Morgunblaðið - 01.04.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
47
„Hér hefur lítil fjöður
orðið að feitri hænu“
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá Davíð Stefáns-
syni við bókun sex útvarpsráðs-
manna sem lögð var fram á fundi
útvarpsráðs þann 5. mars 1993
og send öllum fjölmiðlum sama
dag:
„í sérstakri yfírlýsingu sex full-
trúa frá 5. mars sl. lýsa þeir furðu
sinni á málflutningi mínum í fjöl-
miðlum að undanförnu. Þar er sagt
að af þeim fréttum hafi mátt ráða
að ég sé einn um þá skoðun að
nauðsynlegt sé að spamaðar og
aðhalds sé gætt hjá Ríkisútvarpinu.
Vegna þessa er rétt að eftirfarandi
komi fram til að forðast frekari
misskilning:
I.
Ríkisútvarpið er opinber stofnun,
eign þjóðarinnar allrar. Mín skoðun
er engu að síður sú að umræður
i um fjárhagslega stöðu stofnunar-
innar eigi ekki að hefja í fjölmiðlum
nema menn telji mikla alvöru á ferð-
| um. Því árétta ég það sem ég hef
áður sagt á fundi útvarpsráðs:
Skoðanir mínar um fjárhag Ríkisút-
| varpsins hafa ekki verið til umfjöll-
unar í fjölmiðlum að mínu undirlagi
eða frumkvæði. Nú hefur meirihluti
útvarpsráðs hins vegar því miður
kosið að senda frá sér ályktun um
málfutning minn til allra helstu fjöl-
miðla í landinu. Því hlýt ég að svara.
Ég hygg reyndar að útvarpsmenn
hafi í umræðum um málið talað sig
upp í hita líkt og stundum getur
gerst á mannamótum. Það nægir
að segja að hér hafi lítil fjöður orð-
ið að feitri hænu.
II.
Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar hafði samband við mig að
I fyrra bragði og spurðist fyrir um
bókun mína er ég lagði fram við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar RÚV.
/ Að sjálfsögðu svara ég þeim spum-
' ingum sem upp kunna að koma
hennar vegna. Hins vegar tel ég
, rétt að leiðrétta félaga mína í út-
' varpsráði: Ekki var um að ræða
annan málflutning af minni hálfu í
fjölmiðlum. Morgunblaðið greindi
frá þessu máli en hafði þar bókun
mína eingöngu til umfjöllunar.
Lýsi menn því yfir að þeir séu
ósáttir við málfutning minn í um-
ræddu fréttaviðtali á Stöð 2 er
væntanlega verið að vísa til ein-
hvers sem ég á að hafa sagt um
að ég telji mig einan um þá skoðun
að meira aðhalds eigi að gæta í
rekstrinum. Það sagði ég hins veg-
ar aldrei né gaf í skyn í viðtali við
fréttamenn Stöðvar 2.
Hugsanlegt er að menn séu hér
að vísa tii þess að ég hafi átt að
5 koma því að í fréttinni að fleiri
væru mér sammála. En hvert erum
við þá komin: Mér er fundið það
til foráttu að hafa látið eitthvað
ósagt um skoðanir annarra í frétta-
viðtali þar sem ég var spurður um
mína skoðun á málinu. Því er nú
einu sinni þannig farið að undirrit-
aður hefur lítið með fréttastjóm
Stöðvar 2 að gera né annarra fjöl-
miðla í landinu. Því ættu fulltrúar
í útvarpsráði að gera sér grein fyr-
ir. Fréttin um álit mitt tók rúmar
tvær mínútur í flutningi. Þar af var
viðtalið við mig um eina og hálfa
mínútu. Það segir sig sjálft að ekki
gefst tækifæri til að ræða fjármál
RÚV ýtarlega í örstuttu viðtali. Ég
harma ef fréttin hefur valdið mis-
skilningi fyrir það sem ég sagði
ekki, en þar virðist mér hundurinn
grafinn. Fátt annað er hægt að
segja um málið.
Ég sagði í umræddu viðtali að
meira aðhaldi ætti að beita í rekstr-
inum. Ég sagði aldrei né gaf í skyn
að ekkert sparnaðarátak hefði átt
sér stað. Ég játa að betra hefði
verið að greina frá því, líkt og ég
gat um í bókun minni. Þetta á sér-
staklega við um hljóðvarpshlutann.
