Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
Hópslys
eftir Brynjólf
Mogensen
Hver eru fyrstu viðbrögð þegar
fólk heyrir orðið hópslys? Vonandi
eru þau ekki: „Hvað er nú það?“,
„Það kemur ekki fyrir mig“, „Það
skeður ekki hér á landi“, „Við tök-
umst á við hópslysið þegar það
kemur“, „Skipulagið er svo gott að
þetta bjargast“, „Skipulagið er svo
gott að þetta er ekkert mál“ eða
„Björgunarsveitirnar bjarga
þessu“.
Hópslys eru fremur fjarlæg í
hugum fólks. Það er satt að hópslys
koma sjaldan fyrir en sagan sýnir
svo ekki verður um villst að við
búum í fallegu en hættulegu landi.
í gegnum aldirnar hafa átt sér stað
á íslandi mannskæð eldgos, jarð-
skjálftar, snjóflóð og sjóslys.
Til þess að geta tekist á við hóp-
slys svo vel sé ef og þegar slíkar
hörmungar dynja yfir þarf að vera
til staðar mjög gott björgunarskipu-
lag, vel þjálfaðar björgunarsveitir,
ásamt samæfðu og samræmdu heil-
brigðiskerfi.
Hvað er hópslys?
Einfaldasta skilgreiningin er sú
þegar hörmungarnar, þar með tald-
ir mannskaðarnir, verða svo miklar
að heilbrigðis- og öryggisþjónusta
á viðkomandi svæði eða landi getur
ekki leyst vandamálið á viðunandi
hátt. ísland er svo lítið að líta ber
á það sem eina heild þegar verið
er að ij'alla um hópslys, enda mið-
ast heildarskipulagning Almanna-
vama ríkisins við þessa augljósu
staðreynd.
Hvað orsakar hópslys?
Astæðurnar fyrir hópslysi geta
verið margvíslegar. Hér á landi má
tala um tvær megin orsakir, þ.e.
náttúrahamfarir eins og eldgos og
jarðskjálfta ásamt í minna mæli
snjóflóð og slæm veður á sjó. Hins
vegar slys af manna völdum, eins
og flugslys, sjóslys eða jafnvel snjó-
flóð. Ytri aðstæður ráðum við ekki
mikið við, eins og hvenær jarð-
skjálftar verða og hvenær eldgos
eiga sér stað, en við getum minnk-
að líkur á alvarlegum sjóslysum
með góðum veðurathugunum og vel
skipulögðu samskiptakerfi. Það má
oft sjá fyrir snjóflóð á þekktum
snjóflóðasvæðum og gera nauðsyn-
legar ráðstafanir eins og reyndar
er farið að gera í ær ríkari mæli
hér á landi. Flugslys geta orsakað
fjölda látinna og mikinn fjölda slas-
aðra, sem þurfa á bráðri hjálp að
halda.
Er hópslysaskipulag á íslandi
gott?
Ég tel að við getum vel við unað
þótt lengi megi gott bæta. Al-
mannavarnir ríksins hafa og eiga
að skipuleggja hópslysaáætlanir,
hvernig best er að bregðast við
hveiju sinni. Skipulag Almanna-
varna er markvisst og gott. Ekki
dugir að hafa eingöngu gott skipu-
lag heldur verðum við líka að hafa
á að skipa vel þjálfuðum björgunar-
og greiningarsveitum.
Við íslendingar eram svo lán-
samir að eiga vel þjálfaðar björgun-
arsveitir, sem hafa í gegnum árin
lagt mikið á sig í sjálfboðastarfi til
þess að takast á við vandann ef og
þegar um raunveruleika verður að
ræða. Sjálfboðaliðum þessara sveita
verður ekki nógsamlega þakkað
fyrir einstakan dugnað og fómfysi.
