Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 16
16, Abf b1 WWTúmGM:í^TOfc-iaæ
Framkvæmdafjármögri-
un og verklegar fram-
kvæmdir á Islandi
eftir Þórð Þórðarson
Inngangnr <
Undanfarin misseri hefur átt sér
stað nokkur umræða á íslandi um
nýjar leiðir til fjármögnunar fram-
kvæmda og erlent áhættufé. Ein
er sú leið íjármögnunar, sem ekki
hefur verið farin hér, og minnst
hefur verið á í umræðunni, en það
er fyrirbæri er kalla mætti fram-
kvæmdafjármögnun (project fin-
ance).
í þessu greinarkorni mun ég
reyna að gera grein fyrir eðli fram-
kvæmdafjármögnunar og ennfrem-
ur í hvaða tilvikum hún gæti nýst
íslendingum.
Hvað er
framkvæmdafjármögnun?
Réttast er að byija á því að geta
þess hveijir eru aðilar fram-
kvæmdaflármögnunar. Aðilar að
fjármögnuninni eru í höfuðatriðum
þrír, þ.e. lánardrottnar, lántakandi
og síðan aðstandendur lántakans.
Iðulega eru lánardrottnar fleiri
en einn. Þá er um að ræða svokall-
aða fjölbankalánasamninga (syndi-
cated loan agreements). Lánar-
drottnar velja oft þann kostinn að
standa margir að fjármögnuninni í
því skyni að minnka þá fjárhagslegu
áhættu sem fylgir slíkum lánum.
Lántakandinn er oftast einn lög-
aðili, venjulega vegna þess að að-
standendur viðkomandi verkefnis
hafa stofnað um það sérstakt félag.
Aðstandendumir eru þeir aðilar
er standa að viðkomandi verkefni
og verða eigendur þess þegar upp
er staðið. Þeir eru aðilar að fjár-
mögnuninni sem slíkri þó að þeir
séu ekki lántakendur, vegna sér-
stakra ábyrgða er þeir gangast í
fyrir félagið.
Til grundvallar fjármögnuninni
liggur upplýsingarit (Information
Memorandum) sem útbúið er af
aðstandendunum og geymir upplýs-
ingar um það verkefni sem fjár-
magna skal. Á grundvelli þessa rits
taka lánardrottnamir ákvörðun um
hvort lána skuli til verkefnisins.
Helsta einkenni framkvæmda-
fjármögnunar, sem skilur hana frá
öðmm fjármögnunarleiðum, er
skipanin á endurgreiðslu lánsins,
en hún er bundin við arðsemi þess
verkefnis sem fjármagnað er. Það
þýðir að lánardrottnamir geta ekki
gengið að aðstandendum viðkom-
andi framkvæmdar til fullnustu á
greiðslum, ef arðurinn af fram-
kvæmdinni dugar ekki fyrir afborg-
unum af láninu. Vegna þessa verð-
ur framkvæmdafjármögnun ein-
ungis beitt þar sem lánardrottnarn-
ir sjálfir telja framkvæmdina arð-
bæra, t.d. við byggingu iðnaðar-
vera, orkuvera og samgöngumann-
virkja.
Réttarstaða lánardrottna
Venjan er sú, svo sem áður sagði,
að aðstandendur framkvæmdarinn-
ar stofni sérstakt félag um fram-
kvæmdina, sem oftast er skráð í
því landi þar sem framkvæmdin er
fyrirhuguð. Það er félagið sem er
lántakandinn en ekki aðstandendur
þess. Þeir gangast ekki í ábyrgðir
fyrir láninu, heldur eiga þeir ein-
ungis hlutabréf í félaginu og eru
ábyrgir fyrir skuldbindingum þess
sem slíkir.
Þar sem sérstakt félag er stofnað
um framkvæmdina, hafa lánar-
drottnar yfir takmörkuðum úrræð-
um að ráða til að tryggja hagsmuni
sína telji þeir það á annað borð
vera nauðsynlegt.
Algengast er að lánardrottnamir
taki veð í fasteignum félagsins,
hlutabréfum aðstandendanna í fé-
laginu, vörubirgðum félagsins eða
í söluhagnaði þess.