Skiljanlega getur mönnum þar á
bæ sámað eftir að hafa náð tals-
verðum niðurskurði í rekstrinum.
En í viðtalinu, sem og í bókun minni,
var ég að ræða um Ríkisútvarpið í
heild sinni. Það er mönnum full-
kunnugt um.
III.
Það hefur aldrei hvarflað að mér
að halda því fram að ég sé einn
um þá skoðun að nauðsynlegt sé
að sparnaðar og aðhalds sé gætt
hjá Ríkisútvarpinu, eins og ýjað er
að í ofangreindri bókun sexmenn-
inganna. Þvert á móti hefur það
komið fram á fundum útvarpsráðs
síðustu vikur að flestir virðast þess-
arar skoðunar.
Þetta kemur skýrt fram í bókun
minni er ég lagði fram við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið
1993, en þar segir m.a.: „Það er
mat flestra sem um fjármál RÚV
fjalla að nú sé ótíð í rekstrarum-
hverfi stofnunarinnar vegna mikils
samdráttar í öflun auglýsingatekna.
Þess sér augljóslega merki í fjár-
hagsáætlun Ríkisútvarpsins fyrir
yfirstandandi ár. Hins vegar er það
skoðun undirritaðs að við því verði
að bregðast með enn frekari niður-
skurði í rekstri." Á öðrum stað seg-
ir einnig: „Fyrir nokkrum misserum
lýstu menn því yfir hér í útvarps-
ráði sem og í framkvæmdastjóm
Ríkisútvarpsins að stefna bæri að
lækkun á yfirdráttarskuld á við-
skiptareikningi RÚV í Landsbanka
Íslands."
Þótt erfitt sé að tilgreina einn
mann öðrum fremur í tengslum við
umræðu um skuldastöðu RÚV hygg
ég að flestir séu sammála um að
nefna beri fjármálastjóra stofnun-
arinnar, Hörð Vilhjálmsson. Hann
hefur oft hin síðari ár minnt á
hversu erfitt það er fyrir stofnunina
til lengdar að bera þann bagga sem
yfirdráttarskuldin er.
IV.
Ég vil nota þetta tækifæri og
fagna ofangreindri bókun þeirra
sexmenninga. Hún er afdráttarlaus
um það að hætta beri skuldasöfnun
Ríkisútvarpsins og aðlaga rekstur-
inn tekjum stofnunarinnar, en ekki
öfugt. Hins vegar hlýt ég að minna
á enn aðra bókun sem þessi sömu
aðilar lögðu fram á fundi útvarps-
ráðs við afgreiðslu fjárhagsáætlun-
ar fyrir árið 1993. Þar segir m.a.
að útvarpsráð telji fjárveitingar til
innlendrar dagskrárgerðar óviðun-
andi. Því var ég sammála. Hins
vegar segir jafnframt í bókuninni
að útvarpsráð samþykki fyrirliggj-
andi fjárhagsáæltun .....í trausti
þess að verulegur hluti þess sparn-
aðar sem að er stefnt í hinum ýmsu
deildum Ríkisútvarpsins á árinu
1993 verði notaður til að 'iuka inn-
lenda dagskrárgerð ..." Þessu var
ég ósammála. Nær hefði verið að
nota hugsanlegan sparnað til að
grynnka á títtnefndum skuldum,
eins og flestir virðast vera sammála
um. En það verður ekki bæði sleppt
og haldið. y
Ég stend fyllilega við það sem
ég sagði í bókun minni við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar. Fjármál.
RÚV eru ekki á ábyrgð útvarpsráðs
nema það komi hugsanlega niður á
dagskrárgerð. Vegna þess verður
að beita meira aðhaldi í rekstrinum.
Skuldir á yfirdrætti í árslok undan-
farin ár segja sína sögu: Árið 1900
var skuldin sú um 213 milljónir
króna, 230 milljónir króna í árslok
1991 og 167,6 milljónir króna um
síðustu áramót. í ár var í fjárhags-
áætluninni reiknað með því að auka
þessa skuld énn um 10%. Reyndar
hefur nú komið fram að breyta eigi
yfirdrættinum í fast lán sem greitt
yrði upp á þremur árum. Ég fagna
því eins og aðrir útvarpsráðsmenn.