Greiningarsveitir spítalanna
verða æ betri og viðbragðstíminn
styttri. Þannig á t.d. greiningar-
sveit Borgarspítalans að geta lagt
af stað hvert á land sem er innan
15 mínútna frá því kall um hópslys
berst til Borgarspítalans. Miklu
skiptir að á sjúkrahúsunum sé til
gott hópslysaskipulag sem er end-
urskoðað og æft reglubundið. End-
urskoðun á hópslysaáætlun Borgar-
spítalans er nýlokið. Er öðrum
sjúkrahúsum og heilsugæslustöðv-
um velkomið að fá eintak af hóp-
slysaáætluninni ef það skyldi nýtast
þeim við þeirra endurskipulagn-
ingu.
Ekki má heldur gleyma því sem
styrkir góðan hópslysaviðbúnað ís-
lendinga en það er almennt góð
Til að veita húseigendum upplýs-
ingar um viðhaldsmarkaðinn heldur
verkfræðistofan Verkvangur hf.
fræðslu- og kynningarfund
föstudaginn 2. apríl n.k.
Fjallað verður um:
Astandskannanir, kostnaðaráætlanir,
klæðningar, steypuviðgerðir. þök,
útveggi. hitakerfi, orkusparnað, útboð,
eftirlit, verkáætlanir og ábyrgðir.
Fundurinn verður haldinn
í húsnæði Verkvangs að Nethyl 2,
2. hæð, kl. 16:00.
Fundurinn er öllum opinn á meðan
húsrúm leyfir.
VERKVANGUR h f,
VERKFRÆÐISTOFA
Nethyl 2 • 110 Reykjevík
Sími: 91- 67 76 90 • Fdx: 91-67 76 91
Valkostir og kostnaður
við endurnýjun og
víðhald húsa
þekking ásamt mjög sterkbyggðum
og lágreistum húsum. Þannig má
búast við að jafnvel í miklum jarð-
skjálftum jafnist hús að staðaldri
ekki við jörðu eins og víða gerist
þar sem styrkur byggingar er ekki
jafn mikill og hér á landi.
Almennt séð era íslendingar til
þess að gera vel undir hópslys bún-
ir eins og búast má við eftir jarð-
skjálfta, eldgos, snjóflóð, sjó- og
flugslys. Hins vegar hefur ekki ver-
ið gefinn nógu mikill gaumur að
umhverfisslysum af völdum eitur-
efna. Það er fyrst á allra síðustu
árum sem við eram farin að sýna
lit í að betrambæta þessa þætti í
okkar umhverfi með það að mark-
miði að forðast eiturefna hópslys.
Nauðsynlegt er að leggja fé og tíma
í þennan þátt á næstu áram.
Alþjóðleg björgunarsveit
Stofnun alþjóðlegrar björgunar-
sveitar á íslandi er í burðarliðnum
og er það vel. Hlutverk slíkrar sveit-
ar er ekki að flytja matvæli og fatn-
að á hörmungasvæði víðs vegar í
heiminum heldur er langskynsam-
legast að slík sveit samanstandi af
mjög vel menntuðum konum og
körlum, sem verða leiðbeinendur á
hörmungarsvæðunum. Í því felst
fyrst og fremst styrkur alþjóðlegrar
björgunarsveitar. Það hefur sýnt sig
í slíku björgunarstarfi að mjög mik-
ilvægt er að sérþekking komist á
staðinn innan mjög skamms tíma
ef einhver árangur á að nást. Við
búum yfir vel menntuðu og þjálfuðu
björgunarliði og í því felst okkar
Brynjólfur Mogensen.
„Við íslendingar búum
í mjög fallegu en um
margt hættulegu landi
þar sem við getum búist
við mannskæðum eld-
gosum og jarðskjáiftum
að ógleymdum stórslys-
um á sjó og í lofti.“
kallið kemur. íslendingar hafa yfir-
leitt brugðist vel við þegar beiðni
um hjálp berst og sent mat og fatn-
að á svæði þar sem hörmungar af
ýmsum toga hafa riðið yfir. Vax-
andi vísbending er að mun betra
sé að senda fjármagn, sem t.d.
