Morgunblaðið - 01.04.1993, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
77T
Finnur Stephen-
sen - Minning
Já, þannig endar lífsins sólskinssaga.
Vort sumar stendur aðeins fáa daga.
En kannske á upprisunnar mikla morpi
við mætumst öll á nýju götuhomi.
(Tómas Guðmundsson.)
Það syrti að á einum fegnrsta
degi sem komið hafði á þessum
vetri þegar hringt var í okkur og
tilkynnt að Finnur Stephensen hefði
látist þá fyrr um daginn. Þetta var
23. mars sl. Banameinið var
krabbamein. Okkur fannst það
snöggt, því að um tíma virtist góð
batavon. En þá kom höggið. Maður
verður svo lítill og máttvana á svona
stundu.
Okkar kynni hófust 1974 og vor-
um við þess aðnjótandj að eiga
hann og Mundu að vinum í um 20
ár. Finnur var vel greindur og því
sérlega gott að leita til hans og það
að hafa haft hann innan handar í
sambandi við fjármál fyrirtækis
okkar hefur verið okkur ómetan-
legt. Með Finni er genginn mikill
og ljúfur góður drengur sem verður
sárt saknað. Við eigum margar
hugljúfar minningar tengdar þeim
hjónum og teljum Finn hafa verið
mikinn gæfumann í sínu einkalífi.
Megi Guð veita Mundu og börnum
styrk í sorg þeira.
r Blóm Skreytingar Gjafavara
Kransar Krossar Kistuskreytingar
Opið alla daga frá kl. 9-22
Fákafeni 11
s. 68 91 20
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Munda, Eiki, Borghildur
og Gyða. Við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð.
Elísa og Jóhann.
Kveðja frá Selfossi
í dag verður gerð útför Finns
Stephensen skrifstofustjóra frá
Dómkirkjunni í Reykjavík. Finnur
fæddist í Reykjavík 2. apríl 1930 og
var því tæplega 63 ára er hann lést.
Foreldrar hans voru hjónin Eiríkur
Stephensen, forstjóri vátryggingafé-
lagsins Trolle og Rothe, og Gyða
Finnsdóttir Stephensen. Þau Eiríkur
og Gyða bjuggu alla sína búskapar-
tíð í Reykjavík. Þau eignuðust fjögur
böm og var Finnur þeirra elstur,
næstelst er Áslaug, sem gift var
Jóni Haraldssyni tannlækni og arki-
tekt, sem lést árið 1989. Þá var Ólaf-
ur bamalæknir, sem lést sviplega
árið 1980. Hann var kvæntur Theó-
dóm Sigurðardóttur sálfræðingi.
Yngst þeirra systkina er Steinunn
Ragnheiður, ljósmóðir og meina-
tæknir. Þær systumar Aslaug og
Steinunn starfa við rannsóknir hjá
Krabbameinsfélagi íslands.
Finnur kvæntist Guðmundu Sig-
ríði Guðmundsdóttur frá Ísafírði 26.
t
Dóttir mín,
ANNE-MERETE GUNNARSDÓTTIR CLAUSEN,
lést f Kaupmannahöfn 23. mars. Jarðarförin hefur farið fram.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Gunnar Már Pétursson.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
BJARNEY HELGADÓTTIR,
Múla,
'• Húsavík,
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju iaugardaginn 3. apríl
kl. 14.00.
Börn og tengdabörn hinnar látnu.
Frænka okkar, + INGA FINNBOGASON,
Kaupmannahöfn,
áður Hátúni 4,
Reykjavfk,
lést 10. mars sl.
Útförin hefur farið fram.
Ásdís, Edith og Þóra Gísladætur.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
dóttir, systir og amma,
SVANDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR,
Yrsufelli 13,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu þann 28. mars,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 6. apríl kl. 13.30.
Jóhannes R. Jensson,
Hulda Jensdóttir,
Helena Jensdóttir,
Kristján A. Kristjánsson,
Kristján A. Kristjánsson,
og barnabörn.
Eria B. Einarsdóttir,
Bjarni Sigurðsson,
Árni Ingvarsson,
Hulda Jónsdóttir,
Sólborg M. Kristjánsdóttir
febrúar 1955. Foreldrar hennar vom
Guðmundur Benediktssan, skipstjóri
á ísafirði, og Borghildur Magnús-
dóttir, veitingakona. Finnur og Guð-
munda eignuðust þijú börn. Elstur
er Eiríkur, skrifstofumaður, fæddur
28. maí 1955. Næst í röðinni er
Borghildur, bókasafnsfræðingur á
Landsbókasafni. Hún er fædd 4. júní
1963. Yngst þeirra systkina er Gyða,
fiðluleikari, fædd 5. janúar 1969.
Hún er við framhaldsnám í fiðluleik
í Rotterdam í Hollandi.
