Morgunblaðið - 01.04.1993, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR T. APRÍL 1993
Vinir o g ættingjar Þórðar Kristleifssonar glöddust með honum í gær
Hundrað ára
heiðursmaður
ÞÓRÐUR Kristleifsson frá Stóra-Kroppi, fyrr-
um menntaskólakennari á Laugarvatni og í
Reykjavík, fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær.
Fjölmargir heiðruðu hann í afmælisveislu á
Droplaugarstöðum, bæði ættingjar og vinir. Á
myndinni hér að ofan er barnakór úr A'ustur-
bæjarskóla, sem flutti nokkur lög, en Þórður
kenndi sjálfur söngfræði í mörg ár. Á mynd-
inni til hægri tekur Þórður við blómvendi og
heillaóskum frá ungum vini.
ý'jKt*.
Vextir á óverðtryggðum útlánum verða lækkaðir um V2-1% í dag
Seðlabankastj óri býst við
frekari lækkun síðar í apríl
BANKAR og sparisjóðir lækka í dag vexti óverðtryggðra
útlána almennt um Vi til 1%. Vextir verðtryggðra útlána
lækka ekki. Vextir af innlánum lækka almennt um 0,25 til
0,5%. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri telur að þessi lækk-
un sé full lítil miðað við aðgerðir Seðlabankans og lækk-
andi verðbólgu og býst hann við frekari vaxtalækkun síðar
í mánuðinum þegar bankarnir fá betri staðfestingu á ört
lækkandi verðbólgu. íslandsbanki hefur nú breytt flokkun
lántakenda, þannig að álag á vexti er breytilegt eftir þvi
hvaða tryggingu lántakandinn býður.
„Okkur finnst þetta vera í iægri
kantinum og ég held að það stafí
aðallega af því að bankamir séu
ekki búnir að taka að fullu tillit til
þeirrar lækkunar á verðbólgustigi
sem að ojckar mati er framundan,"
sagði Jóhannes Nordal þegar hann
var spurður hvort hann teldi að
bankarnir hefðu lækkað vexti sína
nægjanlega miðað við aðstæður.
Seðlabankinn hafði gert ráð fyrir
1-2% lækkun vaxta nú. „Það var
aldrei gott að meta hvað myndi koma
í þessum áfanga og má búast við
frekari breytir.gum síðar í mánuðin-
um,“ sagði Jóhannes. Hann sagði
ekki gott að meta breytingamar
vegna þeirra breytinga sem íslands-
banki er að gera á vaxtakerfi sínu.
Sagðist Jóhannes ekki enn hafa
fengið fullkomið mat á því hvað
kæmi að meðaltali út úr breyting-
unni hjá Íslandsbanka.
Bankastjóri Búnaðarbankans og
fleiri bankamenn hafa sagt að yfir-
lýsingar seðlabankamanna um
vaxtalækkun í tengslum við aðgerð-
ir bankans á dögunum stæðust ekki.
Jóhannes sagði, þegar þetta var
borið undir hann: „Við gerðum okk-
ur grein fyrir því að áhrif aðgerða
okkar á vaxtamun bankanna gætu
aldrei orðið 1-2%. Til viðbótar teljum
við að komi þó nokkur lækkun á
vöxtum óverðtryggðra útlána vegna
þess að verðbólgustig fer ört lækk-
andi. Það töldum við aðaláhrifín. Þá
teljum við að lækkun á ríkisvíxlum
eigi að hafa meiri áhrif á vaxtastig
bankanna en orðið er,“ sagði Jó-
hannes.
Ekki tilefni til
lækkunar raunvaxta
íslandsbanki lækkar vexti af
óverðtryggðum útlánum um
0,75-1%, þannig að vextir yfirdrátt-
arlána á tékkareikningum lækka um
1%, en allir aðrir vextir óverð-
tryggðra útlána um 0,75%. Nokkrir
flokkar vaxta óverðtryggðra innlána
lækka um 0,25 til 0,75%. Valur
Valsson bankastjóri sagði að bank-
inn meti stöðuna svo að þessi lækk-
un sé eðlileg, miðað við mat á verð-
bólguþróun. Bankinn metur verð-
bólguna nú 2,6% í stað 3,3% áður.