Rauði krossinn eða Rauði hálfmán-
inn notar á skynsamlegan hátt til
kaupa á hjálpargögnum, frekar en
að senda mat og fatnað vegna þess
að slík aðstoð berst yfirleitt miklu
seinna og oftar en ekki of seint.
Niðurlag
Við íslendingar búum í mjög fal-
legu en um margt hættulegu landi
þar sem við getum búist við
mannskæðum eldgosum og jarð-
skjálftum að ógleymdum stórslys-
um á sjó og í lofti. Við höfum haft
þá skynsemi til að bera að þróa
gott hópslysaskipulag undir yfir-
stjóm Almannavama ríkisins ásamt
því að hafa á að skipa vel þjálfuðum
björgunar- og greiningarsveitum.
Mjög mikilvægt er að halda áfram
reglubundinni endurskoðun og
þjálfun allra aðila því það er of
seint að iðrast þegar voðann ber
að höndum. Við þurfum þó í mun
ríkari mæli en við höfum gert hing-
að til að gefa meiri gaum að hætt-
unni á eiturefnaslysum.
Í hópslysaskipulagi og viðbúnaði
er og verður málshátturinn „Æfing-
in skapar meistarann" gulls ígildi.
styrkur. Er nauðsynlegt að ríkis- --------------------------------
stjóm hvers tíma styðji kröftuglega Höfundur er yfirlæknir á
við bakið á sveitinni ef og þegar slysadeild Borgarspítalans.
Þegar Biblían varð almeimings-
eign en án apokrýfu bókanna
eftir Árna Berg
Sigurbjörnsson
í grein eftir sr. Felix Ólafsson í
Morgunblaðinu 27. mars sl., sem
nefnist „Þegar Biblían varð almenn-
ingseign" getur hann greinar
minnar um Apokrýfar bækur Gamla
testamentisins* sem birtist í Ritröð
Guðfræðistofnunar Hákskóla ís-
lands, 4 1990. Kveður sr. Felix mig
þar fara með rangt mál og getgát-
ur um að m.a. skosk áhrif hafi vald-
ið því að apokrýfu bókunum var
sleppt úr Biblíu þeirri sem skoski
presturinn Ebeneser Henderson
dreifði hér á landi 1814 og 1815,
en það er fyrsta Biblían á íslensku
sem ekki heur apokrýfu bækurnar
að geyma. Segir sr. Felix Skota
ekki hafa haft néin áhrif á gerð
útgáfunnar og ekki heldur Biblíufé-
lagið í Edinborg.
Sú fullyrðing sr. Felix er undar-
leg því að Biblíufélagið í Edinborg
lét sig mjög varða útgáfu ritningar-
innar á íslensku. Meðal annars lét
félagið árið 1810 mikla fjárhæð af
hendi rakna til þess verkefnis. Um
það get ég mér einskis til, því að
fyrir því hefyég ekki lakari heimild
en sr. Felix Ólafsson, sem segir frá
þessu á bls. 100 í bók sinni Ebenez-
er Henderson, Bibelselskabets stift-
er (Kaupmannahöfn 1989). Og
hann kann frá fleiru að áþekku að
segja í þeirri bók sem mér láðist
að vitna til í grein minni. Og stórum
studdi Biblíufélagið í Edinborg út-
gáfu Nýja testamentisins sem unnið
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í
Svarta Pétri verður haldið
fimmtudaginn 1. apríl á Sólheim-
um í Grímsnesi. Keppt verður um
Islandsmeistaratitilinn Svarti
Pétur 1993. Mótið hefst kl. 15 og
lýkur kl. 18. Núverandi íslands-
meistari er Ragnar Ragnarsson,
Reykjavík.
