur hún
rótað heldur betur upp í tilveru og til-
finningalífi þessa forherta piparsveins.
Það eru Jóhann Sigurðarson og Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir sem leika
Higgins og Elísu en í öðrum helstu hlut-
verkum eru Helgi Skúlason, Pálmi
Gestsson, Örn Árnason, Þóra Friðriks-
dóttir, Bergþór Pálsson, Helga Bach-
mann, Sigurður Siguijónsson, Margrét
Guðmundsdóttir og Sigríður Þorvalds-
dóttir.
Myndlist
Leirverk í
Gallerí Úmbru
Nú stendur yfir sýning á leirverkum
eftir Bryndísi Jónsdóttur í Galleríi Úm-
bru, Amtmannsstíg 1, Reykjavík. Sýn-
ingin stendur til 7. apríl og er opin frá
klukkan 13—18, alla virka daga nema
mánudaga og klukkan 14-18 á sunnu-
dögum.