Morgunblaðið - 01.04.1993, Síða 46
46
—
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
MUSIKTILRAUNIR
LOKA undanúrslitakvöld Músíktilrauna Tóna-
bæjar verður haldið í kvöld, en undanfarnar
vikur hefur á þriðja tug hljómsveita keppt um
sæti í úrslitum, sem verða á morgun. Þegar
hafa sex hljómsveitir tryggt sér sæti í úrslitum
og tvær bætast við í kvöld. Keppt er um hljóð-
verstíma nú eins og áður, en fyrstu verðlaun
verða 25 tímar í Sýrlandi, fullkomnasta hljóð-
veri landsins, önnur verðlaun 26 tímar í Grjót-
námunni, þriðju verðlaun 20 tímar í Hljóðrita
og fjórðu verðlaun 20 tímar í Hljóðhamri. Að
auki fá sigurvegararnir ýmis önnur verðlaun
sem Japis, Samspil og Paul Bernburg gefa, en
Hljóðfæraverslun Steina gefur besta gítarleik-
ara úrslitanna gítar. Stuðningsaðilar eru þó
fleiri, því Hard Rock Café, Coca Cola, Jón
Bakan og Pizzahúsið leggja hönd á plóginn.
Að þessu sinni eru Músíktilraunir Tónabæjar í
samvinnu við Rás 2, sem kynnt hefur tilraunirn-
ar og sendir út úrslitakvöldið.
Að venju er mikið um utanbæjarsveitir loka-
kvöldið, enda hentar það betur ef þær ná úr-
slitasæti. Athygli vekur að þrjár sveitir koma
frá Neskaupstað, sem bendir til mikillar grósku
þar í bæ. Einnig eru sjaldséðar sveitir af Vest-
fjörðum en ein slik tekur þátt að þessu sinni.
Árni Matthíasson tók saman
Norðansveitina Tombstone skipa Baldur Ringsted og Jó-
hannes Már Sigurðsson gítarleikarar, Jón Bjöm Ríkharðs-
son trommuleikari, Þormóður Aðalbjömsson söngvari og
Aðalsteinn Jóhansson bassaleikari. Sveitarmenn segjast
leika „bara rokk“, en játa að það sé í þyngri kántinum er á
þá er gengið. Meðalaldur er í kringum átján ár.
9 ;■ | > j
Urmull
Urmull kemur frá ísafírði, en þaðan hefur ekki komið til-
raunasveit í áraraðir. Urmlar era Jakob Símon Jakobsson
bassaleikari, Guðmundur Birgir Halldórsson og Stefán
Baldursson gítarleikarar, Davíð Sveinsson trommuleikari
og Hjalti Ágústsson söngvari. Meðalaldur þeirra félaga er
rúm átján ár og þeir segjast leika þungt rokk, sem ekki sé
þó rétt að kalla þungarokk.
Burkni bláálfur
Morgunblaðið/Kristinn
Burkni bláálfur tók einnig þátt í síðustu Músíktilraunum,
en þá undir nafninu Dyslexia. Nokkrar mannabreytingar
hafa orðið í sveitinni, sem er hornfírsk, en hún er nú tríó
þeirra Sigfúss Más Þorsteinssonar bassaleikara, Jóns Þórð-
arsonar gítarleikara og Eymunds Ragnarssonar trommu-
leikara. Bláálfamir leika þungarokk, eða bara þungt rokk,
en meðalaldur sveitarmanna er rúm nítján ár.
Fast á hæla sveitunganna í Allodimmug kemur Lilli gó frá
sama stað. Lilla gó skipa Einar Björn Jónsson gítarleikari,
Helgi Guðmundsson söngvari, Snorri Halldórsson bassaleik-
ari og Pétur Hreiðar Freysteinsson trommuleikari. Meðal-
aldur er tæp nítján ár, en sveitin leikur melódískt þunga-
rokk.
Unhuman Casualties
Akureyrarsveitin Unhuman Casualties er skipuð þeim Hirti
Halldórssyni og Ara Fannari Vilberssyni gítarleikuram,
Gunnbirni Amljótssyni trommuleikara, Sigurði Pálmasyni
bassaleikara og Áma Jökli Gunnarssyni rymjara. Sveitin
leikur dauðarokk, en meðalaldur manna er rúm átján ár.