Keppt verður um veglegan far-
andbikar og ýmis önnur aukaverð-
laun. Allir fá einhveija viðurkenn-
var að samtímis Biblíuútgáfunni
1813 og í tengslum við hana, og
hvor útgáfan hefur augljóslega haft
stuðning af hinni. Fyrir þessu eru
nægar heimildir og vitnað er til
þeirra í grein minni. Og heldur er
ósennilegt að Edinborgarfélagið
hafi ekki haft nein áhrif á gerð
þeirrar Biblíu á íslensku sem það
studdi svo mjög fjárhagslega.
Það er ljóst hvert viðhorf skoskra
kirkjudeilda og Biblíufélaga var til
apokrýfu bóka Gamla testamentis-
ins. Þau vildu úthýsa þeim úr Bibl-
íunni og gerðu það. Um það þurfti
ég einskis að geta mér til, enda
ekki hörgull heimilda.
Breska og erlenda Biblíufélagið,
sem stofnað var 1804, greiddi að
mestu leyti útgáfukostnað Bibl-
íunnar sem Henderson dreifði. Fé-
lagið stóð yfirleitt ekki að útgáfu
þeirra Biblía sem höfðu apokrýfu
bækurnar innan spjalda og aðeins
þar sem rík hefð var fyrir því að
þær væru í Biblíunni. Sú hefð var
rótgróin á íslandi, en rofin um sinn
með Biblíunni 1813. Frá hinu fyrsta
var mörgum sem höfðu sterk ítök
innan Breska og erlenda Biblíufé-
lagsins mjög í nöp við það að félag-
iði kostaði útgáfu apokrýfu bók-
anna, ekki síst skosku Biblíufélög-
unum. Það viðhorf þeirra og ýmissa
annarra að gera apokrýfu bækurn-
ar með öllu útlægar úr þeim Biblíum
sem Breska og erlenda Biblíufélag-
ið styrkti varð þó ekki ofan á fyrr
en árið 1827 eins og um getur í
grein minni. Áður en það varð hafði
mikið gengið á og lengi og mun
ingu fyrir þátttökuna. Mótið er fyrst
og fremst hugsað fyrir þroskahefta
en er oþið öllum til þátttöku sem
áhuga hafa á keppninni. Aðstoðar-
fólk verður við hvert spilaborð og
eru því ekki gerðar kröfur til þátt-
takenda um sérstaka spilahæfileika.
Skipulagðar sætaferðir verða frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl.
13 og komið til baka um kl. 19.30.
Fargjald er 1.000 krónur fyrir báðar
leiðir.
(Fréttatilkynning)
Árni Bergur Sigurbjörnsson
„Það er ljóst hvert við-
horf skoskra kirkju-
deilda og Biblíufélaga
var til apokrýfu bóka
Gamla testamentisins.
Þau vildu úthýsa þeim
úr Biblíunni og gerðu
það.“
lengur en sr. Felix lætur liggja að
í grein sinni. Um það þarf hvorki
ég né aðrir að geta mér neins til.
Nægar prentaðar heimildir eru um
neikvætt mat liðsmanna Biblíufé-
laganna í Edinborg og Glasgow og
fleiri á apokrýfu bókunum og illvíg-
ar deilur um þær á fyrstu áratugum
19. aldar á Bretlandseyjum og víð-
ar. Ekki er það uppbyggilegur lest-
ur frekar en það orðaskak sem ég
nú finn mig því miður knúinn til
að eiga í við fomvin minn sr. Felix
vegna þess á hvern hátt hann leiðir
mig til leiks í áðurnefndri grein
sinni.
Bein áhrif Hendersons sjálfs á
umfang og gerð Biblíunnar, sem
hann þó hafði umsjón með útgáfu
á og dreifði hér á landi, læt ég liggja
á milli hluta í ofannefndri grein
minni, get mér því einskis til um
þau, svo að mér finnst það hæpið,
svo ekki sé meira sagt, hjá sr. Fel-
ix að finnast þar fara mikið fyrir
getgátum og rangfærslum frá
minni hendi.
Höfundur er sóknarprestur í
Ásprestakalli.
Islandsmeistara-
mót í Svarta Pétri