Þau veðréttindi er hér um ræðir
kunna að vera verðlítil eða verðlaus
er til á að taka, því er það að að-
standendur félagsins leggja fram
ákveðnar tryggingar til handa lán-
ardrottnunum. Síðar mun verða vik-
ið að þeim tryggingum er hér um
ræðir, en til skýringar þess er þeg-
ar hefur verið sagt vil ég taka
dæmi um hvemig framkvæmdafjár-
mögnun getur verið upp byggð.
Lánardrottnamir lána beint til
þess félags er stendur að fram-
kvæmdinni á grundvelli samnings.
í staðinn gefa aðstandendur félags-
ins lánardrottnunum tryggingar.
Það getur faiist í því að aðstandend-
umir ábyrgist að viðkomandi fram-
kvæmd verði lokið þannig að hún
geti skilað arði. Einnig er til í dæm-
inu að samhliða séu gerðir kaup-
samningar og/eða fjármögnunar-
samningar. Þessi hugtök verða
skýrð nánar hér síðar.
Samningar er liggja til
grundvallar
framkvæmdafjármögnun
Framkvæmdafjármögnun er
flókið fyrirbrigði lagalega og einnig
hafa hér áhrif náin tengsl við verk-
ið sem verið er að fjármagna.
Það yrði futl langt mál að fara
að gera grein fyrir öllum þeim
samningum er liggja til gmndvallar
framkvæmdafjármögnun og því
mun ég einblína á þá samninga sem
snúa sérstaklega að fjármögnuninni
sem slíkri.
Fyrst er rétt að geta þess að
ekki er algilt að aðilar máls byggi
réttarsamband sitt á umræddum
samningum. Fer það eftir eðli
verksins hveiju sinni. Hins vegar
er lánasamningur alltaf fyrir hendi.
Oftast fara lánardrottnar fram á
verkábyrgð. Er þá átt við að að-
standendur verksins sem vinna á,
hvort heldur sem það er að byggja
verksmiðju eða grafa göng, ábyrgj-
ast að verkinu verði lokið. Hvað
teljast verklok er síðan skilgreining-
aratriði hveiju sinni. Samhliða slíkri
ábyrgð fara lánardrottnamir að
jafnaði fram á að lánsfjárhæðin
verði endurgreidd ef verkinu er
ekki lokið. I verkábyrgðinni felst
venjulega:
i) að aðstandendur ábyrgjast að
verkinu verði lokið innan ákveðins
tíma,
ii) að aðstandendur útvegi viðbót-
arfjármagn sé þess þörf,
iii) að aðstandendur sjái til þess
að eigið fé félagsins sá ákveðið hlut-
fall af heildarlánsupphæðinni,
iv) að aðstandendur ábyrgist
ákveðna rekstrarafkomu.
Þegar skilyrðum verkábyrgðar-
innar hefur verið fullnægt, fellur
hún niður. Þá tekur oftlega við
annars konar réttarsamband
grundvallað á kaupsamningi milli
þriðja aðila eða aðstandenda fram-
kvæmdarinnar og félagsins. Þeir
kaupa framleiðslu eða þjónustu fé-
lagsins fyrir ákveðið lágmarksverð,
skv. bindandi langtímasamningi.
Séu aðstandendurnir ekki kaupend-
ur skv. samningnum þá leggja þeir
fram tryggingar fyrir því að þriðji
aðili standi við samninginn. Félagið
framselur síðan réttindi sín skv.
kaupsamningnum og tryggingunni
til lánardrottnanna, svo endur-
greiðsla lánsins sé tryggð.
Á stundum velja aðilar máls aðr-
ar útfærslur við fjármögnun en hér
hafa verið nefndar. Eru þá gerðir
svokallaðir framtíðar kaupsamn-
ingar (Forward purchase agree-
ments). Samkvæmt þeim skuld-
binda lánardrottnarnir sig til þess
að kaupa framleiðslu eða þjónustu
félagsins fyrirfram. Kaupverðið er
lánið, en endurgreiðslan felst í af-
hendingu vörunnar eða þjónustunn-
ar síðar meir. Það er síðan Iánar-
drottnanna að selja vöruna eða
þjónustuna, en það gera þeir venju-
lega á grundvelli bindandi kaup-
samnings við þriðja aðila.
