Morgunblaðið - 01.04.1993, Qupperneq 37
Leikfélag Dal-
víkur frumsýn-
ir Strompleik
LEIKFÉLAG Dalvíkur frumsýnir í kvöld,
1. apríl kl. 21, Strompleik eftir Halldór
Laxness undir stjórn Þráins Karlssonar og
taka leikfélagsmenn sérstaklega fram í
frétt um leikinn að ekki sé um aprílgabb
að ræða.
Strompleikur er gamanleikur sem á löngum köfl-
um fer fram undir merki fáránleikans. Laxness
dregur upp að vanda kostulegt safn persóna sem
eiga það flestar sameiginlegt að lifa eða reyna að
lifa hver á öðrum. Leikinn um sníkjulífið nefndi
einn gagnrýnenda Strompleikinn þegar leikritið var
fyrst frumsýnt fyrir 32 árum, en það er margt
annað í verkinu en ádeila á sníkjulíf og brask.
Síðbúin kveðja
Strompleikur var frumsýndur árið 1961 í Þjóð-
leikhúsinu og kom samtímis út bók hjá Helgafelli.
Árið 1972 minntist Leikfélag Akureyrar sjötugsaf-
mælis skáldsins með því að að setja Strompleik
upp. Sýninguna á Dalvík ber að skoða sem síðbúna
kveðju í níræðisafmæli Halldórs Laxness sem var
í fyrra, en þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir
hann er sett upp hjá Leikfélagi Dalvíkur.
Alls koma 18 manns fram i Strompleik, en í
stærstu hlutverkum eru þau María Gunnarsdóttir,
Steinunn Hjartardóttir, Birkir Bragason, Hjörleifur
Halldórsson, Sigurður Lúðvígsson, Sigurbjörn Hjör-
leifsson og Þórarinn Gunnarsson. Alls koma rúm-
lega 30 manns nærri uppsetningunni.
Strompleikur verður sýndur 2., 3., 6., 7., og 10.
apríl, en fleiri sýningar hafa ekki verið ákveðnar.
Strompleikur
LEIKFÉLAG Dalvíkur hefur að undanförnu
æft Strompleik eftir Halldór Laxness og
verður verkið frumsýnt í kvöld. Myndin er
tekin á æfingu.
Krossanes skuldar hálfan milljarð
Hlutaféð aukið
um 50 milljónir
GAMALL skuldabaggi Krossanesverksmiðjunnar hafði í för
með sér að tæplega 53 milljónir króna tap varð af rekstri
síðasta árs, en hagnaður varð af rekstrinum fyrir fjármagns-
kostnað. Akureyrarbær leggur fram nýtt hlutafé, verið er _
að semja við Landsbankann um skuldbreytingu og þá hefur
sljórn heimild til að afla nýs hlutafjár að upphæð 50 milljónir.
Rekstrartekjur síðasta árs voru
336,7 milljónir króna og gjöldin
námu um 319 milljónum. Fyrir fjár-
magnsliði varð hagnaður af
rekstrinum upp á 17,6 milljónir
króna, en að teknu tilliti til m.a.
fjármagnskostnaðar varð tap af
rekstrinum upp á 52,9 milljónir.
Heildarskuldir verksmiðjunnar
nema 497 milljónum króna, en
lækka um 100 milljónir þar sem
Akureyrarbær yfirtekur hluta af
láni verksmiðjunnar og leggur fram
sem hlutafé.
Skuldabagginn
Hólmsteinn T. Hólmsteinsson,
formaður stjórnar Krossaness,
sagði að auk þessa væri verið að
semja við viðskiptabanka verk-
smiðjunnar, Landsbankann, um
skuldbreytingu á lánum og í kjölfar-
ið væri þess vænst að skapaðist
grundvöllur fyrir rekstri verksmiðj-
unnar.
Á síðasta ári tók verksmiðjan á
móti rúmlega 32 þúsund tonnum
af loðnu og síld, þá voru 10.160
tonn af beinum brædd hjá verk-
smiðjunni, tekið var á móti rúmlega
eitt þúsund tonnum af rækjuskel
til vinnslu og 788 tonnum af meltu.
í heild var tekið á móti um 46 þús-
und tonnum af hráefni á síðasta
ári sem er meir en helmingi meira
en árið á undan.
Þurrkarinn
Alls voru framleidd rúm 8 þúsund
tonn af mjöli og 4.325 tonn af lýsi.
Heildarframleiðsluverðmæti nam*rr
318,7 milljónum. Á launaskrá hjá
fyrirtækinu voru 32, sem jafngildir
um 15 ársverkum, en launagreiðsl-
ur námu tæplega 29,8 milljónum.