íslandsbanki telur að aðgerðir Seðla-
bankans í síðustu viku gefi svigrúm
til 0,05% lækkunar vaxtamunar. Við
þessar breytingar lækkar vaxtamun-
ur bankans lítillega og verður 2,6%.
íslandsbanki lækkar ekki raun-
vexti verðtryggðra útlána, frekar en
aðrir bankar. Valur sagði að það
væri vegna þess að raunvextir í land-
inu hefðu ekki farið lækkandi undan-
fama daga, fremur hækkandi.
Breytingar á vaxta-
álagi íslandsbanka
Jafnhliða vaxtabreytingum í dag
breytir íslandsbanki vaxtaálagi á
kjörvexti nýrra lána, til samræmis
við nýju alþjóðlegu eiginíjárreglurn-
ar, svokallaðar BlS-reglur. Þess
vegna er erfitt að meta vaxtabreyt-
ingar bankans nákvæmlega.
Með þessu vill íslandsbanki láta
þá njóta þess í lægri vöxtum sem
bjóða betri tryggingar og draga úr
áhættu bankans, að sögn Vals. Hann
sagði að með þessu væri verið að
beina lánveitingum til þeirra sem
gætu boðið betri tryggingar en aðrir
og ef það gengi eftir myndu vextir
heldur Iækka. Við ákvörðun vaxtaá-
lags hvers lánþega verður tekið tillit
til þeirra trygginga sem hann leggur
fram, auk hefðbundins mats á
greiðsluhæfi, en hin sjálfvirka flokk-
un lánþega verður aflögð. Eftir
þessa breytingu, sem hefur engin
áhrif á eldri lán, verður algengastu
vaxtaálag nýrra fasteignaveðlána á
bilinu 1,25 til 3%, en á bilinu 1,5 til
4% ef um lakari tryggingar er að
ræða.
Að sögn Vals getur þessi kerfís-
breyting ein og sér leitt til þess að
skilvís einstaklingur greiði 1% lægri
vexti ef hann býður sem tryggingu
mjög gott veð, til dæmis handveð í
auðseljanlegum verðbréfum. Þeir
sem legðu fram lökustu trygging-
amar, til dæmis sjálfskuldarábyrgð
í lakari hlutanum, gætu þurft að
greiða 0,75% hærri vexti en ella.
Einstaklingar með fasteignaveð
myndu lenda þarna á milli, eftir því
hvað þau teldust góðar tryggingar.
Traust fyrirtæki sem byði ömgga
tryggingu, til dæmis handveð í auð-
seljanlegum verðbréfum eða mjög
gott fasteignaveð, gæti lækkað vexti
sína um 1,25%. Fyrirtæki með trygg-
ingu í lakari kantinum, til dæmis í
viðskiptavíxlum, gæti þurft að
greiða 0,75% hærri vexti en nú.
Valur tók fram að þetta væru tilbú-
in dæmi sem hann setti fram með
miklum fyrirvara.
„Með þessu erum við að stíga stórt
skref í aðlögun íslenskra banka að
bankastarfsemi og vinnubrögðum í
nágrannalöndum okkar. Reynslan
verður að skera úr um hvemig til
tekst en ég vona að þetta hafi já-
kvæð áhrif þannig að hér verði
minna um útlánatap," sagði Valur.
Eins mikil lækkun
og tilefni er til
Sparisjóðimir lækka óverð-
tryggða útlánsvexti um 0,7 til 1%
og innlánsvexti, bæði verðtryggðra
og óverðtryggðra innlána, um 0,2
til 0,5%. Sigurður Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sparisjóða, sagði að með þessu væm
sparisjóðirnir að taka tillit tii að-
gerða Seðlabankans og lækkandi
verðbólgu. Hann sagðist telja að
með þessari breytingu væri búið að
lækka vexti eins mikið og aðstæður
nú gæfu tilefni til.
Sigurður sagði að vextir á eftir-
markaði og í útboðum á ríkisverð-
bréfum yrðu að lækka meira áður
en sparisjóðirnir gengju lengra í
vaxtalækkun. í þessu sambandi
benti hann á að innlánsvextir rikisins
í nýlegu útboði ríkisbréfa væm svip-
aðir og útlánsvextir sparisjóðanna.