Hér að framan hef ég nokkuð
einblínt á þá samninga er lánar-
drottnar nota til þess að tryggja
stöðu sína gegnvart aðstandendum
ef illa fer. Rétt er að benda á að á
þessu sviði ríkir algert samninga-
Þórður Þórðarson
„Undanfarin misseri
hefur átt sér stað nokk-
*
ur umræða á Islandi um
nýjar leiðir til fjár-
mögnunar fram-
kvæmda og erlent
áhættufé. Ein er sú leið
fjármögnunar, sem
ekki hefur verið farin
hér, og minnst hefur
verið á í umræðunni,
en það er fyrirbæri er
kalla mætti fram-
kvæmdafjármögnun. “
frelsi og nýta menn sér það svigrúm
óspart. Þannig kann það að vera
að aðilar máls semji svo um sín á
milli að fjárhagslega áhættan skuli
nær algerlega liggja hjá lánar-
drottnum. í þeim tilvikum Lemur
ekki til jiess að ofangreindir samn-
inganseu gerðir.
Kostir
framkvæmdafjármögriunar
Framkvæmdafjármögnun geng-
ur út á það að flytja áhættuna á
skakkaföllum frá aðstandendum
framkvæmdarinnar til lánar-
drottna. Áhætta aðstandendanna
takmarkast í flestum tilfellum við
verkábyrgðina og lánin eru tryggð
með veðrétti í eignum er reynast
oft verðlitlar ef illa fer. Hér er því
um raunverulega áhættufjármögn-
un að ræða.
Undanfarna áratugi hafa erlend-
ar skuldir íslendinga stóraukist.
Hafa menn bent á að erlendar
skuldir séu orðnar það miklar að
hættumörkum hafi verið náð. Ég
tel að vandamál okkar felist ekki í
því hversu miklar erlendar skuldir
okkar séu, heldur hinu hvemig við
höfum ráðstafað fjármununum. Sé
litið á málið hlutlægt þá er ekkert
sem hindrar að lán séu tekin á er-
lendum mörkuðum og í raun má
segja að aðgangur að erlendur
lánsfé sé í raun forsenda fyrir aukn-
um hagvexti í þjóðfélaginu og auk-
inni hagsæld. Þetta er sagt með
þeim fyrirvara, að lánunum sé ráð-
stafað með skynsamlegum hætti
og til arðvænlegra framkvæmda.
Spurhingin er hvemig verður það
best tryggt?
Almennt séð þá er ekkert sem
mælir gegn því að lán séu tekin
þrátt fyrir ríkjandi ástand, ef tryggt
er að andvirði þeirra renni til arð-
vænlegra framkvæmda. Það hefur
hins vegar alltof oft viljað brenna
við að lagt sé út í framkvæmdir sem
fyrirfram var útséð um að stæðust
ekki arðsemiskröfur. í þeim tilvik-
um hafa arðsemissjónarmið og
hagsmunir heildarinnar lotið í lægra
haldi fyrir sérhagsmunum tiltölu-
lega smárra þrýstihópa.
Nú eru teikn á lofti er benda til
þess að það sé að eiga sér stað
hugarfarsbreyting í íslenskum
stjórnmálum að því er þetta varðar.
Telja verður þó að við munum enn
um sinn þurfa að líða fyrir hin eldri
viðhorf, allavega á meðan við búum
við óbreytta stjómskipan. Meðan
svo er þá verðum við að láta okkur
nægja að taka smá skref í einu í
átt til betri skipanar mála.
Ætla má að með því að nota
framkvæmdafjármögnun þar sem
hún á við, þá sé stigið slíkt skref.
Verkefnin sem eru fjármögnuð á
þennan hátt þarfnast betri undir-
búnings en ella og síður er rasað
um ráð fram. Er það því ljóst að
þegar notuð er framkvæmdafjár-
mögnun þá aukast líkumar fyrir
því að gjaldeyri okkar sé eytt með
skynsamlegum hætti og fjárfesting-
ar skili okkur arði í framtíðinni.
Hvernig getum við nýtt okkur
framkvæmdafjármögnun?
Framkvæmdafjármögnun getur
nýst bæði opinbemm aðilum og
einkaaðilum. Telja verður að rétt
sé að hvetja til þess að menn not-
færi sér þessa fjármögnunarleið þar
sem hún er á annað borð fær, því
hún stuðlar í eðli sinu að skynsam-
legum fjárfestingum og takmarkar
jafnframt áhættu aðstandenda fjár-
festingar.