Finnur lauk prófí frá Verslunar-
skóla íslands vorið 1949 og réðst þá
strax til starfa hjá Samábyrgð Is-
lands á fískiskipum og hjá því fyrir-
tæki starfaði hann allt til dauða-
dags, fyrst sem bókari, síðan sem
aðalbókari og frá árinu 1962 var
hann skrifstofustjóri. Að Finni stóðu
sterkir stofnar. í föðurætt var hann
kominn af hinni þekktu ætt Stefán-
unga, hann var sjöundi ættliður í
beinan karllegg út af Ólafí Stepháns-
syni stiftamtmanni og þar með
fimmti frá Magnúsi Stephensen kon-
ferensráði háyfírdómara við Lands-
yfírréttinn. Eiríkur faðir Finns var
sonur sr. Ólafs Stephensen og Stein-
unnar Eiríksdóttur Stephensen frá
Karlsskála við Reyðarfjörð. Gyða,
móðir Finns, var dóttir Finns Thord-
arson frá Skálmamesmúla í Gufu-
dalssveit. Hann var kaupmaður, bak-
ari og sænskur konsúll á ísafírði.
Móðir Gyðu var Steinunn Guðmunds-
dóttir frá Gemlufelli í Dýrafírði, og
rak matsölu á ísafírði.
Finnur var aðeins fjögurra ára er
ég sá hann fyrst. Foreldrar mínir
fluttust árið 1934 frá Reyðarfirði til
Selfoss. Við komum að austan með
strandferðaskipinu Súðinni frá Reyð-
arfírði til Reykjavíkur og þar dvöld-
umst við í nokkra daga áður en hald-
ið var austur yfír Hellisheiði. Við
bjuggum hjá frændfólki í Reykjavík.
Foreldrar mínir ásamt yngsta bróður
mínum hjá Stephan Stephensen móð-
urmóður mínum á Bjarkargötu 4 en
við eldri bræðumir voram vistaðir á
Grandarstíg 19 hjá föðursystur móð-
ur minnar, þeim Stephensen-systram
Elínu og Mörtu. Þangað kom Eiríkur
móðurbróðir minn með Finn son sinn
til að heilsa upp á þessa frændur
sína sem hann hafði aldrei áður séð,
og þama voru okkar fyrstu fundir.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
Arið eftir kom Finnur austur að Sel-
fossi, sem sumarstrákur, og var það
árlega í mörg næstu ár. Faðir minn
var héraðsdýralæknir í mjög stóra
héraði, eða öllu Suðurlandi. Hann
þurfti að ferðast mjög mikið í emb-
ættiserindum bæði ríðandi og á bílum
því hann varð að fara einu sinni á ári
í það minnsta á hvem bæ sem seldi
mjólk til eftirlits. í mörg sumur var
Finnur ferðafélagi hans og þeir urðu
mjög góðir vinir sem entist meðan
báðir lifðu.
Löngu seinna en þetta gerðist
stofnuðum við frændur og vinir
ferðafélag sem við skírðum Áfanga
og var tilgangurinn að skoða saman
landið okkar í áföngum. Við ferðuð-
umst saman á hverju sumri eina eða
fleiri ferðir. Farið var nær eingöngu
um óbyggðir og var oftast verið þrjá
daga og jafnvel í viku. Fyrsta ferðin
var farin sumarið 1956 og í rúm 30
ár ferðuðumst við félagamir saman,
en þegar okkur fannst vera farið að
þrengja að okkur í óbyggðum hætt-
um við. Síðasta ferðin var farin 1987.
Við félagamir voram 16 að tölu,
átta áttu heima vestan Hellisheiðar
og átta austan. Þetta var glaðvær
hópur, sem naut þess að ferðast sam-
an og njóta fegurðar landsins okkar.
Fimm félaganna hafa lagt í lengra
ferðalag yfir móðuna miklu, sem
skilur að líf og dauða, og síðastur
þeirra er Finnur frændi minn.
Að leiðarlokum kveðjum við
frændfólkið á Selfossi Finn Steph-
ensen og við sendum Guðmundu,
Eiríki, Borghildi og Gyðu innilegar
samúðarkveðjur og biðjum algóðan
Guð að styrkja þau í sorg þeirra.
Páll Jónsson.
Hann Ninni frændi var góður
frændi. Hann var höfðingi heim að
sækja og góður gestur, hress og
skemmtilegur. Ninni tók ástfóstri við
son minn, Harald Ara. Milli þeirra
var fallegt samband. Það var
afasamband.
Ninni kom ætíð færandi hendi.
Hann gaf Haraldi m.a. lítinn, bláan
stól, sem heitir nú Ninnastóll. Har-
aldur Ari fór í heimsókn til Ninna
og bað um kók. Hann fékk kók. Þá
sagði Haraldur: Skál. Ég segi: Skál
fyrir Ninna. Hann var góður maður
með stórt hjarta.