Fyrirlestur
menntamála-
ráðherra
við Harvard
ÓLAFUR G. Einarsson mennta-
málaráðherra hefur tekið boði
Harvard-háskóla í Bandaríkj-
unum um að halda þar fyrir-
lestur 6. apíl nk. Ásamt Ölafi
fara Þórólfur Þórlindsson pró-
fessor og Guðríður Sigurðar-
dóttir ráðuneytisstjóri í
menntamálaráðuneytinu.
„í fyrirlestrinum fjalla ég um
breytingar á samstarfi í Evrópu á
sviði vísinda og menntamála, og velti
fyrir mér hvaða áhrif þessar breyt-
ingar kunna að hafa á æðri menntun
og vísindi. Þá fjalla ég um stöðu
Bandankjanna í þessu samhengi,“
sagði Ólafur.
Aðspurður sagði Ólafur að það
væri óvenjulegt að ráðhermm væri
boðið að halda fyrirlestra við Harv-
ard, en stofnunin hefði átt fmm-
kvæði að boðinu. Hann sagðist vera
þakklátur fyrir heiðurinn en líklega
væri hann fysti íslenski ráðherrann
sem héldi fyrirlestur við þessa þekktu
menntastofnun. Fyrirlestur Ólafs
nefnist á ensku: „Higher education
and research in the new European
contest — Is America being left out?
-----»-4—»-----
Skoðanakönnun DV
Sjálfstæð-
isflokkur
eykur fylgi
FYLGI Sjálfstæðisflokks hefur
aukist verulega frá síðustu
skoðanakönnun DV í janúar
að því er fram kemur í skoð-
anakönnun í blaðinu í gær.
Fylgi Alþýðuflokks hefur
minnkað töluvert sem og fylgi
Alþýðubandalags, en fylgi
Framsóknarflokks og Kvenna-
lista hefur minnkað lítillega.
í skoðanakönnun DV, sem blaðið
birti í gær, mældist fylgi Sjálfstæðis-
flokksins 37,3% en flokkurinn hlaut
38,6% atkvæða í síðustu þingkosn-
ingum. í síðustu skoðanakönnun
blaðsins fékk Sjálfstæðisflokkurinn
26,6%. Fylgi Framsóknarflokks
mældist 24,4%, flokkurinn hlaut
18,9% atkvæða í síðustu þingkosn-
ingum en 25,7% í síðustu skoðana-
könnun blaðsins.
Kratar tapa fylgi
Alþýðuflokkurinn tapar fylgi. Það
mældist 9,9%, flokkurinn hlaut
15,5% í síðustu þingkosningum en
12,2% í síðustu skoðanakönnun
blaðsins. Fylgi Kvennalistans mæld-
ist 13,3%, flokkurinn hlaut 8,3% í
síðustu þingkosningum en 14,1% í
síðustu skoðanakönnun blaðsins.
Fylgi Alþýðubandalagsins mældist
14,8% en flokkurinn hlaut 14,4% í
síðustu kosningum en 21,4% í síð-
ustu skoðanakönnun blaðsins.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns.
-----♦ ♦ ♦-----
■ TANGÓKL ÚBB UR Kram-
hússins heldur sitt fyrsta Tangó-
kvöld í Rósenbergkjallaranum
v/Austurstræti í kvöld, 1. apríl, frá
kl. 21 til 1. Markmið Tangóklúbbsins
er að skapa Langóhefð á Islandi með
því að halda tangókvöld einu sinni
í mánuði. Tangókvöld gefa tangóá-
hugafólki tækifæri til að hittast,
hlusta á tónlist tangósins og dansa.
Fjöldi Reykvíkinga hefur lært tangó,
en fram að þessu hefur þeim ekki
gefist tækifæri til þess að njóta
kunnáttu sinnar. Tilgangur Tangó-
klúbbs Kramhússins er að bæta úr
því og ryðja braut fyrir suður-amer-
ískri tangóhefð á íslandi. Reynir
Jónsson harmonikuleikari spilar.
Nánari upplýsingar eru veittar í
Kramhúsinu frá kl. 13-20.
(Fréttatilkynning)