Blekking
Blekking heitir hljómsveit úr Vestmannaeyjum sem leikur
dansrokk og státar af einu söngkonu kvöldsins. Sveitina
skipa Þröstur Jóhannsson gítarleikari, Gísli Elíasson
trommuleikari, Unnþór Sveinbjömsson gítarleikari, Guðrún
Á. Ágústsdóttir söngkona og Arnþór Henrysson bassaleik-
ari. Meðalaldur þeirra er rúm sautján ár.
Stjánar
Stjánar koma frá Akureyri, en þeir era Rúnar Þór Snorra-
son söngvari, Heimir Hlöðversson orgelleikari, Matthías
Stefánsson gítarleikari, Orri Einarsson trommuleikari og
Atli Ólafsson bassaleikari. Þeir eru allir á sautjánda árinu
og leika gamaldags rokk, einfalt og gott.
Allodimmug
Allodimmug heitir ein þriggja sveita frá Neskaupstað sem
þátt taka þetta kvöld. Sveitina skipa Jón H. Kárason gítar-
leikari, Fjalar Jóhansson bassaleikari, Jón K. Ásmundsson
trommuleikari, Einar S. Guðmundsson hljómborðsleikari
og Hálfdán Steinþórsson söngvari. Meðalaldur er rúm sautj-
án ár, en þeir félagar leika rokk sem á rætur í áttunda
áratugnum.
Ævintýri Hans og Grétars
Ævintýri Hans og Grétars heitir þriðja sveitin frá Neskaup-
stað sem tekur þátt þetta kvöld. Hljómsveitin dregur nafn
sitt af bræðrunum Hans og Grétari Stephensen, og leikur
Grétar á gítar og syngur, en Hans leikur á bassa. Með þeim
í sveitinni era Pétur Freysteinsson trommuleikari og Hrafn-
kell Ásmundsson gítarleikari. Meðalaldur þeirra félaga er
nítján ár, en þeir leika hráa og hvassa nýbylgju.
Aðalfundur Ættfræðifélagsins
AÐALFUNDUR Ættfræðifélagsins 1993 var haldinn 25. febrúar sl.
Starfsemi félagsins er mjög góð, félagsfundir eru einu sinni í mán-
uði yfir veturinn og þá haldnir fyrirlestrar um ýmis ættfræðileg efni.
í félaginu era á sjötta hundrað fræði, ættfræðirannsóknum og út-
manns. Ættfræðifélagið er áhuga- gáfu frumheimilda og hjálpar-
mannafélag og er hlutverk þess að gagna, svo sem manntal, fyrir þá
stuðla að auknum áhuga á ætt- sem stunda þau þjóðlegu fræði sem
ættfræðin er.
Félagið hefur gefíð út manntölin
1801, 1816 og 1845 og þefur þau
til sölu. Nú vinnur það að undirbún-
ingi á útgáfu manntalsins 1910 í
samvinnu við Erfðafræðinefnd og
Þjóðskjalasafn.
Það er alltaf að aukast áhugi á
ættfræði, bæði í vísindaskyni og
meðal einstaklinga. Fólk er farið
að hugsa meira um hvaðan það er
komið. Sést það best á því unga
fólki, sem núna er að leita að upp-
runa sínum erlendis.
Ættfræðifélagið gefur út frétta-
bréf og eru þar birtir fyrirlestrar
og aðsent efni frá félögum. Þeir sem
áhuga hafa á ættfræði og vilja
ganga í félagið geta hringt í ein-
hvern úr stjórninni, en hana skipa:
Hólmfríður Gísladóttir formaður,
Guðmar Magnússon varaformaður,
Klara Kristjánsdóttir gjaldkeri,
Guðfinna Ragnarsdóttir ritari og
Kristín Guðmundsdóttir meðstjórn-
andi. í varastjórn eru: Kristín H.
Pétursdóttir og Ólafur G. Vigfús-
son.
(Fréttatilkynning)