Að sögn Hólmsteins er verið að
ljúka viðgerð á mjölsílói og fyrir
liggur á næstu einu til tveimur árum
að laga þak verksmiðjunnar sem
einungis var gert við til bráðabirgða
eftir bruna fyrir þremur árum. Þá
leggur verksmiðjan kapp á að selja
30 milljóna þurrkara.
Mývatnssveit
Mannfjöldi
kom á vél-
sleðamót
Björk, Mývatnssveit.
VELSLEÐAMÓT var haldið í
Mývatnssveit, skammt frá
Kröfluvirlqun, föstudag og
laugardag, 26. og 27. mars.
Á föstudag var veður frekar óhag-
stætt, hríðannugga og skyggni
slæmt, en á laugardag var veður
aftur á móti frábært, logn og sólskin
og mikill mannfjöldi á mótsstað og
mergð vélsleða.
Lokahóf var haldið í Skjólbrekku
á laugardagskvöldið, þar voru afhent
verðlaun og dansleikur á eftir.
Björgunarsveitin Stefán, Slysa-
vamadeild kvenna, Hringur og
íþróttafélagið Eilífur sáu um móts-
haldið.
Kristján
Rithöf-
undur gef-
ur málverk
THOR Vilhjálmsson rit-
höfundur er þekktari fyr-
ir ritlist sína en málara-
list, sem hann fæst nokkuð
við þó ekki hafi borið mik-
ið á því.
Þá hann var á Húsavík nú ný-
lega færði hann Safnahúsinu á
Húsavík tvö listaverk eftir sig
og er Safnahúsinu fengur að
því, þar sem það hefur lagt sig
fram um að eignast listaverk
eftir Þingeyinga búsetta í hér-
aði og utan. Thor Vilhjálmsson
afhenti Guðna Halldórssyni,
forstjóra safnsins, listaverkin.
Morgunblaðið/Hólmfríður
600 tonn af fiski
til Hríseyjar
FRÁ áramótum hafa verið
flutt um 600 tonn af fiski sem
sjómenn í Grímsey hafa aflað
til vinnslu í frystihúsi KEA í
Hrísey. Tíð hefur verið afar
rysjótt í vetur, en sjómenn hér
njóta nálægðar við miðið og
hafa nánast skroppið á sjó
milli élja. Þrátt fyrir leiðinda
tíð hefur fískast ágætlega þeg-
ar gefur. Gunnar Hannesson
var að landa einu tonni af
' slægðum þorski í Grímsey á
dögunum, en hann er eini sjó-
maðurinn þar sem ekki leggur
upp afla sinn hjá KEA.
Islenskur skinnaiðnaður tapaði 95 milljónum króna á síðasta ári
Þijátíu og einum starfs-
manni sagt upp störfum
ÞRJÁTÍU og einum starfsmanni íslensks
skinnaiðnaðar hefur verið sagt upp
störfum, en það jafngildir fækkun um
25 ársverk. Uppsagnirnar taka gildi 9.
júlí næstkomandi eða þegar sumarfrí
hefjast hjá verksmiðjunni. Meginþorri
þessara starfsmanna vinnur á kvöld-
vakt. Félagið tapaði um 95 milljónum
króna á síðasta ári og tekjur drógust
saman um tæp 4%, einkum vegna svipt-
inga í gengismálum í Evrópulöndum.
Með uppsögnunum er verið að bregðast við
breyttum gengis- og efnahagsforsendum í helstu
markaðslöndum fyrirtækisins, að því er segir í
fréttatilkynningu frá íslenskum skinnaiðnaði.
Frá því um miðbik síðasta árs hefur gengi mynt-
körfu félagsins lækkað um 12% þrátt fyrir 6%
gengisfellingu krónunnar. Á sama tíma hefur
innkaupamynstur viðskiptavina félagsins breyst
og er aðalsölutímabilið nú meira bundið við mitt
ár. Hefur félagið að undanförnu undirbúið sig
til að mæta því, en horfur þykja hins vegar óljós-
ar varðandi haustið og því óhjákvæmilegt annað
en draga saman í mannahaldi.
Úttekt á rekstri
Unnið er að úttekt á öllum markaðs-, rekstr-
ar- og efnahagsþáttum fyrirtækisins með það
að leiðarljósi að marka leiðir til að treysta rekstr-
argrundvöll þess í Ijósi breyttra forsendna og
er niðurstöðu að vænta í lok apríl.
Á aðalfundi félagsins sem haldin var í síðustu
viku kom fram að tap af rekstrinum nam 94,8
milljónum króna á síðasta ári, en hagnaður fyr-
ir afskriftir og fjármagnskostnað var 93,1 millj-
ón eða 12,8% af veltu. Afskriftir voru 54,2 millj-
ónir og fjármagnsgjöld 133,7 milljónir, en eigið
fé fyrirtækisins í árslok var 135,5 milljónir króna.
Á síðasta ári voru ársverk hjá fyrirtækinu 193
og hafði fækkað um 13 frá fyrra ári.