Ég ítreka að ofangreint er fyrst
og fremst sagt með hag Rikisút-
varpsins í huga. Skuldasöfnun nú
kemur niður á rekstri í framtíðinni
og það hlýtur fjölmörgum vinum
Ríkisútvarpsins að sáma.
Sparnaður hjá RÚV verði að
stærstum hluta nýttur til að
auka innlenda dagskrárgerð
VIÐ GERÐ fjárhagsáætlunar Rík-
isútvarpsins vegna ársins 1993
hefur hagræðing og sparnaður
verið leiðarljós. Á fundi Útvarps-
ráðs föstudaginn 5. mars, var eft-
irfarandi samþykkt:
„Undirritaðir Útvarpsráðsmenn
lýsa yfir furðu sinni vegna málflutn-
ings Davíðs Stefánssonar í fjölmiðl-
um að undanförnu. Af þeim fréttum
mátti ráða að hann væri einn um
þá skoðun að nauðsynlegt sé að
sparnaðar og aðhalds sé gætt hjá
Ríkisútvarpinu.
Við undirbúning og afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar 1993 hefur þvert á
móti komið fram að útgjöld verða
skorin verulega niður og allur rekstur
yfirfarinn með hagræðingu í huga.
Útvarpsráð hefur itrekað fundið
að því að viðskiptareikningur Ríkis-
útvarpsins í Landsbanka sé yfirdreg-
inn.
Með þeirri rekstrarlegu úttekt
sem nú er hafin er m.a. stefnt að
því að grynnka á þessari skuld.
Halldóra J. Rafnar, Guðni Guð-
mundsson, Gissur Pétursson, Kristín
A. Árnadóttir, Hjálmar Jónsson og
Valþór Hlöðversson.“
A síðasta fundi Útvarpsráðs 26.
febrúar sl. var eftirfarandi bókun
samþykkt af Halldóru J. Rafnar,
Guðna Guðmundssyni, Ástu R. Jó-
hannesdóttur, Kristínu A. Árnadótt-
ur, Hjálmari Jónssyni og Valþóri
Hlöðverssyni en Davíð Stefánsson
sat hjá:
„Vönduð innlend dagskrárgerð á
að vera metnaðarmál íslensks fjöl-
miðils. Útvarsráð telur þær tillögur
um ijárveitingar til innlendrar dag-
skrárgerðar í Sjónvarpinu er fram
koma í ijárhagsáætlun 1993 óvið-
unandi.
En í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu
og í trausti þess að verulegur hluti
þess sparnaðar sem að er stefnt í
hinum ýmsu deildum Ríkisútvarps-
ins á árinu 1993 verði notaður til
að auka innlenda dagskrárgerð í
Útvarpi og Sjónvarpi samþykkir
Útvarpsráð fyrirliggjandi fjárhagsá-
ætlun.
Ráðið gerir þó fyrirvara og áskilur
sér rétt til endurskoðunar við af-
greiðslu sumarramma í apríl.“
(Fréttatilkynning)
Erruívandræðum...O
... meö fermingargjöfina !
Stimpilpenni er glæsiieg gjöf!
PDæsttqps
Simi 47 1900
fótboltaskór
Verð kr. 3.490
Rio Plus M st. 39-46
Verð kr. 4.490
Air Accolade M st.41-45
Verð kr. 8.980
■r
ÚTILÍFP
GLÆSIBÆ . S/MIB12922
ORTILBOÐ AEG
ttiais
Hjá Bræðrunum Ormsson
bjóðast þér nú þýsk gæða
heimilistæki frá AEG
á sérstöku tilboðsverði.
AEG Þú hleypir ekki hverjum
sem er í húsverkin.
Uppýsingar um
umboðsmenn hjá
\m
IIBB
bræðurnir
Í©T (miSSON HF
Lágmúla 8 — 9
Gildir til 7. maf 1993.
m
|]
AEG orbylgjuofn MC, 125 w, digitol, 850 w
Verð óður kr. 34.180,-
Tiiboð kr. 27.900,- stgr.
AEG þvottavél lavamot, 645 w, 1200 sn/pr. min
Verðóðurkr. 99.381,-
Tilboðkr. 79.900,-stgr.
j | -
AEG kæiiskópur Sonto, 3200 kg., 170x60x60
Verðóðurkr. 73.303,-
Tilboð kr. 61.900,- stgr.