Þegar Haraldi Ara var sagt að
Ninni væri dáinn sagði hann við mig
nokkram dögum síðar upp úr eins
manns hljóði: Ninni hjá Guði. Bætti
reyndar við: Haraldur Ari hjá Guði.
En hvað vitum við um hvað böm sjá
og skynja. Ef til vill var Ninni bara
kominn til að kveðja litla vin sinn.
Ég óska Ninna frænda mínum
+
Eiginmaður minn,
KARL ÓSKAR FRÍMANNSSON,
Reynimel 48,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 30. mars.
Kristfn H. Jónsdóttir.
Bróðir okkar og mágur,
GESTUR EINARSSON
Ijósmyndari,
Austurbrún 4,
Reykjavik,
er lést 15. þ.m., verður jarðsunginn fré Selfosskirkju föstudaginn
2. apríl kl. 15.00.
Ágústa Einarsdóttir, Guðjón Styrkársson,
Páll Einarsson.
+
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
SELMA DÓRA
ÞORSTEINSDÓTTIR,
formaður Fóstrufélags íslands,
Raufarseli 5,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 2. apríl kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er
bent á Rannsóknasjóð leikskóla, sem
Fóstrufélag íslands hefur stofnað í minningu hennar.
Guðjón Ágústsson,
Þorsteinn Pétur Guðjónsson, Hrefna Ýr Guðjónsdóttir.
góðrar ferðar inn í hinar grænu lend-
ur og konu hans og börnum sendi
ég mínar innilegustu samúðarkveð-
ur.
Stefán Jónsson.
I dag verður til moldar borinn
Finnur Stephensen, skrifstofustjóri
Samábyrgðar íslands á fískiskipum,
en hann lést þann 23. mars 1993.
Fyrir ungan mann, sem kemur nýr
að verki, er fátt mikilvægara en
kynni af mönnum sem taka honum
sem jafningja og era reiðubúnir að
leggja honum lið með þekkingu sinni
og reynslu. Þannig maður var Finnur
Stephensen, skrifstofustjóri Sam-
ábyrgðar íslands á fískiskipum.
Kynni okkar hófust fyrir um átta
áram, þegar ég tók sæti í stjórn
Samábyrgðar Islands. Á sinn lát-
lausa og vingjarnlega hátt var hann
tilbúinn að liðsinna og veita ráðlegg-
ingar um þau málefni Samábyrgðar-
innar, sem þörfnuðust úrlausnar
hveiju sinni. Með okkur tókst frá
upphafi mjög gott samstarf, sem
reyndist ómetanlegt veganesti og hér
er þakkað fyrir heilshugar núna þeg-
ar leiðir skiljast.
Hógværð, prúðmannleg framkoma
og gott skopskyn var einkennandi í
fari Finns. Ég minnist með ánægju
þeirra stunda, sem við höfum átt
saman á undanförnum áram í starfí.
Finnur átti auðvelt með að sjá
skemmtilegar hliðar á dægurmálum.
Oft gafst tækifæri til þess að slá á
léttari strengi með glaðværð og létt-
um hlátri, sem gerðu verkefni og
áhyggjur líðandi stundar auðleystari.
Eftir að Finnur lauk námi við
Verslunarskóla íslands vann hann
allan sinn starfsaldur hjá Samábyrgð
íslands á fiskiskipum eða í 44 ár. Á
honum hvíldi mikil ábyrgð og flest
málefni félagsins komu inn á hans
borð, eins og oft viil verða í minni
fyrirtækjum. Hann naut alla tíð
trausts stjómar, samstarfsmanna og
þeirra útgerðarmanna, sem átt hafa
viðskipti við Samábyrgðina. Starf
tryggingamannsins er vandasamt og
byggir fyrst og fremst á trausti og
trúverðugleika. Mannkostir Finns
hafa á löngum starfsferli skapað
Samábyrgðinni nauðsynlega tiltrú
viðskiptamanna, sem hverju fyrir-
tæki er nauðsynleg í starfsemi sinni.
Nú þegar Finnur Stephensen hefur
kvatt þennan heim langt um aldur
fram, eftir harða baráttu við erfiðan
sjúkdóm, er mér efst í huga þakk-
læti fyrir ánægjuleg kynni og sam-
starf þau ár, sem leiðir okkar lágu
saman. Guðmundu, eiginkonu hans,
og bömum þeirra hjóna, sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur
við fráfall eiginmanns og föður.
Sveinn Hjörtur Hjartarson.
Munið minningarsjóð
Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17,
sími 91-687333
Erfidrykkjur
(ilæsileg kaiíi-
hlaðborð fíillegir
salir og mjiig
góð þjémistíL
Úpplýsingðr
ísíma22322
FLUGLEIÐIR