Þegar ég hóf skrif þessarar
greinar hafði ég einkum tvö verk-
efni í huga er mikið hafa verið í
deiglunni undanfarið. Eiga þau það
sammerkt að geta talist arðvænleg-
ar framkvæmdir. Er ég hér að vísa
til fyrirhugaðrar jarðgangagerðar
undir Hvalgörð og tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar. Hafa menn
hugsað sér að fjármagna gerð
mannvirkjanna með vegatollum,
sértækum skatti er einungis þeir
greiði er nota umrædd mannvirki
og hafa mestan hag af tilvist þeirra.
Hér myndi sú fjármögnunarleið sem
um ræðir vera einkar hentug.
Niðurlag
í þessari grein hef ég stiklað á
stóru. Er það von mín að menn séu
nokkru nær um merkingu hugtaks-
ins framkvæmdafjármögnunar eftir
lestur greinarinnar og séu sammála
mér í þvi að hér sé um góða vibót
við fjármögnunarflóru okkar ís-
lendinga að ræða.
Höfundur er lögfræðingur að
mennt með meistarapróf í
skjalfestingu alþjóðlegra
fjármálagerninga, en erstarfandi
framkvæmdastjóri
Verktakasambands íslands.
Átt þú erindi í
Junior Chamber?
eftir Þorstein V.
Sigurðsson
Junior Chamber er alþjóða-
hreyfing ungs fólks á aldrinum
18 til 40 ára. Þessi félagsskapur
hefur starfað hér á íslandi í rúm
30 ár og skipta þeir þúsundum sem
hafa farið í gegnum þann félags-
málaskóla og fengið þá þjálfun
sem boðið er upp á.
En hvað er það sem þessi félags-
skapur býður félögum sínum? Það
sem hreyfíngin hefur verið þekkt-
ust fyrir úti í þjóðfélaginu er m.a.
þjálfun í ræðumennsku. Þegar fé-
lagar ganga til liðs við hreyfíng-
una hafa þeir í fæstum tilfellum
einhveija hugmynd um hvemig
eigi að halda ræðu, hvemig best
sé að ná tökum á áhorfendum,
hvernig haga eigi sér í ræðustól
og hvernig byggja eigi upp
skemmtilega, innihaldsríka og
áheyrilega ræðu. Hafa ber í huga
að enginn er fæddur ræðumaður
og höfum við allflest hæfileikann
til að verða góðir ræðumenn. Þetta
er einungis spuming um þjálfun.
Junior Chamber hreyfingin býð-
ur einnig upp á þjálfun í að skipu-
leggja og halda hvers kyns fundi
og þjálfa um leið félaga sína í
Þorsteinn V. Sigurðsson
fundarstjórn. Alls konar námskeið
er boðið upp á ogþjálfast þátttak-
„Alls konar námskeið
er boðið upp á og þjálf-
ast þátttakendur bæði í
mannlegum samskipt-
um, ræðumennsku og
skipulagðri stjórnun
sem þeir geta notað sér
í hag annars staðar, svo
sem í vinnunni og
einkalífinu.“
endur bæði í mannlegum sam-
skiptum, ræðumennsku og skipu-
lagðri stjórnun sem þeir geta not-
að sér í hag annars staðar, svo
sem í vinnunni og einkalífínu.
Sá andi sem félagar í Junior
Chamber starfa eftir er að ákveða
verkefni, skilgreina það, setja
markmið og vinna síðan skipulega
að settu marki. Þetta geta verið
hin ýmsu verkefni hvort sem er
úti í byggðarlaginu eða innan fé-
lagsins. Með þessu móti leggjum
við áherslu á að Iæra og vinna á
skipulagðan hátt.
Áð framansögðu má vera ljóst
að Junior Chamber veitir einstak-
lingnum tækifæri til að nýta sér
kunnáttu þá sem hann hefur öðl-
ast á námskeiðum því að hann fær
tækifæri til að halda ræður á al-
mennum fundum, stýra fundum,
starfa í nefndum og í því að skipu-
leggja skemmtanir og aðra mann-
fagnaði.
Stjóm Junior Chamber Reykja-
vík hefur nú ákveðið að íjölga í
félaginu og erum við að leita að
einstaklingum með metnað og vilja
til að þjálfa og bæta sjálfa sig
ásamt því að taka þátt í stór-
skemmtilegum félagsskap.
Höfundur cr stjórnarformaður
Junior Chamber, Reykjavík.