Morgunblaðið - 01.04.1993, Síða 52

Morgunblaðið - 01.04.1993, Síða 52
52 MORQUNBLAQIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL ,1993 fclk í fréttum BRETLAND Islensk list í London Myndlistarmennirnir Sigurður Örlygsson og Jón Axel halda um þessar mundir sýningu í Butlers Wharf í London, en þar hafa verið haldnar ýmsar íslenskar sýningar frá því samnorræna menningarhátíðin var haldin' í London síðastliðið haust. íslenskar sýningar eru fyrirhugaðar í Butl- ers Wharf út árið. Við opnun myndlistarsýningar þeirra Sigurð- ar og Jóns Axels spilaði breskt jassband nokkur lög. Meðfylgjandi myndir eru teknar við opnunina. Morgunblaðið/Amór Þeir mættu sjö sem enn eru á lífi af fimmtán. Talið frá vinstri: Jóhann Þorsteinsson, Sigfús Magnús- son, Reynir Guðbergsson, Guðmundur Guðmundsson, Þorvaldur Markússon, Unnar Már Magnússon og Bárður Bragason. HEIMAEYJARGOSIÐ Fundu upp þaksköfu Sigfús Magnússon afhendir Hannesi Þ. Hafstein þakkargjöf frá Björgunarsveitinni Ægi og kvennadeildinni fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum áratugum. Nýlega komu nokkrir Garðmenn saman og rifjuðu upp vinnu- ferð sem þeir höfðu farið til Vest- mannaeyja á fyrstu dögum gossins í Heimaey 23. janúar 1973. Það var Björgunarsveitin Ægir og kvenna- deild björgunarsveitarinnar sem stóðu að þessari uppákomu. Þeir voru 16 félagarnir sem fóru í þessa ferð sem farin var á fyrstu dögum gossins. Lýsing þeirra á at- burðum var oft skemmtileg en auð- heyrt á þeim félögum að þetta hafði COSPER Þú sagðist ekki koma heim fyrr en klukkan 6. Er ekki hægt að treysta þér lengur? verið erfið vinnuferð. Mikill vikur lagðist yfir bæinn og var helzta starf þeirra félaga að moka af húsþökum allan liðlangan daginn eða eins lengi og menn stóðu uppi. Þá er þeir félag- ar köstuðu mæðinni einhvem tíma kom upp sú hugmynd hvort ekki væri hægt að nota einhvers konar sköfu við þakmoksturinn. Fundu þeir sér gafl af vörubílspalli sem fyrst var hnýttur aftan við steypubíl og síðar jarðýtu, en þessar græjur voru notað- ar með góðum árangri allan tímann meðan öskufallið var. Guðrún Pétursdóttir sem hefir búið í Garðinum frá því gosið hófst þakkaði Garðmönnum fyrir hönd Vestmanneyinga. Hún sagði frá reynslu sinni gosnóttina en hún bjó í Kirkjubæjarhverfinu sem fór fyrst undir hraun. Meðal gesta á samkomunni var Hannes Þ. Hafstein forstjóri SVFÍ en björgunarsveitarfólkið heiðraði hann og þakkaði honum samstarfið á liðnum áratugum. Hannes minntist þessara annadaga en alls fóru á fimmta hundrað manns til Eyja í vinnuflokkum. Hannes lætur af störfum hjá SVFÍ um næstu mánaða- mót eftir giftusamt starf hjá samtök- unum. Hannes Hafstein þekkja allir landsmenn og leyfir fréttaritarinn í Garði sér að senda honum kveðjur frá öllum Garðmönnum. Morgunblaðið/Börkur Listarmennirnir Jón Axel og Sigurður Örlygsson ásamt Jak- obi Magnússyni menningarfull- trúa Islands í Bretlandi og list- gagnrýndanda The Times standa fyrir framan eitt verka Sigurðar. Svanhildur Konráðsdóttir fyrr- verandi ritstjóri Mannlífs, sem nú er við nám í Cantenbury rabbar hér við þá Jón Axel og Sigurð. DANMÖRK Bangsi ársins Fyrrverandi utanríkisráðherra Dana, Uffe Elleman Jensen, kom fram í danska sjón- varpinu nýlega. Þar ræddi hann meðal annars svo hjartnæmt um gamla bangsann sinn, að forsvarsmenn Danska brúðusambandsins kom- ust við og vorkenndu vesalings Uffe. Þeir drifu í því að gefa honum stóran, mjúkan bangsa og fór athöfnin fram á Kristjánsborg. Ekki er nema von að Uffe sé kátur, því nú hefur hann eignast vin, sem grípur ekki fram í þegar hann þarf að létta á hjarta sínu, né fer með það í blöðin. POPPTONLIST Kyirðardagar í Skálholti í kyrruviku 1993 Nú erfullbókað á kyrrðardaga um bænadagana, 7.-10. apríl, en enn er rúm fyrir nokkra þátttakendur á kyrrðardögum 3.-6. apríl. Dvalargjald er kr. 10.550,- Veittur er 15% afsláttur fyrir hjón. Skráning til dvalar fer fram á Biskupsstofu í Reykjavík alla virka daga kl. 10-12 í síma 91-621500. Einnig er rúm fyrir fleiri þátttakendur á páskasamveru í Skálholti 10.-12. april. Dvalargjald er kr. 7.000,- fyrir fullorðna. Fyrir börn 7-14 ára greiðist hálft gjald. Ekki er tekið gjald fyrir yngri börn. Upplýsingar og skráning i síma Skálholtsskóla: 98-68870. Þrjátíu ár í rokkinu Fólk heldur því fram að heimilis- líf sé versti óvinur listarinnar, en ég varð að ákveða hvort ég vildi verða heimilisfaðir eða hanga á næturklúbbunum í London. Ég tók ákvörðun og er sáttur við hana. Ballöður og börn, það er mitt líf,“ segir James Paul McCartney sem bráðum verður 51 árs gamall. Michael Philip Jagger, sem einnig stendur á fimmtugu, segist hins veg- ar vera alinn upp í stöðugu kapp- hlaupi. „Það er aðeins sigur sem gildir. Eina markmiðið er að verða aldrei í öðru sæti.“ ( Þessar tvær frægu rokkstjörnur eiga nú þrjátíu ára feril að baki. McCartney og Jagger eiga það sam- eiginlegt að vera forríkir og hvorug- ur er á þeim buxunum að gefa tón- listina upp á bátinn. MeCartney býr á búgarði í Sussex fyrir sunnan London ásamt konu sinni Lindu, þar sem kýr, kindur, hænsni og refir hlaupa um jarðir. Hann nærist á grænmeti því sem Linda ræktar, er hættur að borða kjöt, en fær sér glas af viskí í kók á hveiju kvöldi. Jagger býr í villu í vesturhluta New York- borgar, les viðskipta- blöðin, horfir á sportið í sjónvarpinu, gætir barn- anna þegar eiginkonan, Jerry Hall, er að leika eða sýna föt og fer snemma í rúmið með metsölubók af lista „The New York Times“. Svo lengi sem þeir geta sannað aðdáendum sínum að þeir séu ekki menn frá „Yesterday“ og geta hrifið þá með „Sat- isfaction" finnst flestum sjálfsagt að þeir haldi áfram á sömu braut. Paul McCartn- ey býr á bú- garði með Lindu konu sinni og borð- ar ekki kjöt. Mick Jagger býr í villu í New York ásamt frúnni, Jerry Hall, og les viðskipta- blöðin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.